Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 2
2
MOEGUNBLAÐIÐ
þar sest að snæðingi. Þar var glatt
á Hjalla. Yar það óblandið ánægjn-
«fni að sjá þar Dani, Finna, Norð-
menn, Svía og íslendinga hlið
vio hlið.
Sá stúdentinn, sem án efa vakti
mesta athygli við borðhaldið var
*íia Signrður Gunnarsson. Hann
er nú 82 ára, en er ungnr í anda
•og snar í hreyfingum, sem ungur
væri. — Stúdentar hrópuðu húrra
fyrir þessum gamla meVkismanni.
Skömmu eftir hádegi í gær söfn-
n'oust allir háskólakennarar sam-
an í Neðri deild Alþingis. Þar var
og fjöldi erlendra vísindamanna.
Tilefni samkomu þessarar var
það, að hinn íslenski háskóli hafði
ákveðið, að tilnefna átta Vestur-
íslendinga sem heiðui doktora.
Áður en sú athöfn hófst, fluttu
nokkrir aðkomumanna kveðjur frá
erlendum háskólum, einkum ame-
rískum.
Háskólarektor, Einar Arnórsson,
lýsti því næst ákvörðunum háskól-
ans um tilnefning heiðursdoktor-
anna, en bað deildarstjóra að skýra
Á Hótel Borg hjeldu ræður: dr.
Alexander Jóhannesson, Thor
Thors, Else Mogensen stud. med.,
sem er fararstjóri stúdentanna á
„Hellig 01av“ og med. kand. And-
ers Lysander frá Uppsölum.
Á milli ræðanna kváðu við stú-
dentasöngvar, bæði íslenskir og
erlendir. „Glaðir og reifir“ hurfu
gestimir af Hótel Borg. Kl. 8 í
gærkvöldi lögðu stúdentarnir af
stað til Þingvalla.
nánar frá. Hjeldu þeir síðan ræð-
ui og sögðu æfiágrip doktorsefna.
Þessir voru kjörnir heiðursdokt-
orar:
Dr. B. Brandsson. Sveinbjörn
Jóhnson prófessor. Joseph Thorson
þingmaður, Guðmundur Grímsson
dómari. Halldór Hermannsson
prófessor. Hjörtur Þórðarson hug-
vitsmaður, síra Bögnvaldur Pjet-
ursson og Yilhjálmur Stefánsson
landkönnuður.
Þeir Vilhjálmur Stefánsson, J.
Thorson og Hjörtur Þórðarson
hafa ekki getað komið hingað. —
Hinir voru viðstaddir.
á þrepinu framan við Kringlu í
Alþingishúsinu.
Gjöf Tjekka.
Skrautker eitt mikið afhentu
og fulltrúar Tjekkóslóvaka for-
seta Alþingis í gær. Er það hið
mesta listaverk.
Gjöf Færeyinga.
Málverkið af „íslendingatóft-
um“ er og komið hingað, en var
eigi afhent, er Mgbl. vissi síð-
ast. —
Norðmemn
hafa gefið fjölda marga gamla
íslenska muni, sem geymdir
voru á Bygdö-safninu.
Auk þess afhentu þeir að gjöf
100.000 krónur, sem leggjast
eiga í sjerstakan sjóð, er nefn-
ist „Snorra-sjóður“ og á að
verja vöxtunum af honum til
styrktar íslenskum stúdentum,
er stunda framhaldsnám í Nor-
egi. —
Gjafir Þjóðverja.
Sendimenn Þjóðverja hafa af
hent sem gjöf frá þýska ríkinu
fullkomin áhöld til vísindalegr-
ar tilraunastofu, sem á að rann-
saka alla alidýrasjúkdóma.
Ennfremur hefir Islandi bor-
ist frá þýskum vísindamönnum
bókagjöf, þar sem í eru flestar
eða allar bækur, sem gefnar
hafa verið út í Þýskalandi um
ísland. Nánari upplýsingar um
gjafir þessar hafði blaðið eigi
fengið, er það fór í prentun.
———------
Httfl Vestor-isiendingar
kjörnir helðursdoktorar víð Hásköla fslands.
Erlend ríki
Passínsálmaruir
færa Isla
Gjafir Dana.
Skömmu fyrir hádegi í gær
kom Stauning forsætisráðherra
upp í stjórnarráð ásamt Fon-
Stauning forsætisráðh. Dana.
tenay sendiherra. Hafði hann
meðferðis brjef, þar sem frá
því er skýrt, að danska stjórnin
afhendi þjóðminjasafni íslands
að gjöf um 170 íslenska gripi,
sem nú eru í þjóðminjasafni
Dana. Eru þetta gripir, sem
Matthías Þórðarson hefir farið
fram á að hingað fengjust. Enn-
fremur að Ríkisþing Dana hafi
veitt fje til þess, að gerð yrði
vönduð myndaútgáfa af Flat-
eyjarbók í svo mörgum ein-
tökum, að íslenska stjórnin geti
úthlutað myndaútgáfu þessari
til allra þingmanna, háskóla-
rektors og nokkurra manna, svo
og ísl. bókasöfnum.
di gjafir.
Afhenti Stauning útgáfu
þessa.
Forsætisráðherra þakkaði
gjafirnar með nokkrum vel völd
um orðum.
Sýning verður gerð forn-
gripunum næstu daga.
Hinni Ijósmynduðu útgáfu
Flateyjarbókar var úthlutað
meðal allra þingmanna í gær.
Gjafir Svía.
Á öðrum stað hjer í blaðinu
er minst á gjafir Svía, samkv.
upplýsingum, sem Morgunbl.
fjekk nýlega.
Forseti 2. málstofu sænska
þingsins, 'Bernh. Eriksson, af-
henti í gær gjafir þær, er hinir
sænsku fulltrúar höfðu með-
ferðis til Alþingis. Bókagjaf-
irnar eru alls um 800 bindi;
300 bindi af úrvalsritum
sænskra bókmenta, og 500
bindi, sem eru safn af sænskurn
ritum, er á einhvern hátt snerta
Island. Auk þessfullkominskrá,
samin með vísindalegri ná-
kvæmni, yfir alt, sem komið
hefir út um Island á sænska
tungu og eftir Svía.
Myndaútgáfu af Uppsala-
handriti Snorra-Eddu afhenti
hann og, en forseti sameinaðs
þings, Ásgeir Ásgeirsson, þakk-
aði hinar merkilegu gjafir.
Hið stórmerkilega skrautker,
sem hið nýstofnaða sænska ís-
landsvinafjelag í Svíþjóð gaf
hingað, var og afhent í gær.
Hafði því verið valinn staður
á dönsku.
Morgunblaðinu hafa nýlega bor-
ist þýðingar síra Þórðar Tómas-
sonar á Passíusálmunum.
Eins og almenningi er kunnugt
hafa þær verið að koma út smátt
og smátt, en fyrst er þeim safnað
saman í eina heild í þessari bók.
Mun síra Þórður hafa byrjað á
þessum merkilegu þýðingum fyrir
sex árum, en ekki lokið þeim fyr
en síðastliðinn vetur. Það mun
flestra dómur er þýðingar þeSsar
lesa að þær sjeu mjög vel af hendi
leystar. Eitt af því, sem vekur
mikla athygli á þýðingunni er að
síra Þórður heldur stuðlum og höf-
uðstöfum, svo sem í íslensku máli
væri. Útgáfa bókarinnar et einkar-
snotur. Framan við sálmana er æfi
saga síra Hallgríms Pjeturssonar
með mynd af honum.
Sira Þórður Tómasson er níundi
maður í beinan karllegg frá
síra Ólafi Guðmundssyni á Sa iða-
nesi, en síra Tómas Sæmundsson
var afi hans. Síra Þórður var áður
prestur í Horsens á Jótlandi, en
fluttist fyrir nokkrum árum til
Venetofte á Sjálandi.
Prestsetrið þar er eingöngu ætl-
að þeim prestum, sem eru skáld
og er embættið m. a. miðað við
það, að presturinn fái allrífle'gan
tíma til ritstarfa. Geta má þess að
danska góðskáldið Chr. Richard
var prestur á þessum sama stað í
sínum tíma.
Síra Þórður á hinar bestu þakkir
skildar fyrir þýðinguna og alt ann-
að, sem hann hefir fyrir ísland
gert. Ást hans til íslensku þjóðar-
innar er hrein og fölskvalaus.
■» ' -**'
Alþmgishátíöin.
Dagskrá i dag:
Kl. 9 Guðsþjónusta í Almannagjá, við öxarárfossnm.
1. Sunginn sálmurinn: Víst ert þú, Jesús, kóngur klár.
2. Biskup prjedikar.
3. Sunginn sálmurinn: Faðir andanna.
Kl. 91/2 Lögbergsganga:
Menn safnast saman undir hjeraðafánum á flötunum
suður af Gróðrarstöðinni og ganga þaðan í fylkingu til
Lögbergs. Lúðrasveit í fararbroddi, þá konungur, ríkis-
stjórn og forsetar, gestir og alþingismenn, biskup og
prestar og loks bæjar- og sýslufjelög eftir stafrófsröð.
Kl. IOI/2 Hátíðin hefst.
1.,Þingvallakórinn syngur: Ó, Guð vors lands. (Söng-
stjóri Sigfús Einarsson).
2. Forsætisráðherra setur hátíðina og býður gesti vel-
komna.
3. Kórinn syngur fyrri hluta hátíðarljóðanna. (Söng-
stjóri Páll ísólfsson).
Kl. III/2 Fundur í sameinuðu Alþingi.
1. Konungur kveður Alþingi til funda.
2. Forseti sameinaðs þings flytur hátíðarræðu.
Að loknum þingfundi sunginn síðari hluti hátíðarljóð-
anna.
Kl. 1 Máltíð.
Kl. 3 Fulltrúar erlendra þinga flytja kveðjur að Lögbergi.
Kl. 41/2 Samsöngur. (Söngstjórar: Jón Halldórsson og Páll Is-
ólfsson).
Kl. 61/2 Alþingi hefir boð inni.
Ki. 9 Islandsglíma.
Or Suður-Múlasjslu.
Rafmagnsstöðvar.
Tvær rafmagnsstöðvar voru bygð
ar hjer í sýslu síðastliðið ár, önnur
á Fáskrúðsfirði, 100 ha., til ljósa
og suðu fyrir kauptúnið; hin á
Reyðarfirði, 200 ha., til ljósa, suðu
og hitunar.
Efling skógræktar.
Á sýslufundi hjer í fyrra var
samþykt að minnast 1000 ára af-
mælis Alþingis á þann hátt, að
stofna sjóð með 5000 kr. fjárfram-
lagi úr sýslusjóði, til eflingar skóg
rækt í sýslunni. Var endanlega
gengið frá þessu máli á sýslufundi
í apríl s. 1. samþykt skipulagsskrá
fyrir sjóðinn, kosin stjórn 0. s. frv.
Er svo fram tekið í skipulags-
skránni, að tilgangur sjóðsins sje
að efla skógrækt í sýslunni og
glæða áhuga fyrir framförum á
því sviði. Skal þeim tdgangi náð
með því:
1. að veita haghvæm lán úr sjóðn-
um til þess:
a) að koma upp skrúðgörðum
heima við bæi og við hús í
kaupstöðum.
b) að koma upp skógreitum
2. að veita verðlaun fyrir framúr-
skarandi dugnað í skógrækt.
Höfuðstól sjóðsins má ekki
skerða og leggjast vextir við höf-
uðstól. Auk þe'ss leggur sýslusjóð-
ur árlega 20 kr. tillag til sjóðsins
þar til hann með vöxtum er orðinn
10 þús. krónur. Eftir það má vetja
árlega helming vaxtanna til verð-
launa ef ástæða þykir til.
(
Samgöngumál.
Annáð merkilegt nýmæli lá einn-
ig fyrir sýslunefnd. Þar var sam-
þykt að taka veginn frá Breiðuvík
í Reyðarfirði yfir Víkurheiði og
Dys í tölu sýsluve'ga, með það fyr-
ir augum að lcoma á akvegi á
milli Norðfjarðar og Eskifjarðar.
Er hjer um að ræða stórkostlega
samgöngubót, því ef þetta tekst,
kemst Neskaupstaður og 3 hreppar
í akfært vegasamband við akvega-
kerfið hje'r austan lands og væntan
legan akveg til Norðurlands. Eru
um 2000 manns á Norðfirði og ná-
gi annasveitum, sem enga færa leið
eiga á landi, nema um hásumarið
sökum snjóþyngsla á fjallvegum;
en þar sem vegurinn e‘r fyrirhug-
aður, er fjallgarðurinn svo lágur
og snjóljett, að brautin mundi
verða auð jafnlengi og vegurinn
yfir Fagradal.
FrjetUr.
Max Vallier
er nýlega látinn. Vallier er
heimskunnur fyrir tilraunir sín.;r
með rakettubílinn. Er það talið
fullvíst að hann hafi fyrstur gert
uppdrátt af honum, enda þótt ann
ar hafi heiðurinn af því að nafn-
inu til. En Vallier hefir einnig vak-
ið athygli almennings fyrir þann
undirbúning sem hann hafði hafið
til þess að komast til tunglsins.
Var hann sannfærður um að eftir
nokkur ár mætti takast að komast
þangað. — Vallier ljest með þJm
hætti að raketta sprakk nálægt
honum og kveikti eld í fötum hans
og brann hann til bana.
Grænlandsleiðangur.
í sumar efnir ameríkaninn Toll-
coat til leiðangurs til Grænlands.
Hefir hann í þeim tilgangi leigt
skipið „Nordkap 2“ í Tromsö og
ráðið skipstjóra á því Isak ísaks-
son, sem áður liefir ve'rið í ferðum
með Byrd. Auk Tollcoat verða í
feiðinni 12 yngri amerískir vísinda
menn, en sjálfur verður hann for-
ingi fararinnar. — Fara þeir fyrst
til Spitzbergen, en halda síðan til
Austur Grænlands og koma við þar
á nokkrum fjörðum.
—-——■—