Morgunblaðið - 26.06.1930, Side 5
Fimtudaginn 26. júní Í930.
5
Kveðjnr til Islands.
Langt í fjarlægð fyrir tíu öldum
frumherjar sjer numið höfðu land,
land, sem girtu höf með hrönnum köldum
er hávamálin kváðu æ við sand, —
land, sem rjetti himni hvíta tinda
og heita kysti vorsins morgunsól,
þá landsins dísir blóm sjer gerðu binda,
blómin, sem þar uxu i dal og hól.
Og þetta land var ísland okkar kæra. —
Áar vorir frægu stóðu ]>ar
á vellinum við vatnið Öxár tæra,
vitrir höfðu stefnt til fundar þar.
Að byggja land með lögum þótti sæma,
því lýðvéldið var hvítvoðungur enn;
til að sækja sök, að verja og dæma
þeir sína ætíð völdu bestu menn.
Og þing var sett und himinboga heiðum
og handsöl voru bæði traust og mörg.
Frelsis gyðjur Ijeku á austurleiðum
lög, er endurkváðu stuðlabjörg.
Nú voru fyrstu frelsis þættir snúnir
framtíðinni og allrar þjóðar hag.
Tíminn hefir geymt þær „góðu rúnir“,
sem göfugmennin ristu oss þann dag.
Þjóðin mín, með þrótt og sterkan vilja
þúsund ára staðið hefir próf.
íturmennin ætíð virtust skilja
og enginn þeirra pund í jörðu gróf;
þeir stóðu á verði um niflheims vetrar nætur
á náströnd þrauta bitrust drukku full. —
En — Muspellsheimur — sumars var þeim sætur
þá sólin breytti öllu í lýsigull.
Vjer, sem hjer frá vestur ströndu mænum
vonar augum heim til þín i dag,
og í okkar hjartans barna bænum
biðjum guð, þjer snúist alt í hag. —
Munið bræður, minnist systur góðar
að menning treystir venslaböndin sterk,
við erum hjer, sem þingmenn vorrar þjóðar,
það er okkar heilagt skylduverk.
Á sævarströnd mjer svífa Ijóð af munni,
sonar kveðja, er hjartað eitt til bjó,
til landsins, sem að ungur fyrst jeg unni,
þar æsku vonin gullna hörpu sló.
Heim, ó, heim, það halla tekur degi. —
Jeg hefi ei gleymt þjer, kæra feðra storð,
við sólarlag míns lífs þá höfuð hneigi,
jeg helga þjer mín fyrstu og siðstu orð.
ÞORSTEINN M. BORGFJÖRÐ,
Olympia, Washington.
Samband ungra Sjálfstæðismanna
stofnað á Pingvöiium á morgun.
Hátt í norðri þar sem þylur
þrotlaust kvæði Ægir blár,
þar sem bjargið græði ginta
geymir sögu um þúsund ár.
Þar sem hetjur Bddu ólust
og á vörum sjerhvers manns
lifa fornra sagna svipir,
svífa fyrir augum hans,
Hvar sem hraunflóðshrannir
stre'ymdu,
hvar sem bjartur tindur rís,
hvar sem vellir grænir gróa,
gnæfir klettur, blikar ís.
Þar setn Geysir ólmur ólgar
eins og gíni Heljarkverk,
þar sem foldar frumöfl tira,
fánýt sýnast manna vekk,
er úr myrkum undirdjúpum
opinn gígur logum spýr —
þar sem eldfjöll þungbrýn sofa,
þar sem dauðinn undir býr —
hjer á þúsund þrauta árum
þjóðin geymdi helgan arf,
hjer við erlent ok og kúgun
aldíei frelsislun&m hV'árf,
hjer að þrotnum þúsund árum
þenur Islands haukur flug,
miðnætur- og morgungeislum
móti ber hann frölsisdag,
þegar hundrað þúsund brjóstum
þruma gleðisöngvar frá:
„Frelsi, frelsi, helga hugsjón“ —
hljómar yfir land og sjá —
þangað far þú, ferðamaður
farðu, þýska bræðrasveit.
„Eining, rjettur, allra frelsi“
ísland líka á skjöld sinn reit.
Er þú handtak, orð og búning
íslendinga kenna mátt,
lítur bjarta menn og mikla,
meyja fegurð, rausnarhátt,
Trygglynt skap og hreinlynd
hjörtu,
heiðarlega og glaða þjóð,
finnurðu innst í þeirra þeli
þýska sál og frænda blóð.
Eins og systkin ykkur tengja
fsafold og Þýskaland,
sömu örlög, sömu vonir,
sama bló'ð og æftarband.
Svo sem þýski örninn aftur
upp mun svífa um himinlind,
íljúgðu, fsland hvíti haukur,
hátt og djarft á frelsistind.
Tileinkað íslandi á 10®0 ára af-
mæli Alþingis.
Gustav Buchheim.
Magnús Ásgeirsson þýddi.
Ingolf, der das Land ,genommen‘,
Grimur Geitskór, der sie fand
Diese Thingsatt so willkommen,
Sind fúr immer wohlbekannt.
Alt und heilig ist der Boden,
Wo der Lögberg sich erhebt,
Wo vor tausend Jahren Goden
Schufen, was nicht úberlebt.
Hier wurde Gesetz gesprochen,
Man erhielt auch rasch Bescheid,
Und wer Unrecht hat verbrochen,
Busse von der Obrigkeit.
Buden standen festgefúget,
Reich geschmúckt mit Weberei’n,
Wo man dichtend sich vergnúget
Oft bei Methorn und Schalmei’n.
Spalten tief im Wasser spiegeln,
Wo die Mdrchen flug’s entsteh’n;
Die dann Skalden bass besiegeln
Und stets júnger aufersteh’n.
'iele gab’s nach alter Sitte,
Ball- und Ringspiel, wie noch
heut,
Pferdekampf und Pferderitte,
Einigkeit und Streitigkeit.
Islands Falke in den Lúften
Uber Thingvellir noch schwebt
Uber Triften, úber Klúften:
Isafold, es lebt und strebt.
Von der Donau blauem Strande
Grússt Dich eine Wiener Schar,
Die durch treue Liebesbande
Dir verbunden immerdar.
Dr. Hans. Frhr. v. Jaden.
Eftirfarandi kveðju hefir FB
verið beðin að koma til blað-
anna:
Herra prófessor Ágúst H.
Bjarnason, Reykjavík.
Sem forseti háskólafjelagsins í
Schleswig-Holstein leyfi jeg mjer
hjermeð að senda íslensku þjóð-
inni og þingi hennar bestu ósk-
ir í tilefni af þúsund ára afmæl-
ishátíðinni, fyrir hönd fjelagsins
og mína. Við þetta tækifæri
minnumst vjer með þakklæti
þátttöku íslendinga % þýsk-nor-
rænu vikunni. Útkoma hins þýska
hátíðarrits, sem háskólafjelagið
hefir gefið -út í tilefni af rikis-
afmæli lslands, mun enn á ný
votta íslenskri þjóð hreinskilinn
áhuga okkar fyrir náinni and-
legri samvinnu milli íslands og
Þýskalands. Jeg leyfi mjer að
biðja yður, próf. Ágúst H.
Bjarnason, að færa forsætisráð-
herranum og þinginu hamingju-
óslc þessa með þeim hætti, sem
yður þykir viðeigandi.
Dr. Schifferer,
forseti Háskólafjelagsins í
Schleswig-Holstein.
íslendingum öllum sendi jeg
hu.gheilar hamingjuóskir í tilefni
af 1000 ára alþingishátíðinni, og
óska landi og þjóð allrar farsæld-
ir um ókomnar aldir.
Með alúðarfylsty, kpeðjfim.
Ludvig David.
í vetur og í vor hefir færst
mikið fjör í fjelagsskap ungra
Sjálfstæðismanna víða um land.
Meðlimum þeirra fjelaga ungra
Sjálfstæðism. er til voru hefir
fjölgað stórkostlega, og mörg
ný fjelög og efnileg hafa verið
stofnuð. Auk þess er nú mjög
víða í ráði að stofna slik fjelög.
Verða sum stofnuð í sumar og
og önnur í haust.
Hingað til hefir ekkert fast
samband verið milli hinna ein-
stöku fjelaga ungra Sjálfstæðis-
manna. Þau hafa skifst brjef-
um á og annað þess háttar, en
sjaldan haft tækifæri til að
halda sameiginlega fundi um á-
hugamál sín eða vinna að þeim
í sameiningu. Úr þessu vilja
ungir Sjálfstæðismenn nú bæta.
Hafa mörg fjelög þeirra ákveðið
að stofna samband sín á milli.
Er það mikið gleðiefni, því vafa-
laust getur slíkt samband stuðl-
að mjög að eflingu einstakra
fjelaga ungra Sjálfstæðismanna
og orðið Sjálfstæðisflokknum í
heild hinn mesti styrkur.
Stofnfundur þessa sambands
verður væntanlega haldinn á
Þingvöllum kl. 8 að morgni,
föstudaginn 27. júní. Ætla full-
trúar hinna einstöku fjelaga er
sambandið stofna að koma sam-
an þá við tjald fjelagsins Heim-
dalls, sem er nr. 13 við L-götu
í tjaldborg Reykjavíkur.
Torfi Hjartarson lögfræðing-
ur, hefir boðað til þessa fundar
og sjeð um nauðsynlegasta und-
irbúning undir hann. Mun hann
leggja frv. til laga sambands-
ins fyrir fundinn. Frv. þetta
geta fulltrúar fjelaganna feng-
ið í tjaldi Heimdalls á Þing--
völlum í dag. Ef fulltrúarnir
kynnu að vilja fá frekari upplýs-
ingar um fundinn, geta þeir
fundið Torfa Hjartarson í tjaldi
Heimdalls kl. 6 —8þ4 í dag.
Meðal fulltrúanna, sem fje-
lögin senda á stofnfund sam-
bandsins er Morgunblaðinu
kunnugt um þessa:
Frá fjelagi ungra Sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum:
Stefán Árnason,
Jónas Jónsson,
Páll Eyjólfsson,
Hinrik Jónsson.
Frá Stefni í Hafnarfirði:
Ásgrímur Sigfússon,
Gunnar Sigurjónsson,
Stefán Sigurðsson,
Valgeir Guðlaugsson,
Árni Matthiesen.
Gunnar E. Benediktsson.
Sigurður Magnússon,
Jón Þórarinsson.
Frá Heimdalli í Reykjavík:
Magnús Thorlacius,
Stefán Jónsson,
Carl D. Tulinius,
Kristján Skagfjörð,
Thor Thors,
Unnur Magnúsdóttir,
Sigurður Þorkelsson,
Pálmi Jónsson,
Steinunn Sveinsdóttir,
Þorgrímur Sigurðsson,
Guðm. Benediktsson,
Guðni Jónsson,
Gunnar Thoroddsen,
Ólafur H. Jónsson,
Jóhann G. Möller,
Kristján GuÖlaugsson,
jcjinar Asmundsson,
bigíús Sighvatsson.
bra íjelagi Ungra Sjaiistæóis
manna í Borgarnesi:
Sigurður Jóhannsson,
Bjorn G. Björnsson,
b'nörik Þórðarson.
rra Sjálistæðis- og framíara-
íjeiagi Hnappdælinga:
Sigurður Arnason frá Stóra-
Hrauni.
Frá Sjálfstæðis- og fram-
íaraíjelagi Olafsvíkur:
Ágúst Ólason.
Frá Skyldi í Stykkishólmi:
Lúðvíg Kristjánsson.
Frá Óðni á Flateyri:
Sturla Ebenezersson.
Frá Fylki á Ísaíirði:
Sigurður Auðuns,
Kjartan Ólafsson,
Einar Steindórsson.
Frá fjelagi ungra Sjálfstæðis-
manna á Sauðárkróki:
Eysteinn Bjarnason.
Frá fjelagi ungra Sjálfstæðis-
manna á Siglufirði:
Sigurður Björgólfsson.
Frá Verði á Akureyri:
Árni Sigurðsson,
Kristján Steingrímsson.
Einar Bjarnason.
Auk þessara fulltrúa, er hjer
eru taldir, er búist við nokkrum
mönnum í viðbót, en Mbl. eru
ekki enn kunn nöfn þeirra. Auk
aðalfulltrúanna hafa mörg fje-
Iög kosið varafulltrúa. Fulltrúa-
hópur þessi er hinn glæsilegasti.
Vill Morgunblaðið nota tækifær
ið til þess að óska þessum ungu
mönnum til hamingju með fyrir-
tæki sitt. Er það gleðilegt, að
það skulu einmitt vera æsku-
mennirnir, sem nú fylkjast harð
ast undir merki Sjálfstæðis-
flokksins.
—------------------
Gjafir Svía.
í tilefni af Alþingishátíðiimi.
1 tilefni af Alþingishátíðimn
gefa Svíar íslendingum þessar
gjafir:
Ljósmyndaútgáfu af stórmerku
Eddu-bandriti ,sem geymt er í bá-
skólabókasafninu í Uppsölum, þar
sem litprentuð er „lýsing“ liand-
ritsins.
Fullkomið safn af öllu því sem
ritað hefir verið frá öndverðu á
sænsku um ísland.
Urval sænskra bókmenta frá því
um síðustu aldamót — um 800
bindi.
Ennfre'mur færir Roos landshöfð
ingi íslandi merkilegt skrautker
frá Gustafsbergsverksmiðjunni sem
gjöf frá hinu nýstofnaða íslands-
vinafjelagi í Stokkhólmi. Skraut-
ker þetta hefir Vilh. Koge teiknað,
og er það að allra dómi hið me'sta
listaverk.
Upphlaup í fangelsi.
Rangoon: Fangarnir í aðal-
fangelsi borgarinnar gerðu til-
raun til þess að brjótast út, en
ögregluhermennirnir hófu skot
hríð á fangana. Fjörutíu fangar
og tveir varðmenn biðu bana.
Sextíu fangar sæ'rðust.
"■*