Morgunblaðið - 01.07.1930, Side 3

Morgunblaðið - 01.07.1930, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ S Erlendar símfregnir. London (UP), 30. júní FB. Frá Indlandi- New Dehli: Motilar Nehru, forseti alindversku þjóðernis- sinna ráðstefnunnar, hefir ver- ið handtekinn, og sömuleiðis Sayeed Mahmud, skrifari sam- kundunnar. Þeir voru handtekn ir í Allahabad. Stórflóð í Japan. Tokio-: Fregnir frá Shimane- ken-svæðinu herma, að mikill vöxtur hafi hlaupið í árnar, að Undangenginni mikilli úrkomu. Flóð hafa valdið miklu tjóni. Hús, brýr og vegir hafa eyði- lagst víða um sveitir. Tjónið af flóðunum er áætlað átta hundr- nð þúsundir ster.lingspunda. — Margt manna hefir farist, en að svo stöddu verður eigi sagt hve margir þeir eru. Pingmannaveisla í Hótel Borg. 1 gærkvöldi hjelt þingmanna- sambandið veislu' í Hótel Borg. Voru þar saman komnir allir þeir fulltrúar er sóttu þing- mannafundinn, ásamt hinum ís- lensku þingmönnum. Sest var þar að borðum kl. 7. Margar ræður voru þar haldnar og mikill gleðibragur um hönd hafður. Ásgeir Ásgeirsson er formað- ur hinnar íslensku deildar þing mannasambandsins. — Stýrði hann samsætinu. Þessir hjeldu ræður: Eric Hallin sænskur þingmaður, for- maður sænsku deildar þingm.- sambandsins. Þakkaði hann mót- tökurnar hjer og lýsti því hvaða áhrifum hann hefði orðið fyrir hjer. Fyrv. forsætisráðh. Norðm., Lykke, talaði fyrir minni ísl. kvenna. Var gerður sjerlega góð ur rómur að máli hans. Ólafur Thors svaraði með afar snjallri ræðu. Alf Mjöen, liðsforingi norskur, talaði um ísl. glaðværð og söng, og bað menn syngja. Var svo gert, þá og oftar. Og foringi bænda- fiokksins norska, J. Hindseid, talaði um framkomu Islendinga á Þingvallahátíðinni. Var ræða hans eftirtektarverð, og mun hennar minst síðar. Auk þessara töluðu þeir Sig. Eggerz og Jón Baldvinsson og Jónas Jónsson nokkur orð. Dans- inn dunaði á Borg er blaðið fór í pressuna. » Hveruig lílst Atlendingnm á Island? Ummæli nokkurra erlendra heiðursgesta. Veðrið hefði verið ískyggilegt til að byrja með, dimt og rigning. En veðrið fór batnandi alveg eins og fyrir því hefði verið sjeð, að bjartara yrði yfir hátíðinni og hugum manna, eftir því sem lengra leið. Hátíðin hefði verið framúrskarandi — en þannig fyrir komið, að teflt hefði verið á tvær hættur. Hann lýsti að endingu fram- taki íslendinga á síðari árum, og hve samkepnisfærir þeir væru á sviði verslunar og annara at- vinnuvega. Það þektu Norðmenn manna best. Hann óskaði Islend- ingum til hamingju með fram- farir síðustu ára — og að fram- takshugur þeirra mætti vel dafna. Bruni. Bærinn að Miklaholti brennur. Fólk bjargast. Ræða Stannings forsætisráðherra Dana í Ioka- veislu Alþingishátíðar. I veislunni á Hótel Borg á sunnudagskvöldið flutti Staun- ing forsætisráðherra Dana ræðu. Hann þakkaði ánægju þá, sem honura hefði veist, með því að taka þátt í Alþingishátíðinni. Talaði um samband þjóðanna, Dana og Islendinga. Báðar þjóð irnar gætu ýmislegt af hinni lært — og svo hefði verið. Þó íslendingasögur hermdu um ófrið, deilur og vígaferli, þá mætti að rjettu lagi nefna Is- lendinga mestu friðarþjóð heimsins. Nú væri það svo, að þjóðirn- ar væru á þremur mismunandi stigum í hermálunum. Sumar þjóðirnar væru enn í vígamóð. aðrar væru að hugsa um að leggja niður vopnin. I þeim flokki væru Danir. En sumar þjóðir hefðu þegar afvopnast. Fremst stæðu Islendingar, því að þeir hefðu aldrei neinn her- inn átt, og hefðu lýst yfir ævar- andi hlutleysi. Hann mintist að lokum á endurminningarnar frá söguöld Islands, er fljettuðust saman við hina stórfeldu Þingvallahá- Líð. Um þann grunntón íslenskr- ar löggjafar og grundvöll hins íslenska lýðveldis, að hver mað- ur skyldi njóta fulls frjálsræðis, í samvinnu við samborgara sína. Saga íslands sýndi það ljóslega, að þjóðin myndi aldrei villast út í ófærur fascisma eða einræðis á nokkurn hátt. I þingveislunni í Hótel Borg í fyrrakvöld ljetu margir hinna útlendu gesta í ljós álit sitt á þjóð *>g landi og sögðu frá því hvernig þeim hefði líkað að sækja Islendinga heim. Birtum vjer hjer útdrátt úr ræðum sumra þeirra, og sýna þær hvern hug þeir bera til Alþing- ishátíðarinnar og Islendinga yf- irleitt. Forseti sænska þingsins, B. Eriksson sagði að Svíar væru hreyknir af því, að þeir skyldu geta haldið 500 ára afmæli þings síns hátíðlegt árið 1935. — En hversu mikið gætu Islendingar ekki verið stoltari yfir sínu þingi sem væri meira en helmingi eldra. þær þjóðir skildu tilverurjett smáþjóðanna, og væru honum vinveittar. Fyrir hönd þýsku fulltrúanna talaði Herm. Hoffmann, yfir- kennari. Ræða hans var fjörug. Hann lýsti í fám orðum fegurð landsins, og manndómi þjóðar innar, lýsti áhrifum hinna björtu júnínótta. Hann dáðist að hinum skipulega undirbúningi hátíðar- innar, og harmaði, hve lítið hann hefði getað sjeð af landinu. — Lítið hefði hann lært í íslensku, en nægilegt til þess að segja: „ísland lengi lifi.“ Fyrir hönd sendinefndar Kan- ada talaði dr. B. Brandsson. - Hann talaði um, að hin sænska Ræða hans var sköruleg. Hann j • i / / />/ og íslenska þjóð ætti margs að lýsti því í fáum orðum, á hvern minnast sameiginlega. Fornsaga hatt hatlð læssi raundi &eta haft þeirra væri samfljettuð. Tunga niJO«' raikIa hyðlngu fyrir Þjóð' sú, er hann hefði heyrt hjer ma “ en^u ramni en hin fyrri talaða undanfarna daga, hefði eitt sinn verið töluð í Svíþjóð. hátíð 1874. Hjer hefði margt stórmenni komið, margir áhrifa- menn stórþjóða kynst Islandi í Hann kvaðst þess fullviss, að fyrgta ginni Qg gú viðkynning er hann Óskaði hinni íslensku mundi verða ísiendingum til þjóð allra. heilla, þá talaði hann mikijg gagns og blessunar í fram ekki einasta fyrir munn hins j.iðinni sænska þings og stjórnar, heldur. Hann Qg nokkur org um væri það innileg ósk hinnar þjóðarbrotið vestrE; sem dreift sænsku þjóðar, að Islendingum Qg oft gun(Jrað yegna ógam_ mætti sem best farnast í fram- lyndig En hátí6 gem þegsi hefði tíðinni. | mikij dhrif d hugi manna þar til j heimalandsins, styrkti þá í þjóð- ernisbaráttunni, örfaði þá til ein- drægni innbyrðis. Hann kvaðst hafa bjargfasta trú á því, að mikill og gagnlegur gróður ætti eftir að spretta af íslenskum fræjum þar vestra. Dagbök. Sunnudaginn 22. þ. m. brann bærinn að Miklaholti á Snæ- fellsnesi. Var það torfbær, eign Magnúsar bónda Sigurðssonar. Eldurinn munhafakomið upp þannig, að neisti hefir hrokkið úr reykháf í torfþakið. Var bóndi ekki heima og engir aðr- ir en blindur maður og kona hans, sem nýlega hafði fengið slag, og börn. Frá næstu bæjum varð elds- ins vart og kom fólk til hjálp- ar. Tókst þannig að bjarga fatnaði og innanstokksmunum. En bærinn brann allur nema eldhús. Ekkert var vátrygt, svo að tjónið er tilfinnanlegt fyrir bónda. En hann var hjá fje, þegar þetta gerðist, og sá ekki til bæjar. Kona hans, sem er ljósmóðir, var heldur ekki heima. Skeiðið á Bola&ási Konungur gefur silfurbikar eiganda hestsins, sem sigraði.. Þá talaði Hakkila varafor- seti í þingi Finna. Mælti hann fyrst nokkur orð á finsku, og munu fáir hafa skilið hann. — Kvaðst hann hafa viljað láta samkomuna heyra finska tungu — en talaði síðan á sænsku. Hann gat þess meðal annars, að Finnar hefðu öðlast sjálf- stæði sitt sama ár og Islend- ingar, 1918. Margt væri annað líkt í sögu þessara tveggja þjóða. Það hefði verið sjer ó- blandin ánægja, að vera á há- tíð Alþingis, m. a. vegna þess, að hann hefði hjer kynst því, hvernig smáþjóðin íslendingar hefðu getað varðveitt sjálfstæði sitt. Og þátttaka stórþjóðanna í hátíð þessari bæri vott um, að Þá flutti fyrverandi forsætis- ráðherra O. Lykke kveðju frá Norðmönnum. Hann gat þess í upphafi, að fulltrúar þeir, sem komið hefðu á hátíðina, fyrir hönd norska þingsins, hefðu orðið að fara á laugardaginn, því tæki hann hjer til máls. Hann hóf mál sitt síðan með því að lýsa hátíðinni, og því hve framúrskarandi vel hefði verið fyrir öllu sjeð, og skipulag gott. Áður hefir verið sagt frá kappreiðunum á Bolabás, en þá var ekki fenginn fullnaðardóm- ur um skeiðhestana. En hann fjell á þá leið, að ,,Val“ (eig- andi Axel Hallgrímsson á Grímsstöðum á Mýrum) voru dæmd fyrstu verðlaun, 1000 krónur. Önnur verðlaun fjekk „Stígandi“ Jóns Pjeturssonar frá Eyhildarholti, 400 krónur; þriðju verðlaun fjekk „Logi“ Matthíasar Jónssonar á Skarði í Gnúpverjahreppi, 250 krónur; fjórðu verðlaun fjekk „Sjúss“ Ferdinands Hansens í Hafnar- firði, 150 krónur; fimtu verð- laun fjekk „Hringur“ Bjarna Eggertssonar frá Laugardælum, 100 krónur. Að kappreiðunum loknum af- henti konungur Axel Hallgríms- syni, eiganda „Vals“, silfurbik ar frá sjálfum sjer til verð- launa. Var konungur mjög hrifinn af skeiðinu. Væri vel til fundið, að landið gæfi honum góðan skeiðhest til minja um komu hans hingað að þessu sinni. Er óvíst, að önnur gjöf yrði honum kærkomnari. □ Edda 59307111 — H.\ V.\ S.\ V.\ heim.\ □ VeðriíJ (mánudagskv. kl. 5): Vestan við Bretlandseyjar er víðáttumikil lægð á hægri hpeyf ingu austur eftir og veldur hún fremur hægri sunnanátt ,og nokkurri rigningu um Bretlands eyjar og alt norður um Færeyj- ar. Mun hún sennilega ná til suðausturhluta íslands í riótt eða á morgun. Yfirleitt er hægviðri og frem- ur hlýtt hjer á landi; á N- og NA-landi er víða þoka, en tir- komulaust. 1 Yfir landinu er smálægð, sem mun haldast á morgun, og get- ur hún víða valdið skúrum. Veðurútlit í Rvík í dag: N- og NV-gola. Úrkomulaust að mestu. en þó nokkur hætta á skúraleiðingum. Ræðismaður Itala hj er, Cbr. Zimsen, hefir beðið Mgbl. að geta þess, að fulltrúar ítalri, er hingað komu á Alþingishátíð- ina, hafi tilkynt sjer það, áður en þeir fóru, að þeir tækju sjer far með Botníu heimleiðis. Pjetur A. Jónsson óperu- söngvari syngur í dag kl. 4 I Nýja Bíó. Söngskráin er fjöl- breytt að þessu sinni; eins og venjulega syngur hann mörg óperulög, svo sem aríu úr Tosca, Afrikanerin, Bajazzo og Trou- badour, og auk þess mörg ís- lensk lög; þar á meðal nýtt lag eftir Árna Thorsteinsson, sem heitir „ísland, vort land“. Ef nokkuð má marka af hrifnirigu og fögnuði áheyrenda yfir song Pjeturs á söngpallinum í Al- manriagjá á Alþingishátíðinni, verður vissulega troðfult hús i dag hjá þessum vinsæla söngv- ara okkar. Gustav Adolf ríkiserfingiSvia hjelt heimleiðis í gær kl. ^ á herskipinu Oskar II. Þann stutta tíma sem ríkis- erfinginn dvaldi hjer gerði hánn sjer mikið far um að kynnast landi og þjóð. — Skömmu áður en hátíðinni lauk á Þingvöll- um lagði hann upp í ferðalág austur um Árnes- og Rangár- vallasýslur. Ríkiserfinginn fór yfir Þing- vallavatn með nýja lystibátnum og til Kaldárhöfða. Þar biðu bíl- ar eftir honum og samferða- mönnum hans, sem fluttu þá til Sogsfossa og Þrastalundar. Var þar snæddur morgunverður. — Síðan var haldið að Gullfossi, sem ljómaði í óviðjafnanlegu litskrúði, en þaðan að Geysi og að lokum aftur til Þrástalund- ar. Frá Þrastalundi hjelt ríkiserf inginn ferðinni áfram að Hlíðar enda í Fljótshlíð. Á leiðinni aft ur til Reykjavíkur skoðaði hann hið nýja mjólkurbú Flóamanna og leist mjög vel á það. 1 fyrri- nótt var hann við laxveiði í Elliðaánum og varð fengsæll. I gærdag, áður en hann fór um borð, skoðaði hann sqfn bæjar- ins: Þjóðminjasafnið, náttúru- gripasafnið, safn Einars Jóns- sonar og listsýninguna. Auk þess sænska frystihúsið. Ríkiserfinginn var mjög á-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.