Morgunblaðið - 07.10.1930, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.10.1930, Blaðsíða 5
Þriðjudaginn 7. okt. 1930. 6 1.101, stærsta loftlar Breta, terst 09 46 menn bíða bana, þar á meðal lofíferðaráðherra Ðreta, Thompson, en 8 komust lífs af. ------' i ing£ m Loftfarið fjell til jarðar aðfaranótt sunnudags, við Atlone í Frakklandi, nokkuru norðan við París, og brann til kaldra kola. Ósamkynjá*tilgátur um hvað olli slysinu. Ferðinni var heitið frá Englandi til Indlands. Hafði loftfarið lagt af stað frá London á laugardagskvöld. Loftfarið R 101 í skála sínum. London, UP. 5. okt. FB. Stærsta loftskip Breta, ,.R 101“, sem smíðað var til þess, að vera í Iangferðum milli Englands, Iud- lands og Ástralíu, lagði af stað frá London klukkan 7,36 á laugardags- kvöld, áleiðis til Karachi á Ind- landi. í loftfarinu voru 5 yfirforingj- ar og auk þeirra 37 manna skips- liöfn. Farþegar voru 11. Þar á meðal Thompson lávarður, flug- málaráðherra Breta, og flugmála- stjóri, Sir Sefton Brancker. Lofffarið átti hvergi að hafa viðdvöl á leiðinni, nema í Egypta- landi. Var búist við, að ferðin til Lidlands tæki 6 daga, Loftfarið kemst ekki lengra en spölkorn inn yfir Frakkland. Við þorpið Atlone sjest til þess að- faranótt sunnudags. Þar flýgur það lágt, fellur til jarðar og brennur. Fjörutíu og sex menn farast í eldinum, en átta komast lífs af — skaðbrendir, Ósamkynja fregnir hafa borist um aðdragandann að slysinu, get- gátur og fullyrðingar, sem eigi er liægt að samræma á þe.ssu stigi málsins. Ein fregnin segir, að -sprenging hafi orðið í loftfarinu, mcðan það var á flugi, en önnur fregn hermir, að loftfarið hafi snögglega lækk- að á fluginu, rekist á hæð eina og við áreksturinn hafi orðið sprenging, og liafi logana frá mót- orunum lagt aftur eftir loftfarinu svo það lxafi alt staðið á svip- stundu í björtu báli. I 4 Frásögn sjónarvotta. Enskur maður að nafni, George Darling frá Leeds var á ferð í bif- reið skamt frá, þar sem loftfarið j fjell niður. Mælt er. að hann liafi verið fyrstur aðkomumaður þang- að. Hann kvaðst hafa komið auga á loftfarið rjett í því bili, að það nam við jörð. En um leið og það rakst. á hæðina við Atlone, kvikn- aði í því, og stóð það á svipstundu í ljósum loga. Þrír menn stukku út xir loft- farinu í þessum svifum. Voru það þeir vjelfræðingarnir Leack og Bell og maður að nafni Binks. F.vrst í stað æddu þeir um sem óðir væri vegna sársauka af hrunasárum. En er þeir höfðu átt- að sig, bjuggust þeir til að vaða inn í hið brennandi loftfar. Segist Darling liafa reynt að aftra þeim, en ekki getað það. En er til kom, urðu þeir að snúa aftur, því það hefði verið bráður bani vís. að vaða inn í bálið. Er eldhafið rjenaði nokkuð, áræddum við að fara inn í hið hálfbrunna loftfar, og inn í fyrsta farrými. Það var tiltölulega lítið brunnið, og var lítt af sjer geng- ið. — Klukka var þar til dæmis óskemd, og gekk enn, eins og ekkert hefði skorist. Hitinn var þó þarna svo mikill, að við urðum brátt að hverfa aftur. Nú varð önnur sprenging í loft- farinu. Á öðru farrými var alt brotið og breut, og verður því ekki með orðum lýst, sem þar bar fyrir augu vor. Hvað eftir annað reyndum við að koma farþegunum þar til bjarg- ar, uns það loksins tókst að kom- ast þangað. En þá voru þar allir látnir; höfðu svo að segja brunnið fyrir augum vorum. Voru líkin liroðalega útleikin í hálfbrendri káetunni.. ♦ Því voru mótorarnir stöðvaðir? Leach heldur því fram, að yfir- maður loftfarsins hafi gefið þá skipun rjett áður en slysið bar að, að stöðva skyldi alla mótorana. Var þeim vjelamönnum þá ljóst, að eitthvað var að. En áður en þeir gátu áttað sig, hafði loftfarið rekist á hæðina og stóð þegar í björtu báli. Þeir búast við, að einhverjir af yfirforingjunum hafi verið komn- ir inn á annað farrými til þess að verða þar farþegum til aðstoð- ar, áður en þeir ljetu líf sitt. Leach heldur því fram, að loft- farið Iiafi alf í einu lækkað flugið, en er gerð var tilraun til að hækka flugið aftur, þá hafi loft- farið þverbrotnað um miðju. ) Leach segir frá, hvað þeim varð til lífs. Við erum sammála um það, segir Leach, að sprenging varð engin, fyrri en loftfarið lenti á hæðinni. N'egna þess hvað veður var hvast, lagði logann frá mótorunum óð- fluga aftur eftir loftfarinu. Varð það okkur til lífs, að vatnsgeymir, sem vár rjett lijá okkur, sprakk. Urðum við hold 'otir í svip, og stukkum því næst lit úr loftfarinu. Við Vurum allir í sv fni, nema einn maður er stóð og rakaði sig. Leach heldur því fram, að lík- lega verði aldrei sagt með vissu, hvernig slys þetta vildi til. Harðvlðarhirðlr (origonpine) með birkiviðarspjöldum frá „Donartiiren Werk“ er nýjasta, fallegasta og besta hurðagerðin. „Donartiiren“-hurðir gisna ekki, og fleiri kostir fram yfir aðrar hurðir, eru auðsæir, hvort heldur á að tpála þær, bæsa eða „lakkera”. — Karmar, listar og góðar skrár, ásamt öllu tilheyrandi, fæst með hurðun- um eftir óskum. DONAR-TUREN-WERK G. m. B. H. Aðalumboðsmaður Jón Loftsson, Austurstrœti 14. Sími 1291. Raivlrklar. Sameiginlegan fund, til að kjósa prófdómara fyrir Rafvirkja og Rafvjelavirkja, halda fjelög Rafvirkjameistara og Rafvirkja í Reykjavík, miðvikudaginn 8. þ. m., kl. 8 e. m„ í stofu R. V. R. Öllum, er vinna að rafmagnsiðn í Reykjavík, er hjer með boðið á fundinn. Iðnráðsfulltrúinn. Jeg undirritaður hefi opnað 1. fl. saumastofu í BankasM 10. (Áður skrifstofur Jóh. Ólafsfeonar og Co. — Inngangur frá Ingólfsstræti). Kápur og kjólar saumaðir eftir nýjustu tísku — alls konar viðgerðir og pressun — fljótt og vel af hendi leyst. Á saumastofu minni vinna einungis vandvirkar og þaulæfðar stúlkur, sem hafa unnið hjá þektum klæðskerameisturum erlend- is, til dæmis N. N. Morsgaard — Sigurði Halldórssyni o. fl. Árni Jóhannsson, (dömuklæðskeri). Alþmgiskátiðin í myndnm Ágætar stereoskop-myndir frá Alþingishátíðinni: 25 myndir ásamt stereoskopi fyrir 15 krónur. fást í Bókaversliin Siyiúsar Eymnnóssonar. Bókf ærsla. Tveir geta enn komist að, gefi þeir sig fram fyrir 10. þ. m. JÓN SIVERTSEN. skeið í viðskiftareikningi, sem öllu verslunarfólki er nauðsynlegur. — Umsóknir fyrir næstu helgi. JÓN SIVERTSEN. SaltkJOt. Eins og undanfarin haust fáum við mikið af saltkjöti úv nokkrum bestu sauðfjárhjeruðum landsins. Kjötjð seljum við bæði í heilum og hálfum tunnum. Sendið okkur pantanir sem fyrst. Eggert Kristjánsson & Go. Símar 1317 — 1400 og 1413.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.