Morgunblaðið - 16.04.1931, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Trampe greifi og
Tryggvi Þórhallssoni
1851
1931
Trampe.
Tryggvi.
Tryggvi Þórhallsson hefir nú
tryggt sjer ævarandi sess í sögu
íslands. Og sá sess er við hlið
Trampe greifa.
Trampe greiíi' var maðurinn,
se-m konungsvaldið tefldi fram til
■þess að kúga íslendinga á þjóð-
fundinum 1851, en það er frægt
orðið sem mest.a fólskuverk í þing-
sögunni.
Dr. Páll Eggert Ólason lýsir
þessum örlagaríka viðburði þann-
ig, í æfisögu Jóns Sigurðssonar
(II b. bl. 494—5):
„A tilsettum tíma kom Trampe
og las upp ræðu sína af blöðum,1)
eins og vandi hans var; voru það
mxíst snuprur til þingmanna fyrir
meðferð málanna. Veittist hann
einkum að stjórnskipunamefnd.
Kvaðst hann því, til að forða land-
únu frá þarflausuíh útgjöldum,
myndi slíta þinginu þá þegar. —
Jdpykkti möanpm allmjög við,
dHkft' VÓrtf^fmff’rúár fúsir að halda
áfram störfum og láta niður falla
dagpeninga. Urðu nú snöggir at-
burðir og alvarleg stund í þing-
sögunni. Og er Trampe var kom-
inn í miðja setninguna, að lýsa
fundinum slitið í nafni konungs,
greip Jón Sigurðsson fram í og
mælti:: „Má jeg biðja mjer hljóðs,
til að forsvara gerðir nefndarinnar
«g þingsins?“ En forseti kvað nei
við. Mæiti Jón þegar aftur: ,,„Þá
mótmæli jeg þessari aðferð“. En
konungsfulltmi svaraði, er hann
og forseti gengu úr sætum sínum:
„Jeg vona, að þingmenn hafi
heyrt, að jeg hefi slitið fundinum
í nafni konungs“. Jón varð þá
enn þegar til andsvara: „Og jeg
mótmæli í nafni konungs og þjóð-
arinnar þessari aðferð, og jeg á-
skil þinginu rjett til að klaga til
konungs vors yfir lögleysu þeirri,
sem hjer er höfð í frammi“. Tóku
flestir þingmenn undir það og
Alveg eins og Tryggvi!
sögðu í einu hljóði: „Vjer mótmæl-
um allir“.
Dr. Páll segir, að „þennan at-
burð þekkjum vjer svipmestan í
allri alþingissögu og stjórnmála-
sögu íslendinga“. Og á öðrum
stað: „Það fór svo, að þing þetta
skyldi valda þáttaskiftum í stjórn-
málasögu landsins, þó.tt á annan
veg væri en menn höfðu vænst,
með þeim atburðum, sem kunnir
eru hverju barni“.
Nafn Trampe greifa verður ávalt
skráð í hjörtu allra Islendinga,
kráð þar til varnaðar og viðbjóðs.
Og þó er þess að gæta, að hjer má
nefna afsakanir. Tiampe var er-
lendur aðalsmaður, sem aldrei
skildi íslendinga eða fann til með
þeim' eins og vænta má af inn-
lenduin manni. Og 1851 var engin
stjómarskrá fengin um málefni
tslands, og alt þetta því háð geð-
þótta valdhafanna að mestu.
En nú — nú er öðru til að
dreifa. Nú hleypur íslenskur ráð-
herra í konungsvaldið til þess aþ
tvístra fulltrúum þjóðarinnar, þeg
ar fyrir þeim liggur að vinna þjóð
þrifaverk. Og nú er þetta gert í
berhöggi við sjálfa stjórnarskrána,
sem mælir svo fyrir skýlaust og
undantekningarlaust, að þingi
megi ekki slíta fyr en fjárlög hafa
verið samþykt.
1851 sameinuðust íslendingarnir
allir til mótmæla gegn gerræðinu.
1931 er íslendingurinn Tryggvi
Þórhallsson í sporum litlenda greif
ans.
Báðir, Trampe og Tryggvi kjósa
þann kostinn að svíkjast að þing-
inu með leynd.
21. júlí 1851 er í minnum hafður
'vrir kúgunina, sem þá var beitt.
14. apríl 1931 verður enn sorg-
legri dagur í þingsögunni, því að
bá framdi íslendingur þetta sama
'bótaverk á sinni eigin þjóð.
M.
Enn eitt hreystiverk
Eioars Einarssonar.
1 gærmorgun kom ,Ægir‘ hing- um mun hafa neitað að greiða
að með þrjá enska togara, er hann málskostnaðinn.
fiafði fyrir hitt suður í Sandvík. Mun mörgum forvitni á að sjá
Er mælt að togarar þessir hafi hvernig Framsóknarblöðin róma
legið fyrir akkerum. þetta síðasta „hreystiverk“ Ein-
Mál þeirra var tekið fyrir í ars Einarssonar, skipherra á varð-
-gær. Voru skipstjórar þessir eigi skipinu „Ægi.“
<læmdir til þess ao greioa sekt.
En 10 kr. átti hver þeirra að Tólf smámál hefir Alþingi af-
greiða. í málskostnað. greitt að þessu sinni. Kostnaður-
Einn af togurum þessum er eign inn við þinghaldið er nokkuð á
Hellyers. Skipstjóri á togara þess- 2 hundrað þúsund króna.
------
m
Dúmur bióðarínnar.
\’íða á landinu hafa menn brugð-
ið við og haldið fundi, jafnskjótt
og um þingrofið frjettist.
I gær bárust fregnir hingað til
bæjarins víðsvegar að af landinu
um undirtektir manna, undir þing-
rof, stjórnarskrárbrot, gerræði —
einræðisstjórnarinnar íslensku.
Á fjölmörgum stöðum varð því
eigi komið við að halda fundi fyr
en í gærkvöldi, og náðu fregnir af
fundum þeim ekki hingað til bæj-
arins í gær.
Áskorun frá ungum Sjálf-
stæðismönnum á Akranesi.
Svohljóðandi tillaga var samþykt
;' fundi fjelags ungra Sjálfstæðis-
manna á Akranesi :
Fjelag ungra Sjálfstæðismaima
á Akranesi vítir harðlega þá ó-
skammfeilni ríkisstjómarinnar í
skjóli konungsvaldsins, að gefa
meiri hluta Alþingis ekki kost á
því að mynda nýja stjórn, og þver-
brjóta þannig allar þingræðis-
reglur.
Fundurinn skorar á alla góða
íslendinga, konur og karla, að
stíga við næstu kosningar stórt
spor í þá átt, að hrinda af þjóðinni
þeim ófögnuði sem núverandi land
stjórn hefir leitt yfir land vort og
skapað hefir þjóð vorai stórfelt
fjártjón og smán.
Fjelagsstjórnin.
Sjálfstæðis- og framfarafje-
lag Ólafsvíkur og Fróðár-
hrepps telur nýja stjórnar-
myndun óhjákvæmilega.
Sjálfstæðis- og framfarafjelag
Ólafsvíkur og Fróðárhrepps hefir
haldið fund, og lýst megnri óá-
nægju sinni yfir þingrofinu. Telur
fjelagið að óhjákvæmilegt sje, að
mynda nýja stjórn.
Alþingiskjósendur í Flatey á
Breiðafirði mótmæla ger-
ræðinu.
Vjer undirritaðir alþingiskjós-
endur í Flatey, lýsum megnustu
indúð vorri á þingrofi stjórnarinn-
ar og mótmælum allir. Viljum vjer
gera alt sem í voru valdi stendur
til að styrkja þann flokk íslands
jona og dætra, sem vill stíga á háls
því gerræðisvaldi, sem virðir að
vettugi þingræðishelgi þjóðarinn-
ar, í því skyni að hylja sínar eigin
ávirðingar.
Undirskrift 46 kjósenda, marg-
ir Sjarverandi.
Undirskriftirnar staðfesta Snæ-
b.jörn Kristjánsson. Guðm. Berg-
steinsson. Guðm. Jóhannesson.
I
Mótmælafundur á Siglufirði.
Fjórir fylgismenn Framsókn
arstjórnarinnar fundnir!
(Siglufirði, miðvikudag).
Frá Siglufirði er símað:
Fregnirnar um þingrofið vöktu
hjer mikla athygli og æsingar í
bænum. Almennur kjósendafundur
var hjer haldinn, með stuttum fyr-
irvara í gærkvöldi í kvikmynda-
húsinu hjer. Var því sem næst hús-
fvllir. Fundurinn mótmælti harð-
lega þingrofinu, og taldi stjómina
hafa framið stjómarskrárbrot. —
Væri hún því sek gagnvart lands-
dómi. Tillaga þess efnis var samþ.
með meginþorra fundarmanna,
neina Framsóknarmanna, er
greiddu flestir ekki atkvæði. —
Fjórir þeinra greiddu atkvæði móti
vantraustd á stjórnina. Enginn tók
til máls, er mælti landsstjórninni
bót, nema einn aðkomumaður, er
staddur var á fundinum.
Ræðumenn aðrir deildu þung-
lega á stjórnina fyrir brot á stjórn
arskránni, stjórnarfarsleg afglöp
og fjármálaafglöp fyr eða síðar
o. fl. Skoruðu fundarmenn á þá
Framsóknai'menn sem búsettir eru
í bænum, og þarna voru á fund-
inum, að verja landsstjórnina. En
það kom fyrir eltki. ♦
Svohlj. till. samþ.:
„Almennur fundur alþingiskjós-
enda á Siglufirði lýsir yfir því, að
hann telur konungsbrjef það um
þingrof og nýjar kosningar, sem
forsætisráðherra las upp í samein-
uðu þingi í dag brot á 18. grein
stjórnarskrárinnar, sem skýrum
orðum mælir svo iý’rir, að þingi
megi ekki slíta fyrri en fjárlög
'nafa verið afgreidd. Auk þess tel-
ur fundurinn að forsætisráðherra
þafi fengið konungsbrjefið með ó-
sönnum forsendum, sem því að full
vrða að myndun nýrrar stjórnar
væri ókleif. Valdarán það, sem
ítjórnin með þessu hefir framið
telur fundurinn beina árás á þing-
ræði og sjálfstæði þjóðarinnar. —
Fundurinn neitar ]>ess vegna að
viðurkenna núverandi ríkisstjórn
•;em löglega stjorn landsins og
krefst ]iess, að hún leggi niður
völd þegar í stað og verði látin
sæta ábyrgð gerða sinna fyrir
!andsdómi.“
Framsóknarmenn hjer um slóð-
ir láta lítið á sjer bera, og vilja
rJxki um þingrofið-tala.
Almennur borgarafundur á
Akureyri lýsir fullu van-
trausti á landsstjórninni.
Akureyri, FB 15. apríl.
Almennur borgarafundur í gær-
kvöldi boðaður í tilefni af þing-
rofinu samþykti svo hljóðandi til-
lögu:
Fundurinn telur þingrofið í dag
sem gefa verður ráðherranum ein-
nm, en ekki konungi vorum sök
á, alvarlega vítavert og ganga í
berhögg við allar þingræðisreglur.
Fyrir þetta athæfi og öll önnur
afglöp stjórnarinnar, sem hjer yrði
of langt mál upp að telja, lýsir
fundurinn yfir fylsta vantrausti á
henni, og skorar á hana að leggja
niður völdin þegar.
Austfirðingar mótmæla.
Seyðisfirði, 15. mars.
Fjölmennur fundur Sjálfstæðis-
fjelaganna var haklinn hjer í gær-
kviildi. Samþykt voru þar ákveð-
in mótmæli gegri gerræði forsætis-
ráðherra, þar sem hann, í skjóli
konungsvaldsins stofnar til þing-
)-ofs áður en fjárlög eru afgreidd.
Samþykt var ennfremur, að
boða til almenns borgarafundar
í kvöld. Samskonar mótmælafund-
ir verða haldnir víðsvegar á Aust-
fjörðum.
Sjálfstæðismenn á Eskifirði
heimta framhald þingstarfa
Eskifirði, 15. mars.
Fjölmennur sjálfstæðisfundur á
Eskifirði 14. þ. m. samþ. tillögu
þess efnis: «•
Fundurinn mótmæíir þeirrí ó-
hæfu, að landsstjórnin noti koá-
ungsValdið, til þess að taka lög-
kgt umboð af fulltrúum þjóðar-
innar, sem sæti eiga. á Alþingi á
meðan fjárlög og svo að segja
')!1 nýinæli sem fram hafa komiö
á ]>inginu eru óafgreidd.
Sjálfstæðismenn á Eyrar-
bakka heimta stjórnarskifti.
Eyrarbakka 15. mars.
Fjölmennur fundur yngri og
eldri Sjálfstæðismanna hófst kl. 6
í dag, samþykt í einu hljóði eftir-
farandi tillaga:
Fundur Sjálfstæðismanna á Eyr
arbakka lýsir megnu vantrausti á
landsstjórninni og mótmælir harð-
’ega því endemis gerræði hennar,
að láta konung rjúfa þing, undir
núverandi kringumstæðum. Jafn
< framt skorar fundurinn á meiri
hluta hins rofna þings, að lmna
ekki sókninni, fyr en núverandi
stjórn er velt úr völdum.
LýðvelðiA á Spáni.
Lýðveldið á Spáni.
Madrid, 15. apríl.
United Press. FB.
Lýðveldisstjórnin hefir skip-
að svo fyrir, að handtaka skuli
Berenguerbræðurna, Damasco
og Federico.
Alfonso lagði af stað í gær
til Cartagena í bifreið. Fer
hann þaðan á herskipi.
Romanones hefir tilkynt, að
Alfonso hafi skilið eftir kveðju
til þjóðarinnar og verði hún
birt á morgun.
Federico Berenguer, hershöfð
ingi í Madridhjeraði, hefir’neit
að að láta yfirherstjórina þar í
hendur annara. — Sanjurojo
hershöfðingi hefir verið falið
að reyna að koma því til leiðar
án blóðsúthellinga, að Beren-
guer láti af völdunum.
Síðar: Mikil fagnaðarlseti
voru hvarvetna í borgum Spán-
ar, þegar kunnugt varð um
valdaafsal konungs og stofnun
lýðveldisins. Mælt er, að Al-
fonso hafi látið þau orð um
mælt, að hann vildi ekki taka á
sig ábyrgðina af því, að þver-
skallast við þjóðarviljanum. Þess
vegna geti að eins gott af því
leitt, að hann fari úr landi. —
Konungur mun hafa afsalað
völdum fyrir sig og afkomend-
ur sína. Hinsvegar kvað stjórn-
in hafa ábyrgst líf og eignir Al-
fonso og fjölskyldu hans.
Alfonso lagði af stað á her-
skipi kl. 4.45 f. h. á hraðskreiðu
beitiskipi. Drotningin og börn
hennar fara í dag, miðvikudag.
á járnbrautarlest til Frakklands
en þaðan til Englands, þar sem
fjölskyldan sest að.
Barcelona, 15. apríl-
United Press. FB-
Skæriur hafa orðið í Barce-
iona, en herliðið bar sigur úr
býtum. 1 Malaga kveiktu lý®'
veldissinnar í byggingu, sen*
blaðið La Union Mercantine
ir aðsetur í. Einnig í nokkrum
verslunarhúsum. Alt með kyrr-
um kjörum í landinu, nem»
Malaga og Lissabon.