Morgunblaðið - 22.12.1931, Síða 6
6
luORGUNBLAÐIÐ
/
Kjörorð nútímans:
Hotið loftleiðirnar.
NáttúrufræðíngurinD.
Seinasta heftið af „Náttúrufræð-
ingnum“ er helmingi stærra heldur
en vant er, afar fjölbreytt og
skemtilegt.
Þar er fyrst grein eftir Guðm.
G. Bárðarson um stjörnumerkið
Órton, og önnur alþýðleg grein
Um stjörnuhimininn, leiðarvísir um
það hvernig á að þekkja stjörn-
urnar.
Björn Kristjánsson ritar merki-
tegar athuganir, sem hann hefir
gert um málmrannsóknir í sam-
bandi við skeljar. Hefir hann kom-
ist að raun um þáð, að sums stað-
ar hjer við land, þar sem brim
sverfur hraungrjót, þá safna skelj-
ar smáum málmögnum úr svarf-
inu og hlaða þeim utan á sig og
gera sjer úr þeim nokkurs konar
brynju.
Þá er grein um hnatteldingar
eftir G. G. B. Þar segir meðal ann-
'ars svo: „Þótt hnatteldingar sje
talsvert fyrirferðarmiklar, geta
þær smogið gegnum örlitlar smug-
ur á þiljum og veggjum og fá
sömu lögun og áður, þegar þær
eru komnar í gegn dyr, glugga,
reykháfa eða skráargöt, og stund-
um smogið gegn um múrveggi og
þök, og dæmi eru til að þær hafi
borað sjer göt í gegnum glugga-
rúður, án þess að skemma rúðum-
ar að öðru leyti. Br inn kom hafa
þær stundum sveimað herbergi úr
herbergi, uns þær hafa horfið
hljóðlaust eða horfið út aftur á
svipaðan hátt og þær komu. —
Þessar einkennilegu hnatteldingar
hafa oft vakið undrun manna og
gefið hjátrú fólks byr undir vængi‘
— Það hefir t. d. frá alda öðli
verið talið að þær boðuðu gest-
komu, væri fylgja einhvers. Stund-
um eru þær reglulegir draugar,
sem verða að eldglæringum o. s.
frv. Er til fjöldi af slíkum þjóð-
sögnum hjer á landi.
Bjarni Sæmundsson ritar grein
um tunglfiska og tunglfiskseiði,
sem rak nýlega hjá Grindavík. —
Aður hefir rekið hjer við land
&—7 fullvaxna tunglfiska (5—7
fet á lengd) svo að menn viti.
Guðm. G. Bárðarson ritar grein,
sem hann kallar ,Einkennileg lend-
ingarbót‘. Segir þar frá því, að um
1850 rak hval á Skipagerðisfjöru
í Landeyjum. Bein og þjóttur af
hvalnum lágu lengi í fjörunni og
lagði af þeim brák út á sjóinn
Og hlífði hún þar fyrir brimi. Þess
vegna myndaðst þar ós allmikill í
gegn um sandrifið og varð þar
ágætur lendingarstaður og helst
um tveggja ára skeið, eða meðan
brák kom úr hvalleifunum.
Sami ritar grein um „Gull í
sjónum“ og „Flöskupóst í Vest-
mannaeyjum“, er segir frá því, er
Vestmannaeyingar tóku upp þann
sið á síðustu tugum 19. aldar, að
senda flöskupóst á land, vegna
þess, hve samgöngur voru stop-
ular. Var lagður munntóbaksspotti
með brjefinu í flöskuna, og var
það viðurkendur gjaldgengur
burðareyrir, og gerðu menn í landi
sjer að skyldu að greiða fyrir
brjefunum.
Margt fleira er í heftinu, en
þetta nægir til þess að sýna hve
f jölbreytt það er og merkilegt að
efnisvali. Mun varla önnur lesning
skemtilegri um jólin og ætti sem
flestir að ná í heftið sjer til gagns
og gamans.
Það eru margar leiðir til þess
að vekja athygli manna á flug-
ferðum. En besta ráðið er þó,
að gefa mönnum kost á að fljúga
svo að þeir geti af eigin reynd
aæmt um hve hættulítið það er,
og hve dásamlegt er að svífa um
loftvegu.
í Englandi er nýlega lokið
skipulagsbundnum hringflug-
um í 118 borgum. Tóku sex flug-
vjelar þátt í þessu og voru að
því í hálft ár. í þessum 118
borgum tóku þær 60.000 farþega
í hringflug og helmingurinn af
þeim hafði aldrei stigið upp í
flugvjel áður, og þótti þeim held
ur en ekki gaman að horfa yfir
borgir sínar úr loftinu. Auk
þessa höfðu flugvjelarnar 370
flugsýningar og er talið að rúm-
lega miljón manna hafi horft á
]>ær, og jafnframt var útvarpað
til þeirra leiðbeiningum um flug.
— I þsesum flugsýningum tók
einnig þátt „autogiro“-flugvjel
með vindmilluvængjum og flaug
hún í 400 stundir. Einn maður,
John Tanum, stökk 130 sinnum
út úr flugvjel með fallhlíf, og
kom heim aftur heill á húfi með
bæði fallhlíf sína og varafall-
hlíf óskemdar. Einn af flugmönn
unum steypti sjer eigi færri en
2000 kollhnísa (looping) í loft-
inu. — Árangurinn af þessu
hringflugi varð sá, að fjölda
margar af þessum 118 borgum,
gerðu hjá sjer viðunandi flug-
velli.
Stórkostleg meðmæli með flug
ferðum eru hinar 232 flugferðir,
sem „Zeppelin greifi“ hefir far-
ið — hnattflug, flug yfir úthöfin,
eyðimerkur og íshaf. Alls hefir
loftfarið verið 149 daga og 12
stundir á flugi og farið 352.000
kílómetra, flutt 15.474 farþega
og aldrei hent neitt slys.
Nokkurum sinnum koma fregn
ir um það, að ný met hafi verið
sett í flugi. Einhver frægasti
methafinn er Ameríkumaðurinn
James Doolittle, sem var á flug-
ferðalagi um Evrópu í fyrra, og
gekk þá fram af öllum með hin
um glæfralegu flug-„kúnstum“
sínum og hraðflugi. I september
mánuði flaug hann ]>vert yfir
Ameríku á 11 klst. og 16 mín.
Nú hefir hann nýlega sett nýtt
met með því að fljúga frá Ott-
awa í Kanada, yfir Washington,
til Mexikoborgar, 4000 km. á
121/2 klst. Með hraðlest hefði
maður verið viku að fara þessa
leið. Flugvjel Doolittle hefir að-
eins 6 metra vænghaf, en hreyf-
illinn hefir 540 hestöfl!
Mussolini hefir mikinn áhuga
fyrir fluglistinni, enda er hann
útlærður flugmaður sjálfur. í
fyrra stofnaði hann til flugs
frá Ítalíu til Suður-Ameríku og
tóku eigi færri en 12 flugvjelar
þátt í því. Nú ætlar hann að
senda nýjan flugvjelaflota vestur
um haf í apríl. Verða í þeirri
för 24 flugvjelar. Fjórir menn
verða í hverri, tveir flugmenn,
vjelamaður og loftskeytamaður,
svo að alls verða 96 menn í för-
inni. Foringi hennar er Balbo,
loftmálaráðherra ítala. Þeir
leggja á stað frá Ortebello skamt
frá Róm og eiga að fljúga til
New York og heim aftur, en það
er 16.000 km. leið. Flugvjelarn-
ar, sem notaðar verða, eru af
hinni svo nefndu „Savoia S-
55“ gerð.
Mylluvængja-flugvjelin hefir
þegar náð vinsældum í Englandi
og Ameríku. Sá, sem fann upp
þessa flugvjel, er Spánverjinn
Juan Cierva. Flugvjelar þess-
ar hafa nokkurskonar myllu-
vængi á bakinu og geta skrúfað
sig lóðrjett upp í loftið og eins
látið sig síga lóðrjett til jarðar.
Á sex mánuðum hefir amerísk
flugvjelaverksmiðja smíðað 17
slíkar flugvjelar, 3 handa amer-
íska flotanum, en hinar eru eign
einstakra manna. Ameríska stór
blaðið „Detroit News“ hefir
lengi notað venjulega flugvjel
til þess að flytja fyrir sig ljós-
myndir o. fl., en nú hefir það
fengið sjer „autogiro“. Enskur
flugmaður, Mr. Brie, hefir leikið
það á slíkri flugvjel, að lenda á
tennisvelli. Fer þá að verða ó-
þarfi að gera stóra flugvelli, og
hættan við lendinguna orðin
hverfandi lítil.
t
lón G. SnæM
bóndi á Eiríksstöðum á Jökuldal,
andaðist sunnudaginn 13. þ. m. eft-
ir uppskurð á Landakotsspítala.
Hafði hann komið hingað til
Reykjavíkur til lækninga fyrir
tæpum mánuði og kom þá í ljós
að hann þjáðist af krabbameini,
er leiddi hann til bana.
Jón G. Snædal.
Með Jóni sáluga er til moldar
hniginn einn af merkustu og bestu
mönnum í Austfirðingafjórðungi.
Jón sál. var fæddur á Eiríks-
stöðum á Jökuldal 26. maí 1885 og
var því á allra besta aldursskeiði
er hann ljest. —
Foreldrar hans voru sæmdar-
hjónin Gunnlaugur Jónsson Snæ-
dal bóndi þar og kona hans Stein-
unn Vilhjálmsdóttir Oddsen.
Föður sinn misti Jón sál. að eins
4 ára gamall. — Giftist móðir hans
aftur árið 1892 Einari Eiríkssyni
hreppstjóra og ólst Jón sál. upp
hjá móður sinni og stjúpföður við
kið besta atlæti.
Jón sál. varð snemma bráðger
og myndarlegur maður og hvers I
H?m«M80LSEH
Hýkomnir niðursoðnir áuextir frá Liböy:
JARÐARBER.
ANANAS.
PERUR, margar tegundir.
FERSKJUR, margar tegundir.
APRIKÓSUR, margar tegimdir.
ÁVEXTIR, blandaðir.
GRAPE FRUIT (ný tegund, kynblendingur appelsínu og
sítrónu).
LOGANBERRIES (ný tegund, kynblendingar jarðarberja
og hindberja).
Munið að nafnið LIBBY er trygging fyrir vörugæðum.
GlSrlð svo vel
að skoða sýninguna af okkar ódýru og fögru
LAMPASKERMUM.
Bestu og hentugustu Jólagjafirnar!
IngólfshToli 1. hæð.
1000 nm Jðlag|afa
úr að velja, fyrir konur og karla, unga og gamla. T. d. Matar- og
Kaffistell og ýmiskonar postulín. 2 og 3 turna silfur og silfurplett;
7 gerðir í miklu úrvali. Japan-vörur ýmiskonar. Bursta-, Saum-,
Skrif- og Naglasett, Dömutöskur og Veski, nýtísku. Jóíatrje. —
Kerti — Spil — Jólatrjesskraut. — Barnaleikföng, allar mögulegar
tegundir og ótal margt fleira.
Flest með gamla, lága verðinu.
K. Einarsson & Bjðrnsson.
Bankastræti 11.
NoroaisishDs-kiOi
frá Kalmanslnngn og Hvítársiðn
er besta kjðlifl í bænnm.
Rðllnpylsnr,
viflnrkendar kvergi eins gððar,
gími 7. Simi 7.
Ltttð á bazarlnn
uppi yfir Braunsverslun, Austurstræti 10. Þár fást allskonar ódýrar
jólagjafir, krystalskálar og vásar og sama úr silfurpletti. Toilett,
burstasett, manecurekassar, ilmvötn, hárvötn, vasaklútamöppur, ilm-
sprautur, dömuveski, barnatöskur, perlufestar, armhönd og eyrna-
lokkar. Silkisokkar frá kr. 2.00 parið, allskonar gerfi- og lifandi
blóm í pottum og til að hafa í vasa, og margt fleira.
ALT AFAR ÓDÝRT!
KR. KRAGH. Sími 330.