Morgunblaðið - 13.03.1932, Blaðsíða 5
Sumradaginn 13. mars 1932.
5
Forsetakosninsin
í Þýskalandi.
I dag fer fram forsetakosning
í Þýskalandi. Hindenburg verður
aftur í kjöri, en auk hans verða
þeir Hitler, fyrir hönd Nazimanna,
Diisterberg ofursti fyrir hönd Stál-
hjálmamanna og Thálmann fyrir
hönd kommúnista og 'flokksleys-
inginn Winther.
Það mun varla vafi á því, að
kosningarnar snúast um Hinden-
burg og Hitler, sem á seinustu
stundu fekk þýskan borgararjett,
svo að hann gat boðið sig fram.
Hitler hefir fram að þessu verið
„ættjarðarlaus“. Hann er Austur-
ríkismaður að ætterni, en misti
þar borgararjett vegna þess að
hann gerðist hermaður í liði Bay-
ernsmanna í stríðinu mikla, en
Hindenburg.
gat þo ekki samtíinis öðlast þýsk-
an ríkisborgararjett. Og hann vildi
ekki sækja um liann, þóttist eiga
heimtingu á að fá hann. „Jeg vil
ekkií(, sagði hann 1924, „biðja um
þýskan ríkisborgararjett, sem jeg
a heimtingu á, eftir að hafa hætt
lííi minu í fjögur ár fyrir Þýska-
land, og unnið mjer liann á þeim
eina stað, sem hægt var — á
vígvellinum."
Andstæðingar hans í pólitík
hafa gert alt t.il þess að koma í
veg fyrir að hann fengi þýskan
ríkisborgararjett. En ýmis smá-
ríki í Þýskalandi, sem honum
fylgja, hafa reynt að hjálpa hon-
um í þessu efni. Dr. Frich, ráð-
herra í Thúringen, reyndi til dæm-
is í laumi að gera Hitler að liðs-
foringja. En það tókst ekki. —
Svo ltom t.il mála að gera hann
að „prófessor í pólitískri uppeldis-
fræði“. Það gekk ekki heldur.
En nú er málið leyst. Stjórnin
í Braunschweig — sem fylgir
Nazimönnum —- gerði Hitler að
,.ríkisráði“, og þar með fekk hann
þýskan ríkisborgararjett.
Hitler.
Fyrsta skifti sem Hitler var
nefndur var haustið 1923, þegar
hann ásamt, Ludendorff stofnaði
til hinnar svo nefndu „Búrger-
bráukeller-Revolution1 ‘.
Dusterberg.
Þá var hann helsti maður
„þýska verkamannaflokksins“, er
tveiinur árum áður hafði verið
stofnaður ineð 6 meðlimum, en var
níi orðinn allfjölmennur fjelags-
skapur. Hitler safnaði nú um sig
vopnuðum lífverði, og lýsti yfir
því að stjórninni í Berlín væri
jhrundið af stóli, og sjerstök „þjóð-
leg stjórn“ stofnuð. Kahr, for-
sætisráðherrann í Bayern Ijest að
gamni sínu alveg fallast á þessa
fyrirætlan en ljek þannig á Hitler,
að uppreisnin var kæfð í fæðing-
unni. \Tar þá ekki annað sýnna
en að áhrifum Hitlers í Þýskalandi
væri lokið. Arar það hvort tveggja,
að landslýður dró spott að honum
fýrir uppreisnartilraunina, og að
hann var dæmdur í fimm ára fang-
elsi. Eftir mánaðartíma var honum
þó slept úr fangelsinu, með því
Thálmann.
skilyrði, að hann mætti ekki tala
á mannamótum, og gilti það bann
þangað til í september 1928.
A þessum árum bar ekkert á
Hitler, en hann vann í kyrþey
að stofnun, vexti og viðgangi Nazi-
flokksins. Árið 1929 kom hann aft-
ur opinberlega fram, vann sigur
við nokkrar kosningar, t. d. í Thúr-
ingen og Saxlandi, og svo vann
liann binn mikla sigur við ríkis-
þingskosningarnar 1930, þegar
Nazimenn juku þingflokk sinn úr
12 möraram í 107.
Nú þykist Hitler vera hættur
við byltingastefnu sína, og hefir
lýst yfir því, að hann ætli sjer að
vinna sigur á „löglegum grund-
velli'* — við kosningar. Nú ætlast
hann til þess að þjóðin kjósi sig
fyrir forseta. En Hindenburg á
líka. mikið fylgi. Vera kann þó, að
ekki náist nóg atkvæðamagn handa
heinum frambjóðanda við kosning-
una í dag, og verður þá önnur
kosning fram að fara. Er mælt að
Stálhjálmamennirnir nrani þá
cTraga forsetaefni s.it.t út úr kosn-
ingunni og snúast á sveif með
Hitler.
Þess vegna er það ósýnt hvor
þeirra sigrar, Hindenburg, hers-
höfðinginn mikli og bjargvættur
þýsku þjóðarinnar. eða æfintýra-
maðurinn Hitler.
Frá Þýskalandi er símað í gær:
— Vegna þess hve miklar æs-
ingar eru í landinu, hefir lögregl-
an bannað fundahöld undir beru
lofti bæði í ltvöld og á morgun.
Sara áfengra drykkja er bönnuð
hvar vetna til mánudags.
Kosningabardaginn verður harð-
ari en nokkru sinni í sögu landsins.
Tilboð
óskast í alla fólks -og vöruflutninga úr og í Biskupstungur, næsta
vor og sumar.
Fyrir 30. apríl n.k. sjeu tilboðin komin í hendur undirrituðum.
Tjörn í Biskupstungum, 6. mars 1932.
Guðjón Rögnvaldsson.
Niflnrsoðair ávextir:
Perur. — Ananas.
Aprikósur. — Ferskjur.
Blandaðir ávextir fyrirliggjandi bæði í 1/1 og 1/2 dósum.
Eggert Kristjánsson & Cð.
Símar 1317 og 1400.
Besta
H
R
ráðstgfnn gegn
er að nota
breppnnnl,
Ffá búnaðariingi.
Kaupgjaldsmál.
Bjargráðanefnd búnaðarþingsins
bar fram svohljóðandi:
i
Tillögur um kaupgjald.
Þar sem nú er anðsætt, eftir
skýrslum jieim, sem lagðar hafa
verið fyrir Búnaðarþing, um bún-
aðarástæður 1931, eftir umsögn
búnaðarsambandanna, bændasköl-
anna og nokkurra einstaklinga, að
bændur geta eigi greitt þau vinnu-
laun sem nú tíðkast, enda mundi
leiða til fækkunar verkafólks í
sveitum en fjölgunar á einyrkjum
ef bændur þá eigi neyðast til að
flýja býli sín, þá vill Búnaðarþing-
io af greindum ástæðum láta í
Jjósi það álit sitt :
1) Að almenn vinnuiaun verka-
fólks í sveitum þurfi minst að
lækka um 30% frá því sem nú
er, og enda eigi víst að sveita-
búnaður geti svarað kostnaði
með þessari lækkun á vinnu-
Oæunum.
2) 'Bunaðarþingið beinir því til
búnaðarsambandanna að þau
ræði kaupgjaldsmálið rækilega,
athugi um hvort greiðslu, kaup-
gjakls sje hægt. að koma að
nokkru við í afurðum eða fóðr-
un, og að almenn lækkun verði
á kaupgjaldi.
3) Búnaðarþingið beinir þeirri ósk
til ríkisstjórnarinnar, að kaup-
gjald við opinbera vinnu í
þarfir ríkisins verði lækkað svo
að það færist til viðunandi sam-
ræmis við gjaldþol atvinnuveg-
anna.
Samþvkt með samhlj. atkvæðum.
r
E
i
N
S
Kristalsápu,
Handsápur,
Þvottaduft,
Skóáburð,
Kerti,
Vagnáburð,
Stangasapu
Raksápu
Ræstiduft
Gólfáburð
Fægilög
Ðaðlyf
Gúð údýr og innlcnd framleiðsla.
Ný bök:
Erik F. Jensen: Með Niels Bukh Jorden rundt. Stór bók með fjölda
mynda. Kemur út í 12 heftum og kostar hvert kr. 0.85 ísl. Eitt hefti
kemur út á viku.
Mjög eiguleg bólt fyrir alla íþróttavini og íþróttamenn.
Búkaverslun Siglúsar Eymundssonar.
Vinnufriður.
Enn fremur báru sex bixnaðar-
þingsfulltrúar, þeir Ilallur Kristj-
ánsson, Sig. Ein. Hlíðar, Sveinn
Jónsson, Magnús Þorláksson, Páll
Stefánsson og Jón Hannesson fram
svohlj. ályktun, er samþykt var
með samhljóða atkv.
„Búnaoarþingið skorar á Al-
þingi, að semja á yfirstandándi
þingi lög, er tryggi bændum og
öðrum framleiðendum vinnufrið,
þegar þeir vinna eða láta vinna
að sinni eigin framleiðslu, hvort
Íieldur er heima eða heimanJ*
Yaxtalækkun.
Pálll Stefánsson bar fram svo-
hljóðandi tillögu, er samþykt. var
með samhljóða atkvæðum:
„Búnaðarþingið skorar á Al-
þingi og ríkisstjórn, að taka til
íhugunar livort eklti sje unnt, til
þess að Ijetta undir skpldabyrði
aðþrengdra atvinnuvega, að færa
niður um stundarsakir utlánsvexti
úi bönkum og sparisjóðum. og
vexti af innlögnum að sama
skapi.“
i
Stofnun sútunarverksmiðju.
Svohljóðandi samþykt var gerð
með samhlj. atkv.:
„Búnaðarþingið ályktar að skora
a Alþingi og ríkisstjórn, að láta
svo fljótt sem við verður komið
ýara fram rannsókn uni það, livað
kosta muni að koma á fót fullkom-
imii sútunarverksmjðju í landinu,
og að rannsókn lokinni stuðla að
því, að henni verði komið upp, ef
tiltækilegt þætti.“
Tillögunni fylgdi eftirfarandi
greinargerð:
Árlega er fluttur inn í landið
skófatnaður, skinn og skinnavör-
ur fyrir svo skiftir miljónum kr.
Árið 1929 nam þessi innflutningur
yfir 3 ni ilj.
Við lauslegar tilraunir, sem
gerðar hafa verið með fullkomna
sútun ísilenskra skinna, hefir það
'komið í ljós, að efnið er ágætt, og
mundu íslensku skinnin þannig
gerð geta komið að mestu leyti
stað þeirra útlendu, sem hingað
eru flutt í mynd sútaðra hviða,
skófatnaðar og fleira.
Nú ef á það að líta að þessi
framleiðsluvara bænda, skinnin,
eru svo að segja verðlaus, og er þá
sýnt hverju það varðar .að gera
þau verðmætari ef unt er.
Vitanlega mundi, ef þetta tæk-
ist, sem síst ber að efa, koma hjer
upp innlendur iðnaður, verksmiðja
til skógerðar. en það er naumast
Itímabært enn þá að leggja drög
til slíkra framkvæmda, á meðan
ekki er kominn neinn skriður á
nndirstöðu málsins, en myndi hins
vegar koma nokkuð af sjálfu sjer,
þegar að því kæmi að liagnýta
sjer það verðmæti, er sútunin
mundi skapa.
H.jer er verkefni, sem skapað
getur, rneðal margs annars, marg-
þætt atvinnulíf.
Met í bringusundi.
1 febrúarmánuði setti sundkon-
an Kersten Isberg heimsmet í 200
metra bringusundi fyrir konur á
|2 mínútum og 51 sekúndu. Fyrra
iheimsmetið í þessu sundi var 2
mín. 54.6 sek. og átti það enska
sundkonan C. Welsten'holme.