Morgunblaðið - 13.03.1932, Blaðsíða 6
6
0 R G U N B L A Ð I Ð
Uppreisnarhreyling Lappámanna.
(Þó að uppreisnartilraun Lappó- í Mantsálá og ekki æsa verkamenn
manna í Finnlandi hafi verið bæld upp á móti Lappó.
niður, eins og skýrt var frá í sím-! Daginn eftir byrjuðu vopnaðir
fregn nýlega, þykir rjett að Lappómenn að streyma úr öllum
birta eftirfarandi grein frá frjetta- áttum til Mántsálá, Um 5000 vel
ritara blaðsins í Höfn). vopnaðir Lappómenn söfnuðust
saman í bænum. Þeir lokuðu Ijens-
||!|| manninn inni á ljensskrifstofunni,
og náðu símstöðinni á sitt vald.
||||||p Vopnaðir Lappómenn voru á verði
á öllum vegum í nánd við bæinn
og höfðu strangt eftirlit með aillri
umferð. -Jafnhliða þessu söfnuðu
Lappómenn liði á ýmsum öðrum
stöðum í Finnlandi.
Kosola, foringi Lappómanna, og
Wallenius, fyrverandi her.shöfðingi,
stjórnuðu þessari liðssöfnun.
Aðaltakmark Lappómanna var
upphaflega það, að bæla starfsemi
kommúnista í Finnlandi niður. —
Eftir þingkosningarnar haustið
1930, samþyrkti finska þingið hin
svo kölluðu „kommúnistalög£t.
Stjórnin fekk þannig víðtækar
Sihvo,
yfirhers'höfðingi
Finna.
Laugardagnnn 27. febrúar hjeldu
sósíalistar fund í Mántsálá. Aðal-
ræðumaður á fundinum var Mikko
Erieh, einn af þingmönnum sósíal-
ista. Um 400 vopnaðir Lappómenn
söfnuðust saman utan við sam-
komuhúsið og byrjuðu alt í einu
að skjóta á húsið. Margar kúlur
þutu gegnum gluggana inn í fund-
arsalinn. Fundarmenn köstuðu sjer
óttaslegnir niður á gólfið. Aðeins
einn fundarmaður særðist.
Lögreglan flýtti sjer til sam-
komuhússins. En lögreglumennirn-
ir voru aðeins 35, á móti 400
Lappómönnum og gátu því lítið
von Born,
innanríkisráðherra í Finnlandi.
gert. Að lokum komu lögreglu-
mennirnir og Lappómennirnir sjer
saman um, að Lappómenn skyldu
tala við Erich. Þeir gerðu það og
brýndu fyrir honum, að ‘hann
mætti aldrei framar halda ræðu
Wallenius herforingi.
heimildir, til þess að bæla starf-
semi kommúnista niður. í febrúar
í fyrra var Svinhufvud kosinn
ríkisforseti með tilstyrk Lappó-
manna. Nokkru seinna myndaði
bændaforinginn, dr. Sunila, borg
aralega samsteypustjórn. Innan-
ríkisráðherra í stjórn hans ér
sænsk-finninn von Born. von Born
er einn af hættulegustu andstæð
ingum Lappómanna. Hann vill fyr-
iv hvern mun vernda þingræðið í
Finnlandi. En varla er neinn vafi
á því, að sigur Lappómanna
mundi leiða til einræðis.
Lappómenn hafa frá upphafi
verið óánægðir með stjórn Sunilas.
Yaxandi neyrð af völdum heims-
kreppunnar hefir að undanfiirnu
aukið óánægjuna,. Og nú heimt-
uðu Lappómenn, að öll fjelög só-
síalista j’rði bönnuð, að von Born
færi frá völdum, og að kosninga-
ögunum jrrði breytt „samkvæmt
stefnuskrá Lappómanna.“
Lappómenn.
Kosola,
foringi Lappómanna.
Finska stjórnin neitaði að verða
við kröfum Lappómanna. Og hún
ljrsti yfir, að allar uppreisnartil-
raunir j-rði bældar niðpi1 með
vopnavaldi. —
Höfn, 1. mars 1932.
P.
Surtarbrandur
og atvinnuleysi.
Það er ekki hægt að kalla það
bölsýni, þótt margir búist við at-
vinnuleysi hjer á landi í vor og
sumar. Það er að eins eðlileg og
íýrirsjáanleg afleiðing af ástand-
inu eins og það er og allir þekkja.
Eins og kunnugt er hefir verið
stofnað til atvinnubótavinnu í vet-
ur bæði í Reykjavík og víðar og
allar líkur benda til þess, að slíks
muni einnig við þurfa í vor og
sumar. En hvað á að láta vinna?
Þetta er spuming, sem þarf að jrf-
irvega. Jeg hygg að allir geti ver-
ið sammála um það, að atvinnu-
bótavinnan ætti fyrst og fremst
að snúast að framleiðandi störf-
um. Yið getum aukið framleiðslu
okkar á fjölmörgum sviðum og
sparað þannig innflutning í stór-
um stíl. Jeg vil hjer að eins minna
á garðrækt, aukinn íslenskan iðn-
að svo sem klæði og skófatnað o.
fi En það, sem jeg einkum víldi
benda á hjer,
brands.
Við flytjum árlega inn kol fyrir
3—4 miljónir kr., en eigum þó nóg
af eldsneyti í íslenskum jarðvegi:
mó og surtarbrand. Ef til vill borg
ar sig ekki að vinna þetta elds-
neyti í stærri stíl á venjulegum
timum, um það er jeg ekki fær. að
dæma, en að það borgi sig á at-
vinnuleysistímum, það get jeg ekki
hugsað mjer að sje vafa undir-
orpið.
Á stríðsárunum var unnið all-
mikið af mó og surtarbrandi og
livort tveggja all-mikið rannsakað.
Kom þá í ljós að mór og surtar-
brandur var mjög misjafn að gæð-
um. Samkvæmt þeim rannsóknum,
ej’ hjer á landi til svo góður surt-
arbrahdur að hann jafnast á við
sæmileg kol, með um 7000 h. e.
notagildi. Á öðrum stöðum er hann
ekki betri en ljelegur mór. Bestar
virðast vera námurnar í Skála-
jjargi við Seyðisfjörð, í Skarðs-
stöð, í Dalasýslu og Virkisbjargi
við Vopnafjörð. Námurnar á Tjör-
nesi og í Stálfjalli í Barðastranda-
sýslu eru í meðallagi, námurnar í
Dufansdal laklegar.
Samkvæmt þeim rannsóknum,
sc-m að framan eru nefndar, fanst
Hillegom Anrora heimsfrægn HOllaild
blðmlankar.
Pantið blómlauka yðar beint frá Hollands besta blómgarði. Und-
anfarið höfum við fengið margar pantanir frá Islandi, til að rækta
í görðum og herbergjum. Til þess að kynna verslunarhús okkar á
íslandi, hyggjum vjer bestu aðferðina vera að bjóða yður nokkuð
af Hollands heimsþektustu blóma- og blómlauka úrvali. Úrval svo
vel samsett af fögrum litum og góðum ilm, sem þjer aldrei þafið
fyr kynst slíku. Þetta úrval samanstendur af 400 blómlaukum, ná-
kvæmlega úrvalið, og sjerstaklega samsett fyrir íslenskt loftslag.
Aurora-blóm vekja yndi ungra og gamalla, ríkra og fátækra. Aurora
blóm breyta heimili yðar og garði í blómaparadís. — Vegna hinna
mörgu pantana, sem koma daglega, þá gerið svo vel og pantið tím-
anlega og setjið nafn og heimilisfang yðar greinilega á pöntunina.
Sá gerir rjett, sem þegar í dag, gerir pöntun sína hjá:
AURORA-BULB — NURSERIES.
Helligom — Holland — Europa.
Okkar ágæta úrval samanstendur af:
100 stór blómstrandi Gladioli í 5 litum; rautt, pink, laxrautt,
lilla og gult.
100 lítil blómstrandi Gladioli (sverðliljur) í 5 litum.
30 Begonia (15 einf. og 15 tvöf.) í ýmsum litum.
10 Capelilies (Hjracinthus Candicans) drottning blómanna.
50 Anemones, allra uppáhald, í öllum regnbogans litum.
50 Ranunculur, litla rósin í öllum litum.
30 Oxalis Deppei, hið svokallaða hamingjublóm.
15 Montbretias, í ýmsum litum.
15 Dahlias, „AURORAS ROEM“.
400 laukar og rætur, fyrir 6 dollara.
800 laukar og rætur fyrir 10 dollara.
Fljót afgreiðsla. Sent án aukakostnaðar á ákvörðunarstað .Heil-
brígðisvottorð fylgir liverri sendingu frá Phytopatholgical skrif-
stofunni, — Hver tegund merkt og pökkuð sjer. Ræktunarmeðferð
á ensku, frönsku eða þýsku, með myndum, er sent með, án endur-
gjalds. Vegna yfirfærslu örðugleika, þá sendið andvirðið með pöntun
og njótið þar með hinna sjerstöku heildsölu kjara.
íititt: Efnalaug
5
ÍiUÍbtlF
íicmiskfatafircmsutt 0$ iitun
fSaugaveg 34 ^tmtc 1300 Jtetjbiauíb.
Fullkomnar vjelar. Nýjustu og bestu efni. Þaulvant starfsfólk. —-
10 ára reynsla.
að meðaltali í surtarbrandinum
3560 h. e. þ. e. það þarf að meðal-
er vinsla surtar- !|a]j 2 kg. af honuan á móti 1 kg.
af kolum.
Þess væri full þörf að hefjast
þegar handa, láta rannsaka helstu
surtarbrandsnámur hjer á landi og
aðstöðu við námugröft og búa sig
undir vinslu í þeim, svo að hægt
væri að byrja strax með vorinu.
Þar sem surtarbrandur finstekki
mætti allvíða viuna mó. Hann hef-
ir að méðaltali um 2800 h. e. nota-
gildi ]). e. 2y2 kg. þarf á móti 1
kg. af meðalkolum. Víða í kaup-
stöðum éru-nú komnar miðstöðvar,
þar sem hægt væri að brenna mó
í stórum stíl. Bestur virðist mjer
vera á norðanverðu Vesturlandi
(3000—4000 h. e.).
Með því að rannsaka öskumagn
í surtarbrandi og mó má fara
mjög nærri um hitaeiningar, fjölda
íans. Eftir því sem öskumagnið
ei meira eftir því er h. e.-fjöldinn
minni. Þetta o. fil. viðvíkjandi elds-
neyti má fá nánari fræðslu um í
3. skýrslu Búnaðarfjelags íslands:
Efnarannsóknir.
Guðm. Jónsson frá Torfalæk.
Doodetia, enskt eftirlitsskip, er
nýkomið hingað og mun verða hjer
10 daga.
Frá Portúgal.
1 Portúgal hefir verið einveldi
að undanförnu, en nú á að brejria
stjórnarskránni þannig, að for-
seta skal kjósa með þjóðaratkvæði
og ber hann ábyrgð gagnvart þjóð
inni. Hann skipar ráðherra og hef-
ir æðsta framkvæmdavald í land-
inu, en þingið hefir aðeins ráð-
gjafarvald og getur ekki steypt
st.jórninni nema með samþjrkki
forsetans.
Borgarstjórinn í hollenska bæn-
um Heyko'ln hjelt nýlega brúð-
kaup sitt og í tilefni af því lagði
hann svo fyrir, að öll veitingahús
í bænum skyldi opin alla nóttina
og menn mætti drekka þar eins
mikið og þeir vildu, upp á sina
reikning. Auðvitað voru veitinga-
húsin full af fólki, og allir drukku
eins og þeir gátu. Lögregluþjón-
ar, brunaliðsmenn og fangaverðir
stóðust ekki freistinguna fremur
en aðrir, og svo er sagt, að aldrei
hafi þekst annar eins drykkju-
skapur í borginni, því að morgun-
inn eftir sást ekki ódrukkinn
maður á götu. Þetta þótti ganga
fram úr öMu hófi. Málið hefir kom-
ist inn í þingið, og það hefir
verið skorað á borgarstjórann, að
segja af sjer embætti.