Morgunblaðið - 13.03.1932, Page 7
M 0 R G U N B L A Ð I Ð
7
Bændur og lafnaðarmenn.
Að undanförnu hefir all-mikið
'verið ritað og rætt um hina miklu
kreppu, sem níi læsir sig um alt
hjer. Nokliuð hefir verið gert til
að draga úr afleiðingum hennar,
■einkum í lieykjavík, með atvinnu-
bótastyrkjum, matgjöfum handa
bágstöddu fólki o. fl. Ef vel er
athugað mun sjást að kreppan
kemur hjer hvergi eins tilfinnan-
lega niður og í sveitunum, sjer-
staklega hinum afskektari, en fyr-
ir þær hefir ekkert verið gert í
því skyni að ljetta neyðina, held-
ur jafnvel hið gagnstæða, eins og
:jeg mun síðar leiða rök að.
1 áramótaræðu þeirri, sem for-
sætis- og atvinnumálaráðherra
Hutti í útvarpið, mintist hann
nokkuð á vandræði sveitanna, en
,.jeg minnist ekki að hann benti þar
á nein bjargráð. Dvaldi hann
nokhsuð við það að telja með fögr-
um orðum kjark í bændur og bað
>á að láta nií ekki hugfallast. —
Sllík hvatningarorð eru altaf þakk-
ar verð, en svangur og kalinn
maður lifir þó skamma stund á
kjarkinum einum, þótt hann sje
jeflaust ómissandi.
Nú er veitt úr ríkissjóði all-
rnikið fje til atvinnubóta í vetur.
lín þeir einir geta notið þess styrks
sem ekkert hafa annars að gera,
því fyrir þetta fje verður að inna
af hendi eitthvert starf í þarfir
viðkomandi bæjar- eða sveitarfje-
lags. Bændur í sveitum landsins
«ru í raun og veru verkamanna-
stjett, alveg eins og verkamenn í
kaupstöðum, en sá er þó munur,
að verkamenn kauptúnanna vinna
hjá öðrum, og fá því fulla borgun
fyrir vinnu sína, venjulega viku-
lega, án tillits til þess hvort arður
verður af vinnunni. Varla mun sá
verkamaður í kauptúnum, sem
ekki hefir vinnu einhvern tíma úr
árinu og þá einhvern arð af henni,
ef hann er vinmifær, og sje honum
á annað borð hugleikið að vinna.
Og þareð hann þarf engu öðru til
vinnunnar að kosta, getur hann
notið arðs af eignum sínum, ef
einhverjar eru. Hjer er óQíkt hátt-
:að með sveitarbóndann, því ekki
er hægt að búa í sauðfjárræktar-
sveit, nema lagt sje mikið fje í
hústofn, fjenaðarhús og áhöld. —
Vextir að þessu verða að reiknast
til útgjalda í búrekstrinum, hvort
-sem þetta er eign eða keypt í
«kTild. Kaup fyrir vinnu sína get-
nr bóndinn því aðeins fengið, að
arður verði af búrekstrinum. —
Annars fær hann ekkert fyrir
'vinnu sína.
Jeg vil með ljósu dæmi sýna
hvernig búreksturinn hjer ber sig
I ár, og tek þá dæmi af góðu búi,
«ftir því sem þau gerast hjer.
Jeg geri ráð fyrir að á búi
þessu sjeu 3 kýr, hálft annað
hundrað sauðfjár (125 ær og 25
^imbrar til viðhalds stofninum, og
3—4 hrútar) og svo brúkunar-
hross eftir þörfum.
Sje nú gert, ráð fyrir að hús-
hændurnir á búi þessu sjeu hjón
bieð 3—4 börn, eru innanbússtörf
^ira en nóg vinna fyrir konuna.
Til þess að heyja fyrir fjenað-
iöum verður að taka einn kaupa-
^ann, tvær kaupakonur og ung-
ling vor og sumar til gæslu kúa
‘°S hesta. Gæti hann og hjálpað
eitthvað við heyverk. Enn fremur
þarf að taka vorkonu til ávinslu
á túni, ullarverkunar o. fl. -—
Aðra tíma ársins ætla jeg hjón-
unum -einum að vinna öll heim-
ilisstörf. Er það ærið verk, ekki
síst er bóndinn þarf eitthvað að
heiman, sem oft verður ekki hjá
komist.
Reikningur bús þessa lítur þá
þannig út:
Tekjur:
6000 ltr. mjólk 0.20 .. kr. 1.200.00
100 dilkar 11.00 .... — 1.100.00
25 ær gamlar 10.00 .. — 250.00
Ull ................ — 180.00
3 kálfar 8.00 ...... — 24.00
Samtals kr. 2.754.00
G j ö 1 d:
Sumarkaup karlm. níu
vikur 45.00 kr.
Sumarkaup kvenna 18
vikur 25.00 ...........—
Kaup drengs 20 vik-
ur 15.00 ............. —
Kaup vorkonu 6 vikur
48.00 ............... —■
Fæði karlmanns 9 vik-
ur 10.50 ............. —
Fæði kvenmanna og
drengs 44 vk. 8.75.... —
Jarðarafgj. og vextir —
Hestajárn, bað'lyf, á-
höld o. fl........
405.00
450.00
300.00
108.00
94.50
385.00
900.00
— 150.00
Samtals kr. 2.792.50
Mismunur (tap) kr. 38.50.
Hver sá, sem kunnugur er bú-
skap hjer um sveitir, veit að út-
koma dæmis þessa er ekki sýnd
lakari en hún raunverulega er.
Mjólkurlítrinn er reiknaður á 20
aura, en hjeðan er ekki hægt að
selja nokkurn mjólkurdropa, þo
til væri. Ekki er gert ráð fyrir
neinum vanhöldum á fjenaði, sem
þá verður alt.af einhver. Ekki er
htldur gert ráð fyrir að hjónin
fái neina hjálp við vinnuna, nema
vor og suúiar. Sauðfjárböðun
framkvæmir þó bóndinn ekki einn.
Þarf hann tvo menn til 'hjálpar
sjer. Það getur hann að sönnu
unnið af sjer, en þó með því einu
móti að bæta þá nóttunni við
vinnudag sinn. En dæmið sýnir:
að húsbændurnir sem vinna búinu
alla daga ársins, fá ekkert kaup
frá því, ekki einu sinni fæði.
Nú skyfldi maður ætla, að verka-
maður, sem þannig berst fyrir
lífi sínu og sinna, fengi að vera
óáreittur við vinnu sína. En svo
er ekki. Jafnaðarmenn eru nú
tc-knir að ráðast á bændur, þar
sem þeir vinna að eigin framleiðslu
sinni og á sínum eigin húsum. A
jeg þar við sláturhússtörf, því það
verður beinlínis að teljast með
framleiðslukostnaði sveitabúskap-
arins að slátra fjenaðinum og
verka afurðir hans, hvort heldur
er t.il eigin neyslu eða sölu, svo
og að koma afurðunum til burt-
flutnings.
Eins og flestum landsmönnum
er kunnugt, eru bændur nú ekki
Oengur sjálfráðir um þessi störf.
Jafnaðarmenn hafa víðast hvar
hrifsað þau í sínar hendur, ef ekki
með samningi, þá með einhvers
konar valdi, og jafn vel notið
stuðnings til þess frá æðri stöð-
um. Heimta þeir sjer goldið fyrir
það slíkt kaup er þeim sýnist
og taka það af vörunni. Bændur
verða alls staðar að láta undan
þessu valcli, þótt þeir bæði vilji
og geti unnið að þessu sjálfir og
mundu bæði reikna lægra dagkaup
Og lengri vinnudag. Mjer finst
þessi yfirgangur jafnaðarmanna í
garð okkar bænda vera hliðstæður
því, ef einhver borgari í kaup-
túni ætti matjurtagarð við hús
sitt og ynni að honum sjálfur
með börnum sínum. Þegar svo að
því kæmi að hann tæki upp úr
garðinum, ryddust þangað óvið-
komandi menn, heimtuðu að starfa
einir að uppskerunni og tækju
svo að launum það sem þeim
sýndist af ávöxtunum.
Fy-rir slíkum ágangi finst mjer
skvlt að vernda menn. Eða á ekki
slíkt athæfi eitthvað skylt við
rán ?
Eitt atvik, Sém fyrir kom s.l.
haust, heáir -oakið einna mestan
óhug hjá bændum, að því er þessi
efni snertir. Það eru úrslit
Hvammstangadeilunnar. Einn af
forstjórum S. í. S. í Reykjavík,
skipar kaupfjelagsstjóranum á
Hvammstanga að láta undan kröf-
um jafnaðarmanna þar. — Þeir
ganga fyrir með alla vinnu við
skipaafgreiðslur, en þeir sem vör-
urnar eiga, fá ekki þar að vinna,
þótt þeir vilji gera það fyrir lægra
kaup, en jafnaðarmenn heimta sjer
til handa.
. Margir bændur spyrja á þessa
leið: Hvaðan kom forstjóranum
va'ld til að gefa út þessa skipun ?
Og hefði ekki manndómur kaup-
fjelagsstjórans verið meiri ef hann
liefði virt þá skipun að vettugi, er
liann átti kost vinnukrafts þeirra,
er vöruna áttu, til allrar skipa-
af^reiðslu, og það fyrir mun lægra
kaup, en jafnaðarmennirnir heimt-
uðu sjer greitt.
Okkur bændum finst þessi úr-
ekurður forstjórans æði ósanngjarn
í okkar garð. Eins og dæmið hjer
að framan sýnir, megnar ekki arð-
ur sveitabúskaparins einn að fram-
fleyta okkur nú. Þó við höfum
allir meira en nóg að starfa á
heimilum okkar, miðað við venju-
legan vinnudag, verðum við að
vinna utan heimilisins það sem
frekast er unt, og gerum það líka
flestir meira eða minna, og verð-
um þó að neita okkur um mörg
þau þægindi, sem aðrir njóta.
Þegar það er athugað. að, at-
vinna okkar bænda gefur svo lít-
inn arð. að við verðum að strita
meira en alment gerist og þó spara
á öllum sviðum, virðist það nokk-
uð ósanngjarnt, ef ekki beint ó-
mannúðlegt, að láta okkur ekki
óáreitta við hana.
A meðan við vinnum að búum
okkar, erum við ekki að seilast inn
á verksvið annara að neinu leyti.
Við vinnum hjá okkur sjálfum,
eins og þurrabúðarmaðurinn, sem
hirðir garðinn sinn. Við erum að
vinna að búum okkar, þegar við
slátrum fjenaði á haustin, hirðum
afurðirnar og komum þeim frá
okkur. Við erum líka að vinna að
búura okkar, þegar við tökum
þurftarvörur okkar úr skipi og
komum þeim heim til okkar.
Það verður að vera krafa okkar
bænda að Alþingi afgreiði lög, sem
tryggja vinnufrið, hvar sem er
á landinu.
! Jafnaðarmenn heimta nú af rík- skrifa um þetta mál. Hefi heldur
inu atvinnubótastyrk, og atvinnu- J ekki neinu um það logið. Ekki hef-
leysisstyrki fyrir þá, sem ekki j ir heldur danska fjelagið „Den
hafa stöðuga vinnu, — og mat-'personlige friheds værn“ ýtt und-
gjafir eru veittar í Reykjavík. —
Eftir því, sem útvarpsfrjettir
greindu um daginn, er það ein-
hleypt fólk, sem þarfnast þeirra
mest. Undarlegt er þetta. Það er
þó vitanlegt að víða í sveitum
landsins er mikil‘1 verkafólksskort-
ur, hjónin víða ein með barna-
hópinn, verða að vinna nótt með
degi og anna samt ekki því, sem
þarf að vinna heimilunum. Væri
ekki skynsamlegra að vísa þessum
matþiggendum í kaupstöðunum
þangað sem þeir gætu þó fengið
að vinna fyrir fæði sínu?
Jeg veit vel að hagur sumra
verkamanna í kauptúnum er erf-
iður. Jeg þekki það sjálfur. En
sá er þó munur á hag þeirra og
bænda yfirleitt, að þegar þeir fá
vinnu, fá þeir hana vel borgaða
og hafa af henni engar áhyggjur.
Bændur þar á móti verða að vinna
alla daga’ársins, fá litla eða enga
borgun fyrir, en hafa miklar á-
hyggjur fyrir búum sínum, eink-
anlega í erfiðu árferði.
Hinn mikli fólksstraumur, sem
ir mig og þaðan af síður borgað
mjer neitt.
En skyldi þá ekki Morgunblaðið
fá borgun frá „dönsku mömmu“
fyrir að flytja greinar mínar? Það
lítur út fyrir að templarar haldi
það.
Ekki hefir mjer heyrst það á út-
gefendum Morgunblaðsins, að þeim
hafi áskotnast neitt fje frá Dan-
mörku. Jeg býst við að þeir hafi
tekið greinar mínar af þeirri á-
stæðu einni, að þeir voru mjer
samdóma um þetta mál.
En til þess að taka af öll tví-
mæli um þetta hefi jeg höfðað mál
gegn ábyrgðarmanni „Sóknar“. —•
Kemur þá væntanlega hið sanna
í ljós hver fer með ósatt mál,
jeg eða „Sókn“.
En eftir á að hyggja og að að
gá. — Hafa ekki templarar tekið
borgun, og það úr ríkissjóði, fyrir
að verja og vernda bannið, meðal
annars með því að gefa út þennan
blaðsnepil. Bæði mjer og fleirum
virðist árangurinn aðallega sá, að
efla smvgl og heimabrugg, en
nú er úr sveitunum til Reykjavík-1 kenna konum og unglingum
ur, er því eðlilegur. Eru það engin
undur þó bændur kjósi nú alment
að skifta um vinnustað og flytja
í kaupstaðina, einkum Reykjavík,
þar sem þeirra bíða ýms þægindi
og styrkir. Og úr sveitunum verð-
ur fólkið að flytja, ef ekki ljettir
bráðlega af þeim verstu erfiðleik-
um, sem við er að stríða, og ef
ekkert er gert til þess af lög-
gjöfinni að trvggja þeim mönnum
vinnufrið, sem þar vilja búa og
starfa.
En hvernig fer þá um Reykja-
vík. ef alt það fólk, sem enn er í
sveitunum, flytur þangað á næst-
unni? Eru stjórnarvöld landsins
við því bilin að taka á móti því
þar og sjá því öllu fyrir húsnæði
og öðrum lífsnauðsynjum?
Mundi. ekki þjóðfjelaginu hag-
feldara að með 'löggjöf væri hast-
að á vfirgang jafnaðarmanna ,áður
en hann nær að hrekja alt fólk
úr sveit.unum?
Guðbrandur Jónsson,
Spákellsstöðum.
fá sjer í staupinu, og að ofan
á þetta bætist nú að flytja ósann-
indi um andstæðinga. Mig minnir
að þeir stingi árlega 10.000 krón-
um í vasa sinn til slíkrar iðju, og
annara starfa, sem þeir ha.fa með
höndum.
Það er að minsta kosti víst, að
templararnir taka borgun. Aftur
er mjer ókunnugt um, að and-
banningar hafi skoðanir sínar fyrir
fjeþúfu.
G. H.
Greinin hjer að framan var send
Tímanum til birtingar. en rúm var
ekki til í blaðinu fyrir liana.
Hverjir faka borgun?
..Sókn“, blað templara, segir ný-
lega. að jeg fái „borgun fyrir að
skrifa lognar andbanningafrjettir
í Morgunblaðið“. Þessi borgun á
að koma „að vissu leyti frá vín-
bruggurnum. og vínsölum“.
Hvað er nú satt í þessu?
Jeg hefi að vísu fengið dálitla
borgun frá Morgunblaðinu fyrir
alt, sein jeg skrifa í það, en það
hefir látið mig algerlega sjá
ráðan um livað jeg skrifa. Jeg
græði engan eyri á því að skrifa
gegn bannhneyxlinu og hefi nóg
annað að skrifa um. Jeg hefi gert.
það af eigin hvöt.um, eingöngu
vegna þess, að jeg álít það skað-
legt, auka drykkjuskap og valda
margs konar spillingu.
Frá vínbruggurum eða vínsölum
hefi jeg hvorld fengið einn eyri
nje neina hvatningu ti'l þess að
Hosningarnar (Irlandi.
Kosningar eru nýskeð um garð
gengnar í írlandi. Svæsnasti mót-
st.öðumaður Breta, de Yalera, bar
sigur af hólmi, og er nú orðinn
stjórnarforseti í fríríkinu.
Stefnuskrá hans er þessi:
1 að fá breytt samningnum við
England, og fá afnumið að
írskir þingmenn og ráðherrar
vinni Bretakonungi hollustu-
eiða;
2. að írar liætti að borga hina
umsömdu árlegu greiðslu fyrir
kaup á enskum fasteignum í
írlandi, en sú greiðsla nemur
um 60 miljénum króna.
De Yalera er sonur Spánverja og
írskrar konu. Hann var aðalfor-
sprakkinn að borgarastríðinu í Ir-
landi 1916. Þegar þeirri styrjölcl
lauk, var hann tekinn fastur,
dæmdur til að skjótast, en síðan
var þeim dómi breytt. í æfilangt
fangelsi. Þegar írska fríríkið var
stofnað, voru honum gefnar upp
sakir og sleppt lausum. Byrjaði
hann þá þegar á nýjum æsingum,
var handtekinn, en t.ókst að
strjúka úr fangelsi og fór huldu
höfði um tíma. — Svo samþykkti
þingið sjerstök lög um það, að
lionum skyldu gefnar upp sakir.
Eftir það hjelt hann áfram æs-
ingastarfsemi sinni, varð foringi
Fianna Fail flokksins og er nú orð-
inn forsætisráðlierra og æðsti valds
maður írska fríríkisins. Er því
hætt við, að enn skerist í odda
milli Englendinga og íra. Og það
er áreiðan'legt, að iit af þessum