Morgunblaðið - 05.04.1932, Page 7
M 0 R G U N B L A Ð 1 Ð
T
Rðallundur
•Ungmennafjelagsins VELVAK-
ANDI verður haldinn í kvöld
kl. 9 á Laugaveg 1.
Dagskrá samkvæmt fjelags-
lögunum.
STJÓRNIN.
Sítrónudropar
Möndludropar
Vanilledropar
Kardemommudropar
Gerduft
Eggjaduft
Sódaduft
Hjartarsalt
Kardemommur
og allskonar krydd
Kjöt- og Fisk-soya
Matarlitur
Ávaxtalitur
Eggjalitur
Vínberjaedik
Edikssýra
Salatolía
SSalmíaksp íritus
Fægilögur.
Alt fyrsta flokks vörur.
I heildsölu hjá
Etnagerð
FrlDrlis HamssDiiar * Co.
Sími 144 (eitt gross).
Grundarstíg 11,
Hafnfirðingar
Sænska happdrættið.
líaupi allar tegundir skulda-
brjefanna.
Nýjustu dráttarlistar til
sýnis.
'MAGNÚS STEFÁNSSON.
Verð á Brekkugötu 11 í
Hafnarfirði á morgun (mið-
vikudag) M. 4—7 síðd.
Fondnr
í Kvennadeild
Slysavarnafjelagsins
1 kvöld kiukkan 8þ4 í K. R.-
'liúsinu, uppL
Besta þorskalýsið
4 bœnuin fáið þjer í nndirritaOri
verslnn. —
Sívaxandi sala sannar gæðin.
Sent tm aTt.
Versl. Bjðrninn.
Bfirgstaðastræti 35. Simj 1091.!
Hjá Halldóri Sigurðssyni er sýnt
talsvert af íslenskur skrautmunum,
einkum kvenskrauti, þar eru og
margs konar sýnishorn af vanjaðri
leturgrafara-vinnu Sigurðar Hall-
dórssonar.
Meiri og fjrölbreyttari sýning á
skrautgripum kvenna er í glugg-
um Árna B. Björnssonar. Þar er
og sýning á nokkrum munum Guð-
mundar frá Miðdal.
í hókaverslun Sigfúsar Eymund-
sen er sýning á bókbandi frá tveim
bókbandsstofum bæjarins, frá Fje-
lagsbókbandinu, (Þorl. Gunnars-
son) og Nýja bókbandinu (Brynj-
ólfur Magnússon).
í landfógetahúsið gamla eru nú
komnar sölubúðir og veitingastofur
Björns Björnssonár hirðbakara.
Thiele fær þar búð. En í gluggum
þeim eru nú sýningar á hreinlætis-
vörum frá Efnagerð Reykjavíkur.
Annars hefir það fyrirtæki lagt
undir sig hina stóru sýningar-
glugga Sápnhússiss, og sýnir þar
hina margþættu framleiðslti sína.
f Landfógetahúsi er og sýning
frá Mjólkurbúi Ölfusinga með
heilsumjólk og skyri, og hinum
„margumræddu ostum“, eins og
stendur á sýningarspjaldi þar.
í skemmn Haraldar eru alls kon
ar hreinlætisvörur Hjreins í smekk-
legri sýningu. Haraldur notar sjer-
stakan glugga fyrir íslenska fána,
og annan fyrir ýmis konar fatnað,
sem vel gæti verið af íslenskum
toga spunninn, en þess er þar ekfci
get.ið sjerstaklega.
Hjá L. H. Miiller er allmarg-
hreytt íslensk sýning. Þar er nú
fyrst íslenskur fatnaður alls konar,
en í öðrum glugga er útbúnaður til
langferðalaga, og alt unnið hjer á
landi. Þar er t. d. einn af hinum
frægu sleðum, sem Múlier hafði í
Sprengisandsferðina um veturinn,
ísl. svefnpokar úr gæruskinnum
tjöld, stormföt og skíði.
Skíði sýnir og trjesmíðaverk-
smiðja Jóhannesar Reykdals í
glugga einum uppi í Bankastræti.
í öðrnm af hinum háu sýningar-
gluggum í stórhýsi Lárusar G. Lúð-
vígssonar skóverslnnar, er mikil
og skemtileg sýning frá Eimskipa-
fjelagi íslands, þar sem sýndar eru
siglingaleiðir fjelagsins, líkan af
nokkrum skipum þess, Ijósmyndir
frá þeim o. fil. Fer vel á því, að
sýning þessi er svo áberandi, þar
sem einn af meginþáttunum í starf
semi „fslensku vikunnar41 er, að
efla samhug þjóðarinnar utan um
fjelajgið .
í sýningargluggum sama húss er
önnur húsgagnasýning frá Hjálm-
ari Þorsteinssyni, er ber vott um
sams konar vandaða vinnu og hin
fyrri.
Þar er og sýning á prentvinnu
ýmis konar frá Fjelagsprentsmiðj-
unni.
í næsta húsi er önnur húsgagna-
sýning, frá húsgagnavinnustofu
Kristins Sveinssonar, borð, hæg-
indastólar o. fl. þá er í Bankastr.
11 sýning á húsgögnum hjá Er-
lingi Jónssyni. Er yfirleitt vand-
aður og smekklegur frágangur á
húsmunum þessum.
Á horninu á Ingólfastræti og
Bankastræti eru húsgögn og aðrir
munir sýndir frá Körfugerðinni.
Þar er og sjerstök deild af mun-
um^sem hlindir menn hafa unnið,
og eru á sýningarspjöldum hvatn-
ingarorð til manna, að styðja þá
blindu iðnaðarmenn, með því að
kaupa minii þeirra. Þar eru ótrú-
lt'ga margbrotnir smíðisgripir
þeirra, svo sem kommóður af ýms-
um stærðum, tágavinna ýmis konar
o .fl.
Á Laugav. 11 (Kaffilindinni) eru
sýndar afurðir frá kökuverksmiðj-
unni Svana, á Bergstaðastræti 29.
Þeir Kristján Siggeirsson og
Benedikt Waage í versl. Áfraan,
liafa báðir talsvert af innlendum
húsgögnum á útsölum sínum og
hafa hina innlendu vinnu fremst
í vörusýningum sínum þessa daga,
enda hafa báðar verslanirnar
vinnustofur. Hefir Krisján Sig-
geirsson ýmis konar húsgögn í
borðstofur og svefn'herhergi, ásamt
hiismnnnm, svo sem lausastig-
um o. þessh. Versl. Áfram leggur
aðaláhersluna á stoppuð húsgögn.
Þar er m. a. nýlunda á því sviði,
sem er hinn svonefndi bólstur-
bekkur.
í versl. Brynju sýnir Guðmundur
Breiðfjörð blikksmiður ýmis kon-
ar smíði sína, svo sem fötur og
dunka, könnur og katla, rennur o.
m. fl.
Hjá Marteini Einarssyni er mikil
sýning af Sanitas-vörum, í áber-
andi smekklegri niðurröðun. •
Þar ér og sýning frá járnsmiðj-
unni Síndra á Hverfisgötu 42, járn-
grindur o. m. fl.
Ásgarðssmjörlíki hefir mikla og
skemtilega sýningu í Edinborg. —
Sláturfjelag Suðurlands matar-
mikla' sýningu í Matardeildinni í
Mjólkurfjelagshúsinu. 1 sama húsi
er í glugga blómaverslunarinnar
„Blóm og Ávextir“ smekkleg sýn-
ing af íslensknm gróðri, og Mjólk-
urfjelagið sjálft sýnir afurðir sínar
í sjerstakri sýningu. í versl. Verð-
andi er sýning frá Sjóklæðagerð-
inni.
Yms fyrirtæki settu upp vöru-
sýningar í gær, sem Mbl. hefir
ekld haft, tækifæri til að sjá enn
þá.
Heillaósk frá sýslufundi Vestur-
Skaftfellinga.
I gær harst framkvæmdanefnd
„íslensku vikunnar“ eftirfarandi
skeyti frá sýslufundi Vestnr-Skafta
fcllssýslu:
„Aðalfundur sýslunefndar Vest-
ur-Skaftafellssýslu, sem hófst í
’dag, sendir framkvæmdanefnd „ís-
lensku vikunnar“ heillaósk og von
ar góðs árangurs af vel byrjuðu
starfi“.
írska fríríkið og England.
Dublin, 2. apríl.
United Press. PB
Fríríkisstjórnin hefir haldið fundi
til að yfirvega hvernig svara skuli
seinustu orðsendingu bresku rík-
isstjórnarinnar. Uppkast að svari
mun hafa verið gert á fundi, sem
lauk laust fyrir miðnætti í gær-
kvöldi og er sagt, að fríríkis-
stjórnin ætli að taka vinsamlegri
stefnu í garð Breta, en ætlað hefir
verið að undanförnu. Búist er við,
að svar fríríkisstjórnarinnar verði
sent Bretastjórn á sunnudag eða
mánudag.
Fríríkisstjórnin mun ekki klofin
í málinu, eins og heyrst hefir,
en ýmsra ástæðna vegna þykir
líklegt, að ráðlegra þyki að fara
áamvimnuleið í málunum, enda hafa
nýlendur Bretlands mikinn áhuga
fyrir því, að góð samvinna haldist
milli írlands og Bretlands og ný-
lendanna.
llier treystDm bvi
að fólk noti eingöngu íslenskan mat í tílefni af
íslensku vikunni.
Mest og best úrval fáið þjer í
Matarversl. Tómasar lónssonar,
2.
Sími: 212.
Laugaveg 32.
Sími: 2112.
Brasðraborgarstíg 16.
Sími: 2125.
Frá umrœðum
um stjómarskrármálið
f Efri ðeilð í ga?r.
Eins og tilkynt hafði verið, bæði
í blaðinu og útvarpi, var stjórnar-
skrárfrumvarpið til annarar umr. í
Ed. í gær. Fekk hver flokkur varp-
að út þrem ræðum, hálftíma ræðu,
15 mínútna ræðu og 10 mínútna
ræðu. Talaði Jón Þorláksson af
hálfu Sjálfstæðisflokksins, Jón
Baldvinsson af Alþýðuflokknum og
forsætisráðh. f. h. Framsóknar-
flokksins. Er frumræða Jóns Þor-
lákssonar birt á öðrum stað hjer
í blaðinu.
Jón Baldvinsson gerði grein fyr-
ir afstöðu Alþýðuflokksins. Sagð-
ist vera meðfylgjandi frv. af því
það fullnægði kröfum síns flokks
í grundvallarátriðum. En sjerstöðu
kvaðst hann hafa um ýms atriði,
sem flutt voru í nefndaráliti Sjálf-
jStæðismanna. Kvaðst hann mnndu
greiða atkv. með frv., en gegn brtt.
minnihlutans (Framsóknarmanna).
Forsætisráðh., Tr. Þórhallsson,
talaði í frumræðu sinni vítt og
breytt, og kom lengi ekkert að frv.,
sem fyrir lá .Sagði hann það happ,
að stjórnarflokkurinn hefði fengið
því ráðið, að milliþinganefnd var
sett í málið, því þjóðin hefði síðan
öðlast mikla þekkingu á kjör-
dæmamálinu. Gætti hann þess ekki
að taka frarn, hvað Framsókn hefði
lagt til þeirrar þekkingar, en eins
og knnnugt er, hefir stjórnarblað-
ið svo að segja ekkert um málið
sagt síðan nefndin var skipuð,
nefndarmenn flokksins skiluðu
aldrei neinu áliti, og greiddi ekki
einu sinni atkvæði í nefndinni, held
ur sátu og þumbuðust, Þá talaði
hann langt mál um það, að stjórn-
arlög flestra Norðurálfuþjóðanna,
væru ,byltingarstjórnarskrárí, ættu
byltingu að baki sjer. En alveg
láðist honum að geta þess, eða
hefir kannske ekki verið það Ijóst,
að flestar byltingar eiga afturhald,
óstjórn og kúgun að hahi sjer. og
eru af því sprottnar, að þröngsýn-
ar ofríkisstjórnir hafa fylt mæli
svnda sinna.
Loks vitnaði forsrh. í ýms um-
mæli J. Þ. frá 1930, en fór þar
ýmist rangt eða villandi með. Taldi
han» að J. Þ. hefði haft skoðana-
skifti í þessu máli, þar hann hefði
sagt 1930, að taka bæri tillit til
fleira en þess, að kjósendur hefðu
jafnan kosningarrjett og flokk-
arnir fengju hlutkfallslega rjetta
þingmannatölu eftir atkvæðafylgi
við kosningar. Annars var sjðari
hluti ræðu Tr. Þ. mest um „höfða-
tölu“, sem hann var mjög mótfall-
inn að rjeði við skiptin Alþingis.
J. Þ. svaraði þessari ræðu. Sýndi
fyrst fram á að ráðh. hefði rang-
fært orð sín um þetta mál 1930,
síðan, að það væri hinn aumasti
misskilningur, að tillögur Sjálf-
slæðismanna nú væru í ósamræmi
við það, er hanri þá hjelt fram.
Hann hefði þá mótmælt því, að
ekki bæri að taka tillit til neins
nema kjósendatölunnar. í samræmi
við þetta væri með tillögum Sjálf-
'stæðismanna sjeð fyrir rjetti kjör-
tdæmanna til að eiga sjerstaka full-
Ifrúa á þingi.
Um brtt. Framsóknarmanna
kvað hann litla þörf að ræða. Þeg-
|ar komið væri á þá braut að binda
jætti með sjálfri stjórnarskránni, að
.menn hjer á landi skuli ekki njóta
sama rjettar, heldur aðrír meiri
|en hinir minni, en þeir sem minni
hefðu rjettinn, skyldu þó ekki
hafa ófyllri skyldur, þá væru þær
till. í rauninni ekki umræðnhæfar.
Sagðist hafa gengið inn á vopna-
hlje í þessu máli, er milliþinga-
'nefnd var kosin. Það vopnahlje
|mætti ekki enda með því, að lands-
menn væru greindir þannig í
flokka með tvenns konar rjetti en
sömu skyldum. Engir óbótamenn
hjer á landi ynnu verra verk en
þeir, sem með blaðaskrifum og
!■ fundaræðum ynnu að því, að lands
|menn greindust í tvo fjandsam-
, lega flokka eftir því, hvort þeir
væru í sveit eða kaupstað.
Tr. Þ. svaraði þessum síðustu orð
um á þá leið, að hann vildi taka
undir það með J. Þ. að þeir menn,
sem ineð blaðaskrifum og ræðum
eggja til þess að menn hjer á
landi greinist í f^andsamlega
flokka, fremji hið versta verk, og
líka vil jeg taka. það til mín, sagði
liann, að stjómin beri mikla í>-
byrgð á úrslitum þessa máls.
Það eftirtektarverðasta við þess-
ar umr. var það, að Tr. Þ. gekk
nálega fram hjá því að leíða rök