Morgunblaðið - 04.10.1932, Blaðsíða 2
4
M 0 RG'O NBLAÐIÐ
Tilkynnlng
nm
bnstaðaskifti.
ÞEIR, sem hafa brunatrygða hjá oss innanstokksmuni
og flytja búferlum, eru alvarlega ámintir um að tilkynna
oss það hið allra fyrsta.
Brnnadeild Sjðvátryggingarfjelags íslands h.I,
Eimskip 2. hæð. — Símar 254—309—542.
Knnnadeild
Slysavarnaflelags Islands
hefir ákveðið að hafa basar laugardaginn 8. okt. kl. 4 síðd.
í Goodtemplarahúsinu.
Fjelagskonur eru vinsamlegast beðnar um að afhenda
muni þá sem þær hafa ákveðið að gefa fimtudaginn 6. þ.
m. kl. 3 á skrifstofu fjelagsins og eftir þann tíma til laug-
ardags. — Vjer væntum að allir velunnarar Kvennadeildar
Slysavarnafjelags íslands styðji basar vorn.
BASARNEFNDIN.
Nðmskelð
í leikfimi og knattleikum heldur undirritaður frá 5. þ. m. til aprílloka 1933.
Namskeið þetta er fyrir stúlkur og pilta á ýmsum aldri, einnig frúarflokk og
Old Boys. Ennfremur verður morgunleikfimi fyrir þá sem þess óska.
Kenslugjald er mjög sanngjarnt.
Er til viðtals í leikfimissal Nýja barnaskólans mestan hluta dagsins og
næstu kvöld í síma automat 10 frá 71/2—9, og veiti þá allar nánari upplýsingar
Aðalsteinn Hallsson,
fimleikakennari.
liHllitirikíliii
verður settur næstkomandi laugardag 8. þ. m. kl. 9 síðd. í
Hljómskálanum. Nýir píanónemendur mæti á föstudag kl.
2 og fiðlunemendur kl. 4.
Skólastjórinn.
Uniur lOolræðlngur
getur fengið framtíðar atvinnu,
sem lögfræðilegur ráðunautur
við verslunarfyrirtæki hjer í
bænum. — Umsóknir auðkendar
, „Lögfræðingur“, sendist til A.
S. í. —
Manndnction.
Jeg hefi hugsað mjer að veita kenslu í stærðfræði heima hjá mjer í-
vetux, nokkrum nemöndum saman, líklega þremur í flokki. — Farið verður
yfir eins árs skólapensum.
3 hálftímar á viku. — 3 kr. um vikuna.
ÓLAFXJR DANÍELSSON,
dr. phil.
Sími: 5 3 9.
Thorvaldsensfjelagið
heldur fund þriðjudaginn 4. þ. m. kl. 8y2 á Hótel Borg
(gengið inn um syðri dyrnar).
Áríðandi mál. Fjölmennið.
Rannsóknin.
Eins og kunnugt er orðið, fyr-
irskipaði Jónas frá Hriflu saka-
málsrannsókn gegn mjer hinn
23. maí í vor. Hann vissi þá, að
hann hlaut að fara úr dómsmála-
ráðherraembættinu einhvern
næstu daga og hafði grun um, að
jeg ætti að taka sæti hans. Ætl-
aði hann yitaskuld að hindra
þetta með fyrirskipun þessari, en
þingið sýndi þessu tiltæki hans
viðeigandi fyri'rlitningu, og fól
mjer að gegna dómsmálaráð;-
herraembættinu.
Jeg Ijet jrpjg þessa fyrirskipun
litlu skifta og hefi hingað til
ekkert um hana ritað. En með
því að rannsókn málsins er nú
lokið, og nieð því að þau blöð,
sem JónaS/jfrá Hriflu og hans
fylgifiskar þjfa tök á, ausa nú
daglega yfir, mig svívirðingum út
af»þessari j-0,nnsókn, þá tel jeg
mjer hvorkj rjett nje skylt að
þegja lenjjur og mun því hjer
segja málayöxtu í aðaldráttum.
í októbermánuði 1929 kom til
mín sem má,lafærslumanns kaup-
maður hjer í bænum og tjáði
mjer, að hann hefði notað í eig-
in þarfir mikið fje, sem hann
hefði innheimt fyrir erlent firma.
Mundi uihboðsmaður firmans
bráðlega koma hingað til lands
og heimta gíeiðslu, en hann hefði
ekki handbæra peninga til að
greiða nemá lítið af skuldinni.
Jeg sagði káupmanni þessum, að
áður en jeg gæti sagt um, hvað
rjett væri að gjöra í þessu, yrði
jeg að fá skýrslu löggilts endur-
skoðattda um efnahag hans, eins
og hann þá væri.
Skýrsla þessi var svo gerð, og
samkvæmt henni voru skuldir
alls tæplega 123.000 kr., þar af
rúmlega 68.000 kr. við hið erl.
firma, sem átti Hið innheimta fje,
rúmlega 27.000 við aðra skuld-
heimtumenn, flesta erlenda, um-
boðsvörur fyrir rúmlega 4.000
kr. og um 23.500 kr. við ýms
skyldmenni ihans erlendis. Gaf
kaupmaðurinn mjer þá strax^þær
upplýsingar, að í þessu sambándi
þyrfti ekki áð taka tillit til þess-
ara skulda hjá venslamönnum
sínum, því að þær yrðu ekki af
honum heimitar, nema hann gæti
greitt öllum öðrum að fullu. Þær
skuldir, sehf taka þurfti tillit til
væru því, eftir frásögn hans,
tæpl. 100.0QÓ kr. Eignir samkv.
skýrslunni vóru um 98.000 kr. og
voru þá ek-ki taldar með 6.000
kr., sem var óumsamin innieign
hjá erlendu' firma. Ennfremur
kom það í ljós síðar, að 5.000 kr.,
sem talið var að hefði verið eytt,
voru greiddar upp í skuid, sem
þannig var tálin 5.000 kr. of hátt.
Eftir þessu ér ekki annað sjáan-
legt, en að káupmaður þessi hafi
átt 8—9 þús. kr. umfram skuld-
ir, þegar ekki eru taldar með
skuldir venslamanna.
Með því að kaupm. hafði ekki
peninga að ráði og með því að
hið erlenda firma gekk hart eft-
ir skuld sinni, þá var það ráð
tekið, að framselja firmanu úti-
standandi skuldir og vörur fyrir
samtals um 47.000 kr., og sá jeg
um samningsgerðina og tók að
mjer innheimtu skuldanna.
I febrúar 1931 varð svo kaup-
maður þessi gjaldþrota, og við
rannsókn, sem lögum samkvæmt
fór fram út af gjaldþrotinu,
komu auðvitað fram upplýsingar
um samninga þessa, og með því
að jeg hafði verið þar við riðinn
sem málafærslumaður, þótti bera
vel í veiði um að höggva í minn
garð. —
Á því, sem að framan er sagt,
er rannsóknin reist. Jeg á að
hafa gert mig sekan um hlutdeild
I sviksamlegu athæfi með því að
útbúa framannefndan samning
um framsal vara og skulda og
hlutdeildin á að liggja í því, að
jeg lagði til grundvallar efna-
hagsreikning löggilts endurskoð-
unarfirma, og tók til greina þá
skýringu skuldunauts, að hann
þyrfti ekki að taka í þessu sam-
bandi tillit til skuldanna við
venslamenn sína. Þess má geta,
að við rannsókn málsins hefir
það sannast, að skuldunautur
hafði skýrt alveg rjett frá um
þessar skuldir.
Hjer er þá í fám orþum sögð
saga málsins og aðdragandi. Get-
ur nú hver og einn metið hvað
hann finnur saknæmt í þessu.
Jeg er ekki hræddur við dóm
skynbærra og óvilhallra manna.
Jeg er þess fullviss, að einungis
pólitískur dómstóll getur dæmt
mig sekan, en slíkum dómi ætla
jeg ekki að hlíta, — Jónas frá
Hriflu hefir farið margar póli-
tískar herferðir gegn mjer, en
enn þá hefir honum ekki hepnast
að sigra, og jeg er sannfærður
um, að hann sigrar ekki heldur
að Iokuhi í þessari herferð. Með-
an hann var dómsmálaráðherra
var hann sjálfur dæmdur í refs-
ingu fyrir órjettmæt og mann-
orðsspillandi ummæli. Hann er
því ekki til þess fallinn, að vera
siðameistari.
í þinglokin í vor var þessi á-
kæra á hendur mjer nefnd, og
allir þingmenn vissu um hana.
Jónas frá Hriflu lýsti því þá yfir
í þinginu, að tiltektir hans gagn-
vart mjer stöfuðu af því, að Pjet-
ur Magnússon alþm. hefði kært
mig. Þetta voru vitaskuld hrein
ósannindi. Síðan hefir blað J. J.|
hvað eftir annað haldið því fram,
að fjelagi Pjeturs, Guðm. Ólafs-
son hæstarj.málaflm., hafi, kært
mig, en Guðm. Ólafsson hefir nú
opinberlega andmælt þessu. Og
hann hefir meira að segja sent
ritstjóra Tímans þau andmæli í
brjefi, en blaðið vill ekki birta
þau, heldur þakkar fyrir brjefið
í heild og segir, að það staðfesti
fyrri ummæli sín.
Fyrirlitlegri blaðamensku en
þetta, get jeg ekki vel hugsað
mjer, en þetta er gott sýnishorn
af bardagaðferðinni í þessu máli
gagnvart mjer.
Að síðustu vil jeg aðeins láta
hina mörgu vini mína, kunningja
og fylgismenn um land alt vita,
að þeir þurfa ekki að bera neinn
kinnroða mín vegna út af þessu)
máli. Það sem jeg hefi orðið fyr-
ir, er ekki annað en alveg ó-
vanalega ósvífið og illgirnislegt
aurkast af hálfu pólitísks and-
stæðings, sem notaði til þess svo
að segja síðasta augnablik þess
valdaferils, sem hann vissi, að
var á enda.
Magnús Guðmundsson.
„Qnllioss"
fer annað kvöld1 kl. 8 um
Vestmannaeyjar beint til
Ka apmannahaf nar.
Farseðlar óskast sóttir fyr-
ir hádegi á morgun.
„Boðafioss11
fer væntanlega annað kvöld í
hraðferð vestur og norður.
Patreksfjörður aukahöfn.
Farseðlar óskast sóttir fyr-
ir kl. 2 á morgun.
Hfingar
kvöld.
Kl. 6 yngri flokkar, drengir.
Kl. 7,30 annar flokkur karla.
Kl. 8,30 annar flokkur kvenna.
Vinsamlegast greiðið æfinga-
gjaldið á fyrstu æfingu.
íþróttafjelag Reykjavíkur.
Borðstofusett úr mohogni,
sem nýtt. Stráhúsgögn, sófi
og tveir stólar. Gólfteppi.
Sti^ateppi. Dyratjöld. Hvítar
og: mislitar gardínur. Vínglös
og- leirtau og margt fleira.
Til sýnis og- sölu í Vonar-
stræti 4 í kjallaranum.
Asta Úlafsson.
OdVrt ilílnr
fæst i dag
úr vænu fje úr Borgarfirði. —
Sent heim, minst fimm. Sími er
1834. —
Hiötbúðin Borg.
Klapparstíg 8. Laugav. 78.
Teiknibestik
■ nýkomin
helm
i mikln úrvali.
Thiclej
Anstnrstrætí 20