Morgunblaðið - 13.11.1932, Side 9

Morgunblaðið - 13.11.1932, Side 9
Simnudaginn 13. nóv. 1932. 9 Nokkur orð „um dóminn“. Hinn 9. þessa mánaðar kvað Hermann Jónasson npp dóm í máli því er Jónas frá Hriflu hafði látið höfða gegn C. Behrens, M. Guð- mundssyni, ráðherra og N. Man- sqþer, endurskoðara. Tilgangur þessarar málshöfðunar var frá upp hafi augljós. Málið hafði legið í dómsmálaráðuneytinu í lengri tíma, en daginn eftir að ákveð- ið er að Jónas Jónsson láti af ráðherrastörfum skipar hann að halda áfram rannsókn málsins, og skipar jafnframt að mál skuli höfðað að rannsókn lokinni. Ðómsmálaráðherrann fyrver- andi, Jónas Jónsson, skipar þannig fyrir málshöfðun áður en rann- sókn er lokið, og Magnús Guð- mundsson hafði aðeins komið einu sinni fyrir rjett sem vitni. Jónas Jónsson fyrirskipar því að mál skyldi höfðað gegn Magnúsi Guð- mundssyni, alveg án tillits til þess hvort síðari rannsókn leiddi í ljós sekt hans eða sakleysi. • Upphaf þessa máls her því aug- ljós merki hinnar pólitísku of- sóknar Jónasar Jónssonar gegn Magnúsi Guðmundssyni. Málið hefir verið mjög lengi undir rannsókn, og þegar dómur íoks kemur eru forsendur hans og niðurstaða eflaust að vilja Jón- asar og í þeim stíl, sem læ&ur „Tímanum“ best. Hæstirjettur mun á sínum tíma kveða upp endanlegan dóm 1 þessu máli. Undir venjulegum kringum- stæðum mundi þvi rjett að leiða hjá sjer refsimál sem þetta, þar til endanlegur dómur væri geng- inn. En þegar þess er gætt hvernig mál þetta er tilstofnað, hvernig forsendur þess eru samdar, og að dómurinn síðan er birtur í Tím- anum sem pólitísk árásargrein, er ekki úr vegi að taka nokkur at- riði til almennrar athugunar. Magnús Guðmundsson er dæmd- ur til refsingar fyrir það að hann hafi 7. nóv. 1929 veitt C. Behrens aðstoð til þess að ívilna einum skuldheimtumanni C. Behrens á þeim tíma er hann hlaut að sjá gjaldþrot hans fyrir. Skuldin við h.f. H,öepfner var tvennskonar. Sumpart almenn verslunarskuld, en þó mestmegnis skuld er stofnaðist við það að Behrens skilaði ekki af sjer inn- heimtufje. — Frá almennu sjón- armiði sjeð hefði h.f. Höepfner átt að vera rjetthærra en aðrir kröfuhafar að því er snerti inn- heimtufjeð. Samningur sá, sem gerður var 7. nóv. 1929 er bygður á efna- bagsreikningi Behrens pr. 28. okt. sama ár. — Magnús Guðmundsson fer vitanlega í öllum aðalatriðum eftir þeim niðurstöðutölum, sem, þar eru gefnar upp. — En jafn- framt því, sem dómarinn slær því föstu að efnahagsreikningurinn sje rjettur — með því að sýkna þann sem samdi reikninginn — dæmir hann Magnús Guðmundsson fvrir að fara eftir honum og segir að 'Imnú hftfi átt að vita að efna- liagsreikningurinn væri rangur og ekkert á niðurstöðutölum hans að bjrggja. Jeg sje ekki ástæðu til að at- huga það hvort Behrens hafi átt fyrir skuldum, ef „skyldmenna- skuldunum“ var slept, því það skiftir engu máli, hvort svo var eða ekki, er dæma skal um það hvort samningurinn frá 7. nóv. sje refsiverður eða ekki. En í „hlut- lausum“ forsendum dóms hefði dómarinn væntanlega mátt geta þess að auk þeirra 6000 króna er hf. Höepfner gaf eftir lækkaði skuld Behrens síðar um 5000 krón- ur frá því sem segir í samningn- um, og að 5500 króna skulda- brjefið var aldrei greitt og Tofte mun hafa lofað,að gefa það eftir. Það mun einnig fram koma í texta brjefsins. Ef þessara tölur eru teknar til greina er augljóst að Behrens á meira en fyrir skuldum, ef ætt- ingjaskuldunum er slept. Ef að þessa er gætt, og tekið er tillit til þess, að staðhæfingu M. G. um það að ekki þyrfti að telja með „skyldmennaskuldirnar1 ‘, í engu er hnekt, þá fæ jeg eigi sjeð, hvernig hægt er að telja að M. G. hafi hlotið að sjá að gjaldþrot C. Behrens vofði yfir. Enda getur enginn í alvöru talið að gjaldþrot, sem fram kemur 16. jan. 1931, hafi fyrirsjáanlega vofað yfir 7. nóv. 1929. Jeg tel þó ekki að „Solvens“ C. Behrens skifti hjer máli, heldur hitt hvort Behrens hafi 7. nóv. 1929 greitt eða trygt meira af kröfu hf. Höepfners en svo, að hann á sama tíma gæti trygt aðra kröfuhafa sína hlutfallslega eins. Til þess að finna það út, verður að athuga hve háan hundraðs- hluta C. Behrens gat greitt kröfu- höfum sínum, og hve háan hundr- aðshluta hf. Höepfner feltk greitt. En áður en jeg vík að því, vil jeg með örfáum orðum athuga hvað dómarinn hefir gert í þess- um efnum, og hvernig hann orðað hinar „hlutlausu“ forsendur dóms ins um þetta atriði. Dómarinn hefir ekki gex-t neina tilraun til þess að reikna út livert hið „raunverulega“ verð eignanna var. Hann leyfir sjer aðeins að slá því föstu að Magnús Guðmundsson hefði átt að sjá að eignirnar væru altof hátt metnar. Það er jafnvel svo að skilja að hf. Il]öepfner hafi fengið allar eign- irnar nema 1 ritvjel, sem til var, er Behrens varð gjaldþröta. Og í forsendum dómsins segir hann, að Magnús Guðmundsson hafi ætlast til að „allir fengju sitt“, og gefur þarmeð í skyn að Magnús Guð- mundsson hafi trygt hf. Höepfner að fullu. Hvergi verður þó þetta sjeð. Þvert á móti sýnir upphaf samningsins frá 7. nóv. samanbor- ið við 1. og 2. gr. hans að hf. Höepfner fekk greiddan aðeins nokkurn hluta kröfunnar. Síðari greiðslur til firmans eru afskift- um M. G. af málinu algerlega óviðkomandi. Hverjar voru raunverulegar eignir Behrens 28. okt. 1929? 1. Sjóður ............... 6041.22 2. Bornh. Maskinfabrik 3832.00 3. Innanstokksmunir .. 1558.15 4. Vörubirgðir ......... 35118.42 Um þessa liði virðist ' ekki vera neinn ágrein- ingur. 5. Ýmsir skuldunautar.. 42201.52 Dómarinn telur að M. G. hefði átt að sjá að þessi upphæð væri altof há. Og hann segir: „Nær slíkt vitanlega ekki nokk- urri átt, því hver og einn veit að verslunarskuldir eru meira og minna óvissar, og af þessum skuld um hafði verið mjög óeðlilega lítið afskrifað undanfarin ár“ — og „að C. Behrens og áðurnefndir við- semjendur álitu ekki úrval skuld- anna nærri nafnverðisverði“. Enga tilraun gerir þó dómarinn til þess að finna rök fyrir þessu nje heldur skýrir hann frá hvað hafi verið sannvirði skuldanna. Upplýst er, að 21. maí 1930 á Behrens eftir alls útistandandi kr. 10.454.56, og eru þrameð taldar þær skuldir sem stofnuðust við verslun hans eftir 7. nóv. 1929. Behrens telur að þessar skuldir sjeu ca. 2000 kr. virði. Hefir dóm- arinn ekkert við það mat að athuga. Ef þetta væri rjett, væri raun- verulegt verð skuldanna kr. 33.- 656.96, en hinsvegar er þess að gæta að bæði hafa stofnast nýjar kröfur, sem ef til vill voru verri en þær sem til voru 28. okt., og eins hitt að þó einhver hluti kraf- anna reyndist óinnheimtanlegur 1930 þurfti það ekki að vera fyr- irsjáanlegt 7. nóv. 1929. Auðvitað gengur dómarinn framhjá þessu. 6. Húseignin í Hafnarfirði kr. 8500.00. Þeir sem lesa dóminn munu eflaust reka augun í það, að dómarinn minnist aldrei á þessa eign, — sem þó er tilfærð á efna- hagsreikningnum 28. okt. Honum er hinsvegar tíðrætt um húseign- ina nr. 14 við Lindargötu, sem hvergi er til færð á efnahagsreikn- ingi þann 28. október, og slær því margoft föstu, að það verð, sem Behrens gaf fyrir þá eign, kr. 60,000, sje altof hátt, og M. G. hafi hlotið að vera það kunn- ugt. Til skýringar vil jeg geta þess að sumarið 1929 hafði Behr- ens gert samning um kaup á Lind- argötu nr. 14 fyrir kr. 60 þús. En upp í kaupverðið átti húseign hans í Hafnarfirði að ganga, sem greiðsla, og var verð hennar á- kveðið kr. 10 þúsund. Behrens taldi hinsvegar að seljandi hefði rofið samninginn og taldi sig ekki bundinn. Þegar því efnahagsreikn- ingurinn var gerður 28. ökt. og samningurinn 7. nóv. var alveg óvíst um það hvort Belirens ætti Lindarg. nr. 14 eða húseignina í Hafnarfirði. Manscher hefir þó fært eignina í Hafnarfirði inn á efnahafsreikning Behrens, og dóm- arinn hefir ekkert við það að at- huga. f raun og veru átti það ekki að skifta máli hvor eignin var færð, sökum þess að það átti ekki að geta haft áhrif á ,Htatus“. AhklB NMA dfilðii BUBMW] HKIM/ l/LEN/KA /KÓAeURÐ H. B. i Gi. Nokkrarj tnnnnr, heilar og: hálfar, af g-óðu saltkjöti, seljum við næstu daga, mjög ódýrt. I Q fc'jd) m ébé & CO* "Ir d 8 (4 línur). Lindarg. nr. 14 gaf í leigu 7200 kr. á ári og verðið kr. 60 þús. virtist ekki of hátt. Auk þess er þess að gæta að gerð voru maka- skifti og eignin í Hafnarfirði var reiknuð á kr. 10 þús. en eklri kr. 8500 eins og hún er færð upp með á ^fnahagsreikningi. Hvers- vegna minnist dómarinn ekki á þetta ? Það er eltki talið refsivert af Manscher að færa eign þessa sem 8500 króna virði, hversvegna er það þá refsivert af M. G. að byggja á niðurstöðutölu þessa liðs 1 Ef þó hinsvegar að söluverð Lindg. nr. 14 kr. 53.200 er lagt til grundvallar + 1500 kr. ágóða af húseigninni í Hafnarfirði, verð- ur raunverulegt verð eignarinnar 54.700 að frádregnum veðsk. 50000. Netto eign kr. 4.700.00. Raunverulegt verð eigna nemur því alls kr. 84.806.75. Skuldir nema hinsvegar krónum 122.979.92. Þar með taldar ætt- ingjaskuldirnar. Behrens gat því samkv. þessu greitt hverjum ein- stökum kröfuhafa 68.9%. Hvað greiddi Behrens hf. Höepfner mörg prócent af skuld- inni? Á sama tíma og skuldirnar eru taldar alls 122.979.92, skuldar Behrens hf. Höepfner kr. 68.148.19 Upp í þessa skuld fekk h.f. Höepfner greitt 1. Með vörum ........... 27.836.33 2. Með útisandandi skuld um sem að nafnverði voru kr. 19100 en væntanlegt raunverulegt verð .... 15.447.30 sbr. 2. gr. samningsins eða alls ................ 43.283.63 Sien bessar tölnr lasrðar til grundvallar fær hf. Höepfner h. 7. nóv. 1929 greitt upp í skuld sína 63.5%. Af þessu er það ljóst að Behr- ens gat 7. nóv. greitt öllum sín- nm kröfuhöfum hlutfallslega jafn mikið og hann greiddi hf. Höepfner. Hann hafði því ekki með fram- sali á vörum og skuldum ívilnað einstökum, kröfuhafa. Ef framangreindar niðurstöðu- tölur eru rjettar vill þá dómarinn lialda því fram, að greiðslan til hf. Höepfner sje refsiverð ? — Naumast. Við þetta bætist og það, að ef gefið var ► 5t:r meira eöi minpa iif skaldiuu.n hækkaði huudraðs- hluti sá er Behrens mátti greiða hlutfallslega. Dómarinn virðist vilja blanda saman samningnum frá 7. nóvbr. 1929 og síðari tilraun til samninga þlment, og loks gjaldþroti Behr- ens. Honum er þó eflaust Ijóst, að hjer er um tvö alóskyld atriði að ræða, og riftunarrjettur kemur vitanlega ekki til greina, þegar af þeirri ástæðu, að frestur til rift- unar er liðinn þegar síðari efna- hagsreikningurinn er gerður. Þó Behrens væri orðinn margfaldlega „insolvent“ í maí 1930, sannar það á engan hátt, að efnahagurinn hafi verið verri en efnahagsre'1 ingur greinir í okt. 1929. Staðhæfingar dómarans um þetta atriði, og margendurteknar aðdróttanir til Magnúsar Guð- mundssonar um það að hann hefði vitað að ekki mætti byggja á efnahagsreikningnum, eru aðeins tilraunir til að gera hann tor- tryggilegan í augum lesenda Tím- ans, en geta ekki staðist sem hlutlausar forsendur dóms. Hefi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.