Morgunblaðið - 15.01.1933, Blaðsíða 4
4
MORtiUNBLA^IÐ
Huglýsingadagbók
Kladdabók, nokkuð skrifuð, lief-
ir tapast frá Laugavegi 47 að
veppsluninni Von á Laugaveg. Finn-
audi er vinsamlega beðinn að gera
aðvart á afgreiðslu þessa blaðs.
Heikningar til fjelagsins Sumar-
gjafar verða greiddir á mánudög-
um kl. 5—7 á skrifstofu fjelagsins
í' húsi Andrjesar Andrjessonar,
Laugaveg 3. __________________
Glaenýr stútungur. Fiskbúðin í
Kolasundi. Sími 4610.
Kenslukona les með börnum
og unglingum. Upplýsingar í
síma 2563.
tzlensk málverk, fjðlb*,eytt úr-
_val, bæði í oltu og vatnslitnm,
sporöskjurammar af mörgum
stærðum, veggmyndir í stóru úr-
vali. Mynda- og rammaverslunin,
Freyjugötu 11. Sig. Þorsteinsson.
Sími 2105.
MATUR OG DRYKKUR.
Fast fæði, einstakar máltíðir,
kaffi, öl, aosdrykkir með lægsta
verði í Café Svanurinn. (Homið
við Barónsstíg og Grettisgötu.
M.s. Dronning
Alexandrine
fei’ þriðjud'aginn 17. þ. mán.
kiukkan 8 síðdegis beint til
Kaupmannahafnar (um Vest
mannaeyjar og Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla á
mánudag.
Tilkynnir.gar um vörur
komi sem fyrst.
Sklpaafgrelðsla
Jes Zimsen.
TryggvagOti. — Sími 3025.
Tveir
geymsiukjallarar,
hentugir fyrir salt eða annað
eru til leigu, strax.
Verslnn 6. Zoéga.
Pólskir verkamenn reknir úr
Frakklandi.
Fransba stjórnin hefir vísað
50.000 pólskra verkamanna úr
landi. Á að flytja þá á kostnað
pólsku stjórnarinnar til landa-
mæra Póllands og skila þeim þar.
Þetta hefir vakið hina mestu
-gremju í Póllandi, og eru blöðin
rtu í fyrsta skifti æf í garð Frakka.
Þykir þeim hart að fá nú um há-
veturinn 50.000 atvinnuleysingja í
viðbót við þann fjölda atvinnu-
leysingja, sem fyrir er í landinu.
Kreppuráðstafanir
Hriflunga og
alit þjóOverja.
Flestum lesendum blaðsins
mun vera kunnugt, að Norðmað-
ur einn, Per Soot að nafni, hef-
ir nokkur undanfarin ár verið
handgenginn Hriflungum, og
unnið að því, að fá ýmislegt í er-
lend blöð, sem passaði í kram
Hriflunga. Vegna ætternis síns
hefir maðurinn íhlaupa aðgang
að blöðum.
Fyrirætlanimar um hátekju-
skattinn hefir Soot átt auðvelt
með að útbreiða, vegna þess hve
erlendum blaðamönnum þykja
þær fáránlegar. En Hriflungar
eru þeir heimalningar, sem kunn
ugt er, að þeir halda að hvert
það blað, sem nefnir tillöguna
um hátekjuskattinn geri það
vegna þess, að blaðið fallist á
hana.
„Berliner Tageblatt“ birtir
nýlega fregnina frá Soot. Þar
var hún svohljóðandi.
Fyrverandi dómsmálaráð-
herra íslands, Jónsson, hefir
borið fram frumvarp í þingi ís-
lendinga (Alþingi) um að taka
skuli eignamámi allar árstekjur
manna, sem fari fram úr 4800
mörkum. Tekjur þær, sem ríkis-
sjóður fær á þennan hátt á að
nota til styrktar íslenskri bænda-
stjett, sem sokkin er í skuldir.
Jónsson er í bændaflokknum,
stjórnar flokknum, og einn af á-
hrifamestu þingmönnum lands-
ins. Hann heímtar að lög þessi
gildi í 3 ár.
Um frjett þessa er skrifað:
Lagafrumvarp þetta virðist
mjög róttækt. Væntanlega er
hjer aðeins átt við opinbera
starfsmenn. En einkennilegt
væri, ef fmmvarp, sem þetta,
næði samþykki þingsins. Reynsl-
an í Þýskalandi er sú, að slíkar
örþrifaráðstafanir ná vægast
talað ekki þeim tilgangi, sem
höfundarnir ætlast til.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Höfn
— Goðafoss kemur til Austfjaðra
1 dag. — Brúarfoss fer frá Rvík
í dag, vestur. — Lagarfoss er á
leið hingað. — Dettifoss er í Ham-
borg. — Selfoss er á leið til Ant-
werpen.
Bruggun. Um kl. 4 í fyrrinótt
komst lögreglan að því að verið
væri að brugga áfengi í kjallara.
hússins, Njálsgötu 4 B. Rannsak-
aði hún þetta þegar og reyndist
grunur hennar rjettur, því að þar
var verið að sjóða. Eigandi fyrir-
tækisins taldist Friðsemd Jóns-
dóttir, Njálsgötu 4 B, en tveir
útlendingar voru aðstoðalrmenn
hennar, annar norskur, Hans E.
Jakohsen, Njálsgötu 4 B, og hinn
danskur, Knud Rasmussen, Þing-
holtsstræti 13. Verksmiðjan mun
hafa verið nýtekin til starfa. 1
gærmorgun voru þau öll sektnð
í lögreglurjetti, Friðsemd um 500
kr., en aðstoðarmenn hennar um
400 krónur hvor.
Bethania. Samkoma í kvöld kl.
8y^. Cand. theol. S. Á. Gíslason
talar. Allir velkomnir. Smámeyja-
deildin hefir fund kl. 3% síðd.
Allar smástúlkur velkomnar.
sóttkví í Vestmannaeyjahöfn
vegna inflúensu um borð, en menn
irnir eru nú á batavegi.
Fregnin í blaðinu sver sig í
ættina til Soot, þar sem talað er
um J. J. sem einn af áhrifamestu
þingmönnnm (!)
□agbók.
I. O. O. F. 3 == 1141168 =
kl. 8‘/2 III.
□ Edda 59331177 = 2.
Veðrið í gær: Stormsveipurinn
sem var við Vesturströnd íslands
á föstudagskvöldið er nú kominn
langt norðnr með A-strönd Græn-
lands. Loftvog er mjög lág, eða
um 700 mm. (940 millibar). Kalt
loft streymir nú frá Grænlandi
anstur yfir ísland. Er hríðarveður
vestan lands með 5—6 stiga frosti
er. á Austfjörðum er úrkomulaust
og hiti enn um 0 stig.
Á N-sjónnm er SV-stormur.
Veðuríitlit í dag: V og NV-átt
með hríðarjeljum.
Barnavinafjelagið „Sumargjöf"
hefir nú opna skrifstofu í húsi
Andrjesar Andrjessonar, Lauga-
vegi 3 .
Leikhúsið. Æfintýri á gönguför
verðnr leikið í kvöld kl. 8. Menn
eru vinsamlegast beðnir að mæta
stundvíslega.
Vegna ógæfta hefir ekki verið
róið í Vestmannaeyjum síðan fyr-
ir jól.
Vatnið í Skildinganesi. Auka-
fnndur í Vatnsveituf jelagi Skild-
inganessbauptúns verðnr haldinn í
dag og verða þar ræddir samn-
ingar við Reykjavíkurkaupstað
um baup á vatnsveitu fjelagsins.
Sendisveinadeild Merkúrs held-
ur dansleik í kvöld í K. R. húsinu.
Barnaskapur Hriflunga í hæj
armálefnum Reykjavíkur er þjóð
kunnur. Nú flytur Tíminn þann
fróðleik til bændanna. að Fram
sónkarflokknrinn í bæjarstjórn
vilji bjarga bænum með því að
stofna til bæjarútgerðar. Senni
lega eru það ekki margir bændur
sem gína við slíkri flugu. Það
væri rjett eins og að segja við
bændur í einhverri sveit: Jeg sje
að þið tapið á búskapnnm, vegna
þess að afurðaverðið hrekkur ekki
fyrir tilkostnaði ykltar. Nú skal
jeg kenna ykkur ráð. Stofnið til
búskapar á eyðijörðum, og takið
þið tapið á þeim búskap á ykkar
herðar til viðbótar, og svo skuluð
þið sjá hvort ykkur er ekki
borgið(!)
«
„Að flaka fisk“, er hið íslenska
orð, sem dr. Bjarni Sæmundsson
benti á, að þýddi hið sama, og
á Norðurlandamálum er nefnt að
„filettera“ — en ekki blaka, eins
og misprentaðist hjer í blaðinu
gær. Eins mætti kalla „filet“ af
fiski, fiskflak, enda er nafnið
luðuflak gamalt og gott.
Sósíalistar og' útgerðin. Alþýðu
blaðið heldur enn áfram að reyna
Breskur botnvörpungnr liggur í a<' ^ie^a ' ^a<5 M 1 ulltrúai
sósíalista sögðu á síðasta bæjar
stjórnarfundi nm rekstrartap út
gerðarinnar. Merkilegt að þrír
Jón Árnason framkvæmdastjóri
Sambands ísl. samvinnufjelagá
hefir tebið það ráð, sem alveg
laukrjett var, að gera enga til-
raun til að svara grein Sigurðar
á Veðramóti, sem birtist hjer í
blaðinu nýlega. Ef þögn Jóns
þýðir það, að hann viðurkenni
þjösnaskap sinn í framkomn allri
og rithætti, svik sín við hiná
hlutlausu samvinnustefnu, sem
átti að berjast gegn skuldaverslun
og vanmátt sinn til að bæta úr
vandræðum bænda, þá er þögn
hans framför í dómgreind og fari
mannsins, sem vert er að taka,
eftir. En verið getur, að Jón eigi
ekkert af þessum tilgátum skilið,
hann sje enn í dag jafn þröng
sýnn, ofstopagjarn og skilnings-
sljór, eins og hann hefir áður
verið.
Símasamband var lítið um land-
ið í gær, vegna símslita. Um mið-
aftansleyti náðist samband sunn-
anlahds anstur í Miðey, en til
Vestmannaeyja var að eins loft-
skeytasamband. Samband var við
Blönduós, en ekki lengra á norð-
urlínunni, og ekkert samband við
Vestfirði. Símasamband var nm
Reykjanesskaga.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. í dag hefst hin áxlega
vakningavika starfsins. Barnasam
koma kl. 2 síðd. Vakningasam-
koma kl. 8 síðd. Síðan verða vakn
ingasamkomnr hvert kvöld, alla
vikuna kl. 8. Margir ræðnmenn.
Allir velkomnir.
menn skuli hafa komið sjer saman
um að vera svo lítilmótlegir, að
þverneita því, sem þeir fyrir fám
dögum hafa sagt á opinberum
fundi. Allir þrír, St. Jóh., Sig-
urður og Ól. Friðriksson gerðu
ráð fyrir, að bæjarútgerð yrði hjer
rekin með tapi. En auk þess sagði
St. Jóhann, er honum var bent
á tap bæjarútgerðarinnar í Hafn
arfirði, að hann vissi ekki betur,
en öll útgerðarfyrirtæki einstakra
manna hefðu haft tap á rekstr-
inum árið 1931. Spurði hann bæj-
arfulltrúana, með nokkrnm reig-
ingi, hvort þeir gætu bent á nokk
urt útgerðarfyrirtæki, sem ekki
hefði tapað nú undanfarið.
«
Rök gegn bæjarútgerð, þurfa
sósíalistar ekki að sækja til ann-
ara. Þeir færðn hin bestu rök
gegn henni á síðasta bæjarstjórn-
arfundi, er þeir gerðu fyllilega
ráð fyrir, að hún yrði ekki rekin
nema með miklum styrk frá bæj-
arbúnm.
Hjálpræðisherinn. Samkomur í
dag kl. 11 helgunarsamkoma, kl.
2 barnasamkoma, kl. 4 Hallelúja-
samkoma, kl.8 hjálpræðissamkoma
Adjutant Holland stjórnar sam-
komum dagsins. Á mánudag heim-
ilasambandsfundur kl. 4 og hjálp
ræðissamkoma kl. 8.
María Markan söngkona kom
til Hafnar fyrir skemstu og hafa.
blöðin flutt vingjarnlegar grein-
ar um hana. Ungfrúin ætlar að
syngja opinberlega í Kaupmanna-
höfn.
Brúarfoss átti að fara hjeðan
í gærkvöldi, en burtförinni var
frestað til morguns vegna veðurs.
P'arþegar voru tólf.
Eggert Stefánsson syngur í út-
varp á Daventry-stöðinni þ. 17.
jan. kl. 7,20 síðd., sennilega þjóð-
söng fslendinga o. fl., að því er
hermir í skeyti til F. B. — í skeyt-
inn er ekki tekið fram, hvort um
breskan eða íslenskan tíma er að
ræða.
Utvarpið í dag: 10,40 Veður-
fregnir. 11,00 Messa í dómkirkj-
unni (síra Ólafur Magnússon).
15.30 Miðdegisútvarp. Erindi.
Hvað er fjelagsfræði ?, V. (Símon
Ágústsson magister). Tónleikar..
18,45 Barnatími (Síra Friðrik
Hallgrímsson). Ii9',30 Veðnrfregn-
ir. 19,40 Grammófónkórsöngur.
(Chauve Souris-kórinn). 20,00'
Klukkusláttur. Frjettir. 20,30 Er-
ind^: Kenningar Bergsons um
trúarbrögðin, T. (Guðm. Finnboga-
son). 21,00 Grammófóntónleikar.
Beethoven: Symplionia nr. 4.
(Hallé orkestrið, Sir Hamilton.
Harty). Einsöngur (Alma Gluck):
Foster: IMy old Kentucky home;
Lilinokalani: Alolia oe.. (Yvonne-
Printemps): Lulli: Au clair de-
la. lune; Martini: Plaisir d ’amour.
Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10,00 Veð-
urfregnir. 12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir. 19,05 Gram-
mófóntónleikar. 19,30 Veðurfregn-
ir. 19,40 Tilkynningar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur. Frjettir.
20.30 Erindi: Frá útlöridum (sr.
Sig. Einarsson.) 21.00 Tónleikarr
Alþýðulög. (útarpskvartettinn.)
Einsöngur. Þorhjörg Ingólfsdóttir.
Grammófón: Cello-sóló. (Uaspar
Cassado). Granados: Danzas es-
panolas; Handel: Largo. (Pablo-
Casals): Schumann: Abendlied;
Godard: Bereeuse de „Jocelyn“.
Enskur togari (skipstjóri Guð-
mundur Ebenezerson) kom til
ísafjarðar í gær vegna inflú-
ensu um borð. Hann var settur
í sóttkví. Annar enskur togari
kom til Vestmannaeyja af sömu’
ástæðn og var lífea settur í sótt-
kví.
fsfisksala. Hávarður ísfirðingpr
hefir selt afla sinn í Grimsby,
1300 körfur fyrir 1158 sterlings-
pund.
Glímunámskeið stendur yfir í
ísafirði, kennari Þorsteinn Kristj-
ánsson, Reykjavík. Annað nám-
skeið á að halda í Hnífsdal.
Skarlatssóttinni í Siglufirði er
nú senn lokið, eins og áður hefir
verið sagt. Hjeraðslæknir segir
að hátt á annað hundrað manns
hafi sýkst af veikinni. en sex.
dáið. Nú er verið að sótthreinsa
)íui hús, þar sem veikin er um
garð gengin.
Menn í atvinnuleit. Sagt er að
með „Dronning AIexandrina“
komi að norðan, úr Siglufirði og-
Skagafirði, margir menn til þess
að leita sjer atvinnu hjer syðra.
Lyra gat ekki skipað á land
seim vörum, sem áttu að fara
til Vestmannaeyja, og fór með þær
til Noregs.
Skóladeilan. IJt af deilunni um
leikfimissal Austurbæ j ar-barna-
skólans hefir dómsmálaráðuneyt-
ió nú útnefnt þrjá menn til þess
að kveða upp dóm um það hvort
gólfið í leikfimissalnum sje óhæft
eður eigi. í nefndinni eru Einar
Erlendssson byggingameistari,
Björn Jakobsson fimleikakennari
og Matthías Einarsson læknir.
Barnaguðsþjónusta verður hald-
in í Frakkneska spítalanum í dag
il. 3 síðdégis; öll börn velkomin.
Dr. Alexandrina fór frá Siglu-
firði kl. 2 í nótt er léið: