Morgunblaðið - 12.02.1933, Blaðsíða 2
2
h ». . % i A t B
m
Mristján Hristiðnsson.
söngvari
syngur fyrir gesti okkar
kl. 3i/2 í dag.
Café Víffil
Sími 3275.
« Hljómsveit Reykjavíkur:
«
..« ■ .
■»-« ,
• j Jðnó í dag klukkan 5%. — •
« Það, sem eftir kann að verða •
• af aðgöngnmiðum, verður J
• selt við innganginn frá kl. 4. «
• í
Emall
Balar
rúnnir og ávalr, nýkomnir í
stóru úrvali í
- JARNVÖRUDEILD
Jes Zimsen.
Búskapur
mussolini.
Það má Mussolini, ítalíuráðs-
inaður eiga, að margt lætur hann
gera til viðreisnar landi og lýð.
Meðal annars hefir hann gert stór
feldar jarðabætur þar syðra, þurk
að upp flóa og mýrar og komið
óræktuðum lendum í bestu rækt.
Þetta hefir komið sjer vel, því
fólki fjölgar með hverju ári, svo
gamla landrýmið hrekkur ekki til.
T’erðamaður segir þannig frá í
Times:
Þegar komið er suður fyrir Písa
má sjá inikla breytingu á bygð-
ínni. Hingað og þangað meðfram
járnbrautinni sjest nýplægt land
með nýbvgðum smáhúsum, hvít-
um og rauðum, þar sem áður voru
saltar mýrar eða ófrjóar heiðar.
Þessi nýrækt tekur yfir margra
mílna svæði.
Ef spurt er um hvernig á þessu
landnámi standi, þá er svarað að
þetta sje nokkur hluti af „bona-
fica“, jarðabótum, sem unnar hafa
verið síðan fascistar komust til
valda. Þær eru svo miklar og marg
breyttar, að sennilega er hjer að
ræða um hið mesta þrekvirki, sem
ley.;t hefir verið af höndum eftir
ófriðinn, og óvíst, að 5 ára áætlun
in rússneska hafi gert betur í
nokkurri grein.
Eitt af hinum þýðingarmesta
liagnaði við jarðabæturnar er út-
rýmíng suðrænu hitasóttarinnar
•(malaria), sem gerði alt mýrlendi
,-að pestarbæli, svo landið varð að
eins notað til beitar. Þannig var
Jietta í Oumpagna sumsstaðar í
Pódalnum, við Adriahafsströndina'
•o. v. Nú er landið þurkað, ræktað
og pestarlaust. Á öðrum stöðum
iiafa ófrjóar fjallahlíðar verið
ræktaðar, uppblástur á landi stöðv
aður, skógur græddur þar sejn
liann var að hverfa.
Hvað mest liefir stríðið verið
við árnar. Þær þorna nálega í
sumarþurkunum, en vaxa á vetr-
i:m og flytja með sjer óhemju af
sandi og leir úr fjöllunum, sem
myndar grynningar við árósana
og saltar óhollar mýrar, því sjávar
föll eru lítil sem engin í Miðjarð-
arhafi til þess að flytja framburð-
inn burtu. Ármynnin hafa verið
grafin niður, mýrarnar þui’kaðar,
leirrensli í fjöllum víða stöðvuð
og vatni verið veitt á þurlendi,
srm skorti vatn. Það má geta
nærri hve mikið þrekvirki alt
þetta hefir veríð, en mikið hefir
og komið í aðra hönd: Fjöldi
frjósamra nýbýla víðsvegar um
landið.
Þessar framkvæmdir hafa að
miklu lejdi gengið á þann hátt,
að smáfjelög standa fyrir þeim, en
njóta aftur allskonar stuðnings
lijá stjórninni. Hún lætur sjer-
fróða menn rannsaka hvort fyrir-
tækið sje heilbrigt, lánar fje fyrir
2*4%, tekiu' jarðir eignarnámi
ef þess gerist þörf o. s. frv. Ný-
býlabændurnir geta svo smámsam-
an eignast jarðir sínar. Eru þeir
oftast verkamenn, sem unnið liafa
að jarðábótunum. Hve stórfelt alt.
þetta landnám er má marka af
því, að stjórnin hefir á 10 árum
varið 682 miljónum ltróna í þessar
framkvæmdir, og er þó kaupgjald
í ítalíu afarlágt.
Það er að vísu harðstjóri, sem
stendur fyrir öllu þessu, en sú
liarðstjórn er á þann veg, að allur
almenningur tekur þessum umbót-
um fegins hendi og blessar stjórn-
ina fyrir þær. Aftur eiga ítalir
hægra um vik en vjer, því landið
er frjósamt og ærinn markaður
fyrir sveitavörur í borgunum.
Söngskemtun.
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Það er ekki svo lítil listamanns
skapgerð sem þessi unga söng-
mær býr yfir. Röddin, sem er
..bjartur ,,koloratur“-sopran með
ofurlitlum málmblæ, virðist enn
ekki hafa náð þeim þroska sem
hún gefur vonir um. Fullmikið
bar á titringi í röddinni í fyrstu.
lögunum, en það fór af þegar
fram í sótti. Að öðru leyti var
meðferð ungfrúarintiav á verk-
efnunum yfirleitt mjög góð og
Ibar fagran vott um næman skiln
tng og alvarlegan áhuga hín?
einlæga listamanns. Auðheyrt
var að söngmærin hefir notið
hinnar bestu söngmentunar,
enda fóru henni þau lög best úr
hendi sem hún hefir æft undir
handleiðslu kennara síns, svo
sem t. d. lögin eftir Schubert,
Ha'sse, Scarlatti og Haydn.
Ungfrú Jóhanna mun vera
sest hjer að sem söngkennari og
er ekki að efa að hún fær nóg
að starfa. Það er ekki ómerki-,
legt starfssvið hjer fyrir góða
söngkennara, þar sem mikið er
um góðar raddir sem ganga
þurfa í gegn um hreinsunareld
rækilegrar þjálfunar, svo að þær
megi koma að fullu gagni í þeim
kórum, sem nu starfa hjer og
öðrum sem rísa munu upp í
framtíðinni.
Páll ísólfsson.
fTlirabelli-unörin,
Það eru liðin allmörg ár síðan
próf. Haraldur Nielsson sagði frá
óvenjulega góðum miðli, Mira-
belli að nafni, sem kom fram í
Brasilíu. Honum áttu að fylgja
hinir kynlegustu fýrirburðir, jafn-
vel um hábjartan daginn. Líklega:
hefir það staðið í einhverju sam-
bandi við Mirabelli, að Brasilíu-
menn ætluðu að stofna prófessors-
embætti í rannsókn dularfullra
fyrirbrigða, hvort sem nokkuð
hefir orðið úr því eða ekki.
Síðan hefir lítið eða ekkert
heyrst hjer um Mirabelli, og munu
flestir hafa haldið að frásögnin
um hann hafi verið orðum aukin,
og ef til vill skáldskapur. Ef trúa
má Upsala Nj a Tidn. er hann þó
enn í fullu f jöri og magnaður mið-
ill. Blaðið segir svo frá:
Nýlega hjelt spiritistafjelagið
„Atma“ í Rio Janeiro rannsókna-
fund og var liinn lieimsfrægi Mira-
belli miðillinn. Átján menn voru
viðstaddir, alt mentaðir menn. Af
þeim voru 5 læknar, margir verk-
fræðingar og tveir eðH.sfræð-
ingar. Fundarherbergið var á
4 hæð í stóru íbúðarhúsi. Áður en
fundurinn hófst var dyrunum lok-
að og lykilinn geymdi Bartolli
læknir í vasa sínum. Mirabelli var
settur í stól á miðju gólfi, vand-
lega bundinn á höndum og fótum.
Fundarmenn sátu í hring um-
liverfis hann. Þetta var um hádag
og albjart í hei’berginu.
Fyrstu 5 mínúturnar bar ekkert
til tíðinda. Síðan sýndist reyk eða
gufu leggja út úr miðlinum og
liuldi hiín hann að lokum, en var
þó ekki þjettari en svo, að vel
mátti sjá M. inni í þessari þoku.
Skömmu síðar hvarf bæði miðillinn
og þokan. Þegar fundarmenn sáu
hann hvergi í herberginu, aðgættu
þeir hvort dyrnar væru lokaðar.
Þær voru það, og Bartolli hafði
altaf haldið utan um lykilinn í
vasanum.
Mennirnir voru undrun slegnir,
en fóru þó bráðlega að leita að
miðlinum. Hann var hvergi í her-
berginu, en eftir nokkurn tíma
fundu þeir hann í litlum lokuðum
klefa, sem var í 14 metra fjar-
lægð frá fundarherberginu. Hann
lá þar sofandi á gólfinu og voru
böndin á höndum og fótum ó-
hreifð, eins og gengið var frá
þeim.
Það var þá ekki annað sýnilegt
en að M. hefði farið bókstaflega
gegnurn heila veggi eða lokaðar
dyr, fyrir augunum á 18 völdum
mönnum, og það í fullu dagsljósi.
Sjálfur sagði hann, að þykkir
veggir væru engin fyrirstaða fyrir
sig og heldur ekki þó vegalengdin
hefði verið miklu meiri.
Því miður hefir M. ekki verið
rannsakaður hjer í álfu, svo full
vissa fáist fyrir því hvað satt er
í þessum undrum, sem ekki eru
að vísu eins dæmi að sögn fróðra
manna. G.
Kommúnistafjelagsskapur
bannaður í Rúmeníu.
Berlín 11. febr. FIT
Herstjórnin i Rúmeníu hefir sam-
kvæmt boði ríkisstjórnarinnar,
bannað allan fjelagsskap kom-
múnísta í landinu.
Innilegar þakkir fyrir hlýlegar kveðjur, heimsóknir og J
önnur vináttumerki, er mjer voru auðsýnd á fimtugsafmæli •
mínu. •
Haraldur Sigurðsson, yfirvjelstjóri. •
G
Þorvaldur sonur okkar drukknaði 8. þ. m..
Guðbjörg og Ögmundur Sigurðsson, Hafnarfirði.
Hjartans þakkir sendi jeg öllum þeim, sem á margan hátt
sýndu mjer samúð við andlát Halldóru systur minnar.
Ragnhildur Jakobsdóttir, Ögri.
Jarðarför Sigríðar Guðmundsdóttur, Kirkjugarðsstíg 8,
fer fram á þriðjudaginn þ. 14. þ. m. og hefst með bæn frá
heimili hinnar látnu kl. 2 síðd.
Guðmundur Einarsson. Guðný Ásbjörnsdóttir.
Ritvje apappír,
margar ágætar tegundir nýkomnar. — Lágt verð.
Einnig ágætur þerripappír í ýmsum litum.
P E N N I N N,
Pappírs- og ritfangaverslun
Ingólfshvoli.
Heimdallur.
Aðalfundur fjelagsins verður næstkomandi þriðjudag
kl. 8y2 í Varðarhúsinu.
Dagskrá samkvæmt fjelagslögum.
Mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.
Gerlð Ifðan yðar betri,
klæðið yðnr i
„Alafoss"-fðt.
í dag gefst yður tækifæri til
þess að sjá í búðarglugga okkar
í Bankastræti 4. Nýjasta snið af
sportfötum. Skíðamannafötum. —
Vanalegum karlmanna fötum 0g
kuldajökkum 0. fl.
Alt íslensk vara — ódýr og góð
Verslið þar sem þjer fáið vör-
una tilbúna að öllu leyti hjer á
landi.
Ef þjer kaupið af okkur — þá
eflið Jxjer atvinnulífið hjer á landi
Verið íslendingar — kaupið
Álafoss föt.
Álafoss útibix, Bankastræti 4.
Hraðsaumastofa á Laugavegi 44
sími 3404.
AV. íslensk skíði frá Jób.
Reykdal, Hafnarfirði.
Heftivjelar
ágæt tegund. Festa einnig merkiseðla á trje. — Ómissandi fyrir
skrifstofur og pakkhús. — Kosta aðeins kr. 9.00.
Gerið svo vel að líta á þær.
PENNINN,
Pappírs- og ritfangaverslun
Ingólfshvoli.
/