Morgunblaðið - 12.02.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.02.1933, Blaðsíða 3
A *•» tt m JRorgmiHiiMi *ef.: H.f. Árvabur, ReyLjarlk -'jörar J6n HJartanaaon ValtVr Stef&naaon ctjörn ok afgrelOala 4usturatrœti 8 — Slmi i ■»a I i'alngjastjórl. B. Hafberg ua lí'alnjíaskrifstofa: Austurstræti 17. — Slmi S7ou < uitalmar: Jön Kjartansson nr. S742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. K. Hafberg nr. 8770 akrtftaglald- Innanlanda kr. 2.00 A aAanVL Utanlanda kr. 2.S0 A aAnnOL lausasOIu 10 aura slntaklB. 20 aura msB Uasbök. „íyíslustiettiinai". í Tímanum er nú tönnlast á l>ví, að „eyðslustjettir“ kaupstað- anna eigi að fleyta sveitamönnum Tfir núverandi fjárhagsörðugleika. Skilgreining er ekki á því, hvað átt sje við með nafninu „eyðslu- ■st, jettir/ ‘ en skilið verður það svo, sem átt sje við þá menn í kaupstöðum, sem eiga meira en til •daglegrar lífsframfærslu. Nii er það sem sje kaupstaða- fólkið, 'sem á að bjarga sveit- iinuni, og viljann til ]>ess á að skerpa með því, að ausa yfir þetta fólk vikulegum svívirðing- tim í Tímanum. Fyrir skömmu voru það á Tím- :ans máli, Framsóknarmenn einir, sem rjett kjörnir voru til þess, að hafa afskifti af málefnum -sveitanna. En nú er komið þetta annað Tiljóð í strokkinn. Nú leggja Hriflnngar alla ábyrgð frá sjer, nim afkomn sveitanna,, og segja, að ekkert hafi — að þessu sinni orðið úr „hinni alhliða viðreisn“, sem þeir jióttust á undanförnum árum hafa komið í kring. Og .þieir jafnvel líta svo á, sem þeirra máttar sje jirotinn til viðreisnar starfsins; kjarkurinn, útsjónin og þrekið. Alt farið. Nú segja þeir: Gerið svo vel, kaupstaðahúar, sem eitthvað kunnið að eiga, takið við sveitunum; hjálpið þið jþessum skjólstæðingum okkar. því við getum ekkert lengur — síðan alt handbært eyðslufje var nppetið. Svona syngur þá í Tímanum núna, málgagni þeirra manna, scm á fjórum árúm eyddu 29 miljönum króna umfram fjárlög, 'Og komu öllu því ,fje í lóg, án þess að rjetta nokkurum atvinnu- vegi í landinu hjálparhönd sem heitið gæti. ÍÞessir menn leyfa sjer auðsjá- anlega enn í dag að lialda, að þeirra orð, þeirfa tillögur, og digurbarkalegt tal um alvarleg fjárhagsmál þjóðarinnar eigi það skilið, að ná eyrum landsmanna. Þrumui- og eldingar í London. London, 11. febr. Geysimikla rignýigu gerði í liondon í gær, með þrumum og •eldingum, og varð að nokkur glundroði á samgöngum, þann- ig, að neðanjarðarlest stöðvað- íst á einum stað vegna vatns- flóðs, og eldingu laust á öðrum stað í járnbrautarstöð, og tafði ferð lestarinnar. Þetta er sögð sú mesta hellirigning sem komið hefir í London síðan 23. okt. síðastliðinn, og stóð hún í nokkr- ar klukkustundir og varð víða flóð um borgarstrætin. (F. Ú.) - • f' Kjörd»mamálið «g „TíminnCi. Málgagn Hriflunga, Tíminn, vii-ðist ákaflega hneykslað yfir því, að því skuli hafa verið haldið fram hjer í blaðinu að kjördæma- málið væri grundvöllur samsteypu stjórnarinnar. Auðvitað veit Tíminn mjög vel, að samsteypustjórnin var fyrst og fremst mynduð með það fyrir augum, að leysa kjördæmamálið. Hann veit einnig, að Framsókn- arstjórnin varð að fara frá völd- um í þinglokin í fyrra vegna and- stöðu sinnar í kjördæmamálinu. Þegar samsteypustjórnin var mynduð í þinglokin í fyrra, gaf þingflokkur Sjálfstæðisflokksins svohljóðandi tilkynningu: Alþingi, 2. júní 1932. Eftir áskorun þingflokks Sjálf- stæðismanna liefir Magnús Guð- mundsson alþm. gefið kost á því ao taka sæti í samsteypuráðuneyti undir forsæti Ásgeirs Ásgeirsson- ar. Þessa ákvörðun tók Sjálf- stæðisflokkurinn eftir að allar til- raunir til þess að fá kjördæma- inálið afgreitt á viðunandi hátt á þessu þingi höfðu reynst árang- urslausar, og telur flokkurinn að í liöndum þessarar samsteypu- stjórnar fáist viðunandi úrlauns kjördæmamálsins á næsta þingi. Af tilkynningu þessari er ljóst, að Sjálfstæðisflokkurinn liafði kjördæmamálið fyrir augum er liann lagði til mann í samsteypu- stjórn Ásg. Ásgeirssonar. Þetta vissi Ásg. Ásgeirsson mjög vel, enda gaf hann þingheimi þegar þá yfirlýsingu, að hann teldi sjer skylt að leggja fyrir næsta þing frumvarp um sanngjarna lausn k j ördæm amálsins. Á þingmálafundi í Borgarnesi á dögunum lýsti Ásg. Ásgeirsson einnig yfii* því, að hann ætlaði að leggja fyrir þingið frumvarp um lausn kjördæmamálsins. Má því ganga út frá því sem alveg gefnu, að slíkt frumvarp kemur fram frá forsætisráðherra nú í byrjun þings. En um hitt verður ekkert sagt á þessu stigi málsins, hvort þetta frumvarp verður þannig úr garði gert, að Sjálfstæðismenn geti við það unað. Málgagn Hriflunga er sí og* æ að stagast á því, að Ásg. Ásg. hafi ekki ,umboð Framsóknarflokksins' til að bera fram neinar nýjar til- lögur í kjördæmamálinu. Blaðið ætti að vita það, að í Framsóknar- flokknum eru aðrir og fleiri en Jónas frá Hriflu og hans áhang- endur. Þeir þingmenn Framsókn- arflokksins, sem fólu Ásg. Ásg. að mynda samsteypustjórn, gerðu þetta vitanlega með það fyrir aug um, að hann bæri fram nýjar til- lögur í kjördæmamálinu í sam- vinnu við fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Innan skamms fæst úr því skorið hvort Ásg. Ásg. tekst að finna þann grundvöll, sem báð- ir þeir flokkar er samsteypu- stjórnina styðja, geta fallist á. Neonktrchen-slyslð. Hús jafnast við jörðu. Á annað þúsund manns særast. Óvíst hve margir fórust. H j álparstarf semin. Neukirchen, 11. febr. United Press. FB. Lögreglan giskar á að 100 manns hafi beðið bana. 1000 meiðst, þaraf tuttugu og átta hættulega, þegar gasgeymirinn sprakk. Eldur kom upp í benzol-verksmðiju, sem er áföst við gasstöðina, og voru fimm hundruð menn að verki á þessum tveimur stöðum, þegar eldurinn kviknaði. Breiddist liann örhratt um byggingarnar og ,yfir í gas- stöðina og var sprengingin hin ógurlegasta. Næstu hús jöfnuðust að kalla mátti við jörðu, rúður brotnuðu í hverju einasta húsi í borginni, en spýtnabrot, blóma- pottar og hvað eina, sem laust var, hentist hátt í loft upp. Læknar og hjúkrunarlið var kvatt til bæjarins frá næstu borg- um og hefir verið stofnaður bráða- birgðaspítali i útjaðri Neunkirch- en, en allir, sem meiðst hafa verða fluttir á brott hið bráðasta. — Lögreglan hefir slegið hring í kringum slys-svæðið og leyfir eng- nm inn fyrir, nema læknum og björgunarfólki, jafnvél blaðamönn nm hefir ekki verið leyft að fara inn fyrir lögregluhringinn. Margir ibúanna óttast frekari sprengingu og flýja úr borginni. — Yið lá, að fjöldi barna væri troðinn undir fótum er æsingin var mest meðal íbúanna. — Lögreglan hefir náð fjörutíu og tveimur líkum úr rúst- unum. Síðari fregn: Járnstykkjum rignir. Osló, 11. febr. Nánari fregnir af sprenging- unni í Neunkirchen segja, að í gær skömmu fyrir kl. 18 hafi fyrst komið lítil sprenging í gas- geyminum, en nokkrum mínút- um síðar hafi aðalsprengingin orðið. — Var sprengingin svo ógurleg, að lokið af geyminum þeyttist einn kílómeter í burtu, járnstykkjum rigndi yfir borg- ina og urðu þau mörgum mönn- um að bana. — í þorpum, sem lágu all-langt frá, brotnuðu gluggar og múrveggir sprungu. Upptökin. — Verkstjóri einn segir þannig frá upptökum sprengingarinn- ar, að eldur hafi komið upp í bensíngeymi, sem var aðeins 15 metra frá gasgeyminum og hafi síðan læst sig í tjörutunnu, sem stóð upp við gasgeyminn. — Járn- og stálverksmiðja, sem var 1 bænum, gjöreyðilagðist og eru því margir þeirra atvinnulausir, SfflR fi Vátryggingarfjelagið Nye Danske af 1861. i« Eitt sinn skal hver deyja. Hverju heimili er það lífs- nauðsyn að héimilisfaðirinn sje líf- trygður. =Enginn veit sína Aðalumboðsniaður æfina — _ Sigfó* Siqbvatssoo. Amtniannsstíg 2. Japanskir sfálfbleknngar með glerpenna. Hafa þann kost fram yfir aðra penna, að hægt er að „kopiera“ með þeim. Kosta aðeins kr. 1.60. Komið, sjáið og reynið’ þá! »— Einnig nýkomið mikið úrval af „Luxor“ skrúfblýöntum, ííað- arpennum og ritsettum, svo og hinir góðkunnu „PeKkan**- sjálkblekungar. PENNINN, Pappírs- og* ritfangaverslun IngólfshvoK. í Aastnrstrati 14 losna nokkur ágæt skrifstofuherbergi 14. maí. Upplýsing- ar hjá umsjónarmanni hússins. Sími 3740. J6n Þorláksson. sem sluppu ómeiddir. — í bæn- Frá flugköppunum. um er ógurlegt um að líta, ljósa- og símastauírar eru brotnir og á einum stað liggur sporvagn möl- brotinn, en farþegar hans fór- ust eða særðust flestir. — Lög- regluliðið hefir verið kallað til bæjarins frá Kaiserslautern, því að menn óttast óeirðir. Hj álparstarf semi. Berlin, 11. febrúar. Björgunarlið ei* nú í óða önn að grafa í rústunum eftir sprenging- una í Neunkirchen. — Vegna þess, hve tjónið er mikið, mun starf björgunarliðsins taka mjög langan tíma. Hindenburg sendi bæjarstjórn inni í Neunkirchen samúðarskeyti og 100 þúsmid mörk til bjálpar nauðstöddum. — Stjórnin í Saar hefir boðið bænum Neunkirchen lán til þess að bæta úr ástandinu og hefir hún fyrirskipað, að fánar skuli dregnir í hálfa stöng í öllu Saar-hjeraðinu þangað til líkin liafa verið borin til moldar. — Ríkisfulltrúar Prússa hafa einnig sent bænum Neunkirchen 100 þúsund mörk. — Margir fleiri London, 11. febrúar. Mollison kom við í Caravellos 1 Brasilíu á leið sinni til Rio Ae Janiero í gær. Franski flugmaðurinn, sem flaug frá Evrópu til Suður-Ameríkn nokkrum dögum á undan MoUisonj lagði af stað heimleiðis í gær, og flaug þá frá Buenos Ayres til Rio de Janeiero, en þaðan ætlar liann í dag til Port Natal. Frá Port Natal leggur hann svo af stað yfir Atlantshaf. Frakkarnir tveir, sem lögðu af stað frá Frakklandi í gær, og ætl- uðu sjer að setja nýtt met í lang- flugi með því að fljúga viðkomu- laust til Suður-Ameríku, urðu að nauðlenda í Casablanca í Marokko og þar með liefir tilraun þeirra mistekist. Breslcu flugmennirnir, Gayfoíd-. og Nicholas, sem nú í vikuniii settu met í langflugi með því að fljúga frá Cramvell í Englandi til Walfish Bav í Suður-Afríku við-' komulaust, lögðu af stað snemmai.. morgun frá Walfisli Bay til Höfða borgar. (FÚ.). hafa vottað samúð sína, svo sem Hugenberg, evangeliska kirkjuráð ið í Berlin, stjóruin í Bayern og fleiri. — (FÚ.). Síðustu fregnir frá United Press hcrma, að á annað þúsund manns hafi særst; um 60 þegar dáið. — Samskot hafin um alt Þýskaland til bjargar nauðstöddu fólki. Hjálpræðisherinn. Samkomur í dag: Kl. 11 árd. helgunarsam- lcoma, kl. 2 barnasamkoma, kl. 4 hallelújasamkoma, kl. 8 hjálpræð- issamkoma. Lúðra- og strengja- sveitin aðstoða. London, 11. febr. Ensku flugmennirnir Gay- ford og Nicholas eru nú komn- ir til Höfðaborgar, og var þeim tekið þar með kostum og kynj- um, og þeim veitt opinber m 't> taka, af stjórnarvaldanna hálfu. Þeim verður send ný vjel í flug- vjel sína, áður en þeir leggja uop í flug sitt heim aftur til Eng- lands. Mollison er nú kominn til Rioi de Janeiero, kom þangað skömmu eftir að franski flug- 1 maðurinn fór þaðan áleiðis til ;Port Natal. (F. Ú.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.