Morgunblaðið - 26.02.1933, Síða 3

Morgunblaðið - 26.02.1933, Síða 3
morgunrlaðtb ssas Úísef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rltetjörar: Jön KJartanaeon. Valtýr Stefánaaon. Sltatjörn og afg-relSala: Austurstrœtl 8. — Slaal 1«00. ▲uglýsingastjörl: H. Hafberg. ▲ugiy-alngaskrifstofa: Austurstræti J 7. — Slaal 8700 Heissaalmar: Jön Kjartansson nr. 8742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. B. Hafberg nr. 8770. Áakrlftag.lald: Innanlanda kr. 2.00 á. mánuVl. Utanlanda kr. 2.50 á mánuOl I lauaaaölu 10 aura elntaklO. 20 aura meO Uesbök. Rafurmagn og kol. # Á aukafundi bæjarstjórnar á. ■dög-nnum, þar sem rætt var um Tpfmagnsmálin, greiddi Hjalti JTónsson, sem kunnugt er, atkv. með sósíalistum, með tillögu St. Jóhanns, um það, að haldið yrði 'áfram samningum við hf. Sogs- virkjun, er gert hafði bænum hið fáránlega tilhoð um rafmagn. Talaði Hjalti á fundinum, sagði hann að sjer kæmi það á óvart, «f hægt væri að hafa gagn af framhaldsvirkjun Elliðaánna. En njeð fullvirkjun þeirra er hægt að fá 2000 kilowött fyrir kr. 32.50 •árskilowattið. Tilhoð hf. Sogsvirkj unar var að selja Rafveitunni árs- Mlowattið fyrir rúmlega 5-falt ]þetta verð, eða kr. 169 — í 30 iá,r. Jón Þorláksson borgarstjóri sag’ði m. a.: Það lítur út fyrir að nokkrum íbæjarfulftrúunum, sem hjer hafa talað, sje sjerlega illa við, að hægt sje að fá talsvert rafmagn úr Ell- iðaánum fyrir sjerlega ódýrt verð. Hjalti Jónsson segir, að sjev komi það á óvart, að nú eigi að vera hægt að lát.a Elliðaárnar framleiða alt það rafmagn, sem bærinn þarf í framtíðinni. En þetta er misskilningur hjá Hjalta Jónssyni. Það er hægt að fá þaðan 2000 kw. sjérlega ódýr. Og það er engin ástæða til þess að notfæra sjer ekki þenna mögu- Jeika. 'Til þess að gera þetta skiljan- legra fyrir Hjalta Jónssyni, er vanur er kolaverslun, er hægt að henda honum á hliðstætt dæmi. Hugsum okkur að kolaverslun Hjalta Jónssonar þurfi 8000 tonn af kolum, það sje talið mátulegt kolamagn fyrir eftirspurn þá, sem verslun hans getur húist við. Svo fengi liann tilbQð frá Pól- landi t. d. um að þar gæti liann fengið kol fyrir kr. 32.50 tonnið. En hann gæti ekki fengið nemá 2000 tonn. Onnur kol sem hann þyrfti að kaupa yrði hann að gefa kr. 122 fyrir (sem er áætlað rafmagnsverð frá hæjaryirkjaðri Sogsstöð) ellegar kr. 169, fyrir fonnið. ]Það er engum efa hundið, að enda þótt Hjalti Jónsson fengi ekki Öll sín kol fyrir hið lægra verð kr. 32.50, myndi hann ekki hafna þeim möguleika að fá þenna hluta .— 2000 tonnin — fyrir lága verð og bæta síðan yið sig eftir þörfum af hinum dýrari kolum. Því skyldi Revkjavíkurbær þá neita sjer um að fá. þessi 2000 kw. úr Elliðaánum, fyrir hið lága verð, þó þaðan yerði ekki fullnægt allri framtíðarraforknþörf bæj- grins ? Dagbók. □ Edda 59332287 — I. I. O. O. F. 3. = 1142278 = 8lh O. Veðrið í gær: Háþrýstisvæði yfir íslandi samfara stiltu og víða björtu veðri. Frost sumstaðar á A-Iandi, en alt að 9 st. frost ryrðra. Alldjúp en nærri kyrstæð lægð yfir Irlandi veldur all- livassri SA-átt og víða talsverðri snjókomu um Bretlandseyjar og hvassri A eða NA átt á milli ís- lands og Skollands. Veðurútlit í dag: Stilt og hjart veður. Heimdallur, blað ungra Sjálf- slæðismanna, hefir fjölgað út- komudögum og kemur nú út ann- an hvern virkan da,g, þriðjudaga, fimtudaga og laugardaga. Einnig kemur blaðið út i talsvert stærra broti en áður. Afgreiðsla blaðsins e.r flutt í Bankastræti 3 (Herberts- prent). Heimdallur. 4. deild fjelagsins heldur fund og bolludagsfagnað annað kvöld kl. 8 að Hótel Borg. Áríðandi að deildai-menn fjölmenni stuúdvíslega. Björnsbakarí efnir til verðlauna setraunar eins og að undanförnu, um það, hve margar bollur þar bafi selst á bolludaginn. — Fimm nc-ningaverðlaun verða veitt. — Miðar til útfyllingar fást í búð- unum og útsölunum. Sjómannastofan. Samkoma í dag kl. 6 1 Varðarhúsinu. Allir velkomnir. 1 dag er síðasti dagur sem sýn- ing Ferðafjelagsins í Sundhöllinni er opin. Ætti þeir sem ekki hafa enn sjeð sýninguna að nota til ])ess daginn í dag. Hún verður opin frá kl. 1—10 og ganga bif- reiðar allan daginn frá Bifreiða- stöð Steindórs inn að Sundhöllinni. zEttí það að vera þeim til hægð- arauka sem þykir langt að ganga þessa leið. Að líkindum verður langt þangað til slík sýning sem þessi sjest hjer aftur. Eethania. Samkoma í kvöld kl. Bi/o. Stud theol. Sigurbjörn Gunn- arsson talar. Allir velkomnir. Smámeyjadeildin hefir fund kl. sy2 síðd. Allar smámeyjar vel- komnar. Álfafell, leikrit eftir Óskar Kjartansson hefir verið sýnt nokk urum sinnum og fengið góðar und- irtektir; Litla leikfjelagið hefji' annast sýningar þessar. Leikurinn er fyrst og fremst sniðinn við barna hæfi, en fullorðnir hafa einnig haft gaman af að sjá hann. Efni leiksins sem er gamla sagan nm tástir huldufólks og menskra manna er flestum hugnæmt. Með- ferð leikenda á hlutverkum sínum hefir yfirleitt þótt góð, og, á Litla leikfjelagið þakkir skilið fyrir dugnað sinn og áhuga. Leikurinn verður sýndur i síðasta sinn í dag kl. 3y2 í Iðnó. Magister Áirni Friðriksson flyt- ur erindi í Nýja Bíó í dag kl. 3.; Er erindi þetta um bandorma og sulli. Má búast við góðri aðsólrn að erindi þessu. því Árni er mik- ill fræðimaður og mjög sýnt um að flytja vísindalog efni í skemti- legum og alþýðlegum búningi. Aðalfundur Starfsmannafjelags Reykjavíkurbæjar verður haldinn í dag kl. 114 í Kaupþingssalnum í Eimskipafjelagshúsinu. Barnaguðsþjónusta í Franska spítalanum kl. 3 í dag. Oll börn velkomin. Um nauðsyn slysavarna flytur Ólafur Björnsson kaupmaður á Akranesi erindi í Nýja Bíó í dag kl. 1 y2 (ekki kl. 2 eins og auglýst hafði verið). Allur ágóði rennur til Slysavarnafjelagsins. Erindi þetta flutti Ó. Bj. áður í útvarp- inu, en hann liefir fengið fjölda áskorana um, að flytja það aftur. Hefir hann breytt þvi nokkuð og jafnframt aukið við það. Væntan- lega fjölmenna Reykvíkingar í Nýja Bíó í dag; þeir munu áreið- anlega ekki iðrast þess að lilýða á þetta erindi, en jafnframt ber að minnast þess, að hjer er verið að styrkja eitt hið mesta nauðsynja- mál okkar fslendinga. Húsgagnaversl. Reykjavíkur sýri- ir í dag nokkrar gerðir af ný- komnum barnavögnum og kerrum 5 búðargluggum Marteins Einars- sonar og Co. Einkakennari við Háskólann dr. Björg C. Þorlákson byrjar fyrir- lestra í iþáskólanum um samþró- un líkama og sálar á morgun, mánudag 27. febr. kl. 8 síðd. — Arerða fyrirlestrarnir tvisvar í viku, mánudaga og fimtudaga á fyrnefndum tíma. Öllum lreímill aðgangur. Pjetur Sigurðsson endurtekur 14 þriðja og síðasta sinn erindi sitt;; um ástalíf í dag kl. 3 í Varðar- liúsinu, en kl. 8y2 í Templarahús- inu í Hafnarfirði. Alþýðufræðsla Guðspekifjelags- ins. Jóhanna Þórðardóttir flytur erindi í húsi fjel.agsins í kyöld kl. 8y> um Eðlisþætti mannsins. Fimleikasýning. í dag kl. 4—6 verða fimleikasýriingar r leikfimis sal Austurbæjarbarnaskólans und- ir stjórn Aðalst. Hallssonar. Þrírl 5. bekkir úr Miðbæjarskólanum keppa í leikfimi, leikjum, stökk- um og boðhlaupi við þrjiá 5. bekki í Austurbæjarskólanum. í hvorum flokki verða um 30 drengir, og hafa þeir sL- mánuð æft sömu leikfimisæfingar, leiki og stökk hjá sama kennara. Þriggja manna dómnefnd dæmir um það hvor flokkurinn verður betri. Foreldr- ar barnanna ásamt skólanefnd barnaskólans eru öll velkomin. Knattspjrrnufjel. Víkingur. Fje- lagar mætið á innanhúsæfingu i í R. húsinu kl. 2 í dag. Skipafrjettir. Gullfoss er í Rvík — Goðafoss var á Akureyri í gær. Bniarfoss fór frá Vestmannaeyj- nm í gær áleiðis til Hafnar. Detti- foss fór frá Grimsby í fyrrinótt. Lagarfoss fór frá Leith í gær. — Selfoss fór frá Hull 22. fehr. Sendisveinar. Fimleikaæfing í d,ag kl. 2 sUuidvísJ. Mjög áríðandi að þið fjölmenpið því nú verður valið úrvelslið, sem á að keppa í handknattleik í vor á væntan- legu allsherjar fimleikamóti Ts- lands. Kennarinn. Línuveiðararnir Freyja, Alden Og Jarlinn ,komn af veiðum í gær allir fulllilaðnir af fiski. Togararnir. Á saltflskveiðar eru nú sex togarar fárnir, Max Pemb- erton, Baldur, Hannes ráðherra, Gyllir, Gulltoppur og Sindri. Max Pemberton kom af veiðum í gær eftir 5 daga með 100 tunnur lifr- ar. Baldur kom líka inn í gær eftir tvo daga vegna þess að vindan liafði brotnað. Sindri. Gyll- ir og Gulltoppur fóru á veiðar í gær. Allir liinir togararnir eru nú að búast lá veiðar og fara. sennilega út í þessari viku. Færeyskt fiskiskip, Nordfari, kom hingað í gær að leita sjer viðgerðar. Það er nýlega komið frá Færeyjum og hafði ekki afl- að neitt. Fa'rþegar nmð Gullfossi frá út- löndum vbru Einar Pjetursson, Jón Ólafsson, Jóhann Kristjáns- son, Þorst. Símonarson, Rinar Gunnarsson, Einar Karlsson, Gísli Halldórsson 0. fl. Útvarpið í dag: 10,40 Veður- fregnir. 11,00 Messa í Dómkirkj- unni. (Síra Friðrik Hallgrímsson) 13,20 Fyrirlestur Búnaðarfjelags íslands. 15.30 Miðdegisútvarp. Er- indi: Trú framtíðarinnar (Síra Eiríkiir Albertsson). Tónleikar. 18,45 Barnatími (Aðalsteinn Sig- munclsson kennari). 19,30 Veður-; fregnir. 19,40 Grammófónsöngur: Puccíni: Lög úr ,,La Bohéme“ : Jeg er kölluð Mimi (Rosetta Pampanini). O Mimi, tu piu non torni (Caruso og Scotti). Dauða- senan (Lucrezia Bori og Tito Schipa). 20,00 Klukkuslá,ttur. Frjettir. 20,30 Austurrískt kvöld. Julius Schopka, konsril]: Ræða. Dr. Max Keil: Um listir. Gunnl. Einarsson, læknir: Um Vínarborg. Kristján Kristjánsson: Einsöngur. Austurrísk þjóðlög: (Dr. Mixa, Stepanek, Björn Ólafsson, Þórh. Árnason). Útvarpið á morgun: 10,00 Veð- urfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19,05 Þing- frjettir, 19,30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Klukkusliáttur. Frjettir. 20.30 Er- indi: Frá. útlöndum. (Sr. Sigurð- ur Einarsson). 21.00 Tónleikar: Alþýðulög. (Útvarpskvartettinn). Einsöngur (Einar Markan'. Grammófón: iSaint-Saens: Carne-] val dýranna /Philadelphia Symp- þony Orch., Leopold Stokowski). Mötuneyti safnaðanna hafa bor- ist eftirtaldar gjafir: Frá Ölgerð- in Egill Skallagrimsson 20 Itr. saft. Smjörlíkisger.ðín Svanur 25. kg. smjörlíki og 5 kg. kaffi, Alli- ance 4 skippund kol, M. 10 kr., Smjörlíkisgerðin ,Smári‘ 25 kg. smjörlíki 'og 20 kg. grænsápa. Með’ þakklæti. F. h. Mötujieytis safn- aðanna. Friðrik Sigurbjörnsson. Náttúrufræðifjelagið hefir sam- komu mánudaginn 27. þ. m- kl. 8% síðd. í ’ náttúrusögubekk Mentaskólans. Happdrætti. Eins og kunnugt er af auglýsingum í Mbl. var 10. þ. m. dregið hjá lögmanni um des. —jan. verðlaunin, sem kaffibrenslai O. Johnson & Kaaber veitir við- skiftavinum sínum. Hæstu vinning anna hefir nú verið vitjað og, hlutu þá þessir: 300 kr. Ellilieim- ilið Grund, Reykjavík, 100 kr. Guðm. Halldórsson, Grettisgötu 81, 50 kr. Dana Eiríksdóttir, Mel- húsum, 25 kr. Þorbjörg Halldórs- dóttir, Grettisgötu 53, 25 kr. Þor- steinn Kristjánsson, Reykjavík. BÓKHLAÐAN. Lækjargötu 2. Ný blSð komu í gær: DÖNSK DAGBLÖÐ: Dagens Nyheder. Extra-Bladet. Politiken. Social-Demokraten. Berlingske Tidende. Idrætsbladet. Ude og Hjemme. Köbenhavnerinden. Ugebladet. Film-Journalen. Das Leben. Die Woche. Vor-tískublöð: Élégance Feminine. Elite. la Mode de Paris. la Parisienne. Stella. I’Enfant Star. I’Art et la Mode’s (Hattablað). Jolie Chapeaux. Butterick. Trés Elégant. Madame fait s. Robes (Merv. de Modes). la Mode de Demain. Home Fashion. Children Dress. Mabs. Weldon Children. Weldon Ladies. Pariser Record. Pariser Chic. Elegante Welt. Le Jardin des Modes. Romas Pictorial Fashion Praktische Damen- únd Kinder-Mode. Lækjargötu 2. Sími 3736. Baunir margar tegandir UersUVfsír. Brnl frilrlksson Erindi: Bandormar og sulllr í Nýja Bíó kl. 3 í dag. Aðffönsrumiðar á 1 krónu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.