Morgunblaðið - 12.03.1933, Síða 2
2
M O R G 0 N HABiB
kó-útsala
byrjar á morgun hjá okkur. Við seljum:
j
Kvenskó, margar tegundir ákr. 4-6-7 — 9-
parið, mest nr. 37-38.
Gámmístígvjel, barna frá kr. 4 parið.
Gnmmístígvjel, kven, frá kr. 9 parið.
IUHÍSkÓr frá 1.50 parið.
Karlmannaskór kr. 700 parið nr. 39-40.
Notiö þetta einstaka tækifæri og gerið góö kaup
á þessum erfiðu tímum.
Þðrður Pieiursspn & Gn. |
Rafmagnsueita
Reykjauíkur.
Um rafmagnstaxtann
liefir Steingr. Jónsson rafmagns-
stjóri ritað bæjarstjórn eftirfar-
andi brjef:
Reykjavík, 7. mars 1933.
Út af tillögnm, (sem fram hafa
komið um lækkun á rafmagns-
verðinu til suðu og hitunar, skal
.jeg leyfa mjer að taka fram þetta:
Rafmagnsveitan hefir verið
bygð og rekin með það fyrir aug-
um hingað til, að s.elja rafmagn til
Jýsingar og vjelareksturs, en auk
þess hefir lnln selt rafmagn til
suðu og hitnnar, eftir því sem hún
hefir haft afl og getu til. Með nú-
verandi töxtum, sem verið hafa ó-
breyttir síðustu árin, hefir notk-
unin komist það upp„ að mesta:
álag (á vjelunum í desember varð
1860 kw., en ástimpluð fullraun
allra vjela er 1720 ltw.
Lækkun á rafmagnsverðinu lief-
ir í för með sjer aukna notkun,
■og henni er ekki hægt að full-
nægja nema með vjelaaukningu.
Lækkunin verður þá. að miðast
við það, að vjelaaukning sú, sem
fyrirhuguð er. verði komin í notk-
un áður.
Útboð til hennar er nú að mestu
fullgert og verður hraðað sem
mest, en smíðatími á vjelum þeim
sem hjer um ræðir, er ekki minni
en 4—5 mánuðir og flutnings-
og uppsetningartími um 2—3 mán-
uðir.
Sje gert ráð fyrir að tilhoð sjeu
komin og pöntun gerð 1. maí, geta
vjelarnar tekið til starfa 1. nóv.
til 1. jan. næstk. Það verður hægt
að segja nokkru nlánar til um
tímann, eftir pöntnn. en ef ætti að
ákveða tímann núna, tel jeg ó-
varlegt að láta verðlækkuninai
hyrja fyr en frá næstu áramótum.
AS því er sjálfa lækkunina
snertir lít jeg svo á, að rjettara
sje, að láta lækkunina koma helst
fram á aðalnotkun rafmagnsins:
á lýsingu og vjelarekstri. Bæði er
það þá að mestum notum almenn-
ingi, því lýsingin er notuð af öll-
um og atvinnureksturinn í bæn-
um notar ekki annað rekstrarafl.
En að því er snertir rafmagn til
suðu og hitunar, er þess að geta
að Elliðaánum liefir reyndar
aldrei verið ætlað að taka upp
blutverk Sogsvirkjunarinnar í því
efni, en þó er hægt að selja úr
Elliðaánum rafmagn til suðu er
svarar til 50% allrar suðu í bæn-
, um, og til samanhurðar hessari
tölu, skal hess getið að gasstöðin
séldi árið 1931 suðu er svaraði til
27% fullkominnar gassnðu í bæn-
um. En það er því aðeins hægt að
gcra þetta að Elliðaárnar verði
fnllvirkjaðar fyrst.
Lækkunina á verði til suðu,
þarf þá að binda því skilyrði, að
það væri gert undir eins á eftir
að fullnaðarvirkjun væri fram-
kvæmd.
Að öðru leyti tel jeg ekki þá
taxtabreytingii hagkvæma, sem
hjer er farið fram á, heldur að
gerður væri nýr taxti er nefná
rrætti lieimilistaxta, og ætlaður
væri fyrir ýmiskonar notkun í
heimahúsum, þannig að mönnum
s.ie gerður kostur á að nota auk
lýsingar ýmsar heimilisvjelar;
súða og hitun að einhverju leyti
um einn mæli. Það er hægt að
sameina alla þessa notkun á 1
mæli á ýmsan hátt, t. d. á þann
hátt að reilína vissan fjölda af
Lvwst. á mánuði á Ijósaverði og
það sem fram yfir er lægra verði,
eða að hafa fastagiald á íhúð. J
greitt ml'naðarlega, og síðan lágt
kwst. gjald fvrir alla eyðslu um
mælinn. í
Jeg er að svo stöddu ekki til-
búinn með tillögur um þessa
taxta, en þess slíal getið, að þeir
hafa rutt sjer mjög til rúms er-
lendis hin síðari árin, og hefi jeg
því við síðustu skoðunarferð á,
raflögnum hjer í h». sem hvrj-
aði nokkru fyrir áramót, látið
jafnframt safna gögnum til þess
að geta komið fram með tillögur
um heimilistaxta þá, sem hjer
hefir verið minst á.
Virðingarfylst.
Steingr. Jónsson.
•••« ^
Gauragangur Nazista.
Berlin, 11. mars.
í bænum Altona á Prússlandi
settist lið Nationalsósíalista í gær
í ráðhúsið og setti af borgarstjór-
ann dr. Ebert. í stað hans var
Nationalsósíalisti settur borgar-
stjóri og annar gerður að yfir-
manni lögreglunnar. Við rannsókn
ráðhússins fundust þar nokkrar
vopnabirgðir og voru horgarstjór-
inn dr. Ebert og einn hæjarráðs-
maður settir í gæsluvarðhald. Al-
tona er hær með liðug 150.000
íbúa; liggur hún k landamærum
Prússlands og Hamhorgarríkis,
syðst á Holsetalandi, og áttu Dan-
ir borgina fram til 1864, en hún er
nú sambygð við Hamborg sjálfa.
Þýska íStjórnin heldur áfram
að setja af embættismenn. Yfir-
borgarstjórinn í Königsberg, Loh-
méyer, var settur af í gær, og
fulltrúi ríkisins í Baden hefir sett
nokkra ráðherra af, og látið taka
Schmidt ríkisforseta fastan. Göh-
ring lýsti því yfir í ræðu í Essen
í gær, að stjórnin mundi koma
fram ineð frumvarp á þingi unf
það að víkja öllum opinberum
emhættismönnum, sem væru jafn-
aðarmenn eða kommúnistar, frá
á.n eftirlauna. (PÚ.).
Samband þýskra rithöfunda helt
fund í gær og vjek þar frá 8
meðlimum stjórnarinnar, sem kunn
ir voru að því, að vera ekki Nat-
ionalsósíalistar eða þjóðenissinnar,
en í staðinn voru kosnir 8 rithöf-
n|ndar, sem þá flokka fylla. Enn
fremnr var samþykt á fundinum,
að vísa öllum rithöfundum. sem
kommúnistar eru, hurt úr fjelag-
inu. (FÚ.).
Gardfnur os Stores
seljum við nú
fyrir lítið verð.
Hðs kðlaf yrirlestrar
dr. Albert Olsens.
Dr. Albert Olsen, háskólakenn-
ari frá Árósum, flutti fyrsta fyr-
irlestur sinn um stjórnmálaáhrif
þan frá fyrri tímum, sem aðallega
koma til greina á árunum eftir
ófriðinn. Forseti heimspekideildar
próf. Árni Pálsson, bauð dr. Olsen
velkominn.
Það er ekki ofhermt, að áheyr-
endur urðu hrifnir af þessum
fyrsta fyrirlestri docents Olsens.
Fyrirlesarinn er auðheyranlega
hinn lærðasti maður og óvenju-
lega víðlesinn um það margþætta
viðfangsefni, sem fyrirlestrar hans
eiga að fjalla um. Hann gerði
fráhærlega skýra grein fyrir þeim
margvíslegn öflum, sem nú tog-
ast á um yfirráðin yfir heiminnm
— að einu leytinu þjóðernishreyf-
ingunum, auðvaldspólitíkinni og
hermenskuofsanum •— að liinu
leitinu viðleitninni til samstarfs
og friðsamlegra viðskifta þjóða
á meðal. í þessari greinargerð
hans kom fram margt það, sem
flestum mönnum mun lítt eða alls
ekki kunnugt hjer á landi.
Allir þeir, sem hafa einlivern
áhuga á að fá nokkra hugmynd
um og nokkurn skilning á haf-
róti vorra tíma ættu að sækja
þessa fyrirlebtra. Næsti fyrirlest-
ur verður haldinn á morgun kl. 6.
Norski samningurinn.
Ummæli Mowinckels.
Rydens Kaff i
hragðast best.
Blðma-
ðbnrðnr
f pökkum.
Silfurfægílögur.
Sæpolin-Sápa,
Silkolin ofnsverta,
Ósló 10. mars. NRP. FB
Nýja viðskiftasamkomulagið
milli íslendinga og Norðmanna
var birt í dag. í tilefni af birting-
unni hefir Mowinekel forsætis-
ráðherra látið svo um mælt í Dag-
bladet: „Jeg tel það hið mesta
ánægjuefni, að nú verður lokið að
fullu við þessa samningagerð, því
að samkomulagið ber með sjer, öll
einkenni gagnkvæmi og velvildar.
Því verður eigi neitað, að af sam-
komulaginu leiðir talsverða fórn
einnig af hálfu Norðmanna, en
viðskiftasamkomulag næst ekki
þjóða milli nú á dögum, nema
gætt sje fylstu velvildar af
beggja hálfu. Jeg vona, að íslenk
norska samkomulagið, sem her svo
mjög merki þess hvert traust fs-
lendingar og Norðmenn bera hver
ir' til annara, leiði til þess, að vin-
fengið milli þeirra eflist.“
**• —•••
Roosevelt ætlar að spara.
Berlin, 11. mars.
Roosevelt hefir farið fram á það
við þingið, að sjer yrði veitt ótak-
riiarkað umboð til þess að lækka
laun embættismanna, og eftirlaun
nýkomiö 1
Nýtt böglasmjðr
gnlrófur, nýteknar npp úr jörðu,
jafngóðar og á haustdegi. Hvítkál.
Oleymið ekki blessuðu silfurtæra
þorskalýsinu, sem allir lofa.
B jörninn.
gamalla hermanna, eftir eigin geð-
þótta. Mál þett er nú til umræðu
í nefndum þingsins. Talið er að
Roosevelt muni ætla að lækka em-
bættismannalaunin að jafnaði um
15%. Roosevelt sagði í ræðu í gær,
að ein af ástæðunum til vandræð-
anna í Ameríku núna væri það,
þve illa hefði tekist að lækka
tekjulialla fjárlaganna, og mætti
rekja hankavandræðin til þess.
Kveðst hann vilja miklu meiri
sparnað er verið hefir. (FÚ.).