Morgunblaðið - 12.03.1933, Page 3
MORGUNBIA* 1»
t
JHorgitnWaMd
tJtgoí.: H.f. Árvakur, Rorkjavlk.
RitatJCrar: Jön KJartanason.
Valiýr SteíAnaaon.
Rttatjörn og afgrelCala:
Auaturatrœtl 8. — Síaal 1600.
▲UKlýalngaatJörl: h. HafberK.
AuclýalnKaakrlfatofa:
Auaturatrœtl J 7. — Slaal >700
Helaaaalaiar:
Jön Kjartanaaon nr. >742.
Valtýr Stefánaaon nr. 4»0.
E. Hafberg nr. >770.
Áakrlftasiald:
Innanlanda kr. 2.00 4 mlaulL
Dtanlanda kr. 1.60 A aaánuCl,
t lauaaaölu 10 aura elntaklB.
>0 aura meV Leabök.
Jardskjáiitar
á Eyrrahaisstrðnd.
Rafmagnið.
* A öðrum stað hjer í blaðinu er
foirt brjef Bteingríms Jónssonar
Tafmagn.sstjóra um rafmagns-
verðið hjer í bænum og stækkun
Elliðaárstöðvárinnar.
iBrjef þetta ritar rafmagnsstjóri
rbæjarráði í tilefni af því, að til-
3aga kom fram frá Sigurði Jónas-
syni um það, að lækka verðið á
rafmagni nú þegar.
Á bæjarstjórnarfundi varð Sig-
xirður að viðurkenna, að verð-
lækkun sú, sem hann lagði til að
gerð yrði, myndi verða til þess að
auka rafmagnsnotkun bæjar-
tnanna.
En þar eð, eins og rafmagns-
istjóri tók fram, niiverandi raf-
■stöð getur ekki borið meira álag
■en nú er, þá, er ótilhlýðilegt að
gera ráðstafanir til þessa áður en
-stöðin er stækkuð, að örfa raf-
magnsnotkunina.
Nú líður ekki lengri tími en til
næstu áramóta, að ný vjelasam-
*1æða verðí sett í Elliðaárstöðina.
T’á eykst ,afkast stöðvarinnar. Þá
er hægt að taka rafmagnsverðið
til athugunar og væntanlegrar
lækkunar.
Fyrir þessum augljósu stað-
reyndum vildi Sig. Jónasson ekki
Jjeygja sig.
Hann segir:
Nú um sumarmánuðina er hægt
að lækka verðið á rafmagni til
rniðu, meðan bjarti tíminn er. En
■ef rafmagn stöðvarinnar reynist of
lítið með haustinu, þá er hægur-
inn hjá, að liækka rafmagnsverð-
ið aftur.
Fyrir Sigurði Jónassyni vakti
því ekkert hagræði til handa al-
-menningi í bænum.
Nei.
Hann gat hugsað sjer nú í vor
-að selja bæjarbúum rafsuðutæki
meðan verðið á suðurafmagni væri
lágt. En þó verðið hækkaði með
haustinu, og rafsuðutækin yrðu
'kaupendunum hálf- eða alónýt
-aftur, það kom ekki raftækjasal-
anum Sigurði Jónassyni við.
Þannig stjórnast afskifti þessa
'bæjarfulltrúa af eiginhagsmuna-
'braski hans 1 hvívetna,
Og aldrei dettur honum svo ó-
■svífið fjáraflaplan í hug, að flokks
menn hans í bæjarstjórn fylgi
honum ekki.
Nema í þetta eina skifti um
•daginn, er hann hafði hugsað sjer
•.að setja 30 ára rafmagnsokur h.f.
Sogsvirkjunar á Reykjavíkurbæ.
Því gat enginn íslenskur maður
mælt bót, nema útgefendur Tím-
:ans. —
Los Angelos 11. mars.
United Press. FB
Landskjálfta varð vart um ger-
valt ríkið (þ. e. Kalif.) og stóð
hann yfir í hálfa aðra mínútu. —
Þrír menn biðu bana í Los An-
gelos, en fjöldi meiddist hættu-
lega.
Síðari fregn: Frjettaritari Uni-
ted Press hefir farið um Long
Beach, þar sem mest tjón varð.
Telur hann, að fyrstu fregnir hafi
verið ýktar, en vafalaust hafi á
annað hundrað manns farist. í
skrauthúsahverfinu „Signal Hill“
ei eldur uppi í mörgum húsum.
Eru þarna auðmannahús mörg og|
sum hin skrautlegustu í heimi.
Herlið frá McArthurvígi og San
Pedro hafa fengið fyrirskipun um
að fara til Long Beach og halda
uppi reglu og aðstoða lögreglu-
stjórn og borgarana alment.
Enn síðari fregn: Opinberlega;
tilkynt, að 62 hafi beðið bana á
Long Beach. Vafalaust er talið, að
margir fleiri hafi farist, en vitað
er um eins og stendur.
Los Angeles, 11. mars.
XTnited Press. FB.
Opinherlega tilkynt að 121 mað-
Ur hafi beðið bana, en búist við
að nokkur hundruð manna hafi
farist. Tjónið af völdum land-
skjálftans nemur mörgum miljón-
um dollara, ekki að eins í Long
Beach, þár sem viðskiftahverfið
hrundi í rústir, heldur einnig við-
ar í Kaliforníu.
Seinna: Opinberlega tilkynt, að
129 lík hafi fundist á landskjálfta-
svæðinu.
Los Angeles 11. mars.
United Press. FB.
Samkvæmt seinustu fregnum
frá Long Beach er talið, að 250
menn hafi beðið bana af völdum
landskjálftans, en 400 til 500
meiðst alvarlega. í viðskiftahluta
borgarinnar nemur eignatjón,
samkvæmt ágiskunum, alt að 10
milj. dollara.Vopnaðir sjóliðsmenn
eru á verði á öllum götum og hafa
þeir fengið fyrirskipanir um að
skjóta til bana hvern þann, er
geri tilraun til þess að fremja rán.
Var þessi fyrirskipun gefin, er
fregnir bárust um, að menn færi
ránshendi um viðskiftahluta borg
arinnar. Á götunum verður vart
þverfótað fyrir braki, járni, gler-
brotum og múrsteinum. íbúarnir
vinna að því að ná því, sem ó-
skemt er í húsum þeim, er svo
hafa skemst, að þau eru eigi leng-
ur hæf til íbúðar. Menn hafa leit-
að til sjúkrahúsanna í þúsunda-
tali vegna meiðsla, en auk þess
hafa læknar og hjúkrunarkonur
aðstoðað fjölda manna á götum
úti. Víða eru bifreiðaljós notuð
í stað götuljóskera. Yfirvöldin
hafa skipað þeim, sem húsnæðis-
lausir eru, að safnast saman í
skemtigörðum og á leikvöllum
borgarinuar, og fer matvælaút-
hlutun þar fram og er reynt, eftir
mætti, að geiða fyrir fólkinu.
Roosevelt forseti hefir tilkynt
að ríkisstjórnin og þjóðin öll
muni lejtast við að aðstoða eftir
megni alla þá, sem orðið hafa fyr-
ir tjóni af völdum landskjálft-
ans.
Oömu-
RegnKápur
Nýkomið stórt og
fallegt úrval.
Silkioliukápnr
Waterprooikápnr,
Gnmmikápar.
Fallegir litir.
Fallegt snið.
Lágt verð.
„Geysir((
Morgunblaðið er 8 síður í dag
og Lesbók.
Dagbók.
□ Edda 59333147 = Fyrirl.
I. O. O. F. 3. = 1143138 = Fl.
Veðrið í gær: Við austurströnd
landsins er grunn lægð og vindur
því yfirleitt norðanstæður hjer á
landi. Úrkoma er nokkur á N og
NA-landi en þurt á S og V-landi.
í dag hefir verið talsverð úrkoma,
á Austfj. en er nú að ljetta til.
Hiti er 2—3 st. vestanlands en
4— 5 st. suðaustan lands.
Ný lægð er að nálgast suð-
vestan af hafi og mun bregða til [
5- áttar og hláku upp úr helginni.
Veðurútlit í dag: N-gola og ^
bjartviðri fram eftir deginum, en.
þykknar síðan upp með SA-átt. |
Skólasýning er þessa daga, op-
in frá kl. 4—7 í bókhlöðu Menta-
skólans íþöku, og þar sýndar
myndir af húsum og herbergja-
sniði eftir austurríska húsameist-
arann Loos, en hann er talinn
vera höfundur funktionalismans.
Byrjaði hann starf sitt um alda-
mót. Varð hann nýlega sextugur
að aldri, og var þá efnt til sýn-
inga af verbum hans. Lúdvíg Guð
mundsson skólastjóri á ísafirði
fekk þessa sýningu þangað vestur.
JÞaðan er hún komin hingað.
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 26. febrúar til 4. mars (í
svigum tölpr næstu viku á und-
an): Hálsbólga 53 (61). Kvef-
sótt 145 (170). Kveflungnabólga
H. B. $ Go.
Kanpmenn!
BOLD MEDAL í 63 og 5 kg. poknm er hveitl
IMftJdnnn vandlátn. — "Hafið það ávalt verslniTyðar.
H. Beneldlktsson & Co.
Sími 1228 (3 línur).
15 (5). Blóðsótt 1 (3). Gigtsótt
1 (2). Iðrakvef 10 (32). Inflúensa
142 ( 50). Tabsótt 1 (1). Hlaupa-
bóla 2 (4). Þrimlasótt, 0 (1).
Munnangur 1 (5). Mannslát 91 16).
Landlæknisskrifstofan. FB
Kaldar kveðjur fær forsætisráð-
herra hjá Tímanum í gær. Blaðið
birtir upphaf af ræðu forsætisráð
herra í stjórnarskrármálinu, en
þó með mestu ólund. Getur blaðið
þess, að ræðan sje birt samkvæmt
ósk forsætisráðherra, en jafn-
framt segir blaðið, að „flokks-
þing Framsóknarmanna“ muni að
.tæpum mánuði liðnum taka sínar
ákvarðanir í þessu máli. Annars
segist blaðið vera sama sinnis í
kjördæmamálinu og í fyri'a — en
þar ríkti jafnan svartasta aftur-
hald — og blaðið væntir þess, að
eins sje ástatt um þingmenn Fram
sóknarflokksins.
Dánarfregn. Þann 1. þ. m. and-
aðist að Reyni í Mýrdal Einar
Brandsson, eftir langvarandi van
heilsu. Einar bjó um langt skeið
að Reyni, og var jafnan talinn
meðal fremstu bænda í sveitinni,
enda var hann búmaður góður,
hygginn og ráðdeildarsamur í hví
vetna. Heimili hans var jafnan orð
lagt fyrir gestrisni og greiðasemi,
því að bæði voru hjónin samhent
í því, að láta gott af sjer leiða.
Einar var dyggur stuðníngsmað-
ur ýmsra nytsamra framfaramála,
t. d. Sláturfjelags Suðurlands.
Var hann einn af stofnendum þess
Höfnin. Geir kom frá Englandi
í fyrrakvöld. í gær komu þessir
togarar af veiðum: Baldur, með
85 tunnur, Otur, 90 tn. og Hilmir
62 tunnur.
Útvarpstiruflanir. Á fundi í Út-
varpsnotendafjelaginu í fyrrakv.
flutti Gunnl. Briem verkfræðing-
ur erindi um hinar sívaxandi iit-
varpstruflanir hjer í bænum. —
Lagði hann til að fjelagið kysi
nefnd manna til að aðstoða við
leit að upptökum truflananna. Var
því máli vel tekið, en frestað að
kjósa nefndina þangað til á að-
alfundi fjelagsins, sem verður
lialdinn, að sögn, um næstu mán-
aðamót.
„Ástalíf“. Samkvæmt áskorun
manna endurtekur Pjetur Sigurðs-1
son erindi sitt um ástir, í Varðar-,
húsinu í kvöld kl. 8%.
Rannsókn Garðars Þorsteins-
sonar á rni.li Lárusar Jónssonar
fyrverandi vfirlæknis á Kleppi,
er nú lokið, og eru skjöl málsins
send iStjórnarráðinu.
Vildi ekki nefna fávita. Þegar
vottorð Jónasar Jónssonar um
Reykjahlíð, var lesið upp í þing-
inu, og að því kom að J. J. sagði
að jörðin væri sjerstaklega vel
fallin til gamalmennahælis, varð
einum áheyrenda að orði, því hann
hefði ekki eins nefnt „fávitaliæli".
Nei, sagði annar, „það er skiljan-
legt. Jónas má ekki nefna fávita
á nafn.“
Veitingaskattur. Jónas Jónsson
flytur frumvarp um veitingaskatt.
Samkvæmt því á að greiða í rík-
issjóð 10% skatt af söluverði mat-
fanga, drykkjarfanga og annara.
neysluvara, sem seldar eru á gisti
húsum, kaffihúsum eða öðrum
þeim veitingastöðum, sem leyfi
þarf áð reka. Enn fremur eru
BEITTUSTU
ÞYNNSTU
BESTU BLOÐIN.
FÁST ALLSTAÐAR,
Heildsölubirgðir
H ÓLAFSSON & BERNHOFT
skattskyldar veit.ingar í kökubúð-
um, sem leyfi þarf til að hafa um
hönd, svo og önnur veitingastarf-
semi, sama eðlis, án þess leyfi
þurfi til að mega reka hana. —
Þetta er aðalefni frumvarpsins, en
svo koma ýmsar tilslakanir og
undanþágur.