Morgunblaðið - 12.03.1933, Page 5
ghinnudaginn 12, mars 1933.
6
S3
Reykjavíkurbrief.
11. mars.
Veðrið.
Vikan hófst með hvassri austan
átt um alt land og mikilli úrkomu
á A-landi. A þriðjudag gekk vind-
mr í V og varð hvass við S-strönd-
ina. Á miðvikudag gerði allhvassa
SA-átt með rigningu um alt land,
•n var orðinn hægur SV daginn
eftir. Varð mjög hlýtt um stund
á A-landi og sumstaðar á N-landi,
alt að 8—9 st. og jafnvel þa.r yfir.
Síðan hefir veður verið kyrt en
nokkur úrkoma. Alla vikuna var
fremur milt. hiti fyrir ofan frost-
mark, nema síðustu dagana var
dálítið frost vestanlands. í Rvík
rarð hiti mestur á miðvikudag,
7,8 stig, en minstur aðfaranótt
leugardags, 0.1 stig.
Útgerðin.
Afli hefir það sem af er vertíð
verið mikið heldur góður. — En
gæftaleysi liamlað með köflum í
Vestmannaeyjum.
Af fisksölunni engar sjerlegar
nýjungar. Sala á blautfiskinum,
sem sett var undir umsjón sölu-
sambandsins hefir yfirleitt gengið
greiðlega Hefir sölusambandið og
einstakir menn selt jöfnum hönd-
um, en sambandið eins og lög
•tanda til ennþá orðið að gefa
samþykki sitt um verð á fiski
þeim er seldur hefir verið utan
sambandsins.
Aflinn var 1. mars 6828 tonn
samkv. skýrslu Fiskifjelagsins. —
(Nú eru þar ekki lengur nefnd
skippund). Á sama tíma í fyrra
var aflinn 4505 tonn, en 1980 var
hann 1. mars 5015 tonn. Fisk-
birgðir 1. mars 8514 tonn, en voru
í fyrra 10486 tonn, þó þetta minna
hefði aflast fyrstu tvo mánuði
ársins.
Útflutningur hefir numið samkv.
skýrslu gengisnefndar tvo fyrstu
mánuði ársins 6.1 milj. króna. en
var í fyrra 7% milj. kr. siimu
■aánuði.
Samningar.
Þær fregnir hafa borist hingað
pýlega, að samninganefnd Dana,
er kölluð var til London nýlega,
til þess að halda áfram eða full-
gera viðskiftasamninga milli þjóð-
anna, hafi orðið' að hverfa heim
aftur við svo búið í þetta sinn.
Ófrjett er um framhaldshorfur
samninga þessara.
Ekkert hefir um það heyrst hve
nær Bretar óska eftir því að
teknir vefði upp samningar að
nýju við okkur íslendinga. O-
neitanlega minka vonirnar um góð
an árangur af samningum milii
Breta og íslendinga, úr því svona
erfiðlega hefir gengið fyrir Dön-
um. —
Viðvíkjandi frumvarpinu að við
skiftasamningunum við Norðmenn,
»r það að segja í stuttu miáii, að
með því verðum við að sætta okk-
ur við að kjötverslun okkar við
Norðmenn minki niður í þriðjung.
Og fyrir þenna þriðjung á síld-
arútgerðin svo að blæða.
Það er vitað, að síldarútgerðar-
menn vorir liugleiða hvort þeir
standa sig ekki betur við að bæta
bændum upp tjónið af missi norska
markaðsins, heldur en að lög-
festir verði hinir norsku hagsmun
ir við síldveiðarnar.
Ríkislögreglan.
1 gærkvöldi var f jölmennur fund
ur í Varðarhúsinu. Þar hóf Magn-
ús Guðmundsson umræður um
frumvarp stjórnarinnar um ríkis-
lögreglu.
Þar var samþykt svohljóðandi
tillaga í einu hljóði:
„Landsmálafjeiagið Vörður lýs-
ir ánægju sinni yfir stofnun vara-
lögreglunnar eftir atburðina hjer í
bænum 9. nóv. f. ó.
Jafnframt skorar fjelagið á Al-
þingi að samþykkja frumvarp það
til laga um lögreglu ríkisins, er
nú liggur fyrir þinginu, og tehu-
fjelagið þingi og stjórn skylt að
tryggja fullkomlega afkomumögu-
leika. þeirrg manna, er vinna i
lögreglu ríkisins. Væntir fjelagið
að þingið gangi svo frá þessu
máli, að trygt sje frelsi og öryggi
borgaranna og fundarfriður“.
Frá Alþingi.
Enn sem komið er, kveður lítið
að þeim merkari máJum í störfum
Alþingis. Sama óvissan ríkir þar
enn um úrslit aðalmálsins stjórn-
arskriájrmálsins.
Er helst svo að sjá, sem a. m.
k sumir Framsóknarmenn hafi
gleymt því, að samsteypustjórnin
var mynduð til þess að leysa það
mál. Og verði það ekki leyst á
þinginu, þá verður heldur engin
samvinna um stjórn milli Sjálf-
stæðismanna og Framsóknar. Þeir
sem kunna að vilja samvinnuna
áfram verða að sýna vilja sinn í
verki með því að vinna af ein-
lægni að lausn stjórnarskrármáls-
ins á þessu þingi.
Þingmannaf j ölgunin.
Fyrirsláttur einstakra manna
um það, að stjórnarskrárbreyting-
in sje óvinsæl vegna kostnaðar við
að bæta 8 þingmönmim við verð-
ur að engu við athugun. Þing-
menn hafa nii kr. 13.84 í dagkaup,
eða 24 aurum meira en hafnar-
verkamenn við 10 klst. vinnu. Og
útgjöldin til þeirra 8 sem við
kynnu að bætast nemur 5—6% af
Alþingiskostnaði. Mun öllum sem
kynst hafa störfum þingsins koma
,saman um að spara mætti hæg-
lega á móti, með því að stytta
þingtímann um 3—4 daga.
En hugur þingmanna á að hraða
störfum þingsins virðist því miður
ekki vera mikill.
Reykj ahlíðarvantraustið,
Mikið af tveim þingdögum hef-
ir nú farið í að ræða þingsálykt-
unartillögu sósialista um riftun á
kaupum Reykjahlíðar í Mosfells-
sveit Og gó gat framsögumaður
ekki komist hjá að láta þess getið
í upphafi máls síns að miálið væri
úrelt, því kaup þau. sem liann
ætlaði að víta, væru úr sögunni.
Samt er talað, og talað, og flutt
vantraust á Magnús Guðmundsson
fvrir að hafa ætlað að kaupa jörð-
ina. Þ. e. a. s. hann ætlaði aldrei
að kaupa jörðina fyrir hönd minn-
ingarsjóðsins, nema fjárveitinga-
nefndir Alþingis samþyktu. Hjer
var aðeins um tilboð að ræða.
Svo er flutt vantraust á Magniis
fyrir að hann iag'ði þetta mál í
hendur fjárveitinganefnda.
Og Framsóknarmenn bræða
hvernig þeir eigi að snúa sjer í
þessu máli — þessu líka vanda-
máJi, og fela öldungnum Sveini í
Firði framsöguna.
Hann komst að þeirri niður-
stöðu að hann vildi hvorki greiða
atkvæði með eða móti vantrausti,
og þó þótti honum vantrauststil-
laga sósíalista fjarstæða. — Yar
gamli maðurinn því í mesta vanda.
Sveinbjörn.
En svo kom Sveinbjörn frá
Breiðabólsstað og vildi gera þá
breytingartillögu við loðmullu
Sveins, að vísa vantrausinu frá, í
trausti þess að slíkar stjórnarat-
hafnir komi ekki fyrir aftur“.
Þarna fóru „línurnar að skýr-
ast“. Stjórnarathafnirnar voru
þær í þessu tilfelli, að engin kaup
voru gerð, án þess að bera þau
undir þingið. En þetta líkar ekki
Hriflungum. Þeir vilja, eins og
reynslan hefir sýnt, ráðstafa al-
mannaf je upp á eigin eindæmi, án
þess að láta þingið fá þar nokkur
afskifti af einkum þegar vildar-
vinir eiga í hlut..
Brjefið.
Af því sem fram hefir komið
við þessar Reykjahlíðarumræður
er brjef Jónasar Jónssonar það
eina sem máli skiftir. Brjefið er
stutt og gagnort, skrifað, eins og
Jiöfundur áður hefir viðurkent, til
þess að eigandi Reykjahlíðar gæti
prangað jörðinni út til ríkisins eða
Reylcjavíkurbæjar fyrir sem hæst
verð, og án þess þá, samkv. tiliögu
sr. Sveinbjarnar, að slíkar „stjórn
arathafnir' ‘ komi þar til greina,
að Alþingi verði nokkuð spurt um.
Það er bágborin sjón, að sjá
Hriflunga með Jónas í broddi
fyikingar koma fram á Alþingi
eins og vandláta siðameistara,
mennina, sem með öiiu móti hafa
sölsað undir sig fje og fríðindi á
kostnað almennings, og beitt í
þvi efni allri þeirri ósvífni og
hlutdrægni sem siðleysi þeirra í
fjjrmálum hefir blásið þeim í
•Eerlið jafnaðarmanna bannfært í
Þýskalandi.
I Þýskalandi hafa bæði jafnað-
armenn og kommúnistar komið
sjer upp svonefndum „varðsveit-
um“, sein ekki er annað en grímu-
búið árásarlið gegn þjóðskipulag-
inu. Jafnaðarmenn kalla þetta
lierlið sitt „Reichsbanner“ (rík-
isfánalið). í Thúringen hefir þetta
lið nú verið bannað og foringjun-
um skipað að uppleysa það. Hjer
á myndinni sjest heræfing hjá
þessu jafnaðarmannaliði.
1 skóla var börnunum skýrt frá
líkamsbyggingu mannsins og
hvernig líffæri hans starfa.
— Geturðu nú sagt mjer, Frið-
rik litli, 'hvar hjartað er? spui'ði
kennarinn.
— Innvortis.
Heilðsölubirgðir:
Rúðugler
200 ferfet í kistu.
Þetta gler hefir hlotið lof allra, sem reynt hafa.
Sími: Einn—tveir—þrír—fjórir.
UPPB0Ð.
Opinbert uppboð verður haldið á morgun (mánudag)
13. þ. m. og verða þá seldiar, eftir beiðni tollstjórans í
Reykjavík og að undangengnu lögtaki, eftirfarandi bif-
reiðar og bifhjól:
R.E. 1, 46, 51, 72, 95, 106, 110, 119, 122, 142, 159,
161, 195, 233, 235, 242, 271, 272, 273, 308, 311, 330,
355, 373, 374, 378, 379, 402, 405, 413, 420, 423,
428, 429, 438, 440, 442, 460, 461, 463, 479, 496,
512, 523, 540, 542, 543, 545, 569, 655, 724, 862, 887,
892, 964.
Uppboðið hefst kl. 10 árdegis við Arnarhvál og heldur
síðan áfram víðsvegar um bæinn.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Lögmaðurinn í Reykjavík 12. mars 1933.
BjSrn Þórðarson.
FðuiD meö e.s. Dettlfoss.
Delecious Epli í ks. Fancy og Ex. fancy. Jaffa,
144 og 180 stk. Yalencia appelsínur 240 og 300 stk. Lauk
Eggert Kristjánsson & Ce.
Sími 1400 (3 línur).
IButt nteð kteppens.
Notið peninga þá, er þjer hafið aflögu til að gleðja yður, börn
yðar og vini. Komið beint til okkar, þ^ú hjá okkur er hægt að fá
margt fallegt en þó ódýrt. Lítið í gluggana hjá okkur og þjer munuð
sannfærast. Að meðaltali fer Va í ríkissjóðinn. Þjer gerið góð kaup.
Við gerum góða verslun, Ríkiskassinn verður fullur af peningum.
Kreppunni á íslandi mun ljetta strax af.
K. Einarsson & Bjfirnsson.
Sjðlfbleknngar
Carters sjálfblekungar eru pennategund sem treysta má fullkomlega.
Endast langa æfi og eru við hvers manns hæfi. — Fást í
Bðfcaverslnn SigfAsar Ejmisndssonar
(og bókabúð Austurbæjar BSE, Laugaveg 34).
Knglýsið i IHorgnnblaðinn