Morgunblaðið - 14.05.1933, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
laust fyrir þá að fá útlendar vörur
með vægu verði.
Að síðustu bendið þjer á það í
grein yðar, að í Bandaríkjunum
sjeu kaupfjelög cn ekkert !3am-
band, og kann mönnum, sem hrifn-
ir eru af því verslunarfyrirkomu-
lagi, að furða sig á því. að vold-
ugasta verslunarþjóð heimsins,
skuli ekki hafa fundið það snjall-
ræði!
Bandaríkjamenn eru stoltir af
sínum auðmönnum og segja rjetti-
lega að þeir sjeu máttarstoðir
þjóðf jelagsins; í skjóli þeirra þríf-
ist vísindi og listir, menning og
mannvirki, sem þjer mynduð horfa
agndofa á, ef þjer fenguð þau
augum litið.
Þei» veita heldur ekki fátækra-
styrki nje bitlinga af almannafje,
heldur ætlast til þess. að hver ein-
staklingur sjái fyrir sjer sjálfur,
éf hann hefir heilsu til þess-
í sumum löndum, eins og t. d.
ftalíu undir stjórn Mussolini. er
bannað að betla á almanna veg-
um. en hjer á landi er næstn.m
kappldaup um að betla, sjerstalc-
lega þó af almanna fje, og sá
þykir vaxa í áliti, sem þar ber
mest úr býtum. Einnig kr-ppast
menn um það að koma á fót, ýms-
um opinberum atvinnurekstri og
„nefndum“, sem veitt geti skjól
og magafylli þeim, sem ekki hafai
geð nje vilja til þess að bjarga
sjer sjálfir á. ærlegan hátt, Og
nefndunum fjölgar eftir því, sem
heimtufrekjan og vitleysan vex.
Kreppan í Bandaríkjunum staf-
ar hvorki af samábyrgð nje póli-
tískuverslunarbraski, heldur af alt
öðrum orsökum, sem hjer verða
ekki raktar.
En Svafar —- því bendið þjer
ekki á landið, sem margir sam-
herjar yðar' vilja taka til fyrir-
myndar í stiórnmiálum, rjettarfari,
verslun og lifnaðarháttum. Það er
Rússland. Þaðan hafa útlendir
glæpamenn strokið, vegna þess
að þeir kusu heldur æfilangt fang-
elsi í föðurlandinu en „frjáls-
tæðið“ ! undir hnútasvipu rúss-
nesku valdhafanna.
Nú er næstum verið að þröngva
heilli stjett landsins að hinni op-
inberu jötu. Þeirri stjett, sem alla
tíð hefir borið í brjósti ríkastar
sjálfbjarga tilfinningar, verið sjáif
stæðust á sínum óðulum og liaft
heilbrigðastar skoðanir á alvöru-
málum og rjettlátri baráttu lífs-
ins. Yjer, sem höfum á æskuárun-
um notið best sólar og frjálsræðis
a þeim óðulum, horfum hryggir á
þá „lífsvenjubreytingu“, sem nú
er hæst rómuð og miðar að því að
gera sem allra flesta að ósjálf-
stæðum ölmusumönnum.
Garðar Gíslason.
Lagleffur arfur.
Hrossakaupmaður nokkur í
Kolding fluttist til Ameríku 1873.
Þar græddi hann stórfje á tóbaks-
ræktun. Hann er dáinn fyrir
nokkrum á.rum og nýlega ljest
ekkja hans. Þau áttu engin börn
og erfingjar ekkjunnar voru syst-
urböm hennar átta, sem eiga
heima í Danmörku. Þau fengu
lijer um daginn 6 miljónir króna
i arf eftir hana-
Bátsúlaegu’inn og
drognótaveiðar í sumar.
f þinglokin í fyrra, skoruðu all-
margir þingmenn á ríkisstjórnina
að breyta með bráðabirgðalögum
gildandi lagaákvæði um dragnóta-
veiðar í landhelgi. Ástæðan fyrir
þessu var sú, að frv., er inni hjelt
nokkrar rýmkanir í þessu efni
náði ekki samþykki þingsins, að-
allega vegna þess, að við atkvgr.
eina um það mál voru ekki allir
þingmenn viðstaddir.
Hinsvegar var útlit fyrir, að
vjelbátaflotanum gæti orðið það
nokkur styrkur að fá rýmkun á
leyfi til þessara veiða vfir sum-
artímann.
Stjórnin varð við áskorun þm.
þeirra, þeirra, er að ofan greinir,
on þeir voru meirihl. þingmanna
í báðum deildum, og gaf út bráða
birgðalög 6. júlí s.l., til þess að
gera vjelbátunum mögulegt að
stunda þessar veiðar. Þessi bráða-
birgðalög fekli þingið úr gildi
aftur nú í vetur, þótt undarlegt
væri. Það mun nú að vísu hafa
farið svo s.l. sumar, að veiðarnar
hafa gefið lítið af sjer fvrir suma,
er þær stundúðu, en ]>etta var þó
nokkuð misjafnt, og er mjer kunn
ugt um nokkra báta hjer sunnan-
lands, er stunduðu veiðarnar með
sæmilegum árangri lengi sumars
og fram á haust. Aðalástæðan fyr-
ir slæmri afkomu þessara veiða
sl. sumar mun hafa verið sú, að
óvíst var og erfitt að selia veið-
ina, og lentu menn því sumir
hverjir í því að senda út kolann
með t.ogutum, en þess háttar er
stopult og útkoman misiöfn. —
Sænska frystihúsið hjer í Revkja-
vík byrjaði á því í fyrra að kaupa
ivola, lúðu og þorska til hraðfryst-
ingar, og var þetta eiginlega til-
raun, sem frystihúsið gerði í fjelagi
við eitt hið stærsta fisksölufinna
í London. Sf. Akurgerði í Hafn-
arfirði tók og þátt, í, að þessi
tilraun var gerð. Hjer var lagt
út á nýja og mjög athyglisverða
braut í fiskútflutningi íslendinga,
og voru margir efíns um, hversu
gefast mundi. Prystihúsið fór og
mjög varlega í öllum innkaupum
og vandaði sem unt var verkun
og frágang vörunnar. Það hefir
nú komið í ljós, að fiskur sá. er
hraðfrystur var til útflutnings i
fyrra. líkar vel og hefir unnið sjer
nokkurt álit á erlendum markaði,
og hefi jeg fyrir satt, að í ráði
sje, að frystihúsið kaupi nú í
sumar flatfisk og annan fisk í
miklu stærri stíl en gert var í
fyrra- Fyrir nokkru auglýsti frysti
húsið og óskaði eftir viðskiftum
við márga báta, sem það vildi gera
samning við að kaupa af ýmsan
flatfisk, alt til áramóta. Af brjefi
því, er hjer fer á eftir, sem hr.
Gustafson framkvstj. sænsk-ís-
lenska frystihússins hefir nýlega
skrifað atvinnumálaráðuneytinu og
góðfúslega látið mjer eftir afrit
af til birtingar, er það sýnt. að
því hefir ekki tekist, að fá bátana
til áð gera samninga, og það er
ennfremur sýnt, hver ástæðan er
til þessa, þrátt fyrir liið háa verð,
sem í boði er, og þrátt fyrir yfir-
vofandi atvmnuleysi sjómanna yf-
!;• sumartímann. Brjefið hljóðar
svo:
Reykjavík, 11. maí 1933.
Til atvinnumálaráðuneytisins,
Reykjavík.
Tilraunir vorar síðastliðið ár við
að fá markað fyrir flakaðan fros-
inn þorsk, rauðsprettu og sólkola
liafa borið svo góðan árangur, að
vjer höfum í ár ákveðið að kaupa
700 tonn af þorski, 500 tonn af
rauðsprettu, 100 tonn af sólkola
og 100 tonn af lúðu til frystingar
og útflutnings.
Þrátt fyrir auglýsingar í dag-
blöðunum (sbr. meðfylgjandi aug-
lýsingu) hefir oss ekki tekist að
semja við einn einasta bát um
flatfiskveiði í sumar. Við getum
ráðið'ca. 25 báta til dragnótaveiða
í sumar, en allir fiskimenn, sem
við höfum haft tal af, segja, að
þrátt fyrir hið mikla atvinnuleysi
þeirra yfir sumarið sje ómögulegt
fyrir þá að stunda veiðar, þareð
þeir eingöngu verða að veiða fyrir
utan landhelgi til 1. sept. þess
háttar veiði telja þeir langt frá
svara kostnaði og kveðast ekki
geta skilið hver ætlunin sje með
að banna dragnótaveiði í land-
helgi fyrir 1. sept. þareð það er
leyft eftir þann tíma til áramóta-
Ef flatfiskveiðin byrjar ekki fyr
en 1. sept. er það ómögulegt fyrir
oss að fá það ,kvantum“, sem
vjer þurfum að fá til ]>ess að
^eta fullnægt eftirspurninni og
auk þess verður það þess valdandi,
að frystihúsið yerður að stöðva
framkvæmdir sínar yfir sumartím-
ann til mjög mikils tjóns fyrir
það og þá menn, bæði sjómenn og
verkamenn í landi, er gætu haft
atvinnxi af starfsemi þess.
Hvað verð á flatfiski viðvíkur
er það að segja, að við höfum
boðið 40 aura fyrir kg. af rauð-
sprettu og 30 aura fyrir kg. af
sólkola, sem er 10 aurum hærra
verð pr. lcg. en greitt var síðast-
liðið sumar.
Þar sem svo virðist, að brýn
nauðsyn sje til að bæta úr ríkj-
andi atvinnuleysi, og ekki síst, þeg-
ar hægt er að gera það á viðun-
andi hátt að auka framJeiðslu
landsins til útflutnings fyrir mjög
viðunandi verð, leyfum vjer oss að
skora á hið virðulega atvinnumála-
ráðuneyti að neyta allra náða til
bess að opna möguleika fyrir því
að dragnótaveiði verði leyfð í land
•elgi einnig yfir sumartímann.
Eins og segir hjer að framan,
feJdi það þing, er nú situr, breyt-
ingu þá dragnótaveiðalögunum,
sem stjórnin hafði gert, með bráða
birgðalögunum frá 6. júlí f. á.
Eftir núgildandi lagaákvæðum eru
dragnótaveiðar því ekki leyfðar í
landhelgi fyr en 1. sept,. í haust,
en þá er liðinn sá tími, sem hægast
er fyrir smærri vjelbáta að stunda
veiðar þegar ög margir mánuðir
farnir í atvinnuleysi hjá þeim
siómönnum. sem annars hefðu vilj-
að sinna veiðunum, Jeg vil taka
það fram í þessu sambandi og vísa
í því efni til brjefs frystihússins
hjer að ofan, að það horfir alt.
öðru vísi og betur við fyrir báta
að stunda dragnótaveiðar ? sumar,
bæði hjer í flóanum. undir Jökli.
austur við Vestmannaeyjar og ef
til vill annars staðar, livað sölu-
möguleika snertir heldur en var
í fyrrasumar. Þá var mjög óvíst
um sölu nema að litlu leyti og
verðið heJdur lágt, en nú er kaup-
andi til hjer á staðnum fyrir um
1400 tonn af ýmiskonar fiski, og
að því er snertir flatfiskinn sjer-
staklega, fyrir mjög gott, verð. Það
mun 1 áta nærri, ef frystihúsið gæti
fengið íslénska vjelbáta til að
DHmmw&ÓiLSEM
HSiima ávalt birgðir ai:
Pickles: Mixed 10 og 20 oz.
Pan Yan 10 og’ 20 oz.
Sésum: Worchester.
Tomat 7, 8 og- 12 oz.
Pan Yan.
Peter Pan.
Símieinn, tveir, brír, fjórir.
«
vorun
Byggingarnefnd Reykjavíkur aðvarar hjer með alla
þá, sem hafa fengið eða ætla að fá byggingarleyfi, um það,
að þeir mega ekki vænta þess að leyft verði eða látið óátal-
íð að þeir víkji frá samþyktum uppdráttum að því er
! snertir hæð húsanna, eða setji á þau þak til bráðabirgða
áður en þau eru komin upp í þá hæð, sem uppdirættirnir
sýna. —
II LOUðlfV
verðnr farið kL 10 árdegis
Bífrelðastöð Islands, sími 1540.
fiska og selja sjer það fiskmagn,
er hjer um ræðir, að hjer sjeu
sölumöguleikar fyrir íslenskan
fisk, sem nema um l/2 miljón kr.,
og það á þeim tíma, sem ólíklegt
er, að nokkur not megi hafa af
bátunúm, a.m.k. fæstum þeirra við
aðrar arðberandi veiðar.
Hjer er að vonum mjög kvartað
yfir atvinnuleysi og þykir skyJt
og rjett, að bæði þing og stjórn
geri sitt ýtrasta til að vinna bug
á því. Jeg vil ekki með þessum
línum vekja neinar deilur um gagn
semi eða ógagn dragnótaveiðanna
yfirleitt, , heldur vildi jeg veleja
athygli á því, hvað hjer er í liúfi
fyrir bátaflotann og beina þeirri
spurningu til þings og stjórnar,
hvort ekki sje hægt á einhvern veg
að láta þá fiskimenn, sem hjer
gætu átt hlut að máli, verða að-
njótandi þeirra viðskifta nxi í
sumar, sem sænska frystihúsið
býður þeim. Mjer er Ijóst, að þetta
er ekki hægt að gera án þess að ;
í einhverju sje slakað til á banni;
gegn dragnótaveiðum í landhelgi.
Því ef alt á að bíða til 1. sept„
fara þessi viðskifti forgörðum. A
hinn bóginn er hjer um mikið
hagsmunamál að ræða fyrir fjölda
sjómanna, og þegar þess er gætt,
hve víðtækar og óvenjulegar ráð-
stafanir gerðar eru nú á dögum
tiJ styrktar öðrum aðalatvinnuvegi
Jandsmanna, Jandbúnaðinxim, virð-
ist mjer, að jafnvel þeir, sem af
principástæðum eru andstæðingar
dragnótaveiðanna, ættu að geta
Jagt Jið sitt til þess, eins og atviJv
Jiggja til, að bæta að nokkru úr
atvinnuleysi þeirra sjómanna, sem
Jxjer eiga hlut að máli.
Jóhann Þ. Jósefsson.
Fötur.
Þvottapottar.
Bíómsturkönnur
or' aðrar blikkvörur eru
nú fyrirliy’g-.jandi í
JÁRNVÖRUDEILD
Jes Zimsen.
Fynrliggjandi:
Appelsínur Murcia.
Epli í ks.
Winsaps off Jonathan.
Kartöflur.
Laukur.
Flórsykur.
Kandís.
Makkarónur.
Súkkat.
Sætar Möndlur.
Bláber.
Cacao.
The.
Eggert Hrlstiánssan SGo-.