Morgunblaðið - 14.05.1933, Page 7
7
m
oooooooooooooooooo
aluminium og email. eru í
fjölbreyttustu úrvali í
JÁNRVÖRUDEILD
Jes Zimsen.
oooooooooooooooooc
rnjö.e: vöndíuð, í príma á-
standi, til sölu. Skilvís kaup-
-andi fær einhvern gjaldfrest.
Uppl. Öldu.efötu 3, 2. hæð.
IVMlBÍð:
Yatnsg-lÖs 0.30
Matardiskar 0.50
Bollapör 0.50
Skálasett 4.50
Mjólkurkönnur 1.50
Matarstæ11 6 m. 20.00
Kaffistell 6. m. 14.00
Kaffistell 12. m. 22.00
Matskeiðar alp. 0.75
Gafflar alp. 0.75
20% afsláttur af öllum Bús-
áhöldum.
Bankastræti 11.
kostur, því mjög er það
misjafnt hve fægingin end-
ist lengi. - Þetta ættu
Húsmæður að athuga.
R.l, Einaptð HeF&javfkir
13. maí.
Aflinn.
Aflinn á öllu landinu hefir
aldrei verið meiri á þessum tíma
árs, en hann er nú- Var hann við
síðustu talningu 41870 smálestir.
En árið 1930 var hann á sama
tíma 40301 smálest-
En 1930 var hámarksaflaár.
En þó heildaraflinn sje svona
mikill, liefir bátaafli hjer við
Faxaflóa verið mun rýrari í ár
en í fyrra. Er nú bátavertíð að
kalla úti, enda komið fram yfir
venjuleg lok.
Keflavíkurbátar munu á þessari
vertíð hafa aflað 400—800 skpd.,
en Akranesbátar 500—1000 skpd.
að því er heimildarmaður blaðsins
hermir.
Má búast við að rekstrarútkoma
margra báta verði slæm í ár,
þareð aflinn hefir verið þetta %
minni en í fyrra, en tilkostnaður
svipaður, og ekki von um hærra
verðlag á afurðum í ár en var
í ffyrra.
Róðrardagar á þessari vertíð
munu hafa verið heldur færri en
í fyrra- En minni afli stafar þó
ckki síður af því, að aflinn hefir
yfirleitt verið tregari.
Togaraaflinn aftur á móti sjer-
lega mikill, bæði af því að veiði-
tími þeirra bvrjaði með fyrra
móti í ár — jafnvel 4—5 vikum
fyr en vant er — og afli þeirra
meiri á dag yfir veiðitímann en
oft endranær.
Hinn tiltölulega mikli afli sem
Icomið hefir á land hjer í Reykja-
vík á þessari vertíð, eykur fisk-
vinnu bæjarbúa að mun á þessu
sumri, frá því sem hún var t. d.
í fyrra.
Togararnir.
Undanfarið hafa togararnir
stundað veiðar í Jökuldjúpinu. En
veiði er þar farin að tregðast. —
Aftur á móti hefir veiði glæðst
til muna við Vestfirði — í ísa-
fjarðarálnum. Hafa allmargir tog-
arar því komið inn undanfama
daga, enda þótt þeir hefðu ekki
nema lítinn afla; til þess að losa
sig við þann afla, og fara síðan
vestur.
Enginn togari hefir farið austur
á ITvalbak í vor, svo blaðinu sje
kunnugt, enda hafa Hvalbaksveið-
ar brugðist undanfarin ár, en vor-
veiði í Jökuldjúpi komið í stað-
inn.
Sendinefndin til
Englands.
Engar fregnir hafa borist svo
kunnugt sje, frá sendinefndinni
er fór til London til að semja við
Breta um viðskiftamál vor.
Hefir Bretastjórn nýlega gengið
frá samningum við Argentínumenn
og veitt þeim svo rúm lcjör til
kjötinnflutnings til Englands, að
stjórnin hefir fengið ámæli fyrir
í enskum blöðum.
Lungnapestin.
í Arnessýslu hefir lungnapest í
sauðfje gért allmikinn usla upp á
‘ íðkastið — uns nú mun tekið fyrir
hana að mestu með bóluefni
Dungals, sem farið er að nota þar.
En þar, sem víða annars staðar
fá bændur eigi eins mikil not af
þessu ágæta bóluefni, sakir þess
að þeir bera ekki kensl á þessa
veiki fyrri en seint og síðarmeir,
ÚTBOÐ.
t
Þoir, sem vildu gera tilboð um útvegun á bifreið, með
björgunarstiga, fyrir Reykjavíkurbæ, leiti upplýsinga hjá
slökkviliðsstjóra kl. 11—12 árdegis, virka daga; fyrir 25.
þessa mánaðar.
Ný feðk.
Karl Bjarnason- Brauð og Kökur. 350 uppskriftir
fyrir bökun í heimahúsum. Verð: ib. kr. 5.50.
Sparar f je í kreppunni.
Fæst í
BíkaTerslm SigfeUar EpnÉbuut
og Bókabúð Austurbæjar, Laugaveg 34.
Óðyrlr sumarkjólar
og sumarkápur.
Einnig falleg nýtísku undírföt. Taubútasala í nokkra daga.
Sig. BnðMundsson.
Laugaveg 35. (Áður útbú Vöruhússins).
íslenska vlkan.
Framhaldsstofnfundur fyrir „ísl. vikuna á Suðurlandi“
verður haldinn á morgun í Baðstofu Iðnaðarmanna kl. 8y2
síðdegis. — Þar verða samþ. lög og kosin stjórn fyrir
fjelagið o. fl. Allir sem áhuga hafa fyrir fjelagi þessu og
starfsemi, eru velkomnir á fundinn.
Framkvæmdanefndin.
> RGli NBLAÐIÐ
og blanda lienni saman við orma-
veiki, sem algengari er og menn
kannast betur við.
Fjeð sem bólusett er áður en það
tekur veikina, verst henni því nær
undantekningarlaust, hefir jafnvel
tekist að lælcna sjirkt fje með
bóluefni Dungals-
Flugið.
'ítalirnir, sem bjer komu á dög-
unum til þess að nndirhúa við-
komu ítölsku flugsveitarinnar —
vinna daglega að ýmsum athug-
unum og undirhúningi.
Er helst búist við því, að flug-
bátarnir, 24 að fölu, verði látnir
setjast inn á Viðeyjarsund, eða
þar um slóðir, — inn í Elliðaár-
og Grafarvogi.
Eins og foringi þeirra ítalanna,
Altomare flugkapteinn skýrði
Morgunblaðinu frá um daginn, má
búast við því, að ef þessi mikli
flugleiðangur fer vel, hugsi stór-
þjóðimar fremur en áður til flug-
leiðar um ísland.
Pan-American flugfjelagið, sem
fekk leyfi til flugsamgangna hjer
í fyrra, heldur að sögn nndirhún-
ingi sínum áfram. Ráðunautur
þeirra í þeim efnum er Vilhjálm-
ur St.efánsson, sem kunnugt er.
Þorkell Þorkelsson veðnrstofustj.
liefir nú á hendi verðurskýrslugerð
fyrir hið ameríska fjelag.
Frá Alþingi.
Fjárlög koma til 3. nunræðu í
Efri deild nú eftir helgina. —
Þeirra vegna ætti þing ekki að
þurfa að standa lengi úr þessu.
Niðurstöðutölur f.járlaganna eft-
ir 2. umræðu í Efri deild sýna
225 þús. kr. tekjuhalla.
Til Efri deildar éru og komin
kreppufrumvörpin; frnmvarpið’1
um kreppulánasjóðinn og fram-
varp til laga. um ýmsar aðrar
kreppuráðstafanir svo sem gjald-
frest, og vaxtaívilnanir.
Rannsókn.
Um leið og afgreidd eru kreppu-
mál bænda á Alþingi, ætti þingið
að gera ráðstafanir til þess að
rannsókn færi fram á fjárhags-
ástæðum, framtíðarmöguleikum og
gjaldgetu sjávarútvegsins um land
alt.
Alþingi afgreiðir kreppumál
landbúnaðarins þannig, að þjóð-
inni eru hundnir stórfeldir út-
gjaldabaggar.
Er eðlilegt, að þeir sem styrks-
ins eiga að njóta og hjálp eiga
að fá frá ríkinu til þess að kom-
ast út úr ógöngunum, spyrji hve
aflögufærir þeir í raun og voru
sjeu, sem eiga að bera bvrðarnar,
þeir sem afkastamesta atvinnuveg-
inn stunda — sjávarútgerðina.
Má búast við því, að mörgum
hændum. sem lesið hafa Tímann
úndanfarin ár, þyki teflt á tæpt
vað með kreppuhjálp, þegar hana
á í fyrsta lagi að fá frá útgerð-
inni, þar sem Tíminn hefir árum
saman lialdið því fram, að út-
gerðarmenn væru yfirleitt eigna-
lausir svindlarar og útgerðin —
til dæmis ekki síst hjer í Reykja-
vík, með allri sinni eyðslu, væri
til byrði fyrir þjóðina-
Samkvæmt ráðstöfun bæjar-
stjórnar er hjer staffandi nefnd
er á að rannsaka rekstttr togar-
anna sjerstaklega, og hverjar ttm-
bætur sje hægt að gera hjer á
útgerðarmálum. Rannsóknin ætti
að verða víðtækari, og ná um land
alt.
Skattavitleysan.
Ymsir trúa því ekki fyr en þeir
taka á því, að núverandi þing-
meirihluti hverfi að því ráði að
samþykkja margföldun tekju- og
eignarskatts,- sem einskonar
kreppnráðstöfnn ofan á fjérbruðl
væntanlegra fjárlaga.
En svo ófróðir ern margir um
skattaástandið í landinu, að þeir
lialda að stórkostlegir skattaank-
av komi aðallega og tilfinnánleg-
ast niðnr á Reykvíkingum.
En það er víðar en í höfuð-
staðnum sem skórinn kreppir.
Maður knnnugur atvinnureksri
á Avisturiandi, hefir sagt blaðinu
frá eftirfarandi dæmi:
Utgerðarmaðnr einn eystra hygði
fiskþurkunarhús 1918. Hi'isið kost-
aði 120 þús. kr. Var virt að fast-
eignamati á 80 þús. krónur. —
Utgerðin gekk saman. Engin not
urðu af húsinu ár eftir ár, ekki
hægt að nota húsið fyrir geymslu,
og elcki hægt að leigja það. Eign-
in var arðlaus.
Eigandinn sá fram á að hann
þyrfti að greiða í skatt og út-
svar um 4200 krónur fvrir að
hann átti þessa arðlausu eign-
Til þess að komast hjá þessum
skattaauka sá hann þann kost
vænstan að rífa húsið og selja úr
því brakið,
Heimildarmaður blaðsins segir
ástandið víða svo þar eystra, að
menn sem hafi haft þar talsverðan
atvmnurekstur hugsi um að nota
hvert tækifæri sem býðst, til að
hverfa á brott, áður en skattar
hafa uppetið allar eigur þeirra og
gert þær arðlausar.
Utanstefnur?
Sósíalistar innan Alþýðu- og
Framsóknarflokksins hafa fengið
hálfgert æðiskast út af þjóðern-
ishreyfingunni. Tíminn og Alþýðu-
blaðið keppast um að ausa ó-
hróðri og svívirðingum yfir þjóð
ernissinnana, nefna þá uppreisn-
armenn, svartliða, einræðismenn
og jafnvel manndrápara. í ofur-
hjartnæmri grein, er Jónas Jóns-
son skrifaði nýlega, henti hann á
þann möguleika, að hann og þeir
velunnarar hans í Alþýðuflokknum
mýndu e.t.v. þurfa að grípa til
þeirra ráða, að sækja nm aðstoð
erlendra þjóða til þess að bæla
þjóðernishreyfinguna niður.
Svo hverft varð þessum upp-