Morgunblaðið - 08.10.1933, Síða 12
12
MO RGUN BLAÐIÐ
Alt á sama stað.
Bilagevmsto.
Munið eftir hinni ágætu,.
upphituðu bílageymslu.
Verið saungjxrnt.
Igill Vilhiálmsson,
Laugaveg 118. — Sími 1717.
HQTEL ROSEHHRHHTS
BERGEN.
Centralt beliggende
ved Tyskebryggen.
Værelser m. varmt
og koldt vann, tele-
fon og bad.
Rimelige priser.
Islenskar
afnrðir
seldar í umboðssöln,
Albert Obenhaupt.
Hamburg 37, Klosterallee 49.
Símuefni: Sykur.
Lifuroghjörtu.
Lækkað verð.
KLEIN.
Baldursgötu 14. Sími 3073.
Sllll 1388 flifllStðÍlfl 1313.
Oplð allan sólarhrlnglnn.
Hefi nú aftur fengið allar tegundir af vörum
Marinello til lækninga og fegrunar á hörundi.
Komið til mín og fáið upplýsingar nm hvað þjer
eigið að gera til þess að hörund yðar verði heil-
brigt og fagurt.
Hefi einnig fengið 10 mismunandi liti af
púðri.
Lindí§ Halldór§§on,
Tjarnargötu 11.
Sími 3846.
Radion gerir
Ijereít skínandi
án pess að
purfa nudd
Þad er erfitt verk að ná blettum úr
ljerefti, þegar þjer þurfið að nudda þvi
á þvottabretti, og við það slitnar það
og skemmist.
En nú gerist þess ekki þörf. Radíon gerir
alt verkið, á fljótari, ódyrari dg'auðveldari
hátt. Blandið aðeins hæfilega miklu af
Radion í köldu vatni, látið það í þvottapot-
tinn og fyllið eftir þörfum. Leggið síðan ljereftið í og
sjqSíð » tuttugu minútur, — skolið svo — og þvotturinn
er búinn.
Þjer munuð undrast hversu ljereftið verður skjallhvítt
þegar það hefir verið soðið í Radion. Mislitur- og uilar
þvottur verður sem nyr ef þvegið er úr kaldri Radion
upplausn.
Reynið Radion næsta þvottadag og það verður hvildardagur.
BLANOA, — SJée.1
— SKOLA,
— það er alt
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband að Borg á
Mýrum Ása Bjamadóttir, Borg-
arnesi og Steingr. Guðmundsson.
Hansen fjármálaráðherra Dana
hefir lagt fram í þinginu ríkis-
reikninginn fyrir fjárlagatímabilið
1932—33 og hefir orðið 7.8 milj.
króna tekjuafgangur. En á fjár-
lagafrumvarpinu fyrir 1934—35 er
7.4 milj. króna tekjuhalli, en búist
er við að hann verði jafnaður með
sparnaðarráðstöfunum. — (Sendi-
herrafrjett).
100 ára afmæli á Guðrún Þor-
láksdóttir, Búðarstíg á Eyrar-
bakka á þriðjudaginn kemur. Hún
er ættnð frá Hvammi nndir Eyja-
fjöllum.
Inngangsfræði Gamla testament-
isins eftir Ásmnnd Gnðmundsson
háskólakennara er nýkomin út, og
fæst í bókaverslunum Sigfúsar Ey-
mundssonar og E. P. Briem.
í. R.. fimleikar. Mánndaginn 9.
okt. Kl. 2—3 frúarflokkur. Kl. 6
—7 Old Boys. Kl. 7i/2—8% 1 fl.
karla. KI. 8y2—9Y2 1. fl. kvenna.
Þriðjudaginn 10. okt. kl. 8—9 2.
fl kvenna. KI. 9—10 2. fl. karla.
Skipafrjettir: Gullfoss er vænt-
anlegur hingað í dag kl. 9—10
árd. frá útlöndum. Goðafoss fór
frá Hamhorg í gær áleiðis til Hull.
Brúarfoss var á Blönduósi í gær.
Dettifoss var á Önunclarfirði í
gær. Lagarfoss var á Akureyri í
gær. Selfoss fór frá Antverpen
í gær.
Innbrotið hjá Bridde. Þess hefir
áður verið getið hjer í blaðinu,
að brotist hafi verið inn í brauð-
sölnhúð Bridde, Hverfisgötn 41.
Nú hefir lögreglan komist á snoð-
ir um, hverjir verið hafa þar að
verki. Yoru það tveir unglings-
piltar 17 og 18 ára gamlir. Höfðu
þeir náð þar um 30 krónum í
peningum.
Esja var á Bíldudal í gær.
Súðin var á Skagaströnd í gær-
morgun.
Ms. Dronning Alerandrine er í
Kaupmannahöfn.
Eggert Guðmundsson hefir þessa
daga myndasýningu í Góðtempl-
arahúsinu. Er þar flest nm olíu-
málverk. En ank þess eru þarna
nokkrar teikningar. Ekkert af
myndum þessum hefir áður verið
sýnt. Meðal málverkanna eru
stórar landlagsmyndir „komposi-
tionir“ og andlitsmyndir.
Karlakór Iðnaðarmanna. Fund-
ur í dag kl. 2 í Iðnskólanum.
Kjötmarkaðurinn. Talið er nú
víst að vjer fáum að flytja til'
Englands á þessu hausti eins
mikið af freðkjósi og vjer höf-
um þörf á. Ilm verðið á því
kjöti verður ekki sagt með full-
vissu enn, en talið er, að það muni
verða betra en í fyrra. Hafa Eng-
lendingar snúist vel og drengi-
lega í þessnm málnm vörum. —
Um horfur á saltkjötsmarkaðinum
veit hlaðið ekki. En gærurur munu
hafa hækkað mikið frá í fyrra.
Er vonandi, að nú sje að rofa til
hjá hændum, enda mál til komið.
Kenslu í Kontrakt-Bridge ætlar
Einar Sigurðsson að halda uppi í
vetur og mun það vera fyrsta til-
raun með spilaskóla sem gerð
hefir verið hjer í hæ, en slíkir
skólar eru mjög algengir erlendis.
Bannið. Óðum nálgast sá dagnr,
er fram á að fara almenn atkvæða
greiðsla um bannlagaslitrurnar. —
Enginn vafi er á því, að mikill
meiri hluti þjóðarinnar er því
fylgjandi, að afnnmin verði þessi
lög. En hætt er við, að of mikið
sinnuleysi sje ríkjandi meðal al-
mennings um atkvæðagreiðsluna
fyrsta vetrardag. En þetta má
ekki svo vera. Þjóðin verður að ■
láta vilja sinn koma í ljós skýrt
og ákveðið í þessu máli. Þess
vegna á hún að fjölmenna til at-
kvæðagreiðslunnar. Er þess vegna
fastlega skorað á alla hjer í bæ,
er afnema vilja bannlagaslitrurnar
en eru á förum úr hænnm og hú-
ast við að vera fjarverandi fyrsta
vetrardag, að greiða atkvæði hjá
lögmanni áður en þeir fara. Skrif-
stofa lögmanns er í Arnarhváli
og er opin daglega frá kl. 10—12
árd. og 1—4 síðd.
Laust prestakall. Þykkvabæjar-
klausturs-prestakall í Vestur-
Skaftafellssýslu er auglýst til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 20.
nóvember.
Haustmarkaður K. P. U. M. —
Ösin hjelt áfram í gær, og vörn-
birgðir minkuðn, en sjóður fjelags-
ins til vetrarstarfsemi gilnaði að
sama skapi. — Þó er enn mikill
og margskonar varningur eftir, er
settur verður allur á hlutaveltuna
sem byrjar kl. 3 í dag. Þar eru
engin núll og ekkert hapdrætti.
Hlutaveltan er í svonefndri „Ný-
búð“, á sama stað og „markaður-
inn‘ ‘ var undanfama tvo daga,
en sú bygging blasir við, þegar
komið er að suðurdymm K. P. U.
M.-hússins, reist í hinum lands-
kunna „sykurkassastíl". — En í
kvöld er síðasta skeimtikvöldið
í stóra salnum kl. 8y2. Aðgangs-
eyrir ein króna. Þar verður, alveg
eins og á markaðnum og hluta-
veltunni „eitthvað fyrir alla“ ; þar
syngur Karlakór K.E.U.M. og sr.
Friðrik Prðiriksson talar, Prið-
finnur les upp og ungfrú Ásta
Jósefsdóttir syngur.
Betanía. — Engin samkoma í
kvöld.
65 ára er í dag Kári Loftsson,
Bergstaðastræti 65.
Hjónahand. Gefin voru saman
í hjónahand í gær Vigdís Guðríð-
ur Guðjónsdóttir og Sigurbjöm
Bjömsson verslunarmaður. Heimili
ungu hjónanna er á Barónsstíg 21.
K.F.U.M., Hafnarfirði. Almenn
samkoma í kvöld kl. 8y2. Steinn
Sigurðsson rithöfundur talar. —
Allir velkomnir. — Á morgun,
drengjafundur kl. 6. A. D.-fundur
kl. 8i/2.
Fjn'ir kvenfólkið er það alveg
sjerstakt tilefni að sækja hluta-
veltu þá, sem haldin er í K. R.
húsinu í dag, því hún er haldin
til ágóða fyrir kvennaheimilið
Hallveigarstaði. Má nærri geta, að
hlutavelta kvenna er ekki lakari
en aðrar hlutaveltur haustsins.
Og allir vilja styðja að því, að
fyrirhugaðir „Hallveigarstaðir' ‘
geti komist upp sem fyrst.
Næturvörður verður þessa viku
í Reykjavíkur Apóteki og Lyfja-
búðinni Iðnnn.
Kreppulánasjóður. Umsóknir nm
lán úr Kreppulánasjóði streyma
nú sem óðast til stjórnar sjóðs-
ins. Úr tveim sýslum, Árnessýslu
og Norður-Þingeyjarsýslu hafa
flestar umsóknir komið til þessa.
Birtist í síðasta Lögþirtingablaði
fyrsta auglýsingin um þessi lán,
og eru þar taldir upp 71 lánbeið-
andi í Ámessýslu og 130 úr Norð-
ur-Þingeyj ar sýslu.
Höfnin: Garibaldi er hjer að
taka fisk. Braemar, norkst timh-
urskip, og Bro norskt vöraskip,
vom væntanleg hingað seint í gær-
kvöldi.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í hjónaband af lögmanni
ungfrú Aðalheiður Magnúsdóttir
og Gnnnar Arnbjarnarson bifreið-
arstjóri. Ileimili brúðhjónanna er
á Öldugötu 47.
Fomíslensk lestrarbók, eftir
Guðna Jónsson magister er ný-
komin út. Á hún að koma í staðl
MPAP 3Q47A IC
kenslubókar Wimmens, sem not-
uð hefir verið fram að þessum
tíma, sem aðal kenslubók í forn-
tungunni. Má segja að oss hafi
ekki verið það vansalaust að
þurfa að sækja fróðleik vorn um
vora eigin tungu til annara. En
nú er úr þessu bætt með bók
Guðna. Hún er 355 blaðsíður og
hefst á íslendingabók. Því næst
koma 9 sögukaflar, þá 20 kaflar
úr konungasögum, þá kemur
Hrafnkels saga Freysgoða, þá
koma 23 kaflar úr Islendinga-
sögum, þá 8 kaflar úr goða og
fornaldarsögum, þá fornkvæði.
Næst koma vísna og kvæðaskýr-
ingar, þá orðasafn úr fornmálinu
og seinast nafnaskrá. — Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar
gefur bókina út, en aðstoðar-
menn Guðna við útgáfuna hafa
verið Benedikt Sveinsson bóka-
vörður, Magnús Finnbogason
magister og síra Knútur Arn-
grímsson. Hafa þá um verkið
fjallað þeir menn, sem best eru
að sjer í fomtungu vorri. Efni
bókarinnar er ágæta vel valið.
Verður hennar síðar getið bjer í
blaðinu.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Samkomur í dag: Barna-
samkoma kl. 10 árd. Almenn sam-
koma kl. 8 síðd. Allir velkomnir.
Björg í báli. Það var víðar en
í skotgröfunum, sem bildarleikur-
inn mikli var háður 1914—18, en
engar vígstöðvar frá þeim dögum
munu hafa verið ægilegri en þær,
sem Austurríkismenn og ítalir
áttust við á, í Alpafjöllunum. Á
þeim slóðum er tekin kvikmynd
sú, sem Nýja Bíó sýnir í kvöld
og næstu kvöld, með leikandanum
Luis Trenker í aðalhlutverkinu. —
Aðalpersónurnar eru ítalski greif-
inn Pranchini og vinur bans og
fylgdarmaður, austurríski fjall-
göngumaðurinn Diami, og bafa
þeir ár eftir ár verið saman í Alpa
göngum. Fundum þeirra ber aft-
ur saman í stríðinu við fjalls-
tindinn Col Alto, hefir herdeild
Franchini árangurslaust reynt að
hrekja Austurríkismenn af tind-
inum, en það tekst ekki, og loks
taka ítalir það ráð, að sprengja
f jallstindinn upp með mörgum smá
lestum af dynamiti. Það er Diami,
sem bjargar lífi landa sinna frá
sprengingunni. Það má fullyrða,
að sjaldan hafi jafn stórfenglegt
landslag verið notað sem baktjald
að kvikmynd — eins og anstur-
rísku alparnir eru.