Morgunblaðið - 29.10.1933, Page 3
J * * R Q l N B L A Ð I Ð
3
mtmmmummmmmm
jPt^guoRaðið
ttret.: H.Í. Á.rvakur. St«TkjavlJk
J.!t«tjórar: Jðn K.Jartan««ozL
Valtýr St«fá.n«*oa
'tpíjörn oi? afgTeinsla
Ausiurstræti 8. — Slml i ««>•
*U£lý«ingr&stJörl: BJ. Hafberg
^ jirlýain^aakrlfstofa
Auaturairæti 17 — Slmi «700
Lögregltiþjónarnír nýju.
Bæjarstjórn setur þá í stöðurnar.
Hermann Jónasson gefur í skyn að hann
vinni ekki með þeim.
<elrnaalmar
JAn Kjjrtansaon nr. 3742
Valtyr StefónHdon nr 4220
Árn! óla nr. 3045
E Hafberg nr 377o
* akrlftagjp-ld:
ínnanl&mls kr. 2.00 a minnn
Utanlanda kr. 2.50 á œáuum
lausasölu 10 ftura elnt.aklb
20 aura m©0 Leab6»
Tveir stjórnendur
Síldarverksmiðju
ríkisins
segja af sjer.
Guðmundur Hlíðdal, land-
símastjóri, og Loftur Bjarnason,
útgerðarmaður í Hafnarfirði,
liafa báðir sagt af sjer störfum
í stjórn Síldarverksmiðju ríkis-
ins. Er fullyrt, að þeir hafi gert
það, vegna ósamkomulags við
Þormóð Eyjólfsson frá Siglu-
firði, sem verið hefir formaður
■verksmðijustjórnarinnar.
G. Hlíðdal hefir verið í stjórn
verksmiðjunnar síðan í júní-
byrjun í fyrra, en Loftur Bjarna
son síðan um miðjan júlí sama
ár. —
Sveinn Benediktsson og Guð-
mundur Skarphjeðinsson áttu
sæti í stjórn verksmiðjunnar frá
byrjun þangað til í júní 1932,
að Guðmundur fór úr stjórn-
inni, en Sveinn síðar sama sum-
ar. —
Þormóður hefir verið í stjórn
verksmiðjunnar síðan 1930 og
jafnan við lítinn orðstír. Það
Þefir endurtekið sig, að Þormóð-
ur hefir látið ganga frá reikn-
ingum verksmiðjunnar brengl-
uðum og röngum og þessi ranga
reikningsfærsla ekki fengist
leiðrjett fyr en eftir mikið
stímabrak.
Þótt víða væri leitað, mun
alveg einstakt tiltæki Þormóðs,
þegar hann, haustið 1931, seldi
megnið af tanklýsi Síldarverk-
smiðju ríkisins j leyfisleysi og
sumpart þvert ofan í fyrirskip-
anir meðstjórnenda sinna, og
bakaði verksmiðjunni með því
tjón, sem nam tugum þúsunda
króna.
Meðstjórnendur Þormóðs í
verksmiðjustjórninni, endurskoð
endur verksmiðjunnar, lands-
stjórnin og sjávarútvegsnefnd
neðri deildar Alþingis, hafa sett
ofan í við Þormóð fyrir fram-
komu hans í verksmiðjustjórn-
inni, en ekkert hefir dugað. Af-
glöpin hafa endurtekið sig.
Nú hafa hinir nýju meðstjórn
endur Þormóðs sagt af sjer. —
Syndamælir Þormóðs í verk-
smiðjustjórninni er fullur fyrir
löngu.
Þess verður að krefjast af
ríkissjórninni, að hún tafarlaust
setji hæfan mann í formanns
sæti í verksmiðjustjórninni. —
Það ætti að vera auðgert, því
að þegar verksmiðjustjórnin var
sett að nýju sumarið 1932, var
Þormóður aðeins settur í þetta
starf til bráðabirgða.
Á bæjarstjórnarfundi í gær-
kvöldi var veiting lögregluþjóna
2. mál á dagskrá. Stóð fundur-
inn þangað til kl. að ganga 10.
Voru umræður fjörugar með
köflum.
Borgarstjóri skýrði frá því í
upphafi, að hann gerði það að
tillögu sinni, að menn yrðu sett-
ir í lögregluþjónastöðurnar fyrst
í stað, skyldi setning þeirra gilda
frá 1. nóvember.
Hver er afstaða
lögreglust j ór ans ?
Umsóknir munu hafa komið
alls frá á 3. hundrað mönnum.
Umsóknir þær, er sendar voru
borgarstjóra, afgreiddi borgar-
stjóri til lögreglu..tjóra, svo hann
fengi tækifæri til að gera til-
lögur sínar. Lögreglustjóri valdi
síðan eina 30 úr, er hann mun
hafa ætlast til að kæmu til
greina.
í. upphafi umræðunnar gerði
Stef. Jóh. Stefánsson þá fyrir-
spurn til lögreglustjóra, hvort
hann myndi sætta sig við að
menn fengju stöðurnar, sem eigi
væri í þessum 30 manna hóp.
Vitnaði ræðumaður til ummæla
lögreglustjóra um þetta efni, þar
sem hann taldi sér ófært að
gegna embætti sínu, ef aðrir
yrðu lögregluþjónar en þeir, sem
hann vildi hafa. Kvaðst St. Jóh.
St. að vísu gjarnan vilja að vald-
ir væru menn utan þessa hóps. En
ef lögreglustjóri setti það á odd,
að þessir einir kæmu til greina,
ætlaði hann að beygja sig fyrir
því.
Fyrirspurn St. Jóh. St. svar-
aði lögreglustjóri með þessum
orðum:
Það liggur í hlutarins eðli, að
jeg get ekki haft aðra menn
starfandi á mína ábyrgð, en þá,
sem jeg hefi stungið upp á, að
fái stöður þessar.
Sósíalistar vilja slá
málinu á frest.
Sósíalistar hjeldu um það
margar ræður, að þeir hefðu
ekki kynt sjer upplýsingar þær,
sem lögreglustjóri hefði gefið,
um menn þá, er hann stakk upp
á, og vildu láta líta svo út, sem
þeir hefðu ekki átt kost á því.
Báru þeir fram tillögu um það
að fresta málinu.
En Jakob Möller benti á, að
lengi gætu þeir vanrækt að
kynna sjer málavöxtu, og væri
óhægt að bíða eftir því, enda
hefði þeim verið í lófa lagið að
kynna sér öll plögg lögreglu-
stjóra, hefðu þeir viljað.
Var frestunartillagan feld.
Lögreglustjórinn og
utanbæ j armenn.
Lögreglustjóri flutti langa
ræðu um það, að rjettast he:ði
verið að veita aðeins utanbæjar-
mönnum lögregluþjónastöðurnar,
því sá siður væri m. a. í London.
Reglu þeirri kvaðst hann hafa
fylgt, með því að benda á sex
eða sjö utanbæjarmenn. Þótti
Jak. Möller hjer gæta ósamræm-
is. —
Sig. Jónasson var óðamála
sem oft áður á fundum, og tal-
aði með gífuryrðum um, að Sjálf-
stæðismenn í bæjarstjórn ætl-
uðu að hafa einhvern óskunda í
írammi.
Hann var ekki virtur svars.
Að umræðum loknum féllu at-
kvæði þannig, að þessir menn
voru settir í lögregluþjónastöð-
urnar og hafa þeir allir verið í
varalögreglunni:
Aðalsteinn Jónsson,
Hverfisgötu 90.
Ágúst H. Kristjánsson,
Tjarnargötu 40.
Ármann Sveinsson,
p. t. Siglufirði.
Bárður Óli Pálsson,
Laufásvegi 59.
Bjarni Eggertsson,
Grettisgötu 74.
Egill Þorsteinsson,
Reykjavíkurvegi 31.
Eiríkur Eiríksson,
Laugavegi 81.
Friðrik Garðar Jónsson,
Hafnarstræti 18.
Geir Sigurðsson,
Bergþórugötu 11.
Guðmundur Illugason,
Fálkagötu 20.
Haraldur Þ. Jóhannesson,
J ófríðarstöðum.
Jón Jónsson,
frá Laug, Laugavegi 40.
Kristbjörn Bjarnason,
Skaftafelli.
Kristján Þorsteinsson,
Ásvallagötu 23.
Leó Sveinsson,
Lindargötu 25.
Óla.fur Magnússon,
Seljavegi 13.
Ólafur Sigurðsson,
Tjindargötu 7 A.
Sigurður Grímsson Thorarensen,
Kirkjustræti 6.
Sigurgeir Albertsson,
Seljavegi 27.
Stefán Zophonías Jóhannsson,
Hamri, Suðurlandsvegi.
Þorkell Steinsson,
Meistaravöllum.
Bannlagavisar
Á einum atkvæðaseðli hjer í
Rvík, var lívorki krossað við Já
nje Nei, en þessi vísa var á seðl-
inum:
Þó að Feli og Brynki banni,
brennivín í hverjum manni,
ávinna þeir ekki neitt.
Því að bæði sveinn og svanni
súpa það í bverjum ranni,
þó atkvæði sje ekki greitt.
Á öðrum seðli var krossað við
Nei, og stóð þessi vísa á seðlinum:
Fyrst jeg hrugga brennivín,
bannið læt jeg standa;
svo allir drekki eins og svín
okkar góða „landa“.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiciiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiMa
Hún hefir barnsins silkimjúku húð.
Móðir hennar vissi hvað hún gerði, þegar hún tók |
| litlu stúlkuna sína á knje sjer og brýndi fyrir henni |
| að nota aldrei aðra sápu en
| PALMOLIVE [
Nú er litla stúlkan gjafvaxta og hörund hennar |
| er bjart og silkimjúkt. Það ber þess ljós merki, að 1
1 hún hefir hlýtt ráðum hennar.
Palmolive er óviðjafnanleg fegurðarsápa. Látið 1
| því enga aðra sápu komast inn á heimili yðar.
| PALMOLIVE ]
.................................lllllllllllllT
HolasKlpið er á e'á i
Væntanlegt um miðja þessa viku.
Enn fremur kemur annað kolaskip um
ménaðamót nóvember og desember.
Hoiaverslun Sigurðar Öiafssonar.