Morgunblaðið - 29.10.1933, Page 4
MOIðUNBI * * ? «•
Sma-auglysingar
„Freia“ fiskmeti og kjötmeti
mælir með sjer sjálft. Hafið þjer
reynt það? Sími 4059.
„Freia", Laugaveg 22 B- Sími
4059. „Freiu' heimabökuðu kök-
ur eru viðurkendar þær bestu og
spara húsmæðrum ómak.
Heimabakarí Ástu Zebitz, Öldu-
<0tu 40, þriðju hæð. Sími 2475.
Kelvin. Símar 4340 og 4940.
Munið, að símanúmerið í Herðu-
breið er 4565; þar fæst alt í
matinn.
Það er ábyggilegt, að sá, sem
reynir úrviðger'ðirnar hjá Sigur-
jóni Jónssyni, Laugaveg 43, sann-
færist um ágæti þeirra-
Hafið þjer ráð á að eyða miklu
af launum yðar í mat? Ef ekki,
þá borðið í Heitt og Kalt.
Reiðhjól tekin'til geymslu- Reið-
hjólaverkstæðið í Herkastalanum.
Þvottakörfur og bárnastólar eru
nú fyrirliggjandi. Körfugerðin,
Bankastræti 10-
Geymsla. Reiðhjól tekin til
eeymslu. Örninn, Laugaveg 8 og
20, og Vesturgötu 5. Símar 4161
>g 4661.
k
Káputau, svört og mislit
Kjólatau einl. og köflótt
Sængurveraefni einl 5.70
Dúkadregill 2.35
Serviettur 0.60.
Milliskyrtuefni
margar gerðir.
Lakaljereft.
Gardínutau 0.80.
vmmimm,-
[Ed§nborg |
Harmonikusnillingarnir
Jóhanres
&
TeleSsen
spila á Café Vífill í kvöld
kl. 9í/2> eftir áskorun.
Café Viiill.
Sími 3275.
Teikniskéli
Fmcs J nssouar
Laufásveg 2 A.
Kenni að teikna og mála með
pastell og vatnslitum.
Firnur JAusson.
Fermingarbörn
í Dómkirkjunni í dag.
D r e n g i r :
Agnar Tryggvason Bjarnar
Árni Steindór Magnússon
Auðunn Gunnar Guðmundsson
Baldur Pjetursson
Bergsveinn Karl Jónsson
Breiðf jörð.
Bjarni Þorkelsson Vigfússon
Einar Guðmundur Guðgeirsson
Eyjólfur Sigurðsson Einarsson.
Guðmundur Jensen
Gunnar Gunnarsson
Haukur Antonsen
Helgi Filippusson
Hilmar Fenger
Holger Mancher.
Tngi Hallbjörnsson
Ingjaldur Kjartansson
Jóhann Eyjólfsson
Jón Jónsson
ón Magnússon
Karl Bergmann
Magnús Árnason
Magnús Gunnar Magnússon.
Óli Ragnar Georgsson
Stefán Páll BjörnSson
Steingrímur Jónsson
Styrmir Proppé
Sveinbjörn Sigurðsson
Sveinn Stefánsson
Þórarinn Böðvar Guðmundsspn
S t ú 1 k u r :
Alda Valborg Jónsdóttir
ÁlCheiður Guðjónsdóttir
Betty Júiíana Hansen
Dóra Jakobína Halldórsdóttir
Elísabet Kristjánsdóttir
Erla Haraldsdóttir
Gnðfinna Jóna Torfadóttir
Gróa Torfhildur Jónsdóttir
Guðrún Árnadóttir
Hulda Aðalbjörg Halldóra
Daníelsdóttir
JúJíana Hinriksdóttir
Sigríður Björnsdóttir
Sigrún Áslaug Þórðardóttir
anlaug Þorsteinsdóttir
Svava Arnórsdóttir
Unnur Arnórsdóttir
Valgerður Jóna Andrjesdóttir
Þorbjörg Guðmundsdóttir
Þórey Kristín Guðmundsdóttir
Þorsteina Svanlaug Lindal.
Dagbók.
I.O.O.F. 3 = 11510308 =.
□ Edda 593310317 — 1 atkv.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5):
Loftvog er fallandi fyrir norðan
ísland, en hins vegar er há loft-
þrýsting á hafinu suðurundan. —
Vindur er orðinn vestlægur hjer
á landi víðast hvar og tekið að
rigna á Vestfjörðum. Hiti er 2—4
st. á V- og N-landi, en austan
lands er 2—3 st. frost. Á Bret-
landseyjum er ennþá allhvasst á
N og hryðjuveður.
Veðurútlit í Rvík í dag: Vax-
andi V-kaldi. Þíðviðri. Dálítil
rigning.
Esja er væntanleg hingað síð-
degis í dag. Með henni koma þing-
mennimir Bjöm Kristjánsson,
Ingvar Pálmason, Haraldur Guð-
mundsson, Páll Hermannsson og
Þorleifur Jónsson.
Dansskóli Ásu Hanson hefir
skemtidansæfingu fyrir nemendur
sína, börn og unglinga og gesti
þeirra (böm, unglinga og foreldra)
á morgun, mánudag, kl. 4%—7þ£
í K. R.-húsinu. Þar verður dans-
sýning o. fl. Nemendur, sem láta
innrita sig fyrir nóvembermánuð,
hafa aðgang að skemtuninni.
Farsóttr og manndauði í Reykja
vík vikuna 15,—21. okt. (í svigum
tölur næstu viku á undan): Háls-
bólga 16 (45). Kvefsótt 52 (120).
Kveflungnabólga 2 (6). Iðrakvef
10 (31). Taksótt 3 (0). Munnang-
ur 0 (1). Mannslát 4 (12). Land-
læknisskrifstofan. (FB.).
Náttúrufræðifjelagið hefir sam-
komu mánud- 30. okt. kl. 8% síðd.
í landsbókasafnshúsinu.
ísland fór frá Kaupmannahöfn
kl. 10 í gærmogrun.
Leíkhúsið. Leikfjelagið sýnir
„Galdra-Loft“ í fjórða sinn í
kvöld.
Ný verslun. T. Kr. Þórðarson
hefir sett á stofn verslun hjer í
bænum undir firmanafninu „Versl-
unin Nova“.
Brúin á Klifanda í Mýrdal, sem
skektist í vatnsflóðjnu mikla, hef-
ir verið lagfærð og opuuð fyrir
umferð. Ákveðið er að lengja
brúna, en það verður ekki gert fyr
en að vori komanda.
Markarfljótsbrúin er nú full-
gerð, aðeins eftir að ganga frá
uppfyllingum beggja megin brú-
arinnar. Er búist við að því verki
verði lokið um næstu helgi og
verður brúin þá opnuð fyrir um-
ferð. Hætt var við að vígja brúna
nú í haust, en verður gert að vori,
enda er enn mikið óunnið að mann
virkjum í sambandi við brúna.
Guðni Hjörleifsson hjeraðslækn-
ir í Vík í Mýrdal er staddur hjer
í bænum-
Yfir 30 húseignir í Vestmanna-
eyjum eru auglýstar til sölu í
síðasta Lögbirtingablaði vegna
vanskila við Veðdeild Landsbank-
ans. —
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í borgaralegt hjónaband
ungfrú Steinunn Sigtirðardóttir
Oddssonar skipstj. á Laugaveg 30
og Gunnar Hall verslunarmaður,
Njálsgötu 10. Heimili þeirra verð-
ur á Laugaveg 30.
Guðmundur Bjarnason klæð-
skeri, hefir keypt þann % hluta í
klæðaversluninni G. Bjarnason &
Fjeldsted, sem tilheyrði dánarbúi
Jóns Fjeldsted. Rekur Guðmundur
klæðskeraverslunina áfram óbreytt
undir sama nafni og áður.
Kreppulán. í síðasta Lögbirtinga
blaði birtust nöfn 72 bænda, sem
sótt hafa um lán úr Kreppulána-
sjóði og eru þeir úr þessum sýsl-
um: 18 úr Gullbringusýslu, 22 úr
Skagafjarðarsýslu, 12 úr Stranda-
sýslu og 20 úr Vestur-lsafjarðar-
sýslu.
Hekla fór frá Genova á föstu-
dag, áleiðis til Trapani og tekur
þar salt.
Dánarfregn. Síðastliðið fimtu-
dagskvöld andaðist hjer á Lands-
spítalanum, Runólfur Runólfs ;on
frá Strönd í Meðallandi, sonur
Runólfs Bjarnasonar frá Iðu í
Biskupstungum. Runólfur var að-
eins 29 ára að aldri og efnismaður
i hvívetna. Hann kendi í sumar
sjúkdóms þess, er var honum að
bana, sem mun hafa verið blóð-
eitrun. Runólfur var kvæntur Guð
laugu Loftsdóttur, bónda og odd-
vita á Strönd í Meðallandi-
Gísli Sveinsson alþm. kom hing-
að til bæjarins í fyrrakvöld.
Áheit á Slysavarnafjelag fs-
lands. Frá N. N., Reylrjavík 5 kr.,
N. N. 10 kr., ónefndum atvinnu-
leysingja 5 kr. 1. J. 2 kr., A. G.
5 kr., Önnu-Parti 5 kr., blindri
konu á Laugamesspítala 3 kr.,
Breiðfirðingi 15 kr., konu 2 kr. —
Kærar þakkir. — J. E. B.
Morgunblaðið er 12 síður í dag
og Lesbók.
Kvennadeild Slysavarnafjelags
íslands í Hafnarfirði heldur ba.s-
ar í bæjarþingsalnum kl. 5 í dag.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Kaup
mannahöfn. Goðafoss er á leið til
Hull frá Vestmannaeyjum. Brúar-
foss er á leið til Vestmannaeyja
frá Leith. Dettifoss fór frá Hull
í gær áleiðis hingað. Lagarfoss var
á Reykjarfirði í gærmorgun. Sel-
foss er í Reykjavík.
Síldarútvegurinn. Sveinn Bene-
diktsson biður þess getið, að í
grein hans hjer í blaðinu, um
síldarútveginn, hafi fallið niður
nafnið á Kolbeini Sigurðssyni skip
stjóra á togaranum Þórólfi, sem
mestan afla hafði í bræðslu í sum-
ar. Ennfremur láðist að geta þess,
að togarinn Rán, sem lagði upp
afla sinn lá Ingólfsfirði, hafði
mestan afla af togurunum í salt,
eða rúmar 7 þúsund tunnur. Var
það mesti söltunarafli á eitt skip
í sumar. Skipstjóri á Rán var
Guðmundur Sigurjónsson.
Selfoss fer hjeðan annað kvöld
til Aberdeen, Antwerpen, Hull eða
leith.
Rannsókn gerði Björn Bl. Jóns-
son löggæslumaður í fyrrakvöld
hjá Sigvalda Jónassyni veitinga-
manni á Geithlálsi. Var hann grun
aður um ólöglega sölu Spánarvína.
Ekki mun þó hafa fundist neitt
hjá honum af víni, en talsvert
mikið af tómum flöskum. Var*Sig-
valdi tekinn og settur 1 gæslu-
varðhald og er málið í rannsókn.
Um heimili og uppeldismál flyt-
ur frú Laufey Vilhjálmsdóttir er-
indi í dag í Nýja Bíó kl. 3. Ræðir
hún þar um efni, sem alla varðar
að einhverju leyti, og sem altof
lítill gaumur hefir verið gefinn.
Nýir tímar, nýjar kröfur, ný
þekking vekur menn til umhugs-
unar um þessi þýðingarmiklu mál,
sem frú Laufey gerir hjer að um-
talsefni.
GjcddsJcrá læJcna. I síðasta
Lögbirtingablaði birtist lýsing
um bráðabirgðagjaldskrá fyrir
iækna (aðra en hjeraðslækna)
og fyrir tannlækna og nuddara.
Samkvæmt þessari nýju gjald-
skrá er læknum heimilt að taka
alt að þriðjungi hærra gjald en
gjaldskrá hjeraðslækna ákveður.
Viðurkendir sjerfræðingar mega
taka alt að þriðjungi hærra gjald
en almennir læknar, fyrir störf
sem heyra undir sjergrein þeirra.
— Tannlæknar mega taka alt að
þriðjungi hærra gjald en gjald-
skrá hjeraðslækna heimilar fyr-
ir tannlæknisverk. Nuddarar
mega einnig taka alt að þriðj-
ungí hærra gjald en gjaldskrá
hjeraðslækna ákveður fyrir nudd
aðgerðir. Hafi læknir eða nudd-
ari opinbert starf á hendi fyr-
ir ríkið, bæjar- eða sveitarfjelag
og fái föst laun fyrir, ekki
lægri en meðal hjeraðslæknis-
laun, þá ber honum að fara að
öllu leyti eftir gjaldskrá hjer-
aðslækna. Bráðabirgðagjaldskrá
þessi öðlast gildi 1. janúar n.k.
Presta og sóJcnamefndafundír.
Hinn almenni fundur presta og
sóknarnefnda verður í þetta
sinn 7. til 9. nóvember n. k.
Hann hefst með guðsþjónustu
í dómkirkjunni þar sem síra
Brynjólfur Magnússon í Grinda
vík prjedikar. Aðalmálin verða
Prestar og kirkjur, frummæl-
andi, Gísli Sveinsson sýslumað-
ur, Kristindómsfræðslan, frum-
mælandi Helgi Elíasson, fræðslu
málastjóri, Baráttan gegn á-
fengisbölinu, frummælgndi síra
Þórður Ólafsson og Kirkjuþing,
frummælandi Gísli Sveinsson
sýslumaður. Tvö erindi verða
flutt í dómkirkjunni í sambandi
við fundinn og fleiri mál rædd.
Atkvæðisbærir fundarmenn hafa
verið á þessum fundum: prest-
ar, safnaðarfulltrúar, sóknar-
nefndarmenn og fulltruar Kristi-
legra fjelaga, 2 frá hverju, en
aið öðru leyti fult málfrelsi og
öllum heimil fundarsókn eftir
því sem húsrúm leyfir.
S. Á. Gíslason.
Frægur knapi.
Frægasti linapi 1 Englandi er
nú Gordon Richard. Hann sigr-
aði nýlega í öllum hlaupum á
kappreiðum í Chepstow, og liefir
það ekki komið fyrir síðan 1882
að einn knapi hafi unnið í öllum
hlaupunum þar. Richard er 28 ára
að aldri, en liann hefir sigrað á
212 hestum í kappreiðum. Tekjur
hans eru um j/2 miljón kr. á ári.
í París er nú ráðgert að smíða
700 metra háan turn,, eða meira
en helmingi hærri heldur en Eif-
felturninn. Verkfræðingurinn, sem
hefir gert teikningar af þessu
mikla mannvirki, sjest hjer á
myndinni ásamt aðstoðarmanni
sínum, en á veggnum hjá þeim
hangir mynd af turninum eins og
hann á að verða-
Elffiir á Sjálandi.
Laust fyrir miðjan október-
mánuð tóku menn eftir því, að
eitthvert stórt dýr var komið í
Gribskóg á Sjálandi. Þeir, sem
komust næst því, fullyrti að það
væri elgur. En nú er afar langt
síðan elgsdýr voru aldauða í Dan-
mörk. Hvaðan var þá þessi elgur
kominn? Á því fanst ekki önnur
skýring en sú, að hann væri kom-
irn frá Svíþjóð og hefði synt yfir
Eyrarsund.