Morgunblaðið - 29.10.1933, Blaðsíða 7
MORGTTNBLAÐIÐ
7
„Selfossu
fer hjeðan á mánudagskvöld
(30. okt.) til Aberdeen, Ant-
werpen, Hull eða Leith og
heim aftur.
HakpaoDi
7 tegundir.
GÓLF- &
VEGGFLÍSAR.
SAUMUR.
VÍRNET.
PÚSSNINGARJÁRN.
LOFTVENTLAR.
A. Einarsson
& Funk,
Trygffvagötu 28.
Reykjavíkurbrjef.
• 28. október.
Veðrið 22—28. okt.
Vikan sem leið var fyrsta vetr-
arvikan að þessu sinni og má yfir-
leitt segja að lnin hafi verið stilt-
ari og þurviðrasamari heldur en
imdanfarnai' sumarvikur.
Fyrstu þrjá dagana var hœg N-
veðrtátta. — Snjóaði lítils hát.tar
norðan lands.
Á miðvikudag kom lægð vestan
yfir N-örænland og gerði hún
allhvassa V-hláku lijer á landi.
Síðan færðist lægðin suðaustur
eftir og olli N-garði lijer austan
lands og alla leið suður um Eng-
land og Frakkland. Vestan lands
varð lítið úr N-garðinum og he.fir
verið þurt og bjart veður síðan á
fimtudag. í Reykjavík var mestur
hiti 7—8 st., en lægstur -f- 4 st.
Úrkoma 7.5 mm.
Mjólkumiðursuðan
í Borgarnesi.
Sigurður Signrðsson búnaðar-
málastjóri, er um þessar mundir
á ferðalagi um Mýra-, Borgart-
íjarðar og- Hnappadalssýslur í
þeim erindum að örfa bændur til
þess að auka og styrkja samtök
sín um mjóllturniðursuðuna í
Borgarnesi. f fyrra fekk niðnrsuð-
an ekki nema um 300 þús. lítra
yfir árið, að því er hann hefir
sagt blaðinu. En eftirspurn innan
lands eftir niðursoðinni mjólk er
meiri, en afkastað var í fyrra. Nú
S haust, meðan minst er um mjólk,
starfar verksmiðjan ekki. Bændur
hafa fengið sem svarar um 4 au.
fyrir fitueining mjólkur, eða 14—
16 aura á lítrann.
Hyggur Sigurður að fá megi
mjólkurflutninga til Borgamess
nr fleiri sveitum en hingað til
hafa fengist, svo framleiðslan
aukist, og verði bændum hag-
kvæmari.
í dag er haldinn fundur að
Iíofgörðum um málið, en á morg-
un verður fundur í Miklaholts-
hreppnum.
Skagastrandarhöfn.
Úr Húnavatnssýslu er blaðinu
skrifað:
Um miðjan október boðaði þing-
maður hjeraðsins, Jón Pálmason,
bóndi á Akri, til fundar að Skaga-
strönd, til að ræða þar um vænt-
anleg hafnarvirki. Lýsti þingmað-
urinn því fyrir fundarmönnum hve
brýn nauðsyn væri á því fyiúr
hjeraðið, og þá einkum fyrir íbúa
Viu dli æl ishrepps, að hafnarmálinu
yrði hrint láfram, og skýrði frá
mistökum þeim og undandrætti
sem hingað til hefði orðið um
•imkvæmdir allar í þessu máli-
\'ar gerður mjög góður rómur
að máli hans, og samþykt með
öllum atkvæðum gegn einu, að
fela þingmanninum og hrepps-
nefnd Vindhælishrepps* fram-
kvæmdir í málinu. Jónas Sveins-
son læknir á Blönduósi sat fund-
inn. Fekk hann tilmæli um að
liafa forgöngu um útvegun láns-
fjár og vinnutilboða til hafnar-
virkjanna.
Pan American
Airways.
Pan American Aairways er eitt-
hvert voldugasta flugfjelag í
heimi. Það fjelag fekk í hendur
flugferðaleyfi það, um ísland, er
Transamerican Airlines-fjelagið
fekk um árið. Það fjelag hefir og
flugferðaleyfið um Grænland. —
Það fjelag hefir Charles Lind-
bergh í þjónustu sinni.
Hlutafje fjelagsins er 20 milj-
dollara.
Reglubundnum flugferðum held-
ur fjelagið uppi um þvera og
endilanga Ameríku, alt suður til
Argentínu. Eru flugleiðir þessar
samtals 42.000 mílur.
Fjelagið hefir 139 flugvjelar í
ferðum, er flytja póst og farþega,
og 2000 manns hafa- atvinnu við
flughafnir fjelagsins, en flughafn-
ir á fjelagið 147, 72 loftskeyta-
stöðvar og veðurstofur í 33 lönd-
um. 99.67% af viðkomum flugvjel-
anna síðustu f jögur árin hafa ver-
ið á áætlunartíma, og fluttir hafa
verið 203.000 farþegar, en 6000
tónn af pósti og farangri. Flug-
,,drekar“ fjelagsins taka 44 far-
þega.
Reksturshalli liefir verið á fje-
laginu undanfarin ár, um 300
þúsund dollara, þangað til í fyrra
að reksturságóði varð 100 þús.
dollara.
Hingað til hefir fjelagið svo til
einvörðungu sint flugi um Ame-
ríku. En nú hefr það, sem kunn-
ugt er, tekið sjer fyrir hendur
að koma á reglubundnum flug-
ferðum til annara heimsálfa, og
þá fyrst og fremst yfir Atlants-
haf.
Hefir fjelagið nú í smíðum þrjá
flug-„dreka“, er geta tekið 50
farþega, og flogið 3000 km. án
viðkomu, með 220 km. hraða á
klukkustund- En síðar á Lind-
bergh að hafa umsjón með smíði
sex flugvjela af líkri stærð.
Eftir því, sem erlend blöð
herma, er búist við því, að fje-
lagið hefji reglubundnar ferðir um
Atlantshaf að tveim árum liðnum.
Bannatkvæðagreiðslan.
Eigi reyndust þær hrakspár
manna rjettar, sem betur fer, að
við íslendingar væinm allra þjóða
tornæmastir á illar afleiðingar
bannsins, og myndum enn nm
nokkur iár standa einir sjer eins
og steindur minnisvarði yfir bann-
liugmyndnni, sem alstaðar varð til
bölvunar.
Ætti þingið ekki að láta það
dragast úr hömlu, að breyta á-
fengislögunum í samræmi við vilja
þjóðarinnar, svo bindindisstarf-
semin kæmist aftur á heilbrigðan
grundvöll.
Gegn loforði um það, að vekja
ekki upp bannið aftur, ætti að
fást um það samkomulag, að bind-
indisstarfsemin fengi aukinn
styrk.
Eftirtektarvert var það hjer í
Reykjavík, og svo mun hafa ver1-
ið víðar um land, að eindregnust
var andstaðan gegn banninu með-
al unga fólksins.
Framsókn í hættu.
Síðustu vikurnar tala Fram-
sóknarblöðin sífelt um þá hættu
sem þjóðinni stafi af einræðis-
brölti manna.
Þeir mega djarft úr flokki tala
Framsóknarmenn í því efni, eða,
hitt þó lieldur.
Hvaða flokkur annar en Fram-
sókn hefir sýnt þjóðinni framan í
snjáldrið á einræðinu?
Er það ekki Framsóknarstjórnin
fyrverandi sem tók sjer einræðis-
vald yfir ríkissjóðnum, yfir fjár-
veitingum til flokksmanna, og
hegðaði sjer í öllu svipað örgustu
einva 1 dsdýrkendurn, með sjergæð-
ingsskap gagnvart flokksmönnum
og ofsóknum á hendur öðrum?
Og hefir þjóðin ekki sýnt and-
stygð sína á frámferði flokksins,
með þvi að smia við honum bak-
inu? —
Það sýna best atkvæðatölur
flokksins 1931 og 1933.
1931 fekk Framsókn 13.844 at-
kvæði, en í sumar sem leið 4965
færri, eða aðeins 8879 atkvæði.
Einræðisbrölt er íslenskum kjós-
endum anclstygð. Hrakfarir Fram-
sóknar eru ljós sönnun þess-
Kosningarnar í Noregi.
Kosningarnar í Noregi þ. 16-
okt. fóru þannig, sem kunnugt er,
að sósíalistar unnu rnikinn sigur.
Þingmönnum þeirra fjölgaði úr 47
í 69. En allir andstöðuflokkar
þeirra mistu þingsæti.
Aðalorsökin að hrakförmn borg-
araflokkanna var sú, hve mikil
sundrung og glundroða hefir ríkt
innan þessara flokka nú undan-
farið. En sósíalistar hafa aftur á
móti styrkt samtök sín með ýmsu
móti. Þar sem þeir nú eru stærsti
flokkur þingsins, er búist við að
þeir taki við völclunum í síðas.tai
lagi er þing kemur saman í jan-
úar. m
„Kemur upp um
strákinn Tuma“.
Nýlega ritaði Tryggvi Þórhalls-
son grein í blað sitt, þar sem hann
talar um norsku kosningamar. í
öðru orðinu læst hann hafa fullá
óbeit lá einræðisstefnum. — En
fagnar síðan yfir kosningasigri
norskra sósíalista, sem muni vera
líklegir til að vemda lýðræðið(!!!)
Olíklegt er, að hann sje svo illa
að sjer í norskum stjórnmálum,
að hann viti ekki að sósíalista-
flokkurinn norfiki stendui’ nær
Húsasmiðir - Hú§eigendur.
Hv upplyndisi í húsasmíði.
Ef þið viljið hafa opnanlegu gluggana í húsum ykkar
vatnsþjetta, þá skuluð þið nota nýju járn-rúðurammana
okkar. Þeir eru bæði vatnsþjettir og þrútna aldrei í, svo
ætíð er hægt að opna og loka glugganum. Einnig höfum
við skift um opnanlega glugga í gömlum húsum, og hefir
það reynst ágætlega. — Uppsettur gluggi er til sýnis á
verkstæði okkar.
Nýja blikksmiðjan.
Norðurstíg 3 B. Sími 4672.
Læknir.
íþróttasamband íslands óskar eftir lækni, sem getur tekið að sjer
læknisskoðun á íþróttamönnum. Þeir, sem hugsa til að taka að sjer
starfið, sendi umsóknir sínar til íþróttasambands íslands fyrir 1.
nóvember n.k-
Til sölu
lokuð 5 manna Ford-bilreið.
Lögreglubifreiðin RE 397 verður seld hæstbjóðanda. —
Verður hún seld í því ástandi sem hún er og aðeins gegn
staðgreiðslu. Bifreiðin er til sýnis á verkstæði Páls Stefáns-
sonar. —
Tilboð skal senda í lokuðu umslagi, merkt „RE 397“,
undirrituðum fyrir miðvikudag 1. n. m. kl. 12 á h.
Bæjarverkfr æðingur.
Moskva-bolsum, en aðrir sósíalist-
ar á Norðurlöndum.
Er lýðræðisumhyggja þeirra
minni en engin. Fyrir kosning-
amar komst einn aðalforingi
norskra sósíalsta þannig að orði:
„Nýtt þjóðfjelag verður ekki
sett á stofn, nema verkamenn fái
öll völdin. Enda þótt ,,einræði ör-
eiganna" standi ekki lengur á
stefnuskrá norskra sósíalista, er
jeg viss um að flestum norskum
verkamönnum er ljóst, að vilji
þeir fá sósíalismann, þá vilja þeir
um leið einræðið*1.
Innanhúss friður-
Yikublaðið Framsókn skýrði frá
því um síðustu helgi, að forráða-
menn Framsóknarflokksins hefðn
nú í samar unnið ákaflega mikið
og merkilegt friðarstarf. Þar sem
áður hefði hver höndin verið npp
á móti annari innan floklcsins, þar
ríkti nú sátt og samlyndi. (Sbr. í
útvarpinu!)
Til merkis um friðinn og ein-
drægnina væri það, að flokkurinn
hefð ráðið þrjá ritstjóra, dr. phil.
Þorkel Jóhannesson ,undan Fjalli1,
Gísla Guðmundsson og Arnór
Sigurjónsson. Fullyrðir blaðið, að
samlyndið í flokknum sje orðið
það gott, að fært þyki, að láta
alla þessa menn vinna „á sömu
skrifstofunni' ‘.
Urgur í útvarpinu.
Fyrir nokkim frjettkst það um
bæinn, að formaður útvarpsráðsins
■ Helgi Hjörvar, hefði sent kenslu-
málaráðherra Þorsteini Briem all-
skorinort hrjef. Efni hrjefsins var,
umkvartanir um ónytjungshátt út-
varpsstjórans Jónasar Þorbergs-
sonar. Segir Helgi, að því er
vitnast hefir, að Jónas geri lítið
sem ekkert af því, sem útvarps-
stjóra sje ætlað, hann sje ósam-
■cdnnuþýður, og því frekar að
hann spilli fyrir útvarpsstarfsem-
inni, en að hann geri þar gagn.
Vill Ilelgi Hjörvar að flokksmenn
hans í landsstjóminni vinni sjer
það til frama, að koma Jónasi
þaðan á brott.
„Bragð er að þá bamið finnur“
segir máltækið, og svo má segja
um Helga.
Mælt er að Þorsteinn Briem,
fyrverandi tilvonandi eftirmaðnr
Jónasar í Hölum hafi tekið það
til bragðs að senda útvarpsstjór-
anum brjefið til umsagnar, en
álitsgerð mun eigi komin frá Jón-
asi Þorbergssyni hvernig hann
líti á hæfileika sína sem útvarps-
stjóra.
Hugsanlegt að Jónasi detti þá
í hug að skýra frá áliti sinu á
hæfileikum Helga, svo ekki hall-
ist á um vináttubrögðin á „kær-
leiksheimili“ þessu.
En hvenær tapa litvarpsnotend-
ur allri þolinmæði yfir óstjóm
þessa blessaða útvarps?
Frjettir.
Laugardaginn 21. október segir
í ritstjómargrein í Framsókn:
„Eftir nýár er gert ráð fyrir, að