Morgunblaðið - 02.11.1933, Page 13

Morgunblaðið - 02.11.1933, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ Höfum ávalt mestar birgðir af allskonar Prjónavöru, tilbún- um fatnaði og vefn- aðarvöru. VÖRUHÚSIÐ Útvega hína heímsfrægu „Speeialoidíé stimpla i alla bíía. Egill Viltaiálusson, Latigaveg Í18. Símí Í7Í7. stofa blaðsins flutt í Tjarnar- götu 11. Voru þar ágæt húsa- kynni, en heldur út úr skotið. Reyndist það snúningasamt, að hafa afgreiðslu blaðsins á ein- um stað, prentsmiðjuna. á öðr- um, og talsivert langt á milli. Varð og húsaleiga blaðsins all- mikií með þessu móti. Árið 1921 var þessu breytt. Þá var fengið húsnæði í Austur- stræti 5 (í húsi Ólafs heitins Sveinssonar, gullsmiðs), og þang- að flutti bæði skrifstofa og af- greiðsla. Var Morgunblaðið þar til húsa þangað til á krossmessu 1925, að útbúnar voru handa því skrifstofur og afgreiðsluher- bergi í viðbyggingu ísafoldar- prentsmiðju, þar sem áður var vjelasalur fyrir setjaravjelar og blýbræðslu prentsmiðjunnar. — Hefir blaðið verið þar síðan. Þegar stórtíðindi gerast spyrja bæjarbúar Morgun- blaðið frjetta. í mörg ár, eða jafnjvel alt frá því að Morgunblaðið var stofn- að, hafa bæjarbúar vanist því, að spyrja ritstjórn og afgreiðslu Morgunblaðsins frjetta, ef ein- hver stórtíðindi eru í vændum, eða þegar menn þurfa á svip- stundu að fá nánari vitneskju um nýskeða atburði. Til hægðarauka fyrir almenn- ing og fyrir starfsmenn blaðsins, eru þá tilkynningar settar í frjetta- og sýningaglugga af- greiðslunnar. Á slíkum dögum, þegar frjetta er þaðan að vænta, er oft æði- mannmargt í Austurstræti, fyr- ir framan afgreiðslu blaðsins. Er mynd sú, sem hjer fylgir tekin af strætinu, einn slíkan dag, er mannþyrpingin var yfir þvera götuna. Komið hefir það fyrir, og síð- ast við talning atkvæða við Al- þingiskosningarnar í sumar, að þyrpingin varð svo þjett, að vagnaumferð teptist um tíma, um strætið. Og eitt sinn man sá, er þetta ritar, eftir því, að götulögreglan varð að biðja um, að dregið yrði tjald fyrir gluggann. því svo var aðgangurinn mikill á göt- unni, að lá við meiðslum. En það var þann dag, er flugkappinn Ahrenberg og fjelagar hans voru væntanlegir hingað j fyrsta sinn, en komust ekki lengra en að Skaftárósi í þeim áfanga. Endurminningarnar frá rit- stjórn blaðsins á viðburðadög- um eru mjög sitt með hvorum hætti, glaðværð þegar svo ber undir, en dapurt, svo ógleyman- Iegt er, t-'d. þegar alvarleg sjó- slys hafa borið að höndum. Var það t. d. ömurleg nótt með af- brigðum að sitja við síma blaðs- ins nóttina eftir að togarinn Jón forseti strandaði, og fregnirnar bárust smátt og smátt til blaðs- ins um sjórekin lík skipverja, en 15 aðstandendur og vinir skipshafn-' arinnar spurðu í sífellu um nýj-j ustu frjettir. Sem betur fór, var^ stundum hægt að svara þeim, sem í angist spurðu, um björgun ást-( vina, um afdrif þeirra er fór-| ust, var öðrum falið að bera boð- in. En örvænting þeirra, sem engar frjettir fengu, varð meiri | og meiri, eftir því sem á nótt- ina leið. Auglýsingar og frjettir. Erlend blöð munu jafnan hafa þann sið, að taka ekki á móti auglýsingum síðustu klukkustund irnar áður en blaðið fer í prentun. Setning blaðanna er þannig hagað: Fyrst eru settar greinar, sem hægt er að hafa tilbúnar snemma, og ekki koma við dag- 3gum viðburðum, síðan auglýs- ngarnar, en síðustu klukkustund rnar eru settar helstu greinar ilaðanna, frjettirnar. Með því að iafa góðan tíma til að setja' jeinar í blaðið, á eftir auglýs- ngum, er sjerlega ljett undir neð ritstjórninni, enda í þágu .uglýsenda, að svo sje gert. — Sftir því -sem meira kemst í ilaðið af nýjustu frjettum, eftir >ví er blaðinu trygð meiri út- ireiðsla, eftir því koma auglýs- ngarnar að betri notum. Það vill brenna við, að aug- ýsendur Morgunblaðsins athuga >etta ekki. Þeir koma stundum neð auglýsingahandrit sín til úaðsins svo seint, að þá ættu ilar auglýsingar að vera sett- ir, til þess að tími og ráðrúm •æri til að ganga vel frá blaðinu. i arónssííg er nú, eftir rúmlega eins árs starfsemi, uiður- kendur staður fyrir góðan og ódýran mat. Þeir, sem enn ekki hafa reynt matarkaupin þar, gera sjálfum sjer gagn með þuí að reyna þau sem fyrst. mmf Ný bók: Guðni Jónsson: Forn-íslensk lestitarbók. 367 bls. Með skýringum og orðasafni. Verð ib. kr. 10.00. i Fæst hjá bóksölum. BókaTerslnn Slgf. Eymnudssonar og Bókabúð Austurbæjar BSE Laugaveg 34.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.