Morgunblaðið - 15.12.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
9
Jftorgm HafctÆ
'ft. H.Í. Arvakur, P.eytJ»»l»
ntatjörar: Jfin Kjartajuwoa.
Valtyr BttfáUME
'T»tJOrn og afrreltdla:
Aueturstrœtl 8. — Btatl tfiOO
ualý»lu«a«tjðrl: H. Hafberc.
. uclýalnraakrlfatofa:
Auaturatraetl 17. — BlaU »700
Malmaalaar:
Jön KJ rtansaon nr. 1741.
Valtýr Stef&naaon nr. 4*10
Arnl Óla nr. 1045.
E Hafberg nr. >770.
’ akrlfta«Jald:
Innanlanda kr. S.00 á ■*>«*>
Utanlanda kr. 1.50 á taáaaSl
tauaaafilu 10 aura alntaklá.
10 aara maV LaaMk
Brottrekstur óþarfur.
,Það ætti að reka þá fleiri' varð
Framsóknarmanní einum að orði,
ef hann frjetti að þeir nú væru
brottreknir úr flokknum, Hannes
Jónsson og- Jón í Stóradal. Hann
vildi „hreinsa til“, sjá nm að
,sortjerað“ yrði nú vel og ræki-
lega, svo engir væri eftir í Pram-
ssóknarflokknum, nema hreinrækt-
aðip sósíalistar, eða menn sem
reyndust sósíalistum auðsveipir og
hlýðnir.
En manni er spurií: Skyldi mið-
stjórn og þingflokkur Pramsókn-
ar þurfa að hafa fyrir því að
standa í umsvifamiklum brott-
relcstrarmálum ? Ætli flokksmenn-
‘rnif aflmargir telji sjer ekki best
og happadrýgst að fara fríviljugir
•og af sjálfsdáðum?
Alt iitlit er til þess að svo verði.
Þarna er Tryggvi Þórhallsson
farinn úr flokknum. Pyrst skal
frægan telja. Og Halldór Stefáns-
son. Þessa menn þurfti ekki að
reka. Þeir töldu sjer sómasamleg-
• ast að fara sjálfir.
Og hvernig verður um flokks-
mennina um ..hinar dreyfðu bygð-
ir“, bændurna, sem sendisveinar
sósíalista Hriflunga áttu að veiðai
inn í flokk sósíalistanna? Þarf að
reka þá formlega með samþyktum
og- gauragangi? Fara þeir ekki
sjálfkrafa og sjálfviljugir út úr
þeirri pólitísku sósíalistadragnót,
sem átti að veiða þá í.
Óeirðir enn á Spáni.
Berlín 14. des. F. Ú.
Óeirðir eiga sjer enn stað,
víðsvegar á Spáni. I Oldideos á
Norður-Spáni gerðu uppreisnar-
menn árás á ráðhúsið, en var
hrundið aftur. í Valencia var
iögð sprengja á járnbrautar-
teina, og stöðvaðist umferð þar
allan daginn í gær. Frá Madrid
er sagt að í Vuelvahjeraðinu
hafi fundist mjíig miklar birgð-
ir af dýnamiti, og hafi 17
manns verið handteknir í sam-
bandi við það.
Roosevelt forseti
á í vök að verjast.
Normandie 14. des. F. TJ.
Svo að segja daglega upp á
síðkastið segir einhver ráðherra
Roosevelts af sjer. í gær til-
kynti Cummins dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, forsetan-
um það, að hann bæði um
lausn frá embætti, frá 1. janúar
:að telja.
Otur kom af veiðum í gær með
1200 körfu afla. Hjelt hann áfram
Aleiðis til Englands.
Klofningur Stórh íðar um alia Evrópu norðan frá
í Rlþýðuflokknum. Holsingiaiiotni 09 suðiir að Svartahaí
Sigurður Jónasson bæjarfulltrúi' segir
sig úr flokknum — og er búist við, að
fleiri fari
9
Sigurður Jónasson bæjarfulltrúi
heíir skrifað „Pulltrúaráðiráði
verklýðsfjelagánna' ‘ br jef, þar
sem hann tjáir því, að hann hafi
sagt sig úr Jafnaðarmanna-
fjelagi íslands og verkamannafjel.
Dagsbrún „og er því eigi lengur
í Alþýðuflokknum“, bætir hann
við. Vegna þess vill Sig. Jónasson
ekki mæta lengur sem fnlltrúi Al-
þýðuflokksins í bæjarstjóni og ósk
ar að varamaður hans taki þar
Sæti,
Hinsvegar vill Sigurður sitja
áfram í niðurjöfnunarnefnd sem
fullti'úi Alþýðuflokksins.
Hverjar eru orsakirnar?
Sigurður Jónasson getur þess
ekki í brjéfi sínu, hverjar eru
orsakir þess, að hann segir sig úr
Alþýðuflokknum.
En orsakirnar ern á hvers
manns vörum. Þær eru.sú ákvörð-
un hinna ráðancli manna í Al-
þýðuflokknum, að Sig. Jónassyni
verður ekki settur á lista flokksins
við í hönd farandi bæjarstjómar-
kosningar.
En Sigurður er ekki sá eini, sem
nú á að sparka. Þeir Ágiíst Jó-
sefsson, Ólafur Friðriksson og
Kjartan Ólafsson eiga að fara
á eftir.
sömu leið. Stefán Jóliann er sá
eini af bæjarfulltrúum Alþýðu-
flokksins, sem á að fá að sitja
áfrain. Sennilega er það, vegna
þess, að ómögulegt hefir reynst
að koma Stefáni á þing þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Kaldar kveðjur.
Sigurður Jónasson fær kaldar
kveðjur í Alþýðnmlaðinu í gær.
Blaðið segir að Sig. J. liafi átt
sæti í bæjarstjórn síðan 1928, og
bætir svo við: „Hann hefir alt
af mætt mikilli gagnrýni fyrir
störf sín og lent í hörðum senn-
um í Pulltrxiaráði verklýðsfjelag-
anna‘ ‘.
Ennfremur segir blaðið:
„Brottganga Sigúrðar úr Al-
þýðuflokk'num mun ekki þyngja
baráttu alþýðunnar í Reykjavík,
heldur ljetta hana“.
Svona er þá dómurinn um „al-
þýðu“-foringjann marglofaða, er
fyrir skömmu var borgarstjóraefni
sósíalista og Hriflunga.
Mundi dómurinn ekki verða
eitthvað svipaður um þá Hjeðinn,
Stefán Jóhann, Jón Bald. og fleiri
Jónasardýrkendur og sjergæðing-
ar ef þeir færu sömu leið?
Menn verða útí. — Skíp farast
og margír drtikna.
London 14. des. F. Ú.
Kuldar þeir og stormar, sem
gengu yfir England í gær, hafa
haldist í dag. Skip sást í gær
kvöldi sökkva út af Aldbrough
(en það er skamt frá Hull,
norður með ströndinni) og var
ekki hægt að koma björgunar-
bátum út að því í tæka tíð.
Rekald, sem fundist hefir í dag,
gefur til kynna að skip þetta
hjet Calmore, og var gert út
frá Londonderry í írlandi. öll
skipshöfnin mun hafa farist.
Skipagöngur teptust í gær um
ErmasunÖ, vegna ofsaveðurs,
og í dag urðu skip þau, sem
daglega ganga milli Frakk-
lands og Engla.nds að sigla
milli Calais og Folkstone, því
ógerningur var að leggja upp
frá Dover og Bologne.
I London var kuldinn 10 stig-
um meiri en í gær, og frost eru
um land alt. Kuldarnir hafa
víða valdið ýmsum erfiðleikum
og tjóni. Til dæmis hefir starf-
ræksla rafmagnsstöðva truflast,
og ár hefir lagt, sem ekki hafa
frosið fyr.
I Danmörku eru einnig, að
því er danska útvarpið segir,
frost og miklir kuldar í dag.
Skipagöngur hafa tepst, á sum-
um stöðum, eða torvelclast mjög
mikið, svo að seglskipum c;.;
veikbyggðum gufuskipum e
ekki talið fært um ýmsar sig
ingaleiðir í sundunum. En tjó .
hafa engin orðið. Járnbrautar-
ferðir og bílaferðir hafa einr-
ig tepst og truflast, og á ein-
um stað fór flutningalest ú;
af sporinu vegna hálku, og
járnbrautarferðum hefir seinl -
að vegna snjóa og frosta. Tjón
hafa þó ekki heldur orðið á
landsamgöngum í Danmörku.
Sömu sögur af frostum og
snjóum berast að víðasthvar v •
Evrópu í dag, norðan úr Bal,-
iska flóa, austan úr Svartahafi
og sunnan úr Turin, og’ fylgja
fregnir um ýmiskonar tjón og
slys, sem hörkunum sjeu sam-
fara.
Normandie 14. des. F. Ú.
1 Austurríki og Ungverja
landi var víðast 17 til 18 stiga
frost í gær. Sagt er að þrír
menn hafi orðið úti í Ungverja-
lamli, og frosið í hel. Þá er sagt
að í brúðkaupi einu hafi brúð-
arkakan reynst svo frosin, þeg-
ar komið var með hana frá bak-
aranum, að þurft hafi ao
höggva hana með exi, og þýða
svo bitana áður en gestirnir
fengu borðað þá.
Afstaðan til stjómarinnar.
5kopIeikur miðstjórnar
Framsóknarflofcksins.
Miðst.jórn Pramsóknarflokksins
hefir sent út svohljóðandi yfirlýs-
ingu til birtingar í flokksblöðun-
um og auðvitað einnig í útvarp-
inu:
„Þar sem miðstjórn Pram-
sóknarflokksins hefír áður látið
það álit sitt í Ijós, með fundar-
samþykt, að ekki beri að styðja
stjórn með Sjálfstæðisflokknum,
þá finnur miðstjórnin ástæðu
til að lýsa yfir því, að þó að nú
sit.ji tveir Pramsóknarmenn í
stjórninni, þá eru þeir ekki
stnddir til þess af Framsóknar-
flokknum, en sitja þar eftir
beiðni konungs, þar sem ekki
reyndist mögulegt að mynda
þingræðisst jórn“.
Sýnlcgt. er. að hanclbragð Her-
manns Jónassonar er á yfirlýs-
ingu þessari, enda mun hann eiga
sæti í miðstjórn Jónasarliðs Pram-
sóknarflokksins.
En hvað á annars þessi yfirlýs-
ing að þýða?
Stjórnin hefir fyrir löngu sagt
af sjer og situr þess vegna nú
aðeins sem hráðabirgðastjóm, þar
eð ekki tókst að mynda nýja
stjórn.
Það er helst að skilja á yfirlýs-
ingu Hermanns og Có., að stjómin
sitji á ábyrgð konungs. En auð-
vitað er þetta vitleysa; konungur
getur ekki borið ábyrgð á stjóm
landsius. Stjórnin situr á eigin
ábyrgð.
Það má lesa út úr yfirlýsingu
Hermanus og Co., að Jónasarliðinu
sje sjerstaklega ant um að koma
af sjer allri ábyrgð á gerðum
hinna tveggja ráðherra Framsókn-
ai'flokksins, sem sæti eiga í stjórir
inni.
Ber þetta að skiljast þannig, að
þeir Ásg. Ásgeirsson og Þorsteinn
Briem sjeu reknir úr Pramsóknar-
flokknum? Það liggur næst að
skilja yfirlýsingu miðstjórnarinn-
ar þannig, því ella er hún mark-
leysa og helber barnaskapur, þar
sem stjórnin er aðeins bráðabirgða
stjórn.
Pullyrt er, að miðstjórn Pram-
sóknar hafi skorað á Ásg. Ásg.
að neita að sitja við völd áfram.
Auðvitað hafði Ásg. Ásg. slíka
áskorun að engu, því ekki gat
landið verið stjórnlaust.
En þar sem miðstjórnin fekk
ekki þessa vitleysu í gegn, hefir
hún rokið til og sent út yfirlýs-
inguna, þar sem hún afneitar Ásg.
Ásg. og Þorst. Briem.
Ekki er ósennilegt, að næsta
skrefið verði það, að Ásg. Ásg.
og Þorst. Briem verði reknir úr
Framsóknarflokknum, ef þeir þá
ekki verða sjálfir fyrri til og segi
sig úr flokbnum.
□agbók.
l.O.O.F. 1 =11512158'/2 = ET 20
Veðrið í gær; All-langt norður
af íslandi er lægð, sem hreyfist
hratt A-eftir og veldur ofsaveðri
á V á Jan Mayen (veðurhæð 11)
en mun engin áhrif hafa á veður
hjer á landi. Önnur djúp lægð
hreyfist með miklum hraða norðui'
eftir Grænlandshafi. Vindur er S-
lægur, um alt land, víða orðinn
allhvass vestanlands með nokkurri
rigningu og 7—9 st. hita. Austan
lands er bjartviðri og' hiti niður
undir frostmark.í nótt, mun hvessa
Næturlæknir verður í nótt í Ing-
ólfs Apóteki og Laugavegs Apó-
teki. i
Alden fór lijeðan í gærkvöldi til
Stykkishólms-
Bátafiski í flóanum. í íyrradag
reru margir bátar frá Akranesi
og Reykjavíb og fengu cíágóðan
afla, en í gær var ekki róið.
ísland kom að norðan og vest-
an í gærkvöldi, fer hjeðan annað
kvöld. Er það seinasta áætlunar-
ferð til útlanda, sem jólapóstur
kemst með nógu snemma til þess
að ná fyrir jól til þeirra sem bú-
settir em á meginlandi álfunnar
af suðri vestanlands, en síðan mun j og á Bretlahdseyjum. Jólapóstur,
vindur ganga í SV eða V með «em fer með Lyra mun þó komast
skúraveðri eða jeljaveðri. d viðtakanda í Noregi.
Veðurútlit í dag: Allhvass V. — Lyra fer hjeðan einum degi á
Skúrir eða jel. | undan áætlun, hinn 20- í stað 21.
Sölusýning málara. Á mynda- j úesemher.
stofn Pjeturs Leifssonar í Þing- j ísfisksölur. í fyrradag seldu
holtsstræti 2, horninu á Banka-,a^a sinn 1 Englasdi: Snorri goði
stræti, hafa átta málarar sett upp' ^8 , stpd., Karlsefni 963 stpd.,
sýningu á 20—30 málverkum sín-
um, með það fyrir augum, að fólk
sem kynni að vilja kaupa málverk
fjTÍr jólin, gæti þama á einum
stað, sjeð nokkrar myndir' eftir
þektustu málara bæjarins.
Bíll frá B.S.R. kom hingað í
iGylfi 780 stpd. og Surprise 426
stpd. f gær seldi Bragi fyrir 560
stpd. og Max Pemberton fyrir
408 sterlingspund-
,Lyngstad‘ norskt fisktökuskip,
sem hefir verið að t.aka fisk á
nærliggjandi höfnum, kom hingað
í gær og tebur hjer viðhót við
gær frá Blönduós, bílstjóri Ágúst farminn-
Guðmundsson. Sagði hann ágætaj Skipafrjettir: Gullfoss er í Rvk.
færð. Meðal farþega að norðan var Goðafoss er á leið frá Hull til
Bjarni Björnsson bóndi á Kolla- Vestmannaeyja. Brúarfoss kom til
fossi í Miðfirði. Leith í gærmorgun. Dettifoss vár
Verslanir vefnaðarvörukaup- að Hrísey í gær. Lagarfoss for frá
manna og matvörakanpmanna Leith í fyrrakvöld á leið til Kbh.
verða opnar til kl. 10 annað kvöld. Sélfoss er í Rvík.
Til Strandarkirkju frá G. 22.15
kr. (1 £). N. N. 50 ki\, P. G. 20 kr.
S. J. 10 kr.
Til Hallgrímskírkju í Saurbæ
frá ónefndri konu 5 kr. N. N.
2 kr-
Sauðfjárböðun. Sauðfjáreigend-
nr hjer í bænum, sem ekki hafa
getað látið baða fje sitt enn, eiga
að snúa sjer til Sigurðar Gísla-
sönar lögregluþjóns fyrir 18. þ.
mán. ]