Morgunblaðið - 22.12.1933, Blaðsíða 7
MORGUN BLAÐIÐ
7
><
Iðiagiailr.
Mikið ú val I
Manchester.
•••••••••••••<
Hnetnr,
fleiri tegundir.
Fýkjur.
Conf. Rúsímir.
Döðlur
fást í
Því að bera á sjer
tvö rittæki þegar
þjer getið fengið
UIohdeR
sem er hvort
tveggja lindar-
penni og blýant-
ur. — Wonder er
fullkomnasta rit-
tækið, en þó frek-
ar ódýr. Tilvalin
jólagjöf.
Góð bók.
J. Arthur Findlay: Á
landamærum annars
heims. Þýðing eftir
Einar H. Kvaran, —
Útgefendur Magnús
Stefánsson og Oliver
Guðmundsson. — 187
bls. 8vo.
Á árinu, sem er að enda, hef-
ir komið út mikill fjöldi ís-
lenskra bóka, miklu fleiri en
vænta mætti hjer, þarsem bóka
útgáfa hlýtur að vera mjög
dýr og erfið, með því að les-
endur, sem skilja íslenska
tungu, munu í hæsta lagi vera
um 140—150 þúsund.
Af öllum þessum bókum gæti
jeg hugsað að það yrði þessi
ofannefnda bók, sem vekur á
sjer mesta athygli og verður
mest keypt. Hún er um sálar-
rannsóknir og bætir mjög úr
þeirri þörf, sem er á slíkum
bókum, því að þó að ekki svo
lítið sje orðið ritað um sálræn
efni, einkum af Einar H. Kvar-
an og Haraldi Níci:?«vm, og
fyi'ir tilstuðlun beirra, og i;r
þer fremst að telja tímaritið
Mergunn, Górtán árnganga, og
alt sem þar er saman komið,
þá jafnast það ekki á við bók-
mentir stórþjóða um þessi efni,
og málið svo mikilsvert, að hjeð
an af getur ekki orðið þagnaðj
um það og bókmentimar hljóta 1
að fara vaxandi hjá oss eins og
öðrum þjóðum, einkum Bretum.
Bókin er eftir einn af merk-
ustu sálarrannsóknarmönnum
Englands, J. A. Findlay. Jeg
veit ekki hvort hann er háskóla-
genginn, en hann hefir mjög
lagt fyrir sig háskólagreinir,
einkum hagfræði, stærðfræði
og eðlisfræði, og hann nýtur
hins mesta trausts, einnig hjá
lærdómsmönnum.
Eins og oftast á sjer stað
hjá vísindamönnum, sem eru
vanir að byggja alt á reynslu
og staðreyndum, þá lagði hann
engan trúnað á sálarrannsókn-
irnar og þær sögur, sem af
þeim gengu, og hjelt þær væru
heilaspuni einn þangað til hann
fór sjálfur að ransaka. Hann
segir: jeg veit það, að ef farið
hefði verið fram á það við mig
fyrir þrettán árum, að trúa
þessum undarlegu frásögnum,
þá hefði jeg ekki getað það.
En þá hitti hann fyrir líklega
einhvem ágætasta miðil, sem
sögur fara af John C. Sloan,
og er efni bókarinnar að lýsa
rannsóknum höf. með hann. —
Lýsir hann miðlinum sem hin-
um mesta heiðursmanni, sem
aldrei vildi þiggja eyrisvirði
fyrir starf sitt, þótt hann væri
aðeins fátækur verkamaður, svo
ekki gat verið því til að dreifa
að neinn fjárgróði freistaði
hans til pretta.
Miðilshæfileikar eru með
ýmsu móti. Hæfileiki Sloans
var að framleiða sjálfstæðar
raddir utan við miðilinn. Þykir
; mörgum það besta sönnunin
fyrir því, að það sjeu raunveru-
lega framliðnir ástvinir, er þar
koma í samband við oss. Enda
mælir margt með því.
Aðalkjarni bókarinnar og sá
sem spiritistum yfir höfuð mun
þykja hugðnæmastur, er lýs-
ingin á þessum sannana-fund-
um. Fundarmenn töluðu beint
|VÍð vini sína og könnuðust við
|Umtalsefnið, og ef eitthvað þekt-
ist ekki í svip, sannaðist það
ávalt eftir á. Frásögnin er með
svo ótvíræðum sannleiksblæ, að
lesandanum mun aldrei detta
| í hug, að um blekkingar hafi
'verið að ræða og verður að vísa
j honum til bókarinnar, og mun
j hann ekki iðra þess.
Annars er meiri hluti af meg
jinmáli bókarinnar og það sem
j höf. leggur einna mesta áherslu
já, tilraun til að skýra fyrir-
brigðin og sjerstaklega sam-
jbandið milli heimanna. Verður
I aðalniðurstaðan — í samræmi
jvið það sem fleiri, t. d. Sir
Oliver Lodge hefir í ljósi látið,
meðal annars í bók sinni ,Ether
jand reality' (ether og raun-
veruleiki), — að etherinn sje
jaðalefnið, sem umlyki jörð vora
að eins með óendanlega fínni
og smágerðari sveifluhraða,
svo að annað tilverustigið sje í
ether-heiminum, sem læsir sig
inn í jörð vora. Þess vegna
heitir bókin á frummálinu: Á
landamærum ethersins, en þýí-
andinn samkvæmt hugtakinu,
sem í því felst og meira í sam-
ræmi við íslenska hugsun, hef-
ii' kallað það: Á Iandamærum
annars heims. En um þetta
verður einnig að vísa til bók-
arinnar sjálfrar. Er það alt
mjög merkilegt og umhugsun-
arvert og þarf að lesast með
meiri athygli og sennilega oft-
ar en einu sinni sumt.
Margt er sjálfsagt, sem ekki
er að fullu skýrt í þessu dular-
fulla sambandi. En eitt stend-
ur óhagganlegt: að órækar vís-
indalegar sannanir eru fengnar
fyrir framhaldi lífsins, og fáar
bækur munu víst hafa stáðfest
þær sananir betur en þessi bók
fyrir utan bækur hinna miklu
vísindamanna spiritismans, svo
sem Myers, W. Barrett, Oliver
Lodge og óteljandi annara. —
Þess vegna mun þessi bók hafa
öðlast meiri hylli, en nokkur
önnur bók um spiritisma. Kom
út 30 sinnum á rúmu ári 1931
—32.
Jeg get ekki stilt mig um að
koma með þessi orð höf. að nið-
urlagi.: Ef einhver hefir sett
saman trúarkerfi, sem ríður í
bág við þessar staðreyndir, þá
verður að breyta því kerfi, svo
að það samsvari staðreyndun-
um, því að staðreyndirnar
breyta sjer ekki til þess að
samsvara einhverju sjerstöku
trúarkerfi. Jeg trúi því að vís-
indin og trúarbrögðin muni sam
einast, þegar þau hafa tekið
þessar staðreyndir gildar.
Ekki þarf að taka fram, að
frágangur þýðandans er hinn
ágætasti. Það hefir víða verið
erfitt að þýða, en hvergi hefi
jeg — að vísu við fljótan jrfir-
lestur — rekið mjg á stirt eða
óíslenskulegt mál, og prentvillur
finnast vart meira en ein eða
tvær, sem enga þýðing hafa.
Og útgefendunum til mak-
legs lofs verður að segja, að
frágangur þeirra er hinn prýði-
legasti, mjög snoturt band og
hlífðarkápa, prent og pappír.
Er bókin fyrir það geðugri og
ánægjulegri að fara með hana.
Bókin er ódýr og eiguleg
jólagjöf og spillir síst þeim
hugsunum, er hlýða þykir að
vjer berum um jólin, því að
fari hún með staðleysur, yrði
jólaundrið þýðingarlítið.
Kristinn Daníelsson.
Tilkynning
frá Sðlnsambandl isl. fiskframleiðenda
Vjer undirritaðir stjómendu'r Sölusambands ísl. fiskfram-
leiðenda erum staðráðnir í því, að halda Sölusambandinu áfram
næsta ár ef þátttaka framleiðenda verður nægilega mikil og
verður þá starfsemi þess hagað svipað og verið hefir, þó með
þeirri breytingu, að vjer munum hlutast til um að hver lands-
fjórðungur velji sjer trúnaðarmann, er komi á fund vom til
þess að fylgjast með störfum og athuga hvemig gætt sje hags-
muna hinna einstöku fjórðunga. Er þetta gjört í því skyni að
auka viðkynningu' og traust milli stjómar Sölusambandsins og
meðlima þess.
Viljum vjer því hjer með beina þeirri ósk til allra sem
taka vilja þátt í slíkum samtökum um sölu á næsta árs fisk-
framleiðslu, að þeir sendi oss umboð sín eigi síðar en 10. jan.
næstkomandi og munum vjer þá taka ákvörðun um það, hvort
vjer treystum oss til þess að halda starfseminni áfram. Verði
þátttaka eigi nægileg að vorum dómi, munum vjer leggja niður
störf vor jafnskjótt og vjer höfum ráðstafað sölu á þeim hluta
af þessa árs fiski sem enn er óseldur. Til þess að ná sæmilegu
verði fyrir þann fik mun verða leitað aðstoðar ríkisstjómar-
innar ef nauðsyn krefur.
Að lokum viljum vjel lýsa yfir þeirri skoðun vorri, að
Sölusambandið hefir reynst landsmönnum til mjög mikilla hags-
bóta og álítum vjer, að falli starfsemi þess niður, kunni af því
að leiða slíkt verðfall að valdi fjárhagslegu hruni sjávarút-
vegsins.
Þess vegna skorum vjer fastlega á alla fiskfraumleiðendur
að fylkja sjer sem einn maður, undantekningarlaust, undir
merki Sölusambandsins.
Reykjavík, 21. desember 1933.
Richard Thors. Ólafur Proppé.
Kristján Einarsson. Magnús Sigurðsson.
Helgi Guðmundsson.
5híöaskálinn.
Hæli fyrir gigtveika.
Frá A. C. Höyer í Hveradöl-
um hefir blaðinu borist eftir-
farandi grein:
Þareð nú að allar horfur eru
á, að Skíðaskálinn komist upp
í Hveradölum, vil jeg beina
þeim tilmælum til Skíðafjelags-
'ins, að það gangist fyrir því,
I að skálinn verði á sumrin not-
:
jaður sem heilsuhæli fyrir gigt-
! veika.
Þorkell Þorkelsson veður-
jstofustjóri hefir fyrir mörgum
árum síðan fært sönnur á, að
hverirnir í Hveradöjum hefðu
radium að geyma. — Radium
þetta kemur engum að gagni,
en fjöldi fólks þjáist af gigt.
T'að eru ekki ínargir, sem hafa
f’íni á að fara suður til Pistyan,
enda óþarfi þangað að leita,
þareð nóg er af hverum hjer.
Það er ljett verk að þvo þvott.
Þegar Rinso er notað. Leggið
þvottinn í Rinso-upplaustn nætur-
langt, og næsta morgun sjáið
þjer, að öll óhreinindi eru laus
úr honum yður að fyrirhafnar-
iausu. Þvotturinn þvæi sig sjál-
fur, á meðan þjer sofið. Rinso
gerir hvítann þvott snjóhvítan,
og mislitur þvottur verður sem
nýr. Rinso verndar þvottinn frá
sliti og hvndur frá skemdum,
því alt nudd er óþarft.
Reynið Rinso-aðferðiaa þegar þjer
þvoið næst og þier notið aldrei
gamaldagsaSfes ðir aftur.
VERNDAR HENDUR,
HELDUR
ÞVOTTINUM
ÓSKEMDUM
M-R 79-33 IC
R. S. HUDSON LIMITED, LlvEKPOOL, ENGLAKO