Morgunblaðið - 23.12.1933, Side 2

Morgunblaðið - 23.12.1933, Side 2
588) Mesla úrralið og lægsfa verðið á allskonar húsgðgnum og leikföngiim. Bretastjöm skipar nefnd til þess að rannsaka útgerðina. London, 22. des. United Press. FB. Ríkisstjórnin hefir skipað nefnd manna til þess að athuga þær aðstæður og skilyrði, sem út- gerðarmenn eiga við að búa, hæði í sambandi við fiskveiðarn- ar sjálfar, affermingar og mark- aðsskilyrði o. fl. Formaður nefndarinnar er Sir Androw Duncan. Hlutverk nefndarinnar er yfirleitt að íhuga og bera fram tillögur um hvað unt sje að gera útgerðinni til viðreisnar, heild eða hinum einstöku grein- um hennar. Nefndin mun taka til hliðsjónar, eftir því sem við verður komið, störf og reynslu nefndar þeirrar ,sem skipuð var til þess að íhuga viðreisn land- búnaðarins. Spánverjar takmarka innflutning. Madrid 22. des. • -United Press. FB. Á ráðuneytisfundi hefir verið samþykt að heimila iðnaðar- og verslunarmálaráðherranum að gefa út reglugerð um takmörk-j un á ýmsum innflutningsvörum. • Verða innflutningsvörurnar f flokkaðar og leyft að flytja inn ákveðið magn af hverri tegund.! Er því haldið fram, að þetta sje gert af nauðsyn, til þess að koma fjárhags, atvinnu og viðskifta- málum þjóðarinnar í betra horf. -----—M! Norska eftirlitsskipið Frid- tjof Nansen strandar. Von um að ná því út. Osló 22. des. NRP. FB. Eftirlitsskipið Fridtjof Nan- aen strandaði seinni hluta dags í gær á Turgenesbaaen, Maasöy. Þegar skipið strandaði var það á fullri ferð. Tvö göt komu á botn skipsins, sem var farið að hall- ast svo mikið um miðnætti síð- astliðið, að sjór gekk yfir þilfar- ið. Yfirgaf þá áhöfnin skipið, því að búast mátti við, að það ylti alveg á hliðina. Skipið strandaði 1 hríðarbyl. Kl. 8 í morgun voru þó horf- urnar betri, að unt yrði að bjarga skipinu, og fór þá áhöfn- út í það á ný. Björgunarskipið Ula er væntanlegt á vettvang þá ■og þegar. Á skipinu er 70 manna áhöfn og varð kostnaður við smíði þess 2 miljónir króna. Skipið var á leið til Suður-Finnmerkur, til þess annast eftirlit þar. Við framkvæmd hinna nýju innflutnings reglugerðar verður þess gætt, að keypt verði inn í landið sem mest frá þeim þjóð um, sem veita Spánverjum við skiftahlunnindi. I öðru lagi verður lögð áhersla á að afnema að mestu eða öllu leyti viðskifta- samninga, sem miðast við bestu kjör, þegar um þjóðir er að ræða, sem selja Spánverjum mik- ið, en kaupa lítið af þeim í stað ihn. Bandarikin vilja ekki franskt vín, nema geta selt ávexti í staðinn. Normandie, 21. des. F. tJ. Vínsendingar frá Frakklandi til Bandaríkjanna bíða, þar til franska stjórnin hefir tekið á- kvarðanir um leyfi á innflutn- ingi epla og fleiri aldinategunda frá Bandaríkjunum, en til þess þarf að breyta ákvæðum í inn- flutningslögunum. Frökkum þyk- ir leitt að fá ekki sent vínið. Plnghallarbruninn. Dómur væntanlegur í dag. Kalundborg, 22. des. F.Ú. Wolfsfrjettastofan skýrði frá því í morgun, að dómsniðurstaða i ríkisrjettarins í Leipzig í bruna •málinu hafi þegar verið tilkynt ' Hitler og Göhring. Út af þessu hefir frjettastofa þýska ríkisins 1 sent út yfirlýsingu um það í dag, að þetta sje með öllu tilhæfulaust, ! og bersýnilega breitt út í þeim tilgangi, að fólk festi trúnað á ' það, að dómurinn sje kveðinn I upp undir áhrifum Hitlers og Göhrings, en það sje alveg ósatt. Biinger dómstjóri hefir einnig gefið út yfirlýsingu um það í dag, að Wolfsfrjettin sje einber upp- spuni, því að dómsniðurstöðuna megi ekki tilkynna fyr en á morg- un neinum manni, enda hafi það ekki verið gert. Göbbels hefir lát- ið svo um mælt, að Wolfsfrjettin sje svívirðileg lygi. Dómurinn verður kveðinn upp í fyrramálið. Evangeliski æskulýðsfjelags- skapurinn sameinaður „Hitlerjugend“. Berlín 21. des. F. Ú. Evangeliski æskulýðsfjelags- skapurinn í Þýskalandi hefir nú, samkvæmt fyrirskipun Lugwig Miillers biskups, verið innlimað- ur í fjelagsskapinn „Hitler Jug- end“. í ávarpi, sem hann hefir gefið út viðvíkjandi þessu er sagt, að enginn unglingur innan 13 ára geti orðið fjelagi í Ev- angelisku æskulýðshreyfingunni, nema hann taki einnig þátt í störfum Hitler-æskunnar. Dr. Knud Rasmussen iandkönnuður. verður jarðsunginn á ríkisins kostnað. Kalundborg, 22. des. F.Ú. Danska stjórnin hefir ákveðið, að jarðarför Dr. Knud Rasmus- sen skuli fara fram á ríkisins ko .tnað, og hefír ekkja hans fall- ist á það. Jarðarförin fer fram í kyrþey samkvæmt ósk hins látna. Mowinckel, forsætisráðherra Norðmanna, hefir sent dönsku stjórninni samúðarkveðju Norð- manna, vegna fráfalls Ðr. Knud Rasmussen. Hraðamet í póstflugi Hollendinga. London 22. des. F. Ú. Hollensk póstflugvjel, sem fór frá Amsterdam á mánudag, kom til Batavíu í dag, og hafði þá verið 4 daga 4 stundir og 40 mínútur á leiðinni. Jafnaðarhraði flugvjelarinar varl21 ensk míla eða ca. 193 km. á klukkustund, og raunverulegur flugtími var 74 stundir og 42 mínútur. Þetta flug er nýtt heimsmet. Kingsford Smith flaug í haust frá Englandi til Batavíu á 6 dögum og 3 stundum. Ulm flaug til Surabaja, en það er 450 mílna lengri leið á 6 dögum. Gullforði Frakklandsbanka. Paris, 22. des. United Press. FB. Gullforði Frakklandsbanka -íefir minkað að undanförnu, en areyting er nú að verða á aftur. Gullforðinn nemur nú 77.031 miljón franka og er 47 miljón- um franka minni en fyrir viku, en búist er við, að gullforðinn muni aukast um 200 miljónir franka bráðlega. —----•<$«$>------ Yiðskiftasamningar Þjóð- verja og Frakka farnir út um þúfur. i_____ Berlin, 22. des. United Press. FB. V iðskifta-samkomulagsum- leitanir Frakka og Þjóðverja í París hafa farið út um þúfur. ^ulltrúar Þjóðverja tilkynna, að Frakkar hafi neitað að slaka nægilega til, að því er innflutn- ingsleyfi ftá Þýskalandi snerti. Ap^el s í n u r. Jafía. Hörmulegt ástand í Narvik. Osló 22. des. NRP. FB. Frá Narvik er símað til Dag- bladet, að vegna fjárhagsástanda ins sjeu ástæður manna hinar hörmulegustu. — Einn þriðja í- búanna eða 3000 manns er veitt- ur styrkur. Nýtt Gy$ingaland. Það hefir heyrst sagt, að Sovjet-Rússland ætli að ri^pnda nýtt Gyðingaland á landamær- um Mansjúríu.Ríki mun verða stofnað þarna, er 30.000 Gyð- ingar hafa safnast þar saman. á 20 aura stykkið. Ilerslii Elnars ivifilfssenar. Týsgdfn t LILJA I I fe _KRISTS KONDNGS DRAPA IM^BRÓÐUR EYSTEINS ÁSGRÍMSSONAR » . , (skrautútgáfa Guðbr. Jónssonar). er ágœt jólagjöf. Guðni Jónsson, magister, segir í Morgunbl. þann 20. des. s.l. m. a.: „Utgáfa þessi er í alla staði hin merkilegasta og hlýtur að vekja athygli vegna þeirra merkilegu nýunga, sem þar koma fram til betra og rjettara skilnings á hinu inerkilega kvæði og höfundi þess“. „LIIJR" fœst Itið bðksolum og f Bökaverslun Slgurðar Kristlfinssonar. Bank&stræti 3. Biðjið um 24. útgáfu af Lilju. — Hún er sú rjetta. >6 99 Olympia' Skentlklfibbirlni heldur fyrsta dansleik sinn í Iðnó laugardaginn 30. des- ember kl. 9 síðdegis. Hljómsveit Aage Lorange spilar. Aðgönðumiðar verða seldir í Iðnó föstudag 29. og laugardag 30. þ. m. kl. 4—8 síðd. Panta má aðgöngumiða í síma 4845. Herrar mæti í dökkum fötum og dömur í samkvæmiskjólum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.