Morgunblaðið - 07.01.1934, Blaðsíða 3
Smmudagnm 7. janúar 1934.
M O R G IT N B L A Ð I f>
9
C-listinn
er listi
Sjálfstœðisflokksins.
Kl. 12 á hádegi í gær var út-
runninn fresturinn til þess að
leggja fram lista til bæjar-
stjórnarkosninganna, sem fram
eiga að fara hjer í Reykjavík
20. þ. m.
Svo var til ætlast, að kjör-
stjórn kæmi saman strax og
framboðsfresturinn var útrunn-
inn. En á þessu varð nokkur
dráttur, sem orsakaðist af því,
að oddviti kjörstjórnar, Pjetur
Magnússon alþm. var teptur
fyrir austan fjall, vegna ófærð-
ar á Hellisheiði. Hann fór aust-
ur í Rangárvallasýslu á fimtu-
dag, til þess að sitja fund sem
þar var haldinn. Einnig sat
hann fund að Ölfusá á föstudag
Var ætlun hans að koma hing-
að til bæjarins fyrir hádegi í
gær; en í fyrrinótt spiltist færð
in austur yfir fjall og var al-
ófært fyrir bíla í gærmorgun
Vegna þessa óvæntu hindr-
ana, gat kjörstjórn ekki komið
saman fyr en kl. 3 í gær, og
þar mætti þá varamaður Pjet-
urs Magnússonar, Tómas Jóns-
son lögfræðingur. Hinir, sem
sæti eiga í kjörstjórn eru þeir
Geir G. Zoega vegamálastjóri
og Ágúst Jósefsson heilbrigðis-
fulltrúi; þeir voru báðir mættir.
Umboðsmenii lista vilja vera
viðstaddir.
Um það leyti, sem kjörstjóm
var að koma saman, barst henni
ósk frá umboðsmönnum tveggja
listanna, að þeir feng^ju að
vera viðstaddir á þessum fundi
kjörstjórnar. Þessi ósk kom frá
umboðsmanni Alþýðuflokkslist-
ans, Sigurjóni Ólafssyni og ff'á
umboðsmanni lista Gísla Bjarna
sonar, sem var Gísli sjálfur.
Enda þótt það væri ekki
venja við bæjarstjórnarkosn-
ingar, að umboðsmenn lista
væru viðstaddir þegar kjör-
stjórn kæmi saman til þess að
úrskurða um löggildi listanna
og merkja þá bókstöfum, sá
kjörstjóm ekki ástæðu til ann-
ars en verða við ósk þeirri, sem
fram var komin. En að sjálf-
sögðu gaf hún umboðsmönnum
annara lista þá einnig kost á að
vera til staðar.
Mættu því umbðosmenn allra
lista hjá kjörstjórn.
Þegar þangað var komið,
kom brátt í ljós, hvað það var,
sem lá bak við þessa ósk þeirra
Sigurjóns og Gísla Bjamason-
ar. Þeir viidu ná í bókstafinn C
handa lista Gísla Bjamasonar.
Var auðsjeð strax, til hvers
þessi leikur var gerður. Það
átti á þenna hátt að reyna að
fiska atkvæði frá Sjálfstæðis-
flokknum á lista Gísla Bjama-
sonar, því að alkunnugt er, að
Sjálfstæðisflokkurinn er vanur
að hafa bókstafinn C við kosn-
ingar hjer í bænum.
Á valdi kjörstjórnar.
Samkvæmt 11. gr. laga nr.
59, 14. júní 1929, um kosning-
ar í málefnum sveita og kaup-
staða, er það algerlega á valdi
kjörstjórnar einnar, að ákveða
hvaða bókstaf listarair skuli
hafa.
Hjer í Reykjavík hefir það
verið venja undanfarið, að Al-
þýðufl. hefir haft bókstafinn A,
Kommúnistar (síðan þeir komu
til sögunnar) B og Sjálfstæðis-
menn C.
Nú höfðu umboðsmenn þess-
ara þriggja flokka hver um
sig farið fram á það við odd-
vita kjörstjórnar, að þeir fengi
að halda sínum fyrri bókstaf,
og taldi oddviti engin tor-
merki á því. Enda er það eðli
legast, þar sem venja hefir
skapast um þetta, að hún hald-
ist uns nýju alþingiskosninga-
lögin koma í gildi, en þau fast-
setja reglu um þetta. Það er
öllum flokkum fyrir bestu, að
halda föstum sínum bókstaf og
óheppilegt að vera að rugla
þar til og frá.
Á fundi kjörstjórnar í gær
var reynt að fá samkomulag
umboðsmanna listanna um
þetta. En Gísli Bjamason vildi
ólmur fá C og Sigurjón studdi
hann af kappi miklu.
Þegar ekki tókst að fá sam-
komulag um þetta, var boðið
að láta hlutkesti ráða bókstöf-
um allra listanna, en því neit-
uðu Gísli og Sigurjón mjög á-
kveðið. Af þessu er Ijóst, að
tilgangur þeirra var sá einn,
að reyna að gera Sjálfstæðis-
flokknum miska.
Ákvörðun kjörstjórnar.
Vjeku nú umboðsmenn list-
anna af fundi, en kjörstjórn
tók ein ákvörðun um merking
listanna. Hún ákvað, að merkja
listana í sem mestu samræmi
við undanfarandi, síðustu kosn-
ingar hjer í Reykjavík og fengu
listamir þessa bókstafi:
A-listi: Alþýðuflokkur
B-listi: Kommúnistaflokkur
C-listi: Sjálfstæðisflokkur
D-listi: Framsóknarflokkur
E-listi: Listi Gísla Bjarnasonar
Samkvæmt þesðu hefir Sjálf-
stæðisflokkurinn sinn fyrri bók-
staf og listi hans er
C-Iisti.
Á kjörskrá.
Á kjörskrá við þéssar bæjar-
stjómarkosningar hjer í Rvík
eru nú 17.831 manns — 17602
á aðalkjörskrá og 229 á við-
bótarkjörskrá. Smávægilegar
breytingar kunna að verða á
þessu, því eftir er að úrskurða
um nokkrar kærur, sem fram
hafa komið.
Kosning hjá lögmanni.
Lögmaður hefir opnað skrif-
stofu fyrir þá kjósendur, er
greiða mega atkvæði utan kjör-
staðar og er sú skrifstofa í
Pósthússtræti 3 (húsnæði vara-
lögreglunnar).
Skrifstofa þessi er opin alla
virka daga frá kl. 10—12 árd.
og 1—5 síðd.
Þetta verða allir Sjálfstæðis-
menn að muna, sem fara burt
úr hænum fyrir kjördag.
Munið ennfremur, að listi
Sjálfstæðisflokksins er
C-listi!
Dcpbók.
I. O. O. F. 3 ees 115188 = E. I.
n Edda 5934197 = 2.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5):
Djúp lægð út af Austfjörðum á
hreyfingu norðaustur eftir. Á S-
og V-landi er stinningskaldi á V,
en nyrst á Vestfj. og á A-landi
er NA- eða N-stormur með snjó-
komu og 1—2 st. frosti. Lægðin
fjarlægist landið allhratt og mun
veður yfirleitt lygna og batna á
morgun. Á hafinu milli Islands og
Bretlands og á N-sjónum er V-
hvassviðri og skúra- eða jelja-
veður.
Veðurátlit í Rvík í dag: V-gola.
Dálítil snjójel.
Útvarpið í dag: 10.00 Frjetta-
erindi (Sig. Ein.) og endurtekn-
ing frjetta. 10.40 Veðurfregnir.
15.00 Miðdegisútvarp. 15.30 Er-
indi: Verður tilvera guðs sönn-
uð? (Magmis Jónsson prófessor).
17.00 Messa í fríkirkjunni (síra
Árni Sigurðsson). 18.45 Barnatími
(síra Friðrik Hallgrímsson). 19.10
Veðurfregnir. 19.20 Tilkynningar.
19.25 Tónleikar: Fiðlusónata eftir
Beethoven, nr. 1, o. fl. (Felzman
og C. Billich). 19.50 Tilkynningar.
20.00 Klukkusláttur. Frjettir.
20.30 Erindi: Uppruni og þróun
tónlist-ar, II. (Páll Isólfsson). 21.00
Grammófóntónleikar: Brahms:
Sýmphonia nr. 2 (Philadelphiu
symphoniu-orkestrið, Leopold Stok
owsky). Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10.00 Veð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir. — Endurtekn
ing frjetta o. fl. 19.00 Tónleikar.
19.10 Veðurfregnir. 19.20 Tilkynn
ingar. 19.25 Óá-kveðið. 19.50 Til-
kynningar. 20.00 Klukkusláttur.
Frjettir. 20.30 Erindi: Frá út-
löndum (Vilhj. Þ. Gíslason). 21.00
Tónleikar: Alþýðulög (Útvarps-
kvartettinn). Einsöngur (Pjetur
Jónsson). Grammófónn: Debussy:
Petite Súite. — Smetana: Die
Moldau.
Þursölin. Athygli skal vakin á
grein Jóns Pálssonar í Lesbók-
inni í dag um hin fjörefnaríku
þursöl. Þau fást í versluninni
Bjarma, Skólavörðustíg 12.
Frá skattstofunni: Þeir, sem
ætla sjer að njóta aðstoðar á skatt
stofunni við að útfylla framtals-
skýrslur sínar til tekju- og eign-
arskatts ættu að snúa sjer þang-
að sem fyrst. Aðstoðin er veitt
kl. 1—4 síðd. Áríðandi er að menn
geti þá gefið nákvæmar upplýs-
ingar um tekjur sínar og frádrátt,
t.d. útgjöld við hús (skatta, við-
hald) o. s. frv.
Lík fundið í höfninni. Um kl.
2% í gærdag fann hafnsögubát-
urinn karlmannslík á floti í höfn-
inni, skamt fyrir framan gamla
liafnarbakkann. Þektu menn þeg-
ar að þet.ta mundi vera lík Jóns
Hannessonar ökumanns, sem
kendur var við Austurkot, en átti
seinast heima á Elliheimilinu og
hvarf þaðan fyrir nokkru. Líkið
var flutt suður í líkhús.
Höfnin. Tveir þýskir togarar
komu hingað í gær, annar til þess
að fá sjer kol, en hinn til við-
gerðar.
Fimleikasalurinn í í. R.-húsinu
liefir verið bættnr mikið nú í jóla-
fríinu og æfingar hefjast aftur á
morgun. Frúaflokkur, Old Boys,
fyrsti flokkur karla og kvenna eru
beðnir að f jölmenna. - Flokk-
stjórar eru beðnir að láta þetta
berast.
Togarinn Gvllir fór á veiðar í
gær.
„Hjálparstöð Líkxjar fyrir
berklaveika, Bárugöt,u<f(g, (g^pgið
inn frá Garðastr., 3., dvr t. v.).
Læknirinn viðstaddur mánud. og
miðvikud. kl. 3—4 og föstucl. kl.
5—6.
Ungbarnavernd Líknar, Báru-
götu 2 (gengið inn frá Garðastr.
1. dyr t. v.). Læknir viðstaddur
fimtud. og föstud. kl. 3—4.
Mæðrastyrksnefndin hefir upp-
lýsingaskrifstofu sína opna á
mánudagskvöldum og fimtudags-
kvöldum kl. 8—10 í Þingholtsstr.
18, niðri.
Næturvörður verðuf þessa viku
í Laugavegs ApótekPog lugól(V
Apóteki.
Erlendu nautgripirnir, sem
geymdir hafa verið í Þerney í
sumar, voru, sem kunnugt er„ með
hringormasýki, og hefir hún held-
ur ágerst í þeim, svo að Búnaðar-
fjelagið hefir ekki viljað flytja
gripina brott úr eynni. Kvígan,
sem látin var ganga í sumar í
sjerstakri girðingu, með kúm
Hafliða Pjeturssonar búanda í
Þerney, veiktist seinast. Er talið
að sýkingin hafi stafað af því, að
Hafliði hafði hleypt einni kú
sinni undir Btutthyrninginn. og
muni hún hafa smitast um leið og
síðan smitað aðra þá nautgripi,
sem hún gekk með.
Bílferðir teppast. Fannkomá var
svo mikil hjer aðfaranótt langar-
dags, að bílferðir teptust til Hafn-
arfjarðar franfan af:degin.um í
gær, en mokað var* svo “ ferðir
byrjuðu eft-ir hád. Yfir Ilellislieiði
var ófært bilum í gær, en fært
að Álafossi.
Hjónaband. í gær vpru gefin
saman í, hjónaband af síra Sig-
urði Gunnarssyni ungfrú Elinborg
Haraldz, dóttir próf. Haralds heit-
ins Nielssonar, og Erling Elling-
sen verkfræðingur.
Þrettándabrenna su, er knátt-
spyrnufjelagið Valur ætlaði að
halda í gær, fóst fyrir sökum þess
hve mikill snjór hafði komið á
völlinn, sem verður að moka burtu
í dag, svo að eftjj daginn í dag,
þegar veður levfir, verður brenn-
an haldin.
Póstferð til ísafjarðar. Togar-
inn Kópur fer til ísafjarðar í dag
eða á morgun.
Eimskip. Gullfoss er á leið til
Leith frá Kaupmannahöfn. Goða-
foss er í Kaupmannahöfn. Brúar-
foss er í Kaupm annah öfn. Detti-
foss fór frá Hamborg í gror á leið
til Hull. Lagarfoss er í Kaup-
mannahöfn. Selfoss fer t-il Hull og
Antwerpen á morgun,
Stórstúka íslands heldur auka-
fund í kvöld í Templarahúsinu kl.
8. Eftir kl. 9 verður fundurinn
opnaður á fyrsta stigi.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg. Samkomur í dag; Bænasam-
koma kl. 10 árd. Barnasamkoma
kl. 2 síðd. Almenn samkoma kl.
8 síðd. Allir velkomnir.
Axel Danaprins gengur nú inn
í stjórn siglingadeildar Austur-
Asíufjelagsins. Hann hefir verið í
þjónustu fjelagsins síðan 1921 og
síðan 1927 hefir hann át-t sæt-i í
st-jórn þess. (Sendiherrafrjett).
Bæjarstjórnarkosningarnar í
Vestmannaeyjum. Kosningu var
lokið er blaðið fór í prentun. Um
1550 kusu af 1790 á kjörskrá.
Úrslitin
í Vestmannaeyium.
Sjálfstæðismenn.808
Kommúnistar........... 449
Jafnaðarmenn..........276
Lindin, rit Prestafjelags Vest-
f jarða, 4. árgangur 1933, hefir
Morgunblaðinu borist. Efni þess
er þetta: Jólahátíðin, eftir Sigur-
geir Sigurðsson prófast í ísafirði,
Jól (ljóð) eftir Svein Gunnlaugs-
son, kennara, Englarnir og kirkj-
an, eft-ir ungfrú Steingerði Guð-
mundsdótt-ur, „Vertu ekki hrædd,
litla hjörð“, eftir síra Þorst-ein
Kristjánsson, Kristur er frelsari,
og Sá finnur, er leitar, eftir síra
Halldór Kolbeins, Messugerð hinn-
ar nvju helgisiðabókar þjóðkirkju
Islands, eftir Sigtrygg Guðlaugs-
son prófast á Núpi, Átt-u fleygan
finda 1 eftir Jens Hermannsson
skólastjóra, Kvöldmáltíðin, sem
minningar og sameiningarhátíð,'
eftir síra Einar Sturlaugsson,
Móðan (Ijóð) og Dauðinn (ljóð),
eftir síra Böðvar Bjarnason á
Rafnseyri, Kii’kjnbændalag Ame-
rfkumanna, eftir síra Pál Sigurðs-
son, í heiðakyrð, eftir Sigurð
Kristinn Harpan, Tvö dæmi um
trú, eftir síra Björn O. Björnsson,
Sjómannaminnismerki, eftir síra
Sigurð Gíslason á Þingeyri, Trúin
á guð, eftir Böðvar frá Hnífsdal,
Veltur á ýmsu, eftir Kristján Sig.
Kristjánsson fyrv. kennara, Rödd,
og Andvarp, eftir síra Björn O.
Björnsson, Hallgrímur Pjetursson,
eft-ir Arngrím Fr. Bjarnason, rit-
st.jóra, Á kirkjan erindi inn á svið
stjórnmálanna?, eftir síra Böðvar
Bjarnason. Margt fleira er í heft-
inu og er það mjög fjölbreytt- og,
frágangtir og pappír vandað. Ritið
er prentað á Akureyri í prent-
smiðju Odds Björnssonar.
Selvogsvitinn. Ljósmagn hans
hefir nýlega verið aukið upp í
18 sm., en Ijósmál hans er óbreytt.
Brejding á flaggmerkjnm. Sam-
kvæmt alþjóðasamþykt- hefir
flággmerki fyrir skip, sem vilja
kalla á hafnsögumann eða leið-
söguniann, verið breytt í stafinn
„G" (alþjóða merkjabók) í stað-
inn fyrir stafinn ,,S.“ Jafnfra.mt
má, eins og áður, nota flagg-
merkið „PT“ eða leiðsöguflaggið,
sem er þjóðfáninn með hvítri
rönd í kring.
Náttúrufræðisfjelagið hefir sam-
komu mánudag 8. þ. m. kl. 8%
síðd. í náttúrusögubekk Mentaskól
ans.
Fundur í kvöld kl. 8% í K.F.U.
M. í Hafnarfirði. Stud. theol.
Gísli Guðmundsson talar. Allir
velkomriir.
Radioviti í Vestmannaeyjum
mun taka til starfa. seinni hlutann
í janúarmánuði. Á þeim t-íma dags
scm loftskeyt.astöðin starfar,
mega skip kalla þangað (kall-
merki: T.F.V.) og fá þaðan mið-
unarmerki. Á þeim tíma sem eng-
in gæsla er á stöðinni (á virkum
dögum kl. 21—8 en á helgum dög
um kl. 20—10) mun stöðin senda
út miðunarmerki síðustu 10 mín.
á hverri klukkustund, öldulengd
641 mtr. Merkin eru þessi: Staf-
urinn V (... —) þrisvar sinnum
í röð á 12 sek. Bil 2 sek. 19 stryk
á 2 sek. með % sek. millibili. Bil
3% sek. — Þessi merki verða
endurtekin 10 sinnum í röð.
ísfisksala. Togarinn Vinur seldi
afla sinn í fyrradag í Englandi
fyrir 1121 stpd.