Morgunblaðið - 13.02.1934, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.02.1934, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Borgarasfyrjöld í Austurríkl Blóðuglr bardagar á got- tiin Vínarborgar i gær. Jafnaðarmenn gera sjer strætisvígl og berjast með lianclspreiigiftiiii. « Aðalbækistöð þeirra, ráðhúsið, fekið með á- hlaupi. Heimvarnariiðið veltlr stiómiiiiftl vígsgengi. Stahremberg- fursti og heimvamarmenn. Útgef.: H.f. Árvakur, Iteykjavtk. Ritstjörar: Jön Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Ritstjörn og afgreiösla: Austurstræti 8. — Stml 1600. Auglýsingastjóri: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Stml S700. Heimastmar: Jön KJartansson nr. 2742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. Árni Óla nr. 3046. H. Hafberg nr. 3770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBi. Utanlands kr. 2.50 á mánuBi. 1 lausasölu 10 aura elntakiS. 20 aura meS Lesbök. Sambandið og stjórnmálin. Forkólfar Sambands ísl. sam- vinnufjelaga hafa jafnan brugðist reiðir við, er því hefir verið hald- ið fram, að Sambandið væri póli- tísk stofnun. Nú er það hinsvegar komið á daginn, að Sambandið er ekki eins saklaust og forkólfarnir vilja vera láta. Tryggvi Þórhallsson skrifar ný- lega grein í „Framsókn“, sem „Vanvirða“ nefnist. Þar vítir hann harðlega sorpblaðamensku Tímamanna. Jafnframt upplýsir hann, að það sje Sambandið sem beri aðalkostnaðinn af útgáfu Tímans. Tryggvi Þórhallsson er að víta það, hvernig Tíminn skrifi um Þorstein Briem ráðherra, son Ól- afs heitins Briem frá Álfgeirsvöll- um, fyrv. formanns Sambandsins. Telur Tr. Þ. það mikla vanvirku, að Sambandið skuli kosta mann til þess að ófræga son hins látna heiðursmanns. Um þetta segir Tr. Þ.: „En nú gengur ritstjóri Tímans í byrjun hvers mánaðar til Sam- bans íslenskra samvinnufjelaga og fær útborg'uð launin sín. Og aðal- starf hans er nú það, að ófrægja son Ólafs Briem, landbúnaðarráðh. Þorstein Briem. Þetta líðst Gísla Guðmundssyni viku eftir viku, jafnhliða því, sem hann kemur svo dónalega fram við útvarpsumræður, að flokks- bræður hans um land alt bera kinnroða fyrir hann. Hvílík vanvirða! Hvenær segja samvinnufjelögin sjer afhendis slíkt blað og slíkum merkisbera ?“ Þessi harðorðu ummæli Tr. Þ. varpa skýru ljósi yfir hina pólit- ísku starfsemi Sambandsins. Það kostar útgáfu pólitísks blaðs til þess að rægja og ófrægja þá sam- vinnumenn, sem ekki vilja játast trú Hriflu-Jónasar. Auðvitað er þetta framferði Sambandsins hin megnasta van- virða. En Tr. Þórhallsson hefir í þessu, sem ýmsu öðru, vaknað nokkuð seint, því að Sambandið hefir í mörg ár hagað sjer ná- kvæmlega á sama hátt. En betra er seint en aldrei. Og það er víst, að frásögn Tr. Þ. verður til þess, að opna augu margra samvinnubœnda. — Þeir munu hjer eftir ekki fást til að triia því, að Sambandið sje ópóli- tísk stofnun. Kalundborg 12. febr. F. Ú. I dag hefir brotist út borgara- styrjöld í Austurríki, og er nú barist á götunum í Vínarborg og í Linz, og stendur baráttan milli jafnaðarmanna og Dolfuss- stjórnarinnar. Fregnirnar af við ureigninni eru ekki allsendis greinilegar ennþá, og ber ekki alveg saman, en aðalatriði þess, sem sagt er að fram hafi farið í dag, er þetta: Upptök styrjaldarinnar. Ríkisstjórnin lýsti því yfir í dag, að hún hefði fengið fregnir um það, að jafnaðarmenn hefðu undanfarið viðað að sjer miklum vopnum, sem geymd væru í höf- uðstöðvum þeirra. Yfirvöldin kröfðust þess, að vopn þessi yrðu látin af hendi, og fyrirskipaði að rannsókn skyldi fara fram í að- albækistöðvum jafnaðarmanna í Vín. Þegar framkvæma skyldi rannsókn þessa í dag, neituðu jafnaðarmenn, að láta nokkur vopn af hendi og laust þá í bar- daga milli þeirra' og stjórnar- manna. Jafnaðarmenn köstuðu handsprengjum, en lögreglan og herinn rjeðust á stöðvar þeirra. Allsher j arverkf all. Nú rak hver atburðurinn ann- an, og brátt komst alt í uppnám. Jafnaðarmenn lýstu yfir alls- herjarverkfalli, og hlóðu sjer virki í ýmsum götum í nánd við höfuðstöðvar sínar, og einnig í útjöðrum borgarinnar. Vegna verkfallsins varð Vínarborg Ijós- laus í eftirmiðdag o& símásam- bandslaus, en logreglan setti taf arlaust í gang sínar sjerstöku aflstöðvar, og gat þannig haldið uppi símasambandi fyrír sig. Bardagar í öðrum borgum. Jafnaðarmenn fóru nú að drífa í stórhópum til borgarinn- ar, jafnframt því, sem ýmiskon- ar óeirðir og bardagar urðu í öðr um borgum, einkum í Linz, sem í sumum fregnum er talin miðstöð uppreisnarmanna, en vegna símasambandsleysis út um land, er ekki enn þá vitað með vissu, hvað þar hefir farið fram. Þó er sagt, að þar hafi tveir lögreglu- þjónar fallið og 20 særst, er þeir gerðu árás á höfuðstöðvar jafn- aðarmanna þar, Schiffer-hótelið og tóku það herskildi í harðri á- rás. Ráðhúsið í Vínarborg tekið með áhlaupi. Nú víkur sögunni aftur til Vín arborgar, þar geisuðu bardag- arnir áfram í götunum af mikilli heift. Stjórnin lýsti borgina í hernaðarástandi, og borgaraleg lög voru upphafin, umferð stöðv- uð um ýmsar aðalgöturnar og hervörður settur á strætin og við allar helstu byggingar stjórnar- innar. Ríkisstjórnin skaut á fundi í hermálaráðuneytinu und- ir forsæti Dollfuss sambands- Dollfnss kanslari að halda ræðu. kanslara og samþykti þar, að láta tafarlaust ráðast á aðalvígi jafnaðarmanna í Austurríki, ráðhúsið í Vín. Herdeild með hríðskotabyssum var undir eins send þangað, og síðustu fregn- irnar í kvöld, sem þó eru óstað- festar, segja að stjómarherinn hafi tekið ráðhúsið með áhlaupi. í liði stjórnarinnar eru, auk ríkishersins og lögreglunnar, mannafli Heimwehr flokksins. Yfirlýsingar frá beggja hálfu. Dollfuss kanslari og stjórn hans, og leiðtogar jafnaðar- manna hafa hvorirtveggja gefið í dag út yfirlýsingar til almenn- ings. I yfirlýsingu jafnaðarmanna segir, að framkoma varakanslar- ans hafi undanfarið verið svo ó- viðunandi, að hennar vegna að- allega, og af ýmsum öðrum á- stæðum líka, hafi þeir talið nauð synlegt, að efna til kröftugra mótmæla gegn stjóminni. I yfir- lýsingunni segir ennfremur, að það sje riett, að flokkurinn hafi dregið að sjer vopn, en það hafi hinsvegar aldrei verið ætlunin, að beita þeim til árása. Vopnin hafi varið fengin til þess, að flokkurinn gæti verið viðbúinn, ef á hann yrði ráðist, eða ef Fas istarnir í landinu reyndu að koll- varpa stjórnskipulagi ríkisins. Þó segir einnig í yfirlýsingunni, að verkamenn muni telja það skyldu sína, að grípa til vopna, ef lýðræðið, eða stjórnarskrá ríkisins, sje í hættu. Dollfuss-stjórnin segir í sinni vfirlýsingu ,að það hafi vitnast, að jafnaðarmannaflokkurinn hefði vígbúnað og vopnasöfnun, sem væri óheimil að lögum, og hættuleg landsfriðnum, og hefði því verið nauðsynlegt, að heimta framsal þeirra á þessum vopn- um, en þeir hefðu neitað því, og stofnað til bárdaga. í stjórnar- ávarpinu, er einnig alvarlega i skorað á allan almenning, að ; vera rólegan, og halda vinnu ' sinni áfram, og Dollfuss varar j verkamenn við því, að láta leiða sig út í nokkurar óeirðir, sem fyrirsjáanlega geti einungis orðið þeim sjálfum til ills. Dollfuss boðar breytingar á stjórnarskránni. Sjerrjett- indi einstakra rikishíuta af- numin og landshöfðingjum steypt. Það er einnig sagt, að Doll- fuss hafi í dag boðað all víð- tækar breytingar á austurrísk# stjórnarfari þannig, að gera eigi úr sambandsríkínu eitt alls- herjarríki, afnema sjerrjettindi einstakra landshluta og lahds- þinga, og setja landshöfðingj- ana af. Borgarstjóranúm í Vín- arborg var einnig vikið frá í dag, og í sumum fregnum segir, að það hafi verið aðal tilefni þess, að óeirðimar hófust. Ennfremur er sagt, að Doll- fuss hafi í hyggju, eða hafi þeg- ar, gefið út fyrirskipun, sem bannar starfsemi allra sjer- stakra pólitískra flokka í land- inu. Bardagar víða í gærkvöldi. Þegar síðast frjettist í kvöld, stóðu enn yfir bardagar í Vín og víða um land, en óstaðfestar fregnir segja, að stjórnarliðið hafi náð á vald sitt flestum stöðvum jafnaðarmanna, og tek ið fasta'suma leiðtoga þeirra. Byltingin á Spáni hjaðnaði niður. Madrid 12. febr. United Press. F.B- Stjórnarvöldin telja nú, að ekki muni til þess koma, að stjórnarbyltingartilraun verði gerð í svip, en menn óttuðust það í fyrrakvöld og voru þá gerð ar sjerstakar ráðstafanir, vörður settur við opinberar byggingar o. s. frv. — Einnig hefir fregnast að Barrios muni ætla að segja af sjer hermálaráðherraembætt- inu, en stjórnarvöldin neita því. — Stjórnmálamenn sem U. P. hefir átt tal við, gera sjer nú vonir um, eins og talsmenn rík- isstjórnarinnar, að friður hald- ist í landinu. Yinnudeilurnar í Danmörku. Kalundborg 12. febr. F. Ú. Danski sáttasemjarinn hefir boðað 'fulltrúa verkamanna og vinnuveitenda til fundar á morg- un, til þess að ræða um hina yf- irvofandi vinnustöðvun. Stjórn vinnuveitendasambandsins hefir í dag tilkynt, að verkbannið, sem hún hefir áður lýst yfir, muni einnig ná til ýmsra fjelaga utan verkamannasambandsins, svo sem til nokkurra fjelaga blikksmiða, gas- og vatnspípu- lagningamanna, múrara og trje- smiða. í Danmörku eru nú 136 þús. atvinnulausir menn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.