Morgunblaðið - 07.03.1934, Síða 5

Morgunblaðið - 07.03.1934, Síða 5
6 Togarar til útlanöa. Sunnudaginn 28. janúar s.l. birt- ist í Morgunblaðinu grein með ■þessari fyrirsögn, eftir Grísla Jóns- son, umsjónarmann vjela og skipa, jþar sem hann keldur því fram, að viðgerðir á skipum hjer sjeu meira en helmingi dýrari en ut- -anlands, auk þess sem þær taki margfalt lengri tíma hjer en þar. -örein þessi er svo ófyrirleitin og -ósanngjörn í g'arð vjelsmiðjanna Lhjer og annara iðnaðarmanna, er að skipaviðgerðum stai’fa, að ekki verður hjá því komist, að gera athugasemdir við hana, en vegna anna hefir það dregist út hömlu fyrir mjer, auk þess sem mig vant- -aði upplýsingar um einstök atriði, ■sem nefnd eru í greininni. Jeg skal til að byrja með taka 'það fram, að mjer dettur ekki í hug að neita því, að viðgei’ðavinna •skipanna sje eitthvað dýrari hjer •en ytra, og taki auk þess lengri ‘tíma, en jeg' held því hiklaust fram, að munurinn sje margfalt minni en Gísli vill láta iíta út ‘fyrir í grein sinni, og auk þess •eigi vjelsmiðjurnar, eða fram- Ikvæmdastjórnir þeirra, minsta sök á því, að svo þarf að vera. Þetta viðurkennir Gísli sjálfur í grein 'sinni, en fer ekki út í það nánar, hverjar orsakirnar eru, nema hvað hann nefnir tollana á efnivör- um til iðnaðar, af því að þar hef- ir hann sjálfur fundið til. Aftur á móti hefir hann í brjefi sínu til ■smiðjanna Hamar og Hjeðins, d.s. 8. okt. 1932, farið nánar út í þau atriði, sem sýnir, að honum er ljóst, hvað í raun og veru er að þótt það komi ekki fram í um- ræddri grein hans, og lesandinn hljóti að fá þá hugmynd af lestri ■hennar, að smiðjunum sje aðallega um að kenna, annað hvort vegna okurs, eða af því, að iðnaðarmenn þeirra sjeu svo miklu síðri en stjettarbræður þeirra í Englandi, að helmingsmunur sje og vel það. En áður en jeg tala um þá erfið- 'lcika, sem smiðjurnar hjer eiga við að stríða v og aðstöðu þeirra til samkepni við útlendar smiðjur, vil jeg athuga nokkuð dæmi þau. sem Gísli nefnir í grein sinni, og sýna live mikið er á ' þeim að byggja. 1. Verk það, sem hjer um ræðir, var boðið út, og er upphæðin sem Gísli nefnir, 19182 kr., samanlagt tilboð frá Slippnum og einni vjel- smiðjunni í nokkurn hluta þess, sem boðið var út, því samkvæmt vfirliti, sem jeg hefi fengið að láni hjá Gísla, hefir sumt af því, sem út var boðið, ekki verið fram- kvæmt, en aftur ýmislegt gert, sem ekki var boðið út. Sú vinna, sem hjer var boðin fyrir 19182 kr. samkv. yfirliti Gísla, var fram kvæmd ytra fyrir £ 563:13:8, sem með gengi 22,15 pr. £ gerir 12485 kr. en ekki 11908 kr. eins og Gísli segir. En ef til vill reiknar hann með lægra gengi. Sumt af því, sem reiknað er með í íslenska tilboðinu, var ekki framkvæmt ytra, eins og t. d. að endurnýja plötur á toppi ketilreisnar, þar var aðeins tekin ein plata framan við hágluggann og 2 bætur settar á aðrar plötur. Þverplötur fram- an við togvindu, sem tærðar voru, voru ekki endurnýjaðar, heldur að eins settur strengúr þar sem verst var, og aðeins niður að dekki en ekki niður í næsta saum í lest- inni eins og út var boðið. Hjer var boðið í nýja eimleiðslu að tbgvindu, 2%”, en ekki látin ytra. Hjer var boðið í að endurnýja alt þilfarið (trje), en ytra var skilið eftir óhreyft þilfar undir tog- vindu, yfir káetu og aftur úr og að Jtiestu framan við mastur. Hjer hefir verið drepið á nokk- ur atriði, sem sýna, hve óná- kvæmt er í sakirnar farið, og að það, sem Gísli kallar staðreyndir um verðmun við ge rð a v innuL. yt r a og hjer, er fullyrðing ein. En auk* þess,. að viðgerðirnar ytra og hjer eru ekki sambæri- legar, þá er margt af því, sem framkvæmt er ytra svo horðvirkn- islega gert, veg’na þess hvað verk- inu er flýtt mikið, að ýmist þarf að gera það upp aftur hjer, eða því er svo að segja tjaldað til einnai’ nætur og langt frá því að Aæra sambærilegt við vinnu verk- stæðanna hjer. Á umræddu skipi var töluverður leki þegar heim kom, meðal annars með ketil- reisninni og á þilfari, þar sem við- gerð var ófullnægjandi. Sag, spýt- ur, spænii- og allskonar drasl var skilið eftir í botnkössum, svð að mestu vandræði voru að, þegar skipið var komið út á rúmsjó og hingað heim, og' þurfti oftar en einu sinni að ganga í að hreinsa það; í stað þess að ryðberja alt skipið eins og hjer var ætlast til, var aðeins átt við hásetaklefa. Ytra er ryðbarið með sleggjum og aðeins tekið það mesta, og mun Gísli bæði í þetta skifti og oftar hafa þurft að finna að fram- kvæmd þess, þótt þar við væri lát- ið sitja vegna þess, að tími vanst ekki til umbóta. Á þessu skipi þurfti' að endurnýja á annað hundrað nagla í botni skipsins þegar það kom heim frá viðgerð- inni ytra, og sýnir það meðal ann- ars flaustrið og frágang'inn. 2. Um þetta dæmi skal jeg geta þess, að samkvæmt þeim skjölum, sem jeg hefi fengið lánuð hjá Gísla og hefi hjer fyrir framan mig, hefir tvennskonar áætlun verið gerð um viðgerð á þessu skipi, hið minsta, sem óhjákvæmi- legt var að gera og hið mesta, sem þurft hefði að gera. Áætlun Gísla sjálfs var þannig': Innl. erl. kr. kr. Mesta viðgerð: 40359' 23962 Minsta 26630 15223 Tilboðin hjer voru: Hæst Læg'st. kr. kr. Mesta viðgerð: 33721 32505 Minsta 20775 20281 I grein sinni segir Gísli, að lægsta tilboðoð hjer (í minsta við- gerð) hafi verið 26630 kr., það er hans eigin áætlun, og að hún hafi verið framkvæmd fyrir 9300 kr. ytra; að aukaviðgerð hafi verið 11400 kr. sem með sama hlutfalli hefði átt að verða 27670 kr. hjer, eða viðgerðin alls 55000 kr. í stað 20700 kr. ytra. Til þess að sýna hvernig hann fær þessar tölur, ætla jeg að leyfa mjer að taka hjer MORGUN BLAÐIÐ mmmmmmmmmmmmm im i n i i ...nrr upp stuttan kafla úr brjefi frá Gísla til stofnunar, sem hafði með málið að gera: „Tilboð innanlands kr. 40359, þar af fyrir eigendur 30104 kr. og' fyrir vátryggjendur ltrónur 10255,00. Áætlaður kostnaður utanlands fyrir sama verk kr. 23962,00. Þar af fyrir eigendur kr. 18636,00 og fyrir vátryggjendur kr. 5326.00. Ur þessari áætlun fyrir verk eiganda var dregið sem svarar kr. 3080,00, er minna var fram- kvæmt erlendis, svo verk þau, sem framkvæmd voru nákvæmlega eftir áætlun, hefðu þá átt að verða kr. 15556,00 fyrir reikning eig- enda, ef ekkert hefði bæst við og áætlunin staðist. Til samanburðar átti innlenda tilboðið að færast niður í kr. 25404.00 eða lækka um kr. 4700,00 fyrir þá liði. sem feld- if voru úr. Aftur á móti var framkvæmt afarmargt, sem ekki var gert ráð fyrir í áætluninni, og sumt af því mjög yfirgripsmikið, er ekki varð sjeð, fyr en skipið var at- hugað nákvæmleg'a, þar á meðal voru 9 utanborðsplötur endurnýj- aðar í botninum og 4 plötur í síð- um, auk aragrúa af böndum. Þá var og breytt afturlest skipsins og margt fleira. Nam allur sá kostn- aður kr. 11400,00 og verður út- koman á kostnað eigenda, saman- borið við átælun því þannig: Kostn. eigenda áætl. erlendis..........kr. 18630,00 Felt úr, ekki framkv. — 3080,00 Áætl. erl. fyrir raun- verulega. framkv. vinnu samkvæmt lista...............— 15556,00 Allur kostn. fyrir eig- endur var.........kr. 20698,62 Þar af framkv. ut- an áætlun.........— 11400,00 Raunverulega um- samjð fyrir hina á- ætluðu vinmi .... kr. 9298,62 eða. kr. 6257,38 minna en áætlað var, og rúmum 16 þús. minna en tilboðið innanlands. Með tilsvar- andi verði á aukavinnunni hefði verk eigenda kostað alls innan- la.nds 55 þús. kr.“. Eins og menn sjá, þá er fyrst og' fremst rangt tilfært tilboðið innanlands, þarnæst ruglað saman inesta og minsta viðgerðarkostnaði og loks vantar skilríki fyrir því, að ekkert af aukavinnunni hafi átt að teljast í því, sem boðið var út hjer, og eins hinu, hve mikið af því, sem hjer var boðið út var framkvæmt ytra fyrir rúmar 9000 kr. Jeg geri ráð fyrir að Gísli Iiafi þessi gögn í höndum, og væri fróðlegt að sjerfróðir menn gætu borið þau saman við út.boðin hjer. Hitt hefir mjer verið sagt. að mikið hafi vantað á, að viðgerðin ytra á skipi þessu hafi vei’ið við- unandi. T. d. voru vantarnir svo ryðbrunnir, að þeir hruklcu í sund ur svo mastur og reiði fór fyrir borð áður en skipið komst heim hingað, og' var lán að flækjan fór ekki í skrúfuna og varð skipi og skipshöfn að grandi. 3. Hjer er um tiltölulegá lítið verk að ræða og hef jeg ekki rannsakað það, enda erfitt , að fullyrða, að alveg hafi verið um sama verk að ræða. Aftur á móti hefir mjer verið sagt frá fleiri dæmum, þar sem dýrara er að láta vinna ytra en hjer, t. d. ein stórviðgerð á togara síðastliðið sumar. f janúar síðastliðnum var sett kælirör í vjel ytra fyrir £ 7:10:0, en liefði kostað hjer 70— 80 kr„ t.ilboð ytra í nýan skiftiás var £ 7:0:0, en gert mun ódýr- ara hjer. Hjer kostar um 600 kr. að koma fyrir Ecco-dýptarmælum, það hefir Gísli fengið gert fyrri 20 pund sumstaðar ytra, en á öðr- um stöðum kostar það 30 pund. Annars eru áætlanir hans um kostnað hjer yfirleitt hærri en raunverulegt verð. T. d. var trje- vinna á línuveiðara gerð hjer í vetur fyrir 1200 kr., en hana hafði Gísli áæt.lað 4000 kr. Annars er það ljóst öllum, sem með sanngirni hugsa um þessi mál að viðgerðavinna slík, sem hjer um ræðir, hlýtur að vera eitthvað dýrari lijer en ytra, ekki af því að verkstæðunum sje ver stjórnað hjer, eða íslenskir iðnaðarmenn sjeu verri verkamenn en þeir er- lendu, heldur vegna aðstöðunnar og aðbúnaðar. Þetta veit líka Gísli ósköp vel, því hann hefir áður rætt um ýmsa þá örðugleika, sem verkstæðin hjer eiga við að stríða. I Morgunblaðsgreininni minnist hann aðeins á tollana og f jarlægð- ina frá hráefnamarkaðinum. En auðvitað er það margt fleira., sem gerir smiðjunum hjer og Slippn- um og skipasmíðastöðvunum ill- mögulegt að keppa við útlend verkstæði hvað verð og vinnu- hraða snertir. Skal jeg hjer nefna nokkur atriði: 1. Þyngdartollur er hjer 60 kr. á hvert tonn af járni og stáli, sem til vinnunnar þarf og auk þess er verðtollur á sumu, sbr. grein Gísla. Hann þurfa útlendu smiðjurnar ekki að greiða. 2. Hjer verða smiðjurnar sjálf- ar að liggja með birgðir af því efni, sem nota þarf, og er það auð- vitað af skornum skamti. Það get- ur því komið fyrir að annaðhvort vanti efni eða að nota verði ó- hentugra efní en æskilegt væri. Ytra geta smiðjurnar sparað sjer að miklu leyti að kosta upp á stór- ar efnisbirgðir, því þar eru efn- isverslanir svo að segja við hend- ina, og' þær geta því fengið hent- ugt, tilsniðið efni, eins og best á við í hvert skifti, hvenær sem á þarf að halda. Flutningskostn- aður á efni hjá þeim verður líka minni en lijer. 3. Hjer verða smiðirnir að vinna að viðgerðum skipa utan á öðrum skipum, hingað og þangað í höfn- inni, inni í sundum eða suður í Skerjafirði. Yerða þeir þá að klifra með efni, verkfæri og vjel- ar yfir 2—3 skip eða flytja það á bátum fram og aftur, auk þess, sem stundum hefir þurft að flytja skipin ,sem verið er að gera við, fram og aftur um höfnina. Eru dæmi þess, að kostnaður, sem af þessu leiðir, hefir verið fullur helmingur alls viðgerðarkostnað-' arins. Sjerstakan varðmann verð- ur að hafa í hverju skipi að nótt- unni, þar sem svona stendur á. Ytra eru sjerstakar hafnarkvíar fyrir skip í viðgerð, rjett við verk stæðin, umgirtar eða lokaðar, og g'ætir einn varðmaður hverrar kví- ar. Er þar næði til vinnu og greiður aðgangur að skipinu r. I alt, sem til þarf. 4. Hjer vantar enn fullkoi i tæki til stórsmíða. Nokkuð hef :■ verið reynt að bæta úr því eíUc föngum, t. d. eru nú komin i M komin plötuvinslutæki og dr; arbraut. er getur tekið öll -! - fiskiflotans. Að vísu er enn el ’ lufegt að taka mörg skip í ei •. en mikil bót er þó að þessi tækjum frá því, sem var. Enn r . vantar ýmsar vjelar og áliöld. einkum pláss til að koma mörg: mönnum að í einu og stórv. stykkjum hæglega fyrir. Ymislegt fleira mætti nefna, s » sem ódýrt rekstrarfje o. fl„ t jeg’ læt þetta nægja í bili. Á hinn bóginn má benda á þ< ', að meðan skipin eru í viðge yt.fa, verður að halda miklu > hluta skipsliafnar iðjulausum yt: : og kosta uppihald hennar þar i landi, og verður ekkert annað fyi ir skipið gert á meðan á því stend nr. Þennan kostnaðarlið á g" rjettu lagi að taka með í viðgero arkostnaðinum ytra. Hjer er hjegt að láta vinna ýmislegt skipinu f ’ ‘ góða meðan á viðgerðinni stend ur, og fjöldi fólks, annað en M5n aðarmennirnir í smiðjunum, fæ beint og óbeint atvinnu við skipin og veg'na þeirra á sama tíma. Enn eru ótalin hin þjóðhagslega hlið málsins, lvaupgeta og gjald- þol þeirra fyrirtækja, og einstak- linga, sem missa atvinnu við að farið er með skipin til viðgerða út úr landinu. Ríkið missir tolltekjur aí efni til viðgerðanna, höfnio hafnargjöl og það, sem fyrirtæMn og starfsfólk þeirra þola minna í skött.um og útsvörum, dreifist ú aðra gjaldþegna, og’ þá ekki sfð ur á útgerðarmen nen aðra borg- ara. Loks getur maður ekki komist hjá þvi að spyrja: Hver er drif- f jöðrin í því, að farið er út með skipin? Eru það útgerðarmenn, sem heimta það? Eða er það Gísli sjálfur, sem knýr það fram? Jeg hefi heyrt að svo muni vera. Og hverjum til hagsmuna fyrst og fremst? Og hvers vegna er þá grein hans skrifuð ? Ekki getur það verið til þess að verja útgerð- armenn. ef þeirra er ekkí fyrste krafan um þetta fvrirkomulag. Er það til þess að níða og' ófrægja islenska. iðnstarfsemi ? Og hvaða hag getur hann haft af því? Það er ekki sjáanlegt, að hann geti haft hag af því, að þe*ú alinnlendu iðnfyrirtæki veslist upp með þau áhöld og útbúnað. sem þau eru búin að útvega sjer. að þan neyðist til þessa að selja dýrt, af því þau fá aðeins smáviðgerðir, snöpin úr vinnunni, en ekki stór verk, sem gætu gefið arð. og jafn- að upp lilaupavinnuna. Óhjá kvæmilega lilýtur manni að dette i hug, að hagur Gísla ætti helst að ligg'ja í því, að fá að haldh vinnunni ytra, og væri þá fróðlegt að fá upplýsingar um það, hvar þar liggur fiskui undir steini. Frá hvaða sjónarmiði, sem mál- ið er skoðað, þá verður erfitt að færa sönnur á það, að útgerðar- mönnum og Islendingum alment sje hagur að því, að fhJ.ia þessa vinnu út úr landinu H. H. Etoíksson. —-—-----------------

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.