Morgunblaðið - 04.04.1934, Page 3
MORGUNBLAÐTÐ
3
ai
Frá Vopnafirði var símað, að
margir eldblossar hafi sjest í
VSV átt þaðan á laugardag.
Úr Boryarfirði hafa gosin
sjest glögglega, sjerstaklega í
efra hluta hjeraðsins. í fyrra
kvöld sáust eldblossarnir með
litlu millibili, og blikuðu stund-
nm hátt á lofti.
Frá Miðey í Landeyjum er sím-
að að þar hafi sjest mikil leiftur
á nóttum frá gosinu. Enginn
reykur sást þaðan á annan í
páskum.
Frá Sauðárkróki er símað, að
eldgosin hafi sjest greinilega
þaðan þrjár nætur samfleytt, og
stefnan sje á Silfrastaðaöxl. —
Oftast sáust þar leiftur, en stund
um rauðir logar hátt á loft upp.
Öskufall.
Síðan á laugardag hefir ösku-
fall nokkurt verið um Austur-
land og Norðurland, alt frá Hól-
um í Hornafirði. til Akureyrar.
Hefir það þó ekki alls staðar
náð út að ströndum, því að t. d.
í Seyðisfirði hefir þess ekki orð-
ið vart, en aftur á móti í Vopna-
firði og á Akureyri.
Frá Brekku í Fljótsdal er sím-
að, að töluvert öskufall hafi ver-
ið þar kl. 7% á Páskadagsmorg-
un. 1 Breiðdalsvík var þá talið
eporrækt, en öskufallið hefði
hætt um morguninn. Frá Gríms-
stöðum á Hólsfjöllum var símað
að mikill öskubakki væri í suðri
og dálítið öskufall. í Vopnafirði
var öskufall síðla nætur. Hafði
dimt þar í lofti kl. 23.30 á laug-
ardagskvöld af öskuryki. — I
Reykjahlíð í Mývatnssveit byrj-
aði öskufall kl. 7 á Páskadags-
morgun og stóð til kl. 10. Byrgði
öskumökkurinn alla útsýn það-
an um það leyti. Frá Mýri í Bárð
ardal var símað að snjór hefði
gránað þar af ösku, og í suðri
væri mikinn öskubakka að sjá
og talsverð brennisteinslykt
væri í lofti, en engin gosmerki
sæist.
Frá Hólum í Hornafirði og
Djúpavogi komu skeyti um það
að þar hefði verið lítilsháttar
öskufall á páskanóttina, og
sorta væri að sjá í vestri á
Páskadaginn.
Ilviir er goslð?
Eftir þeim frjettum, sem
komnar eru víðsvegar af land-
inu af gosinu, og þeim miðunum,
sem menn hafa tekið víðsvegar,
má ætla að gos þetta sje í
miðjum Vatnajökli
vestarlega, norðaustur
af Hágöngum.
Er það og sennilegt, því að það
er í beinni stefnu af eldæðinni
frá Laka á Kverkfjöll.
Símabllanir
Morgbl. átti tal við Guðmund
Hlíðdal landsímastjóra í gær og
spurði hann um það hve mikil
brögð myndi vera að símslitum
vegna Skeiðarárhlaupsins og
hvenær myndi takast að gera
við þau.
— Því get jeg ekki svarað,
sagði landsímastjóri, því að við
rennum enn alveg blint í sjóinn
um það, hvað símaskemdimar
Byggingarfjelag sjálfstæðra
verkamanna í Reykjavík
stofnað hjer í bænum á
annan í páskum.
Stofnendur hátt á fimta
hundrað.
Þess hefir verið getið hjer í
blaðinu, að fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn Reykja-
víkur hafi verið að undirbúa stofn
un bvggingarfjelags fyrir verka-
menn þessa bæjar og aðra, sem
uppfylla skilyrði laga nr. 71
frá 1931. Er svo til ætlast,
að bygð verði smá sjerhús, sem
hver einstök fjölskylda hefir út
af fyrir sig.
Voru listar látnir lig'gja frammi
í nokkra dagá hjá Morgunblað-
inu og Vísi, svo og á Varðarskrif-
stofunni, til þess að fá vitneskju
um, livort almennur áhugi væri
fyrir slíkri fjelagsstofnun. Reynd-
ist áhugi mikill og almennur fyr-
ir þessu.
Var þess vegna fundur boðaður
í Varðarhúsinu á 2. dag páska. til
þess að ræða um stofnun slíks
byggingarfjelags.
Húsið var troðfult út á götu.
Jón Þorláksson borgarstjóri setti
fundinn og gerði grein fyrir mál-
inu. Sýndi fram á nauðsyn þess,
að eitthvað meira yrði gert t.il
þess að koma upp' hagkvæmum
og hollum íbúðum fyrir hina efna-
minni borgara bæjarins en gert
hefði verið. Benti á hve mikils-
vert það væri, að þessum borgur-
um væri gert mögulegt að búa
hver úí af fyrir sig í sínu eigin
húsi.
En þó að f jelag'ið væri nú stofn-
að, rn ætti, ekki búast við að hægt
yrði að koma upp húsum fyr en
á næsta ári. Margskonar undir-
biining þyrfti áður en til fram-
kvæmda kæmi. Væri og mest und-
ir því komið, að finna heppilega
gerð húsanna.
Var ræðu Jóns Þorlákssonar tek-
ið mjög' vel. Að henni lokinni var
samþ. að stofna fjelagið og heit-
ir það: Eyggingarf jelag sjálf-
stæðra verkamanna í Reykjavík.
Fundarboðendur höfðu látið út-
biia frv. að samþyktum fyrir f.je-
lagið. Bjarni Benediktsson pró-
fessor lagði það fram og skýrði
fyrir fundinum og var frv. samþ.
í einu íiljóði.
Því næst var kosin bráðabirgða-
stjórn, sem á að aðgæta hvort all-
ir stofnendur uppfylli lögmæt
fjelagaskilyrði og annast önnur
fyrstu f jelagsstörf. Kosningu
hlutu: Bjarni Benediktsson próf. j
formaður, Ragnar Lárusson verka
maður, ritari, Ólafur Sigurðsson
lögreg'luþj. gjaldkeri og meðstjórn
endur: Guðm. Eiríksson bæjarfull-
trúi og Þórður Þórðarson trje-
smiður.
Stofnendnr voru hátt á fimta
hundrað.
eru miklar og hvenær muni
hægt að gera við þær. í dag
voru fyrst tiltök að senda menn
austur til að gá að símabilunun-
um og er vai*la að vænta skýrslu
frá þeim fyr en á morgun.
Við vitum þó, að síminn mun
slitinn á 15—20 km. kaíla, ekki
þó í einu lagi. Við Skeiðará mun
síminn slitinn á 7—8 km. svæði,
þar nokkru fyrir vestan líka á
kafla, og vestur við Blautakvísl
eru líka miklar skemdir. Hefir
Blautakvísl hlaupið og sópaS
símalínunni burt á nokkru svæði.
En eins og áður er sagt, er ekki
hægt að segja neitt með vissu
um símaskemdirnar fyr erí
skýrsla eftirlitsmanna er komin.
Annars má geta þess, að skip,
sem eru fyrir sunnan land, hafa
tilkynt að þau hafi sjeð
stóra röst íshranna og
vikurs langt frá landi
og þar inn í milli síma-
staura, sem fíóðið hef-
ir borið fram.
Þessi ís og vikurhrönn, sem
hjer er talað um, var langt und
an landi og var afarlöng.
• Símskeyti kom í gær um það
að símastaur hefði þá rekið á
Meðallandsfjöru.
Gjafir til björgunarskútu fyrir
Vestfirði. Frá kvenfjelaginu
„Brynja“ á Flateyri kl. 200.00, frá
Vestfirðingamóti í Reykjavík kr.
45.00. — Kærar þakkir. — J.E.B.
Leikaraheimsókn
frá Konunglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn.
Leikfjelag Reykjavíkur ákvað
í vetur að gera liinum ágætu leik-
urum við kgl. leikhúsið í Kaup-
mannahöfn, frú Else Skouboe og
Ejvind Johan Svendsen, tilboð
um að sýna sjónleikinn „Hr. Lam-
bertier“, sem þau leika tvö ein í
hjer í Reykjavík í vor. Fyrir
liönd fjelagsins samdi sendiherra
Sveinn Björnsson við stjórn kgl.
leikhússins og liefir fjelaginu nú
borist skeyti frá sendiherra þess
efnis, að leikhússtjórnin sam-
þykki fyrir sitt leyti, að leikar-
arnir sýni sjónleikinn hjer. End-
anlega hefir eigi verið samið við
sjálfa leikarana, en bæjarbúar
myndi áreiðanlega fagna því, að
samningar mættu takast, svo þeir
fengi að sjá leik þeirra, sem er
með miklum ág'ætum og var sýnd-
ur 80 sinnum í röð á kgl. leikhús-
inu í fyrravetur. Á síðastliðnu
hausti sýndu leikararnir leikinn á
þjóðleikhúsinu í Osló að boði
leikstjórnarinnar þar.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ-:
Álieit og gjafir. Frá Stefáni Gunn
arssyni 1 kr. Frá Þorbirni Ólafs-
syni Hraunsnefi 5 kr. Frá Ólafi
Pjeturssyni kr. 4.25. Frá Hall-
grímsnefnd Kálfafellssólmar. Sam-
skot kr. 40.00. Kærar þakkir. Ól,
B. Björnsson.
BofiardtarssiiðaB
í Reykjavík er laus. Verður skipuð embættisgengum lög-
fræðingi. Laun verða ákveðin með samkomulagi. Umsóknir
stílaðar til bæjarstjórnar Reykjavíkur, sjeu komnar á
skrifstofu borgarstjóra fyrir 12. maí næstkomandi.
Borgarstjóiánn 1 Reykjavík, 31. mars 1934.
ffón Þorláksson
Nýtíibu
dömiiskór
fyrir vorið og sumarið, margar
tegundir nýkomnar.
Jón Stefánsson
Skóverslun
(Útibúið Austurstræti 20).
■'WMMflWmill—MMWKnttOMIMBMBB———BKWWTWIln ■
llppboð.
| Opinbert uppboð verður haldið í Aðalstræti 8, fimtudaginn
12. þ. m„ kl. 10 árd. og verða þar seldir alskonar húsmunir, þai- á
meðal 4 píanó, 1 radíógrammifónn, ca. 40 grammofónar og fiðlur,
Borðstofuhiísgögn, dagstofuhúsgögn, svefnlierbergishúsgög'n, einstakir
hægindastólar, peningaskápur, skrifborð og skrifborðsstúlar, dívanar,
bókaskápar og bækur, málverk og myndir, lampaskermar og vegg'-
klukkur og ca. 50 görfuð loðskinn.
Ennfremur verður seld vefnaðarvara, úrval af alskonar dömu-
kjólum og regnfrökkum, kvenullarpeysur, prjónadragtir og margt
fleira. Svo og ýmsir verðmætir gnll- og silfurmunir, þar á meðal
ljósastjaki og' úr karla og kvenna.
Loks verða seld 2 þúsund króna forgangshlutabrjéf í Útvegs-
banka íslands h.f. auk ýmsra skuldakrafna.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 3. apríl 1934.
Björn Þórðar§on
Skrifstofustarf.
Stúlka, vön skrifstofustörfum, helst fær í hraðritun,
ensku og dönsku, getur fengið atvinnu nú þegar.
Bernh. Petersen.
Sími 1570.
Vigfús Guðbrandsson & Co.
Klæðaverslun og saumastofa, Austurstræti 10 (uppi).
Nýtt úrval af vor- og sumarfataefnum.