Morgunblaðið - 04.04.1934, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur
Fjeíags átvarpsnotenda
.F.I.
Sálarrannsóknarf j elag íslands
heldnr fund í Varðarhásinu,
fimtudagskvöldið 5. apríl kl. 8%.
Aldrei hefir veriS ann-
að eins skíSafæri nje
fjallaveður eins og
núna um páskana.
Prófessor Þórður Sveinsson
flytur erindi.
Pjelagsmenn sýni ársskýrteini
fyrir 1934 við innganginn. Skír-
teini fá þeir við innganginn, sem
ekki hafa þeg'ar fengið þau.
Stjórnin.
luftBDOltar
allar stærðir,
fást hjá
H Bleilng
Laugaveg 3. Sími 4550.
Hýier vfirsir
teknar upp
daglega.
MsiEkester.
Sími 3894.
0óðir*og ódýtir
svampar, margar tegundir. —
Tannkrem og’ tannburstar, fjöl-
breytt úrval.
Rakkústar, raksápur og rak-
krem, margar tegimdir.
ÍAUGAVÐG^APOTEK
Það er vanalegt að skíðafólki
og þeim, sem hafa unun af að
vera í faðmi náttúrunnar upp
til fjalla hjer sunnan lands,
verði helst að öllum óskum sín-
um um páskaleytið. Og að þessu
slnni brást ekki páskahelgin, því
að aldrei, svo menn hafi reynt,
hefir skíðafæri á fjöllum verið
jafn dásamlegt, nje veður jafn
guðdómlegt, eins og um þessa
páskahelgi.
Sólskin á háfjöllum, snjór í
hlíðum og snjór í dölum! Hvað
getur guðdómlegra fyrir skíða-
manninn og þá, sem vilja lyfta
sjer upp úr hversdagsmollu og
ryki bæjarins?
Reykvíkingar kunnu líka að
meta þessa gæsku náttúrunnar.
Um skírdagshelgarnar og pásk-
ana var svo ótölulegur grúi fólks
á skíðum uppi hjá Kolviðarhóli,
Svanastöðum, Hveradölum, Víf-
ilfelli, Lögbergi, Hengli, Skála-
felli, í Jósepsdal, hjá Kárastöð-
um í Þingvallasveit, og í öllum
hlíðum og brekkum nærri bæn-
um, þar sem snjó var að finna,.
að slíkt hefir aldrei áður sjest.
Er það mál manna, sem best
vita, að á annan í páskum hafi
eigi færri verið á skíðum upp
um heiðar, fjöll og firnindi, en
1500—2000 manns — máske
miklu fleira.
Þegar þetta fólk kom svo nið-
ur í bæinn seint á annan páska-
dag, varð öllum starsýnt á það.
Það vakti sjerstaka eftirtekt
allra á götunni, ekki vegna bún-
ings síns, skíða og skíðastafa,
heldur vegna þess hvað það var
frjálsmannlegt og — sólbrunn-
ið. Það bar með sjer ofan í bæ-
inn andblæ fjallanna og áhrif
mikilleiks sólar, snæs og hins
hreina lofts. Það var sem sópaði
að því — og vegfarendur stóðu
og horfðu á eftir því, og óskuðu
að þeir hefði verið með í skíða-
ferðinni, eða vonuðu að sjer
mætti auðnast að vera í næstu
för.
var haldinn í Varðarhúsinu, mið-
vikudaginn 28. f. m.
Kosin var þriggja manna nefnd
til þess að samræma lög fjelags-
ins við lög' „Sambands ísl. út-
varpsnotendafjelaga". Kosningu
hlutu: dr. Ouðbr. .Jónsson, Elís O.
Guðmundsson fulltrúi og Einar B.
Guðmundsson málfærslumaður.
Þá fór fi’am tilnefning 6 manna
til að vera í kjöri AÚð kosningu í
útvarpsráð. Kosningu hlutu:
Maggi Júl. Magnús læknir með
118 atkv., Björn Arnórsson stór-
kaúpmaður með 112 atkv., Helgi
H. Eiríksson skólastjóri með 109
atkv., Magnús Jochumsson póst-
fnlltrúi með 104 atkv., Hafsteinn
Bergþórsson skipstjóri með 102
atkv., Guðbrandur Jónsson rit-
höfundur með 99 atkv.
Eru þessir rnenn því rjett til-
nefndir af hálfu fjelagsins til að
vera í kjöri við kosningú í ttt-
varpsráð.
Þá fór fram stjórnarkosning og'
var M. Júl. ^íagnús læknir kos-
inn formaður með 97 atkv.
Varaformaður var kosinn Björfl
Arnórsson stórkaupmaður með
108 atkv..
Meðstjórnendur voru kosnir:
Þórður Runólfsson vjelaeftirlits-
maðúr með 101 atkv., Svavar
Hjaltested framkvæmdastjóri
með 97 atkv. og Kristófer Sigurðs
son slökkviliðsstjóri með 93 atkv.
Vantraust
á Jónas Þorbergsson.
Á fundinum kom fram svohljóð-
andi tillaga frá Lárusi Jóhannes-
syni hrm.:
Fundurinn ályktar að lýsa
megnu vantrausti á núverandi út-
varpsst.jóra, Jónasi Þorbergssyni.
Var tillagan samþykt með 106
atkv. gegn 29, en nokkrir fund-
armenn tóku ekki þátt í at-
kvæðagreiðslunni.
Handtaka
Sawmel InsuII.
London, 3. apríl. FÚ.
Flótti Samuel Insulls undan
valdi laganna AÚrðist nú á enda.
Á sunnudaginn var bann tekinn
fastur í Istambul, e þangað hafði
skip hans komið til að taka vatn.
í gærmorgun úrskurðaði rjett-
urinn hann glæpamann, og ákvað
að hann skyldi afhentnr yfir-
völdum Bandaríkjanna. Samning-
ur Tyrklands og Bandaríkjanna,
um það, að hvort þeirra skuli
láta af hendi sakborninga hins,
hafði ekki verið staðfestur, en
ráðherrafundur, sem haldinn var
í gær, ákvað að þau skyldu ganga
í gildi nú þeg'ar, og samkvæmt
þeim verður nú Insull fenginn í
hendur því löggæsluvaldi sem svo
lengi hefir strítt við að ná hon-
um úr höndum Grikkja. Banda-
ríkjastjórn hefir verið tilkynt
þetta.
Samuel Insull hefir lýst yfír
því, að hann muni áfrýja úr-
skurðinum um kyrsetningu sína
og handtöku í Tyrklandi. Sak-
sóknari ríkisins í Tyrklandi hef-
ir sagt, að engin slík áfrýjun sje
möguleg. Samt sem áður segja
fregnir að breskur málafærslu-
M unið
Þ j óf n aðartryggingarnar.
Upplýsingar á
Vátryggingarskrifstofu
Sigfúsar Sighvatssonar
Lækjargötu 2. Sími 3171.
Sultiitaii
hlandað og jarðarberja og alt
annað til bökunar á lægsta verði.
Valdar kartöflur kosta 8 kr.
pokinn.
Hjörtur Hjartarson.
Bræðraborgarstíg 1 Sími 4256.
Mnnið A.S.L
Vers I unarsamningar
Breta.
London 3. apríl. FÚ.
V^rslunarmálaráðuneytið í
London á nú í viðskiftasamn.ing
um við ýms erlend ríki. Uppkast
hefir nú verið gert að samning-
um við Lettland og er búist við
því, að þeir verði undirskrifaðir
í þessari viku. Verslunarmála-
ráðuneytið bíður svars frá
írönsku stjórninni, um það, hve-
nær hún sje reiðubúin til þess
að halda áfram samningum
þeim, sem frestað var fyrir svo
sem hálfum mánuði. Samningar
við Pólland munu hefjast innan
þriggja vikna, og samningar við
Uraguay er vel á veg komnir.
Einnig er búist við því, að mjög
bráðlega hefjist samningar við
Holland og Japan.
Nýju !?íi'kiirr>ií»r:
Sögur frá ýmsum löndum, H. bindi, ib. 10.00.
Sagan um San Michele eftir Munthe, ib. 17.50 og 22.00.
Sögur handa börnum og unglingum, III. bindi, ib. 2.50.
iEgils saga Skallagrímssonar, útg. Fornritafjelagsins, ib. 15.0@*
Bðkaverslnn Sigf. Eymnnðssonar
ogBókabúð Austurbæjar BSE, Laugaveg 84
Til sfil
1) Lítið hús við Óðinsgötu. Verð 12 500 krónur.
2) Lóðin nr. 95 við Laugaveg. Verð 5000 krónur.
i 3) Húsgrunnur á horni Sellandsstígs og Holtsgötu. Verð 2 500 kr
4) Hús 2 hæðir og kjallari. Verð eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefa
Guðmundur Ólafsson & Pjetur Magnússon
hæstar jettarmálaflutningsmenn.
Símar: 2002, 3202, 3602.
Rúðugler
höfum við ávalt fyrirliggjandi, útvegum það einnig
beint frá Belgíu.
Eygert lris jáiss@B & €©,
ir.bviishús
með öllum nýtísku þægindum, með þremur stofum niðri
og fimm herbergjum uppi, óskast til kaups. — Þeir sem
kynnu að vilja selja, sendi tilboð sín með tilgreindu verði
og skilmálum í pósthólf 241, Reykjavík.
Aletruð bollajtiir
Til pabba — Til mömmu — Til ömmu — Til hamingju — Til vinu —
Til frænda — Til frænku — Pabba bolli — Mömmu bolli — Bestm
óskir — Gleym mjer ei — Hamrngjuósk á afmælisdaginn.
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
maður í Istambul hafi þegar lagt>
fram áfrýjunarbeiðni fyrir hönd 1
Insulls, og segir hann, að lögum;
samkvæmt þurfi að taka þá
beiðni eða stefnu til greina, áð-
ur en unt sje að vísa Insull úr
landi.
Pólitískir fangar
sleppa úr fangelsi.
London 3. apríL.FÚ.
Fjórir jafnaðarmenn og tveir
Nazistar hafa sloppið úr fang-
elsi í Linz og óttast austuriúsk
stjórnarvöld, að þeir sjeu þegar
komnir yfir landamæri Austur-
ríkis inn í Þýskaland. — Meðal
þeirra var einn leiðtoginn í fe-
brúarbyltingunni á Efra-Austur-
ríki.