Morgunblaðið - 03.06.1934, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
^BtqMCSW i
Á Húsavík varð jarðskjálftinn
svo snarpur að fólk datt á götSv
Húsavík kl. 2.40 í gær.
Jarðskjalftinn var hjer sV'ö;
snarpur að annar eins hefir ekki
komið síðan á fyrri öld. I^ólk,
eem statt var úti við, datt UÍh
koll. Hús ljeku öll sem á þraiði
og forðaði fólk sjer út, en skemd
ir á húdum eða mannvirkjunt
munu ekki hafa orðið. Aftur á
móti mun eitthvað hafa brotnað
af leirtaui, sem hrundi niður og
smávegis skemdir á öðrum inn-
anstokksmunum, sem fjellu nið-
ur af hyllum.
Á Blönduósi
varð jarðskjálftinn svo mikill,
að fólk flúði þar út úr húsum.
En tjón varð þar ekki á húsum
eða húsmunum, svo blaðið hafði
fr j ett.
Á Hjalteyri
sprakk steinhús eitt, sem Bræðra
borg heitir, eign Vilhj. Árna-
sonar, svo það er ekki talið íbúð-
arhæft.
Aðrar skemdir urðu þar ekki,
svo heitið geti.
í Ólafsfirði.
Ólafsfjörður, laugardag.
Hjer urðu ekkiteljandi skemd-
ir í þorpinu, nema hvgð reykháf-
ar skemdust eitthvað.
Á Þóroddsstöðum sprakk gafl
í steinhúsi.
Lyfjaforði eyðilegst.
Grenivík, laugardag.
Hjer var jarðskjálftinn mikill,
þó ekki yrðu teljandi skemdir á
húsum eða öðrum mannvirkjum.
Til marks um það, hve hrist-
ingurinn var hjer mikill, má
geta þess, að í íbúð læknisins
þeyttist hattur af ofni, og kom
hann á legubekk, þar sem lækn
irinn hafði lagt sig til hvíldar.
Lækni sakaði þó ekki.
Því nær allur lyfjaforði lækn-
isins eyðilagðist.
Skemma hrynur
á Breiðumýri.
Breiðumýri, laugardág.
Jarðskjálftinn var hjer svo
mikill að torfveggur, í gamalli
baðstofu umsteypti«t, og gömul
skemma hrundi alveg.
Jarðskjálftans varð vart
víða um land.
í Mývatnssveit á Fjöllum og
á Sljettu varð vart við jarð-
skjálftann. En ekki munu menn
alment hafa orðið hans varir
austur í Vopnafirði.
I Grímsey varð jarðskjálftinn
svipaður og á Húsavík, og líkt
mun hafa verið í utanverðum
Skagafirði.
Frá Málmey er símað, að þar
hafi járðhræring verið allmikil,
og hrundu björg úr Þórðar-
höfða. Á Vestfjörðum varð og
vart við kippinn. Hjer í Reykja-
vík fanst hann aðeins.
Upptök jarðskjálftans.
Þorkell Þorkelsson veðurstofu
stjóri athuga strax í gær jarð-
skjálftamælana. »
Samkvæmt tilvísun þeirra áttu
upptök jarðskjálfanna að vera
í^tefnu NNA hjeðan og um, Ö0;0
km. frá Reykjavík. Eftir þeirjri
fjarlægð, ættu þau að hafa verið
einhversstaðar norðan við land
á Grímseyjarsundi.
En eftir því, sem fregnir
herma, er líklegt, að fjarlægðin;
Hjer birtist mynd af hinni
fyrirhuguðu rafstöð við Ljósa-
foss í Sogi.
Á myndinni sjest stíflugarð-
urinn á fossbrúninrfi, með út-
búnaði fyrir botnrásir og yfir-
rensli yfir stífluna.
Til vinstri handar, sem
verður vestanvert við ána, er
inntaksstíflan, með opum fyrir
5 þrýstivatnspípur.
Af þeim verða fyrst aðeins
notaðar tvær þeirra, en hinar
ekki fyr en stöðin verður stækk-
uð.
Fyrir neðan þær verður reist
stöðvarhúsið, sem sjest á miðri
myndinni. Hús það getur rúmað
þrjár vjelasamstæður. En af
þeim verða tvær settar upp í
byrjun.
Vestur úr stöðvarhúsinu verð-
ur útbygging, sem sjest til vinstri
á myndinni, og ætluð er fyrir
rafmagnsbúnað og spennubreyt-
ingu. Út úr því gengur rafveitu-
línan til Reykjavíkur, sem sjest
lengst til vinstri á myndinni, og
á að flytja raforkuna til bæjar-
ins með 60 þúsund volta spennu.
Hinn
vaxandi flokkur.
Sig’ur Sfálfstætfisflokksins
er sigur bfólfarinnar.
atS.tki*.-'■"
Vaxandi flokkur.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini
stjórnmálaflokkurinn í landinu,
sem hefir verið í jöfnum og stöð-
ugum v(>xti , hjá ; þjóðinni síðustu
árin. Hann er jafnframt lang’fjöl-
mennasti stjórnmálaflokkurinn í
landinu og eini flokkurinn, sem
hefir möguleika til að ná hrein-
um meirihluta vil kosningar þær,
sem í hönd fara.
Eftirfarandi tölur frá þrem síð-
ust’u almennu alþingiskosningum
sýna fylgi flokkamia hjá þjóð-
inni.
Árið 1927 voru atkvæðatölur
flokkanna, sem hjer segir:
íhaldsfl. 13616 atkv. 42.5%
Framsóknarfl. '9532 — 29.8%
Alþýðufl. 6097 — 19.1%
Frjálsl.fl. 1858 — 5.8%
Utan fl. 904 — 2.8%
Árið 1931 voru atkvæðatölurnar
sem hjer segir:
Sjálfst.fl. 16891 atkv. 43.8%
Frams.fi. 13844 — 35.9%
Alþýðufl. 6197 — 16.1%
Kommúnistar 1165 — 3.0%
Utan fl. 446 — 1.2%
Arið 1933 fjellu atkvæðin þann-
ig:
sje' ekki svo mikil, upptökin sjeu
nær því að vera, þar sem mest
hvað að jarðskjálftanum, vest-
anmegin Eyjafjarðar, nálægt
Svarfaðardal.
Einsdæmi í sögunni.
I Það mun vera alveg einsdæmi
;í sögu landsins, að mest hafi
kveðið að jarðskjálfta í Eyja-
firði. Þó jörð hafi þar oft skolfið,
hefir það jafnan verið í sam-
bandi við meiri jarðskjálfta í
eldfjallahjeruðum landsins, og
þá einkum í Þingeyjarsýslum.
Sjálfst.fl. . 17131 at.kv. 48.0%
Frams.fl. 8530 — 23.9%
Alþýðufl. 6864 — 19.2%
Kommúnistar 2673 — 7.5%
Utan fk 480 — 1.4%
Tölur þessar sýna, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er ekki einungis
langfjölmennasti stjórnmálaflokk-
urinn í landinu, heldur sýna þær
einnig og sanna, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er sá eini hinna
stærri flokka, sem er í jöfnum og
hröðum vexti.
Tölurnar sýna ennfremur, að
fast að því helmingur kjósenda
í landinu fylkja sjer undir merki
Sjálfstæðisflokksins. Aðrir flokk-
ar erti. þar langt fyrir neðan. Af
þessu leiðir, að Sjálfstæðisflokk-
urinn einn hefir möguleika til að
ná hreinum meirihiuta við kosn-
ingarnar 24. júní.
Rauðu flokkarnir
Aðalkeppinautar Sjálfstæðis-
flokksins við þessar kosningar eru
rauðu flokkarnir þeir eru þrír
talsins: Alþýðuflokkurinn (sósíal-
istar), Framsóknarflokkurinn
(Tímamenn) og kommúnistar.
En þótt flokkarnir sjeu þrír sem
kepþa, er stefnan ein og sama —
sósíalistastefnan.
Álþýðnflokksmenn og komm-
l'iriisfárliafá'kósíáíistastefnuna op-
inberlega á sinni stefnuskrá. Þá
skiltir :ekkert hema leiðiri, sem
fara eigi tií að ná hinu setta
marki. Alþýðuflokksmenn látast
vilja fara hina löglegu leið (þing-
ræðisleiðina), en kommúnistar
vilja. stofna til byltingar.
Báðir þessir flokkar vilja
granda núverandi þjóðskipu-
lagi, sem byggist á einstaklings-
framtakinu og frelsi einstaklings-
ins. Þeir vilja stofna ráðstjórnar-
ríki eftir rússneskri fyrirmynd,
þar sem persónufrelsið er afnum-
ið og alt fjötrað í viðja einokun-
ar og kúgunar. %
Þegar Framsókna^Íokkurinp
ldofnaði á aukaþingiriu í vetur,
fór annar helmingur flokksins
(Tímamenn) í raun og veru yfir
t.il sósíalista, en ganga þó enn til
kosninga sem sjerstakur flokk-
ur, undir gamla flokksnafninu.
Tímamenn hafa frá npphafi
vega verið sósíalistar. Það
sýndi best stjórnarfar - þeirra á
árunum 1928—1931. En'þeir bafa
verið g'rímuklæddir sósíalistar og
þess vegna hafði þeini tekist að
fleka nokkurn hluta bænda til
fylgis við sig. ;
En nú hafa Tímamenn kastað
grímunni að fullu og,- öllu. Það
sönnuðu samningarnir við sósíal-
ista á aukaþinginu síðasta, þar
sem veita átti sósíalistum alræð-
isvald yfir öllum verkálýð lands-
ins. Það sanna einnig fcíðustu að-
farir forsprakka Tímamanna, því
að sannað er, að þ^ir standa
á bak við gerræði það, .er Alþýðu-
samband íslands beitir nú gagn-
vart opinberum framkvæmdum í
landinu.
Þeir kjósendur, sem greiða
Tímamönnum atkvæði", við kosn-
ingarnar 24. júní, greiða því sósí-
alistastefnunni atkvæ&i. Þetta
verða kjósendur vel að, glera sjer
ljóst. j
Nú er það alveg víst, -að þeir
þændur landsins, sem ^bingað til
hafa kosið með FramsóknarI’Iokkn
um ,eru yfirleitt , andstæðir
stefnu sósíalista. Það sýudi best
velvild sú, sem þeir Jóu í Stóra-
dal og Hannes á Hvammstauga
áttu að mæta jjieðal JSýamsékn-
arbænda, þegar þeir ^fjtuðip að
styðja áósíalistastjórnstsáu yuka-
þinginu í vetur. ð'(
Er því bersýnilegt, 1 að Tíma-
menn geta nú ekki væn^t: ■fyig'is
bænda, svo nokkru nenii. iBæná-;
ur kjósa ekki sósíalista-
Tímaflokkurinn er deyjandi
flokkur. Þær fáu hræðA, Aem eft-
ir eru í flokknum hvur£a>: smám-
saman yfir til sósíalista- :
Flokkur þjóðarinnar.
En það er ekki aðeins þetta
viðsýni Sjálfstæðisflokksins, sem
hefir aflað honum þessa mikla
kjörfylgis. Hin margháttuðu
störf flokksins á þjc$m,álasvið-
inu hafa þar einnig' lagt .þungt
lóð á vogarskálina. Þ^rftbít því
sambandi ekki annað en ininna á
viðreisnarstarf flokksins-!9í ;,f.jár-
m álunum kjörtímabilið., I j 4921—
1927, en fjármálin eru-.og verða
jafnan höfuðviðfangsefijj .: á s,yiði
þjóðmálanna. (
Það er nú öllum ljós^, orðið, að
ríkissjóður myndi nú . skuldlaus’
með öllu, ef fylgt hefði yerið fjár-
málastefnu Sjálfstæðismanna frá
árunum 1924—1927. f þe^ stað er
ríkissjóður nú að rogast með yf-
ir 25 milj. kr. sknldabagga, sem
krefst um tveggja milj. króna
árlega í vexti. Þetta eru leifar
fjármálastjórnar Tímamanna..
Hitt er mönnum einnig Ijóst orð
ið, að ef Tímastjórninni hefði
ekki verið hrundið af stóli 1932,
myndi ríkissjóður nú orðinn
gjaldþrota. Þetta sýnir hve afar-
áríðandi það er, að ekki verði
framar leyft ábyrgðarlausum fjár-
málaglópum að fara lueð fjár-
málastjórn landsins.
Kosning'ar þær, sem nú fara í
Þetta
Suðusúkkulaði
Fyrir gesti yðar
og; heimilisfólk,
ekkert kaffi eins gott og
»aróma“.
Munið nafnið
„A RÓMA“
þegar þjer viljið fcá óvið-
jafnanlega gott kaffi.
er tippáhald alíra
htismæðra.
R. PEDERSEN.
SABEOE - FRYSTIVJELAR,
I
MJÓLKURVINSLUVJELAR.
SÍMI 3745, REYKJAVÍK.
Svona
hvítar
tennur
getið þjei
haft með
því að
n o t a
á v a 11
Rósól-tannkremið í þessum
túbum:
hönd, bljóta að marka alvarleg
tímamót í stjórnmálasögu þjóð-
ar vorrar.
Að 6 árum liðnum á þjóðin að
segja síðasta orðið í sjálfstæðis-
málinu-
Næsta kjörtímabil hlýtur að
ráða mjög úrslitum um það, hvað
þjóðin — ekki aðeins á að g'era —
beldur hvað hún getur gert í því
máli. Því að engin þjóð getur til
lengdar verið sjálfstæð, sje hún
ekki fjárhagslega sjálfstæð.
Þetta, m. a. sýnir, hve afar á-
ríðandi það er, að sá flokkur fái
völdin í landinu, sem liefir dug og
þor til að hefja g'agngerða við-
reisn í f jármálunum,
Þess vegna, kjósendur! Minnist
þess á kjördegi, að
Sigur Sjálfstæðisflokksins
er sigur þjóðarinnar!