Morgunblaðið - 03.06.1934, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.06.1934, Qupperneq 6
e MORGUNBL^ ÐIÐ „Gnllioss“ fer á þriðjudagskvöld kl. 8 um Vestmannaeyjar beint til Kaupmannahafnar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi á þriðjudag. nDettifoss(C fer á miðvikudagskvöld (6. júní) í hraðferð vestur og: norður. Farseðlar óskast sóttir fyrir háde^i á miðvikudag. Hús i Hafnarfirði til sölu, við sanngjörnu verði, lítilli útborgun og vægum greiðslukjörum. — Skifti við hús í Reykjavík, gætu komið til mála. — Semjið sem fyrst við undirritaðann, sem gef- ur frekari upplýsingar. Fasteignasalan í AUSTUR- STRÆTI 14, opin 11—12 og 5—7. — Símar .4180 og 3518 (heima). Helgi Sveinsson Valíð og metíð spað- saltað dílkakjöt í heíltim og hálfum tunntim. Samband (sl. samvinnufielaga. Sími 1080. Tilkynnlng. Hjer eftir verða * engar veitingar seldar eftir kl. 12 á miðnætti. Sig. Daníelsson Kolviðarhól. Sjöttigsaftnæí i. Sr. Jón Árnason. í dag langar mig til að minnast eins af. embíéttismönnum ríkisins, sem að vísu aldrei hefir ]átið mik- ið bera á sjer opinbeilega, en hinsvegar unnið sitt lífsstarf með þeirri samviskusemi, trúmensku og hjálpsemi sem einkennir sann- an og góðan" mann. Þessi maður er fvT'vegnrl i prestur á Bíldudal, sjer Jón Arnason. Á morgun á liann sjötugsafmæli, og jeg efast ekki um að þeir, sem honum hafa kynst senda honum hlýjar árnaðaróskib *. í því tilefni. Jeg veit það með vissu, að sjera Jón hefir aklrei á sinni ævi eign- ast óvin, en hinsvegar marga vini fyrir sín*' Sramkomu. Þó hefir hann liaft' í |mörgum erfiðleikum að stríða um ævina. Hann var fyrir 4J á-rnm skipaður prestur í Otrardalsprestakalli árið 1891. Þvr prestakajli þjónaði hann í 37 ár, til arsíhs 1928 að hann flutt- ist til Reykmpíkur vegna heilsu- bilunir w11'' Otrardalsprestakall er afar erE- itt ýföfebðXO og sjera Jón hefir sannarlega fengið að reyna erfið- leikana, sem fylgja íslenskum em- bættis9>aniþ, ri sem tekur aðsetur sitt í erf^ðu, hjeraði, enda hafa erfið ferðahig'gert sitt til að hann tapáði heilsunni. Slíkur maður sem sjera Úf'ótf var, hlaut að vekja á sjef 'ííUtfénningstraust, enda voru honum -falin mörg trúnáðar- störf. U;uuyc var hreppsnefndar- maður og' oddviti í lengri tíma á Bílduclái öj9 sýslunefndarmaður um langtrfskhið. Og það hef jeg fyrir sa-tt, að aldrei hafi neinn frá lionum ,sypja,ndi farið. Enda naut hann þar góðrar hjálpar, þar sem itami úignaðiít svo góða og mynd- arlega kfiiuu»Jóhönnu Pálsdóttur, sem altaf hefir staðið fyrir heimil- inu með rahgn og prýði. Heimili prfestshjónanna á Bíldu- dal var a iuiáíað fyrir gestrisni og greiðasemi, \4g presturinn var af öllum sóknal’börnum sínum álit- inn nauðsynlegur ráðanautur ef eitthvað út, af bar. Jeg býst vlð, að það verði fleiri en jeg, sém .árna sjera Jóni allra heilla á sjötfugsafmælinu 'og óski honum langrá lífdaga. G. P. E'agsbrúnftrtaxti. Kommúnist- inn í bæjarsjþórn, benti St. Jóh. Stefánssyni (á það á bæjarstjórn- arfundi síðast, að hann væri horf- inn frá því að lieimta Dagsbrúnar- taxta fvrir vegamenn í Sogsvegi, eins ’ og í fýrra. Sagði Stefán að þessi „undanþága“ væri samkv. lögum Dagsbrxxnar, enda hefðu vegamenn þessir upp úr ákvæðis- vinnunni þar, hjerumbil Dag's- brúnartaxta. Þurkar valda stórtjóni í tveim heimsálfum. Verðlag hækkar á korni. Eondon 2. júní. FÚ. Þurkar valda nú óbætanlegu tjóni á uppskeru í tveimur heims álfum. í suðaustur Evrópu hafa verið þurkar samfara afskapleg- um hitum í síðastliðna þrjá mán- uði. Sums staðar hefir fólkið gripið til fornra töfrabragða til þess að ákalla vatnsgoðin og biðja þau um regn, 1 einu hjer- aði í Júgóslavíu hefir fólkið kom ið saman til fórnfæringa sÁ forn um sið, og varpað fórnardýri í 1 vatn til friðþægingar. Trú þeirra var launuð með því að hellirign- ing hefir verið í þessu hjeraði tvo undanfarna daga. Þurkarnir eru farnir að hafa áhrif á verðlag á korni og brauði. Fregnir frá Moskva segja, að verð á hveitibrauði hafi tvöfald- ast þar í borginni. í Rússlandi er talið, að uppskeran geti orðið fullnægjandi, ef góðar rigning- ar geri hjer eftir. í Köln er jörðin orðin gul og skrælnuð af hita, og vatn er þar tæpast til þess að fullnægja neysluþörfum manna. I Frakklandi er ástandið svipað. í Bandaríkjunum eru hitarnir þó mestir og verstir, og meiri en dæm-i eru þar til áður. Bændur eru sjerstaklega illa staddir, af því að þeir höfðu minkað sáð- land sitt, og eru nú helst horfur iá því, að uppskeran verði varla helmingur á við það, sem hún er venjulega á því landi, sem rækt- að er. Verð hefir hækkað á korn- markaði víðast hvar síðustu tvo daga, en hefir lækkað aftur af því að úr- komuhorfur hafa batnað, eða mönnum hefir virst svo. Það er talið líklegt, að þurkarnir geti gert miklu meira, til þess að minka hinar stórkostlegu korn- birgðir, sem til eru, en nokkrar stjórnarráðstafanir hefðu gert. Fyrirætlanir Roosevelts mæta æ meiri andstöðu í Bandaríkjunum, verkföll og óeirðir magnast. London 2. júní. FB. Alvarlegar róstur urðu aftur í gærkvöldi í Toledo í sambandi við verkfallshótun rafveitu- manna, en sú verkfallshótun er borin fram til mótmæla gegn fimtungs lækkunar á kaupi þeirra. Verkfallið átti að hefjast í morgun, en því var aflýst á síðustu mínútu. Ekkert samkomulag 'hefir tek- ist í verkfalli bifreiðasmiða, og ekki búist við því að samkomu- lag náist um það fyrst nm sinn. Tilraunir Johnsons hershöfð- ingja til þess að koma á sam- komulagi við verkamenn í vefn- aðariðnaðinum hafa mistekist, og verkamönnum mun verða bocf ið að leggja niður vinnu á mánu dagósmorguninn, til þess að mót mæla fjórðungslækkun á baðm- ullarframleiðslunni. Verkamenn í stáliðnaðinum hóta einnig verkfalli, vegna þess að þeim hafi aldrei verið veitt- ur rjettur sá, sem viðreisnar- áætlunift geri ráð fyrir, til þess að semja í heild um bætt kjör sín. Það er talið sennilegt, að for setinn muni sjálfur þurfa að skerast í málið til þess að varna vinnustöðvun í stálsmiðjunum. Þýskur blaðamaður Dr. Wö’lf Silgradt, kom hingað rííeð Dettj- fossi. Hann ætlar að ferðast hjer um landið í sumar. Hann skrifar greinar í „Berliner Tageblatt“. Hjálpræðisherinn. Samkomur í dag: Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2. Útisam- koma á Lækjartorgi kl. 4. Hjálp- ræðissamkoma kl. 8. Kapteinn Fisgaa og Lautinant Kronberg Hansen frá Noregi tala. Lúðra- fl. og' strengjasveitin spila. Allir velkomnir. m Verkföllin á Spáni og ráðstafanir stjómarinnar. Madrid FB 2. júní. Að afstöðnum fundi, sem á voru forsætisráðherrann, verka- mála, landbúnaðar og menta- málaráðherra, var tilkynt, að tekist hefði að finna grundvöll að samkomulagi, sem leiddi af sjer að eigi mundi verða gerð nein tilraun til þess að koma á verkfalli því í landbúnaðinum, sem vofað hefir yfir að undan- förnu. UP. Sættir í Saarmálinu. Genf, 2. júní. FB. Frakkar og Þjóðverjar hafa náð samkomulagi um þjóðarat- atkvæðið í Saar, sem haldið verð- ur í janúar 1935. Báðar ríkis- stjórnirnar hafa fallist á, að reyna ekki á nokkurn hátt að ná sjer niðri á hinni, hvernig svo sem úr- slitin verða, svo og að setja á stofn dómstól, til þess að gera út um deilumálin. — Alþjóðalögregla verður aðeins stofnuð til lög- gæslu í Saar, ef Þjóðabandalagið telur það óhjákvæmilegt. Flugvjelar til leigu. ; í Englandi hefir nýlega verið stofnað fjelag, sem leigir mönnum flugvjelar án flugmanns, al- veg eins og hægt er að leigja bif- reiðir án bifreiðarstjóra. Þetta er gert til þess að hjálpa hinum morgu, sem hafa flugmannspróf, qn ékki efni á því sjálfir að kaupa ðjer flugvjel. Þetta nýja fjelag leigir út flugVjelar sem rúma flugmann ,tvo farþega og nokk- urn flutning. Flugvjelar af þess- ari ger$i kosta 1300 sterlingspund, en þær eru leigðar fyrir 4 ster- lingspund á dag, eða minna þeg- ar um fleiri daga er að ræða. Þeir, sem leigja þær, verða auk þess sjálfir að borg'a bensín, olíu og vátryggingargjald. Dagbók. Veðrið í ær: Loftþrýsting er mjÖg'' há yfir Bretlandseyjum, en yfir Vestanverðu Atlantshafi og iíúrænlandi er lágþrýstissvæði. Liggúr hlýr loftstraumur norður eftir miðbiki Atlantshafs og norð- uh yfir Island. Á S- og V-landi er rigningarveður með 10—12 st. bita, og er vindur allhvass sums- staðar á V-landi. Á N- og A-landi er vindur víðast mjög liægur, veður þurt og hlýtt, liiti 12—1!> st. og nær jafnvel 17—18 st. á nokkrum stöðum. S-veðráttá mun haldast hjer á landi fram vfir helgi, líklega verður minni úr- koma á morgUn og birtir ef tiL vill í lofti. Veðurútlit í Rvík á morgun: S- kaldi. Smáskúrir. Útvarpið í dag': 10.40 Veður- fregnir. 11.00 Messa í Fríkirkj- unni (síra Friðrik Hallgrímsson). 15.00 Miðdegisútvarp: Tónleikar (frá Hótel Island). 18.45 Barna- thni (Arngrímur Kristjánsson).. 19.10 Veðurfregnir. 19.25 Gramffló- fónn: Lög úr óperunni „Faust'' eftir Counod. 20,00 Klukkuslátt- ur. Fr jettir. 20.30 Erindi: LTm smáorð (Ragnar E. Kvaran). 21,00 Grammófóntónl.: Brahms: Fiðlukonsert í D-dúr, Op. 77. —- Danslög til kl. 24. Útvarpið á morgun: 10,00« Veðurfregnir. 12.15 Hádegisút- varp. 45.00 Veðurfregnir. 19.00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir, 19.25 Grammófónn : Tschaikowski: Nussknaeker-Suite. 19,50 Tón- leikar. 20.00 Klukkusláttur. —* Frjettir. 20,30 Frá útlönd- um: (síra Sigurður Einars- son). 21.00 Tónleikar: a) Alþýðu- lög' (Útvarpshljómsvéitin). b) Einsöngur (Pjetur Jónsson). c) Grammófónn: Mozart: Symphonia o. 34 í C-dúr. Togarinn Ver kom af veiðum í gærmorgun með 85 tn. lifrar. , Alþýðubókasafnið verður h.kað í dag og alla sunnudaga til 1, september. Hollendingurinn fljúgandi heitir skjmtdeg' og spennandi þýsk mynct, er Nýja Bíó sýnir í kvöld. Aðalhlutverkið leikur Harry Piel. Kappleíkurinn milli K. R. og Vals,’ úm úrslit í öðrum flokki, ei* fyrsti mikilsvægi kappleikurinn á sumrinu, sem seldur seldur er að- gangnr að. Er ekki að efa að bæði f jelögin geri alt, sem í þeirra valdi stencíur til þess að vinna þenná leik og má búast við að áhorfend- ur yerði margir á Iþróttavellin- um kl- 5 í dag.-Mannval er í báðum fjelögunum og þau mjögk jöfn. svo tvísýnt er um úrslitin. Meiðyrðadómur. Fyrir nokkru síðan höfðaði stjórn Elliheimilis- ins „Grund“ meiðyrðamál gegn Birni Bjai-nasyni bæjarfulltrúa kommúnista hjer í bæ, út af ýms- um ummælum um Elliheimilið og stjórn þess, í bæklingi þeim, sem kommúnistar gáfu út fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar í vetur og nefndist „Bæjarstjórn auðvalds- ins fyrir dómstóli verkalýðsins“, en Björn er talinn höfundur að. Voru ummælin dæmd dauð og ómerk, en Björn í 120 kr. sekt fyrir þau, en til vara í 8 daga fangelsi, svo skyldi hann og greiða 65 kr. í málskostnað til stjórnar Elliheimilisins. Sunnudagslæknir, Halldór Stef- ánsson, Laugaveg 49. Sæmundur G. Jóhannesson flyt- ur íúfjan trúvarnarfyrirlestur í Varðarhúsinu kl. 5 í clag. Allir vrfkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.