Morgunblaðið - 22.06.1934, Síða 2
M O R G TT N B l;A ÐI Ð
JPotewttRitöíft
Ötget.: H.t. Árvakur. Reykjavlk.
Rltetjðrar: Jön KJartaneeon,
Valtýr Stetáneaon.
Ritetjöm og atsrrelBela:
Auaturetrœti 8. — Ptml H00.
Au&lýelngaatjörl: E. Hattyers.
Auglýslngaskrlfstofa:
Austurstrœtl 17. — BIbjí 8700.
Helmaslmar:
Jön KJartansaon nr. 8712.
Valtýr Stet&nsson nr. 4220.
Áral óla nr. 8046.
E. Hafberff nr. 8770.
Áakrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á. mönuBi.
Utanlands kr. 2.60 á saánuBI
1 lausasölu 10 aura eintaklV.
20 aura steB Uesbök.
Síldartollurinn
og skrípaleikur sósíalista.
Til þess að breiða yfir síðasta gerræðið
við síldarútveginn, lugu sósíalistar því
upp, að forsætisráðherrann væri tilleið-
anlegur að afnema síldartollinn með
'Xf' ' f? I I
bráðabirgðalögum, ef miðstjórnir flokk-
anna væru því samþykkar.
'OP.k
I I
Altaf fer Alþýðublaðinu
fram. Nú er Emil Jónsson bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, farinn að
skrifa í blaðið um fjármál og
gengismálið!
Emil reynir að útskýra það
fyrir „alþýðunni“, hvaða afleið-
ingar það hefði fyrir hana, að
gera innkaup með lággengis-
seðlum.
Ójá; Emil getur útskýrt þetta.
Hann hefir reynsluna. Hann
hefir sjálfur undanfarin stjórn-
arár sín í Hafnarfirði verið að
gefa út einskonar seðla —
„gulu seðlana“ margumtöluðu.
Þeir eru ekki í há-gengi
„gulu-seðlarnir“ hans Emils
bæjarstjóra. En „alþýðan" í
Hafnarfirði fær þá samt sem
fulla greiðslu — í stað pen-
inga.
Nú vill Emil þessi komast
á þing og stjórna þjóðarbúinu.
Fyrirmyndin á að vera Hafnar-
fjörður — með „gulu seðlana“.
En hvernig skyldi fara um
gengi íslensku krónunnar, þeg-
ar ríkissjóður fer að greiða
Bretanum skuldir sínar með
„gulu seðlunum" hans Emils?
-----------------
Söngmótið mikia ^
í næstu viku.
Samb. ísl. karlakóra tilk.:
Annað sörfgmót ísl. karlakóra
hefst í Rvík á fimtudag 28. þ.
m. og stendur yfir til 1. júlí.
Þátttakendur verða: 1) Karla-
kór Reykjavíkur, söngstj. Sig.
Þórðarson, 2) Karlakór K.F.U.
M„ söngstj. Jón Halldórsson,
3) Karlakór iðnaðarmanna,
söngstj. Páll Halldórsson, 4)
Karlakór ísafjarðar, söngstjóri
Jónas Tómasson, 5) Karlakór-
inn Vísir, Siglufirði, söngstjóri
Þorm. Eyjólfsson, 6) Karlakór-
inn Geysir, Akureyri, söngstjóri
Ingim. Árnason, 7) Karlakórinn
Bragi, Seyðisfirði, söngstj. Jón
Vigfússon. Aðalsöngstjóri: Jón
Halldórsson. Væntanlega verða
haldnir 3 innikoncertar og einn
útikoncert, ef veður leyfir. Til-
högunin verður þannig, að hver
einstakur kór syngur sjerstak-
lega og svo allir saman (lands-
kórinn) og syngur landskórinn
eitt lag undir stjórn hvers söng-
stjóra. Á söngskránni verða 60
—70 lög eftir innlend og er-
lend tónskáld. Kórar þeir utan
af landi, er sækja söngmótið,
eru væntanlegir hingað síðari
hluta dags þriðjudag 26. þ. m.
(F. B.).
Síldarverð
Alþýðusambandsins.
í vetur ljet Alþýðusamband
íslands það „boð“ út ganga, að
verð á ferskri síld til söltunar
skyldi hækka úr kr. 5.00 (eins
og verið hefir undanfarin ár)
upp í krónur 7.00, miðað við
grófsaltaða tunnu. Mátti eng-
inn sjómaður skrá sig á síld-
veiðiskip, nema trygt væri að
7 króna verðið yrði greitt.
Það ræður nú að líkum, að
það er ekki á valdi Alþýðusam-
bandsins, þótt voldugt sje, að
ákveða verð síldarinnar í mark-
aðslöndunum. En það er ein-
göngu ’gangverðið í markaðs-
löndunum, sem skapar verðið
hjerheima.
En það mun nú komið á dag-
inn, að þetta frumhlaup Alþýðu
sambandsins með 7 kr. verðið,
hefir þegar haft mjög alvarleg-
ar afleiðingar fyrir síldarútgerð
landsmanna. Byrjuð var fyrir-
framsala á síld í markaðslönd-
unum, en sú fyrirframsala stöðv
aðist algerlega þegar boð Al-
þýOusambandsins var birt. Af-
leiðingin varð sú, að íslendingar
mistu markaðinn, því viðskifta-
mennirnir erlendu leituðu til
annara um kaup á síld.
Enn er ekki sjeð, hvaða tjón
hlýst af þessu frumhlaupi Al-
þýðusambandsins, en svo getur
'farið, að þeir með tiltæki sínu
útiloki meginþorra íslenskra
báta og skipa frá síldveiðunum
í sumar.
Skrípaleikur Alþýðuflokksins.
Þegar fram liðu stundir, og
burgeisar Alþýðusambandsins
sáu fram á, að þeir myndu engu
fá áorkað um síldarverðið á er-
lendum markaði, hvað svo sem
þeir ,,samþyktu“ hjer heima og
þegar þeir urðu varir mikillar
óánægju hjá sjómönnum út af
frumhlaupi þeirra, hugkvæmd-
ist ,,leiðtogunum“ að afgreiða
kvartanir sjómannanna með
blekkingum og lygum. Og þá
var það, sem Alþýðublaðið fór
að skrifa um síldartollinn.
Alþýðublaðið gat þess, að Al-
þýðuflokkurinn hefði „beitt sjer
fyrir“ því, að síldartollurinn
yrði afnuminn þegar á þessu
sumri. Á þann hátt átti nú að
tryggja það, að sjómennirnir
gætu fengið 7 kr. fyrir hverja
tunnu saltsíldar.
Sjómönnunum var nú sagt
það, að Alþýðuflokkurinn hefði
snúið sjer til fjármálaráðherra
um þetta mál, og að fjármála-
ráðherra hefði tekið því vel, að
afnema síldartollinn með bráða-
birgðalögum, ef miðstjórnir
flokkanna væru því fylgjandi.
Þessum skrípaleik Alþýðu-
flokksforingjanna er ekki þar
með lokið.
Næst kemur Alþýðubl. með
þá fregn, að miðstjórn Alþýðu-
flokksins hafi gert íyrirspurn
til „þingflokkanna“ (enginn
þingflokkur var þá til) um það,
hvort þeir væru því fylgjandi
að síldartollurinn yrði afnum-
inn. Var því svo bætt við, að nú
hefðu ,,leiðtogar“ sjómannanna
gert hreint fyrir sínum dyrum.
Nú væri alt undir því komið
hvað hinir flokkarnir gerðu!
Svikráðin komast upp.
Þegar hjer var komið, þótt-
ust „leiðtogar“ Alþýðuflokks-
ins hólpnir. Þeir höfðu sagt Sjó
mönnunum, að nú gætu þeir
fengið 7 kr. fyrir síldartunnuna,
svo framarlega, sem ,,íhaldið“
vildi drattast með.
En upp koma svik um síðir.
Útgerðarmannafjelagið á Ak-
ureyri sendi 20. þ. m. forsætis-
og fjármálaráðherra svo hljóð-
andi símskeyti:
„Útgerðarmannafjelagið á
Akureyri leyfir sjer að skora
á ríkisstjórnina að gefa út
bráðabirgðalög er afnemi út-
flutningsgjald af síld en í stað
þess komi hundraðsgjald, sem
af saltfiski, annars yfirvofandi
vandræði á komandi vertíð.“
■Þessu símskeyti svarar ráð-
herra samdægurs svohljóðandi:
„Ríkisstjórnin telur ekki rjett
mætt að gefa út bráðabirgðalög
sem efnislega breyta skattalög-
gjöfinni.“
Og nú getur Morgunblaðið
bætt þessu við:
Forsætis- og fjármálaráð-
herrann skýrði foringjum Al-
þýðuflokksins þegar í upphafi
frá því, að ríkisstjórnin sæi sjer
ekki fært að afnema síldartoll-
inn með bráðabirgðalögum.
Alt, sem Alþýðublaðið hefir
verið að segja um vilyrði af
hálfu ríkisstjórnarinnar, um að
afnema síldartollinn, ef flokk-
arnir væru því fylgjandi, eru
því vísvitandi lygar, sem ein-
ungis eru fram settar til þess
að blekkja sjómennina og
dylja frumhlaupið með 7 kr.
síldarverðið.
Hve lengi ætla íslenskir sjó-
menn að lúta forystu þeirra
manna, sem fyrst gera sjer Ieik
að því, að svifta þá atvinnu og
svo blekkja þá með vísvitandi
ósannindum ?
Sjálfstæðismenn! Munið
fundinn hjá Varðarhúsinu í
kvöld kl. Sy2.
Lánabrask
Landsverslnnarinnar.
Er það kaupQelag Jónasar frá
Hrífítt og forkólfa sósíaíísta, sem
ábyrgð ber á okarlánina?
Kvörtun til fjármálaráðu-
neytisins.
Þess hefir verið getið hjer í
blaðinu, að handiðnaðarmaður
sá, sem fekk 15 þúsund króna
lánið hjá Landsversluninni sál-
ugu, og sem hann varð að end-i
urgreiða með 18 þúsund krón-l
um, hafi í febrúar í vetur skrif-i
að fjármálaráðuneytinu og
kvartað yfir meðförunum á sjer.
Morgunblaðið hefir í höndumj
afrit af þessu brjefi og er það;
svohljóðandi:
Við undirritaðir eigendur hús-j
eignarinnar nr. 19 við Þórsgötu
tókum á sínum tíma lán hjá
Landsverslun íslauds og er skulda-j
brjefið fyrir láninu dags. 28. jan.1
1929. Skuldin var samkv. skulda-
brjefinu að upphæð kr. 18000.00
og er trygð með 2. veðrjetti í
Þórsgötu 19, næst á eftir og með
uppfærslurjetti á eftir áhvílandi
veðdeildarláni. Skyldi skuldin
greiðast upp á fjórum árum og
fjell síðasta afborgunin í gjald-
daga 28. f. m.
Af upphæðinni fengum við út-
borgað kr. 15000.00 og greiddum
þar af kr. 800.00 í þóknun fyrir
að útvega lánið. Eru því hrein af-
föll á láninu kr. 3000.00. Vextir
og vaxtavextir, sem við höfum
greitt af þessum kr. 3000.00, nema
til 28. f. m. kr. 573.00. |
Við teljum nú, að ef^við þyrft-
um að greiða alla síðustu afborg-
unina, þá væri hjer um hreint
okur að ræða og teljum við það
lítt sæma opinberri stofnun ein.s
og Landsverslun Islands, enda
búumst við við, að hið háa ráðu-
neyti muni ekki telja rjett nje
heiðarlegt að krefja liana alla af
okkur. Afborgunin er samkv.
skuldabrjefinu kr. 4.500.00. Sam-
kvæmt þessu leyfum við okkur
að fara þess á leit við hið háa
ráðuneyti, að það felli niður af
skuldinni afföllin kr. 3000.00 og'
vexti af þeim kr. 573,00, þannig
að skuldabrjefið verði kvittað
gegn greiðslu á kr. 927.00 auk
vaxta af þeirri uppliæð, frá 28.
jan. f. á., til greiðsludags.
Afrit af skuldabrjefinu fylgir
hjer með.
Reykjavík, 12. febrúar 1934.
Vir ð ingarfylst.
Filippus Guðmundsson.
Guðm. Þorleifsson.
Framsal Haralds.
Morgunblaðið hefir einnig í
höndum frumritið af skulda-
brjefinu. Er það handhafa-
skuldabrjef og dagsett 28. jan.
1929 og að nafnverði 18 þús.
krónur.
Lántakandi Kefir tjáð blað-
inu, að hann hafi sjálfur þenna
dag (28. jan. ’29) selt Lands-
ver^Juninni skuldabrjefið, og
feng^ð 15 þús. kr. útborgaðar,
enáfót brjefsins er þetta skráð:
Framanritað skuldabrjef
framselst hjermeð Landversluit
íslands Reykjavík, og hefir hún
áð fullu greitt andvirði þess.
Reykjavík 29. jan. 1929.
F.h. Kaupfjel. Reykvíkinga
H. Guðmundsson,
formaður.
Af þessu sjest, að skuldabrjef
ið, sem lántakandi sjálfur sel-
ur og afhendir Landsverslun-
inni 28. jan. 1929, er næsta dag
framselt sömu Landsverslun og
er framsalið undirritað af Har-
aldi Guðmundssyni, þáverandi
form. Kaupfjel. Reykvíkinga.
Þetta ,,framsal“ staðfestir,
sem reyndar er nú fullkomlega
upplýst, að þær 3000 krónur
— mismunurinn á því, sem lán-
að var og greiða átti — hefir
verið variðitil þess að greiða
með skuld Kaupfjel. Reykvík-
inga við Landsverslunina.
Haraldur segist hafa fengið
andvirði brjefsins að „fullu
greitt“, og ber sennilegá að
i skilja þetta þannig, að kaup-
|fjelagið hafi tekið 3000 króna
| afföllin, af láninu. Hvað segir
(lántaki um þetta? Við hvei;n
| samdi hann?
Að þessu Kaupfjel. Reykvík-
inga, sem nú er sálað, stóðu
: ýmsir máttarstólpar rauðliða,
! eins og Jónas frá Hriflu, Hjeð-
inn, Haraldur Guðmundsson o.
fl. o. fl. Vafalaust hafa allir
þessir herrar verið ábyrgir fyr-
ir skuld kaupfjelagsins við
Landsverslunina. En í stað þess
sjálfir að greiða skuldina, hafa
þeir fengið Landsverslunina inn
á braskverslun þá, sem upplýst
er, að átt hefir sjer stað.
Mál þetta er þannig vaxið,
að krefjast verður að ýtar-
leg rannsókn fari fram. Meðal
annars verður að rannsaka,
hverjir voru ábyrgir fyrir skuld
kaupfjelagsins. Enn fremur
verður að rannsaka hvernig hef
ir verið háttað öðrum. útlánum
Landsverslunarinnar, hvort svip
að Krask hefir einnig átt sjer
staðnþar.
Öfi
v. Papen vill fara
en fær það ekki.
Berlín FB. 21. júní.
Eins og áður hefir verið get-
ið var bannað af útbreiðslu-
málaráðuneytinu, að útvarpa
eða birta í blöðum ræðu þá, er
von Papen hjelt um rjettindi
til þess að gagnrýna gerðir rík-
isstjórnarinnar. Út af þessu
hefir von Papen beðist lausnar
frá starfi sínu sem varakansl-
ari, en Hitler hefir þverlega
neitað að taka lausnarbeiðnina
til greina. v. Papen lagði af
stað í dag áleiðis til Neudeck,
til fundar við Hindenburg, þeg-
ar honum var kunnugt um á-
kvörðun Hitlers. Hefir þetta alt
vakið mikla eftirtekt, ekki síst
meðal stjórnmálamanna. (UP)
/