Morgunblaðið - 22.07.1934, Side 5
II ORfíUN BLAÐIÐ
5
Hf hveriu
nota peir, som
besta bekk-
ingu.hafa
ð vörum til
bökunar
ávalt
Hf bvf að heir reynast
bestir og diýgstir.
Suniiirkjólíi
efni
Peysur.
Blússur.
Pyls.
Silkisokkar, ljósir.
Barnasokkar.
Nærfatnaður, allskonar.
Morgunkjólar.
Sloppar.
Svuntur.
Versl. Vlk.
Laugaveg 52. — Sími 4485.
ÓbrOtlliBtt:
Bollapör, parið............1.55
Drykkjarkönnur.............1.10
Matardislcar...............1.35
Vatnsglös..................0.75
Vínbykarar............... 0.65
Nýkomið.
Nýkomið.
Bankastræti 11.
Nýju bankaseðlarnir.
Landsbankinn hefir látið
prenta nýja gerð bankaseðla, 5,
10, 50 og 100 króna. Eru nú 10
króna seðlarnir komnir í umferð
með því að skortur hafði verið
orðinn á þeim seðlum, en aftur
er eitthvað eftir af hinum þrem-
ur tegundunum af gömlu gerð-
inni, og mun eiga að nota þá
meðan til eru. — Viðkunnanleg-
ast hefði verið að skifta alveg
um strax og kalla inn alla seðla
af eldri gerð og þar á meðal ís-
landsbankaseðlana gömlu, en
því er til svarað, að seðlagerð
sje dýr og því rjett að nota upp
þær birgðir sem eftir eru, en þær
munu nú senn á þrotum. Og að
sjálfsögðu mun bankinn ekki
bíða þangað til gömlu seðlarnir
eru alveg uppslitnir, enda sú
regla verið höfð í seinni tíð, að
bankinn ljeti ekki úti nema sæmi
lega útlítandi seðla. Og þó altaf
sje allmikið af ljótum seðlum í
umferð, einkum úti um land,
kemur það af því að menn van-
rækja að senda þá og fáþeimskift.
Nýju seðlarnir eru prentaðir í
Englandi hjá einu hinu besta
seðlafirma þar í landi, enda bera
þeir það með sjer að þeir eru
miklu vandaðri að öllum frá-
gangi en gömlu seðlarnir. Er
lögð sjerstök áhersla á að erfitt
sje að falsa þá, meðal annars
litsetningunni hagað sjerstak-
ega, og svo er auður blettur með
vatnsmerki, sem nú reyndar
ekki er til prýði, en algengt að
hafa á seðlurn til tryggingar
gegn fölsun. — Annars eru seðl-
arnir hinir ásjálegustu og er
teikningin gerð með hliðsjón af
skrautstöfum úr gömlum íslensk
um hándritum. Pappírinn í þeim
er þynnri en í gömlu seðlunum
og að því er virðist betri, og hvít
ari er hann en oftlega tíðkast
um útlenda seðla, svo að þeir
verða ekki síður en sagt var um
þá gömlu, „næmur mælikvarði
á þrifnað þjóðarinnar“. —
Það á því við sjerstaklega nú,
að áminna menn um að fara vel
með hina nýju seðla, taka ekki
á þeim með óhreinum höndum,
kvola þá ekki nje böggla þeim
illa brotnum niður í buddur eins
og altítt er. Sem flestir ættu að
fá sjer veski fyrir brjef og seðla,
og mundi fara vel á því að bank-
arnir hefðu slík veski til sölu
með vægu verði, sem og tíðkast
sums staðar erlendis, svo að fólk
læri að seðlar eiga heima í veskj
um en ekki í buddum. — Þá eiga
verslanir og allir þeir sem ein-
hverja peningaveltu hafa, að
gera sjer að skyldu að láta ekki
úti óhreina eða rifna seðla, held-
ur fá þeim skift í bankanum fyr-
ir hreina. Sjerstaklega ætti að
gæta þess að láta útlenda ferða-
menn fá sem hreinasta seðla,
eigi arðeins af sjálfsögðum þrifn-
aðarástæðum heldur og vegna
þess að ferðamenn taka oft með
sjer til minja peninga frá þeim
löndum sem þeir koma til, og
það er gróði fyrir landið að þeir
geri sem mest að því. Með tilliti
til peningasafnara og svo í aug-
lýsingaskyni hefði verið rjett að
hafa á seðlunum talsvert meira
úrval af íslenskum myndum,
sem dreifa hefði mátt á töluröð-
ina eftir ákveðnum reglum. —
Mætti athuga það síðar. Á þeim
seðlum sem nú hafa verið prent-
aðir, eru fjórar myndir, ein aft-
an á hverri tegund — á 5 kr.
mynd af Landsbankanum, á 10
kr. Gullfoss, á 50 kr. Vestmanna
eyjahöfn og á 100 kr. fjársafn
við Þjórsá.
gæti hann þar staðið vel að vígi
sakir kunnugleika hjer.
En nú hefir þessi erlendi um-
boðssali, að því er Morgnnblaðið
hefir sannfrjett, hagað sjer þannig
í gai-ð íslendinga, að víta verður
harðlega. Hann hefir skrifað er-
lendum stjórnarvöldum og kvart-
að um það, að hann fengi ekki
innflutnings- og gjaldeyrisleyfi
fyrir vörur þær, sem hann vildi
selja á íslandi. Og hann hefir
snúið sjer til fulltrúa þeirrar
stjórnar, sem hann, sakir kunnug-
leika hjer, g'at búist við að kvört-
un hans gæti komið óánægju af
stað, og orðið okkur sjerstaklega
skaðleg vegna yfirstandandi samn-
jinga. En. því ódrengilegri er þessi
[ aðferð hjá Obenhaupt, að vera að
senda kvörtun til stjórnarfulltrúa
þessa lands, sem oss íslendingum
ríður mest á að lialda vinfengi
við. ,
Þessi aðferð, að fara með kvart-
anir til erlendra stjórnarvalda,
mun, sem betur fer, vera óþekt
fyrirbrigði meðal heiðvirðrá, kaup-
sýslumanna. Þeir yrðu a. m. k. að
vera beittir miklum órjetti, sem
ekki fengist leiðrjettur, ef þessi
leið væri farin.
En hefir hr. Obenhaupt verið
órjetti beittur? Hann er ekki ís-
lenskur þegn, rekur enga verslun
hjer á landi, og greiðir hjer enga
skatta. Hann á því engan rjett á
innflutnings- og gjaldeyrisleyfum
hjer,
Að sjálfsögðu hafa hlutaðeig-
andi erlend stjórnarvöld fengið
hinar rjettu upplýsingar^ viðvíkj-
andi framferði Obenhaupts, og' er
þess því að vænta, að þessi miður
drengilega aðferð hans liafi ekki
getað skaðað okkur... Kn íslenskir
kaupsýslumenn ættu hjer éftir að
þekkja betur þennan erienda, um-
boðssala.
Varasamir menn.
Landhelgisvamir
Norðmanna.
Illur kurr í Bretum út
af þeim.
Erlendur umboðssali reynir að pota
sjer áfram á miður drengilegan hátt.
Það er kunnugra en frá þurfi að
segja, að vjer íslendingar eigum
við marg'skonar og' mikla erfið-
leika að etja í viðskiftum við
erlendar þjóðir.
Hjer heima eigum vjer við að
glíma gjaldeyrisskort svo tilfinn-
anlegan að öl] viðskifti eru fjötr-
uð, vegna þess að miðla þarf þeim
gjaldeyri, sem til fellur.
Erlendis eigv\m vjer við að
stríða magnaða hafta- og ófrelsis-
stefnu, sem hefir orðið ofan á í
öllum okkar aðal viðskiftalöndum.
Þessir margháttuðu erfiðleikar
koma að sjálfsögðu þyng-st niður
á verslunarstjett þjóðarinnar.
Hennar lífsstart’ er lamað. Hún
hefir orðið að draga mjög' s^man
seglin og fjþldi fólks, sem hefir
haft góða 'atvinnu við verslunar-
störf, hefir bæst við atvinnuleys-
ingjahópinn.
En íslenska verslunarstjettin
hefir skilið érfiðleikana og þess
vegna hefir hún sætt sig furðulega
við þær hömlur, sem lagðar Iiafa
verið á hennar atvinnugrein. 11ún
hefir vonað, að brátt færi að rofa
til, og' þá myndi frjáls viðskifti
aftur fá notið sín. Hennar eina
krafa hefir verið sú til stjórnar-
valdanna, að trygt væri, að full-
komið rjettlæti ríkti við útlilutun
innflutnings- og gjaldeyrisleyfa.
Verður ekki sagt, að síí krafa sje
ranglát.
En á meðan íslenska verslunar-
stjettin verður að þola allskonar
þrenging'ar vegna óáranar þeirrar
sem ríkir í verslun- og viðskiftum,
koma erlendir menn fram á sjón-
arsviðið og reyna að nota þá erf-
iðleika, sem þjóðin á við að stríða,
til þess að pota sjálfum sjer áfram
á miður drengilegan hátt.
Einn þessara manna er A. Oben-
haupt, umhoðssali í Hamborg', sem
margir Reykvíkingar kannast við
frá dvöl hans lijer á fyrri -árum.
Þessi maðnr rekur ekki lengur
neina verslun hjer á landi, hann
er ekki víslenskur ríkisborgari og
greiðir enga skatta hjer. Hann
fluttist alfari til Þýskalands 1930
og settist að í Hamborg og' mun
starfa þar sem umboðssali. Hann
liefir reynt að halda viðskiftum
við ísland sem umboðssali, enda
A fundi í neðri deild breska
þingsins 9. júní mintist þing-
maður Hull, K. Law (hann er
sonur Bonar Law) á meðferð Norð
manna á breskum togurum. Hann
kvað það upplýst að breska stjórn-
in væri nú að leita samkomulags
við Norðmenn um þetta efni. En
ef enginn verði árangur af þessu
vænti menn þess, að breska, st-jórn-
in sýndi Norðmönnum í tvo heim-
ana. Norðmenn meg'i ekki láta sjer
detta það í liug að Bretar geti
ekki náð sjer niðri á þeim á ann-
an hátt, ef þessar samkomulags-
tilraunir stranda, Ef nauðsyn
krefur verði breska stjórnin að
taka sterklega í taumana og
koma norsku stjórninni í skilning
nm það, að Bretland geti ekki
þolað það lengur að Norðmenn
ásæki breska togara eins og þeir
ln.fa g'ert.
Ef breska stjórnin ætli að
hiunma þetta fram af sjer, þá
hljóti að reka að því, að einhver
enslr togaraskipshöfn taki málið
í sínar hendur og neiti að láta
taka sig' fasta, þar sem hún er að
veiðum á alþjóðamiðnm. Og ‘það
geti orðið slæmt og valdið meiri,
vandræðum en mi sje á ferðinni.
Það má líta svo á, að árangurinn
af þessari ræðu sje sá, að breska
HOTEL'tROSENKRANTS
BERGEN, NORGE.
Er í miðjum bænum
við Þýskubryggju.
Herbergi með heitu
og köldu vatni, síma
og baði.
Sanngjarnt verð.
EinlHar
bláar
\
manchettskyrtur, allar stærðir á
kr. 6.50.
Maniiliester
Laugaveg 40. Sími 3894.
Þetta
Suðusúkkulaði
er uppáhald aílra
hásmæðra.
Nýslátrað
sauðakjot.
Frosið dilkakjöt. Saxað kjöt. To-
matar. Nvjar næpur. .Nýjar ísl
rófur. — Ennfremur allskonar ný-
lenduvörur, hreinlætisvörur og
sælgæti.
Nýjtx Sólvaílabúðírnar.
Sveínn Þorkelsson.
Sími 1969.
stjórnin hefir rni ákveðið að sendá
e'ftirlitsskipið „Harebell" til Nor-
egs. til þess að athuga alt viðvíkj-
andi töku breskra togara fyrir
veiðar í landhelgi. Nú er það
kunnugt að Norðmenn hafa sjálfir
ákveðið landhelg-i sína 4 mílur, en
þá landlielgi hafa Bretar aldrei
viðurkent. Munu ýmsir enskir
togarar hafa verið teknir og sekt-
aðir í Noregi fyrir veiðar í land-
helgi þótt þeir vasru fyrir utan
hina alþjóða-yiðurkendu þriggja
mílna línu.
„Harebell“ fer fyfst til Hnll og
ætlav foringinn að eiga þar tal
við togaraeigendur þá, er þetta
mál varðar. Þvínæst mun hann
bjóða foringja norsks varðskips að
þeir sigli saman um fiskislóðirnar
og' mæli upp alla þá staði, þar
sem breskir togarar hafa verið
teknir fyrir landhelgisveiðar.