Morgunblaðið - 03.08.1934, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.08.1934, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ KVENÞJOÐIH 00 EIEIMILIN Lillian Harvey Matreíðsía. Vatnshúsln í Hollywood. leiðist í Hollywodd og ætlar að hverfa aftur heim til Evrópu. Hreinlæti bannað. Nú á dögum munu Ameríkan- arnir vera því fylgjandi að fólk taki sjer daglega bað, já,. finst það sjálfsagt- En þó var sú tíð, að fólk í Bandaríkjunum var afar mótfall- ið slíkri daglegri stórhreingern- ingu. Það er sagt að maður nokkur Thomsson að nafni, hafi bygt fjrrsta baðherbergið í Ameríku, Var það í Cincinati árið 1842. Vakti það mikla eftirtekt. Og meðal lækna var þessi „hreinlætis- grilla“ all mikið rædd, og þótti eins og hver önnur vitleysa, hrein- asta brjálæði. Við þessu y.rði að sporna, var sagt, slík hjegiljahefði í för með sjer lungnabólgu, gig't- veiki og hverskonar kvilia. í Philadelfia var það bannað með lögum, 1853, að baða sig, frá 1. nóv. til 1. mars. Þau lög stóðu reyndar eltki nema eitt ár. í Virginíu sjest best, hvílíkur •óþarfi baðið var talið. á því, að þar var lagður 30 dollara skatt- ur á hvert baðker. En þó tók út yfir í Boston. Þar var svo fyrir rnælt, að enginn lif- andi maður mætti baða sig nema hann gæti sýnt skriflegt leyfi til þess frá lækni. Katherine Hepburn, ein af aðal ,,stjörnunum“ í Holly- wood. flún þykir frámunalega sjervitur og dutlungafull, og skoð- anir eru skiftar um fríðleik henn- ar. En mörgum finst jafnvel meira til hennar koma en Gretu Garbo á leiksviðinu. Tveir miðdegisverðir úr grænmeti. Þar sem aðal grænmetistíminn fer nú í hönd, fylgja hjer á eftir miðdegisrjettir úr grænmeti, sem sjerlega eru hentugir fyrir þá, sem ráðlagt hefir verið að neyta sem mest grænmetis. Jeg' hefi haft mið- degisverðina þrírjettaða, en auð- vitað má sleppa annaðhvort súp- unni eða ábætisrjettinum- I. Tómatsúpa. y2 kg. tómatar. 1J4 1- vatn eða kjötsoð. Salt. Blaðlaukur (púrra). 1 steinseljurót. 40 gr. smjörlíki. 30 gr- hveiti. Soð, salt og pipar. Paprikka og sykur. Makkaróni. Tómatarnir eru þvegnir, skornir í 4 parta, settir í pott og vatni eða soði hellt þar á. Blaðlaukur- inn er hreinsaður og þveginn og sömuleiðis steinseljurótin. Þegar tómatarnir sjóða, er grænmetið sétt út í og soðið í 20 mín. Þeg'ar tómatarnir eru meyrir er þeim nuddað gegnum gatasigti með soðinu. Smjörlíkið brætt, hveitinu hrært út í og þynnt út með tó- matsoðinu. Siípan er síðan soðin við hægan eld í 20 mín. Alt kryddið er sett í hana eftir geð- þótta og makkarónurnar, sem soðnar hafa verið í saltvatni- Eggjabráð: 1 PO'O1 2 tesk. hveiti. Vanilla- 2 matsk. sykur. 2 dl. mjólk. Eggið er lirært- með sykrinum. Hveitið hrært saman við, því næst mjólkin, þegar hún sýður. Helt í pottinn á ný og hrært uns sýður. Þá eru vaniliudroparnir látnir í eftir smekk. Noti maður vanillu- stöng, er hún soðin í mjólkinni. n. Grænkálssúpa. 2 L kjöt- eða grænmetissoð. 800 gr. grænkál. Yzkg. kartöflur. 40 gr. smjörlíki. 40 g'r. hveiti. Salt og pipar. Smjörlíkið brætt, hveiti hrært út í, þynt út með soðinu, sem er heitt- Grænkálið, þvegið og saxað í söxunarvjel, látið í súpuna og soðið í 20 mín. Þá er krydd sett í eftir geðþótta. Gott er að s.jóða gulrætur í smábitum í súpunni. Borðað með brúnuðum kartöflum. Einnig má sjóða flysjaðar kaT- töflur í sfipunni, og sleppa þá þeim brúnuðu. Ágætt er að sjóða grænkál í venjulegum kjötsúpum, sjerstak- lega svínakjötssúpu. Steikt blómkál. Hollenskur kartöflubúðingur. y2 kg. soðnar og flysjaðar kartöfl. 1 laukur. Salt og pipar. 75 gr. smjörlíki. 3—4 egg. 1 matsk. söxuð steinselja. Kartöflurnar eru skornar í fer- hyrning’a- Smjörið brúnað og lauk- urinn sem skorinn hefir verið smátt. Kartöflurnar látnar á, salti og pipar stráð yfir. Eggin eru hrærð saman. Rjett áður en borð- að er, er eggjunum hellt yfir kar- töflurnar á pönnunni. Hrært stöð- ugt í því, þar til eggin eru hlaup- in saman. Helt upp á fat og sax- aðri steinselju stráð yfir. Með þessu er gott að borða grænkáls- eða spínatjafning. Rabarbaratrif f le. Kökumolar. Rabarbaramauk- Eggjabráð. Þeyttur rjómi. Rabarbarinn er hreinsaður óg soðinn með sykri, þar til hann er kominn í mauk. Kökumolar eru látnir á botninn á g'lerskál. Þar yfir rabarabaramaukið, sem er vel þykt, þá eggjabráðin. Þegar þetta er kalt er það skreytt með þeyttum rjóma. 1 blómkál. Egg og brauðmylsna. Salt og' pipar- 100 gr. smjör . Kartöflur. Blómkálið er rúmlega hálf soð- ið, skorið í sneiðar, sem snúið er upp úr samþeyttum eggjum, þar á eftir upp úr saxaðri liveiti- brauðmylsnu. látið á vel heita pönnu, sem brúnað smjör er á, salti og pipar stráð á kálið, steikt móbrúnt, raðað upp á fat og smjörinu helt yfir. Borðað með soðnum kartöflum, sem saxaðri steinselju er stráð yfir. Gott er að raða sítrónusneiðum á blómkálið á fatinu. Rabarbarahlaup. y2 kg. rabarbari 2 dl- vatn. 6 matsk. sykur. 10 pl. matarlím. iy2 dl. vatn. Rabarbarinn er hreinsaður, skor- inn í jafna bita, sem látnir eru í pott með 2 dl. af vatni og sykrin- um. Hlemmur er látinn á pottinn og hann látinn inn í heitan bak- arofn, þar til rabarbara bitarnir eru meyrir, en mega ekki fara í sundur (ca. 10—15 mín.). Matar- límið er lagt í kalt vatn í 10 mín., undið upp og iy2 1. af sjóðandi vatni helt á að. Hrært í þar til f Hollywood rísa nú upp hús af alveg nýrri gerð, hin svokölluðu vatnshús. Það er ítalskur húsa- smiður sem byggir þau. Herbergis- veggirnir í þessum húsum eru lir gleri. Og niður eftir 'því flýtur stöðugt vatn, eins og sjest víða erlendis í gluggum matvælabúða- Yeggirnir eða rjettara sagt vatnið, er ýmislega litt, eftir því sem við þvkir eiga í hverju herbergi, Qg eins er vatnið misjafnlega heitt- I borðstofunni seitlar það t. d. niður eftir veg’gjunum ljósgrænt og svalt, en í dagstofunni dekkra og hlýrra. Þannig er vatnið bæði vegg- fóður og hitagjafi. Á augabragði er hægt að breyta lit þess og hita. Þessir veggir eiga að hafa ró- andi áhrif á taugarnar. Bæði er það, að Ijósið sem fellur um her- bergið verður þægilega dempað og „vatnsveggurinn“, sem fellur hfjóðlaust niður, jafnt og þjett, dempar alt hljóð. En það er langt frá að þessi hús sjeu ódýr, þau kosta of fjár. En þetta er í Hollywood, og þar er fólk sem á peninga- Tennisleikari, lítill, lipur, ljettklæddur, á leið út á tennisvöllinn. Upprakið band. Það er oft óþægilegt að eiga við band, sem hefir verið rakið upp. Þaða er slæmt að hekla með því og prjóna, því að það kyprast sam- an. Og vinnan aerður heldur ekki eins falleg og sje unnið með nýju bandi. En á þessu má reyna að ráða bót. Bandið er vafið fast utan um pappaspjald og lialdið yfir sjóð- andi vatnsgufu (t. d. frá katlin- um). Verður það þá aftur sljett og fallegt. matarlimið er alveg bráðið. Þá er því hrært gætilega saman við rabarbarann. Helt upp í glerskál. Best er að búa þetta til kvöldið áður en á að borða það. Borið inn með þeyttum rjóma í annari gler- skál. í staðinn fyrir rjóma má hafa eggjabráð- Sje rabarbarinn ekki rauður er fallegt að láta raúðan lit saman við nann. Helga Sigurðardóttir. Diana Wynyard, leikkonan enska, sem ljek aðal- hlutverkið í „Cavalcade“ af mik- illi snild og varð fræg fyrir. M U N I Ð — — — að gótt er að bursta dökk karlmannsföt úr grófu efni úr vatni blönduðu sal m íakspíritus. Burstinn er vættur í salmíaks- vatninu og hrist úr honum vatnið, svo að hann verði aðeins votur, og síðan eru fötin burstuð bæði á. rjettunni og röngunni. Burstinn er vættur jafnóðum og skift um vatn ef þess þarf. Sjeu fötin blá, er öllu betra að bursta þau úr kvillajaberkis- vatni. Yerða fötin að þorna vel, áður en þau eru hengd upp í skáp, lielst. undir beru lofti. --------að það er fljótlegt að strjúka tau, ef það er aðeins vætt með heitu vatni. — — — að kvillajabörkur er ágætur bæði til þvotta og t.il þess að ná úr blettum. -------- að það verður við og við að bera fitu á skinnstóla og húsgögn, því að annars vilja þau rifna. Er þá ýmist notaður hvítur leðuráburður, bón eða rjómi og smjör. Fitunni er nuddað vil inn í og síðan er nuddað yfir með þurrum klút. Cleo de Melrode var fræg dansmær fyrir stríð og átti ving'ott við Leopold II- Belga- konung, þegar hann var uppi. Ætlar liún nú að fara að dansa á ný í sjónleik, sem hefir verið sam- in sjerstaklega fyrir hana

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.