Morgunblaðið - 08.08.1934, Page 3
MORGTJNBL AÐIÐ
3
Breiðafjarðarför
verslunarmanna.
Frásögn Brynjólfs Þor-
steinssonar form. Versl-
uaarmannaffel. Keykja-
víkur.
Verslunarmannafjelag Rvík-
ur stóð fyrir skemtiför vestur
á Breiðafjörð um helgina, sem
kunnugt er, í tilefni af frídeg-
inum.
Upprunalega var það til-
ætlunin, að Skipaútgerð ríkis-
ins leigði Esju í ferð þessa. En
er ketill Esju bilaði, varð að fá
annað skip, og var Ægir feng-
inn í staðinn.
í gær átti blaðið tal við
Brynjólf Þorsteinsson banka-
fulltrúa og spurði hann um
ferð þessa. En hann var, sem
form. í Verslunarmannafjelagi
Reykjavíkur, í fararnefndinni.
— Alls tóku þátt í ferðinni
um 150 manns. Var þáttaka
minni en ella, vegna þess að
menn vantreystu Ægi sem
þægilegu farþegaskipi fyrir
svo marga farþega.
En svo mikil var umönnun
og greiðvikni skipshafnarinnar
á Ægi, að svo mátti heita, að
vel færi um allan þeiinan far-
þegafjölda.
Þó má ekki gleyma því, að
hepni var og með, því alla leið-
ina var sama sem sljettur sjór.
— Ferðin var í stuttu máli
þessi, heldur Brynjólfur áfram.
Við fórum hjeðan kl. 8Ys> á
iaugardagskvöld og komum
heim kl. 12 á mánudagskvöicí,
Fyrst komum við að Stapa
kl. 1 á sunnudagsnótt, þar fóru
nokkrir í land. Næsti viðkomu-
staður var Kvíabryggja. Þang-
að komum við kl. að ganga 7
á sunnudagsmorgun. Þar tók-
um við Oscar Clausen kaup-
mann sem leiðsögumann. Sigld
um síðan inn Grundarfjðrð.
Lýsti Clausen örnefnum og
landslagi inn fjörðinn. Var
farið alt inn að Gröf. Veður
var hið besta.
Síðan var haldið inn í
Stykkishólm. Þar komum við
kl. IOV2 á sunnudagsmorgun.
Sunnudaginn notaði svo
skemtiferðafólkið til þess að
fara um nágrennið. Fóru marg
ir á Helgafell. Aðrir fóru út í
eyjar.
Um kvöldið var efnt til
dansleiks í Hólminum. Þátt-
takendur voru 250. Stóð hann
til kl. 3 aðfaranótt mánudags.
Annars var 6 manna hljóm-
sveit á Ægi, svo mikið var
dansað báðar leiðir.
Kl. 1 miðdegis á mánudag
var haldið heimleiðis með Ægi.
Áður en skipið lagði frá
bryggjunni mælti formaður
Verslunarmannafjel. Stykkis-
hólms, Sig. Ágústsson, nokkur
orð, þakkaði fyrir gestkomuna
og óskaði komumönnum góðr-
ar ferðar, en jeg þakkaði
Breiðfirðingum ágætar viðtök-
ur og hina bestu gestrisni
þeirra.
Er þá sagt hið helsta af ferð
þessari, segir Brynjólfur, en
hún var að öllu leyti hin á-
nægjulegasta.
Hingað komum við kl. 12 á
mánudagskvöld, og höfðum
hjer flugeldasýningu til hátíða
brigðis um það leyti, sem skip
okkar lcom að landi.
Vil jeg að endingu færa
skipstjóra og skipshöfn Ægis
hinar bestu þakkir ferðafólks-
ins, segir Br. Þ. að lokum,
fyrir ágæta umhyggju og að-
hlynningu á ferðalaginu.
Frú Polly Ölafson.
Skólaferðin til lorðiirlnda.
Mynd af hópnum um leið og hann steig af járnbrautarlest-
inni í Stokkhólmi.
Með Lyru kom hingað í
fyrradag skólafólkið, sem fór
til Noregs og Svíþjóðar á veg-
um Norræna fjelagsins hinn
12. júlí. Voru það 24 unglingar
13—19 ára, úr ýmsum skólum,
og þrír kennavfir.
Eins og áður er sagt ferðað-.
ist hópur þessi um Noreg pg
Svíþjóð, undir -eiðsögn ke^n-
aranna og með aðstoð þeiira
fjelaga í Norræna fjelaginu,
sem áttu ao raka á móti þeim
á hverjum stað.
Farið vav um fegursf i suð-
uroygðir Noregs og Svíþjóðar
og mun unglingunum hafa þótt
hfést gaman ' vt því, að fara 1
með Bergensbrautinni, og að
heimsækja skáldkonuna Selmu !
Lagerlöf á Márbacka, heimili
hennar í Dölunum. Og Siigði
þá skáldkonan, að óvíst væri,
hvort hún hefði ekki meira
gaman af heimsókninni, því að
aldrei hefði hún sjeð jafn
marga íslendinga í einum hóp
og líklega hefði hún aldrei á
æfi sinni fengið skemtilegri
heimsókn,
Skáldkpnan er nú orðin
hrum að líkamskröftum, en
andlegi þrótturinn er óbilandi.
Hún l.jet þess getið, að bÓK-
mentir Svía ættu engu meira
að þakka heldur en fornbók-
mentum Islendinga — og sjer-
staklega sagði hún að þetta
ætti við um það, sem hún hefði
lagt til bókmentanna.
Þriðja skemtilegasta stund-
in og eftirminnilegasta fyrir
flokkinn var sú, er hann fór
efíir skipaskurðinum hjá Troll-
háttan og sá stórskipi lyft þar
upp húshæð. Og mörg önnur
undur sáu unglingarnir, er þeir
höfðu eigi áður gert sjer grein
fyrir hvernig væri, þótt þeir
hefði heyrt sagt frá þeim, og
fanst oft og tíðum sem þessi
furðuverk væri verið að sýna
til heiðurs sjer og gamans.
| Flestum ber saman um það,
að á leiðinni frá Voss til Ull-
vik hafi verið fegurst landslag
og hrikalegast af því sem fyr-
ir augun bar á ferðalaginu.
Veður var alt af framúrskar
andi hagkvæmt, sólskin og blíða
alla daga nema tvo, en þá var
hópurinn á ferð í járnbrautar-
lest.
1 dag verður frú Polly Ólaf-
son jarðsungin frá Dómkirkj-
unni.
Undanfarna mánuði hafði
hún liðið margvíslegar sjúkj
dómsþjáningar, er læknar
fengu ekki ráðið bót á. Beið
hún uppskurðar á Landakots-
spítala, er henni þyngdi skyndi
lega. Töldu læknar það vera
heilabólgu, er varð banamein
hennar.
Frú Polly Grönvold var
fædd á Siglufirði 25. mars
1889. Foreldrar hennar voru
Karl Grönvold verslunarstjóri
|og kona hans frú Vilborg
Grönvold. Karl Grönvold var
verslunarstjóri hjá Gránufje-
laginu, uns hann andaðist
skömmu eftir aldamót.
Ér Polly misti föður sinn,
fór hún til frænda síns, Jó-
hanns Vigfússonar verslunar-
stjóra við Guðmanns verslun á
Akureyri.
Árið 1910 giftist hún Gísla
J. Ólafson símastjóra, er þá
var á Akureyri. Þau fluttust
hingað til Reykjavíkur árið
1912. Þau hjónin eignuðust
tvær dætur, Helgu, og Nönnu,
sem gift er Halldóri Dungal
verslunarmanni.
Frú Polly misti mann sinn,
eftih 21 árs hjúskap, í ágúst
1931, Þessi þrjú ár, sem liðin
éru síðan, urðu henni á ýmsan
hátt þungbær reynsluár. En
vonbrigði og erfiðlöika bar
hún jafnan með þolinmæði og
jafnaðargeði.
í æsku var Polly glaðvær
með afbrigðum, og helst sú
æskuljetta glaðværð lengur en
við var að búast. Gat stundum
kent í tali hennar og viðmóti
gáskafullrar kátínu, sem
óvanaleg er á svo norðlægum
breiddargráðum.
Fyrir þessar sakir varð hún
mörgum, er henni mættu,
ógleymanleg.
En ógleymanlegri varð hún
þeim, sem kyntust hennar
hlýja hjartalagi, viðkvæmni
hennar og drenglund.
Mikill
iiinflufniiigiir
jan.—júni i ár.
Samkvæmt innflutningsskýrsl-
um hefir innflutningurinn í ár frá
áramótum til júníloka numið kr.
24.546.000. Á sama tíma í fyrra
var innflutningur sá, sem, á skýrsl-
ur var kominn 8 miljónum minni,
eða kr. 16.166.000.
Utflutningurinn fyrstu 6 mán.
ársins í ár var kr. 16.173.000, en í
fyrra á sama tíma lítið eitt minni
eða kr. 15.530.000.
Blaðið hefir spurt ritara geng-
isnefndar, Halldór Jónasson, að
því, í hverju þessi mikli innflutn-
ingur í ár muni aðallega li^gja.
Hann sagði m. a.:
— Jeg býst við því, að tölur
innflutningsskýrslnanna í ár, sjeu
ekki að öllu leyti sambærileg'ar
við skýrslurnar í fyrra, vegna
þess, að í ár hefir verið gengið
ríkara eftir því en áður, að fá
innflutninginn færðan sem fyrst
á skýrslur,
Annars er það venjan, að inn-
flutningurinn er tiltölulega meiri
e'n útflutningurinn fyrri hluta
j ársins. Svo koma aðalútflutnings-
mánuðirnir seinnipart ársins.
En mismunur innflutnings og
útflutnings var þó svo mikill 30.
júní í ár, að ekki er hægt að bú-
ast við því að það jafni sig
seinni hluta ársins, svo útflutn-
ingur og innflutningur standist
á um áramót.
Nýtt heimsmet.
Rússneskur flugmaður, Evdoki-
mov að nafni, setti nýlega heims-
met í stökki með fallhlíf. Hann
henti sjer úr flugvjel í 8100 metra
hæð, og opnaði ekki fallhlífina fyr
en liann hafði fallið 7900 metra,
eða þegar hann átti aðeins 200
metra til jarðar. Þessa 7900 metra
fell hann á 2 mínútum og 22
sekúndum.
Skrllstolur vorar eru fluttar i Husturslrœti 14,1. lolt,
(hú§ Jóns Þorlákssonar).
Líf§ábyrgðarfjelágið XIIU L E h.f.
Carl D. Tulinius & Co.
unnj;r»
'1