Morgunblaðið - 08.08.1934, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar erl.
bækur:
John Galsworthy: Over Floden.
Kr. 9.00 ób. (Þýðing á síðustu
bók skáldsins, Over the River).
Theodore Dreiser: Jennie Gerhart.
(Ein af bestu bókum ameríska
skáldsins Dreiser) Kr. 9.00 ób.
Johs. V. Jensen: Sælernes O (Myter,
7. bindi). Kr. 4.20 ób.
/
Knuth Becker: Verden venter I.—II.
Kr. 12.95 ób.
Ronald Fangen: Dagen og Vejen.
Kr. 10.70 ób.
Steen Eiler-Rasmussen: London. Kr.
12.00 ób.
Ejnar Mikkelsen: De Ostgrönlandske
Eskimoers Historie. Kr. 9.00 ób.
Hindhede: Fuldkommen Sundhed og
Vejen dertil. Kr. 10.70 ób.
Ig'HKItlEM
U«lciiv«rsliiii - Sími 2720
Landskjálfta athuganir.
Betur má ef duga skal.
Nýkomið:
/
Teppasópar, ryksugnr .. 39,50
Bónkústar .... ....10,50
Raímagnsstraujárn, Rex 17,00
ACME þvottavindur .... 48,00
Kaffistell fyrir 6.10,75
Matarstell fyrir 6 .17,75
4 matskeiðar, 4 gaflar
og 4 borðhnifar, ryðfríir,
alt á .............. 9,80
Sigurður Kjartansson
Laugaveg 41. Sími 3830.
Fyrir
1
krónti:
2 postulíns-bollapör ...
2 berjafötur með loki ....
4 sterk vatnsglös........
3 sápustykki í kassa ....
3 gólfklútar ............
50 fjaðraklemmur ........
3 klósettrúllur .........
Fataburstar, ágætir.......
Gler í hitaflöskur ......
Rafmagnsperur ...........
1,00
1,00
1,00
1,00
1,00
1,00
1,00
1,00
1,00
1,00
Sigurður Kjartansson
Laugaveg 41.
Goíd-dotxblé lorgnetter
í brúnu leðurveski hafa nýlega
týnst. Sá, sem kynni að finna, eða
hafa fundið þær, er vinsamlega
beðinn að skila þeim á afgreiðslu
Morgunblaðsins.
I matinn:
Nýslátrað dilkakjöt,
Verðið lægst.
Lifur og hjörtu. Sviðin svið.
Hangikjöt, Gulrófur, Nýtt gróðr-
arsmjör og m. fl.
Verslttn
Sveins Jóhannssonar
Bergstaðastræti 1S. — Sími 2091.
.Skömmu eftir að landskjálft-
arnir byrjuðu í sumar, birti jeg í
ýmsum blöðum spurningar, er jeg
bað fólk að svara. Litlu síðar
hvatti jeg fólk enn á ný að svara
spurningum þessum og ljet þess þá
getið, að brjefin mætti senda til
mín burðargjaldsfrítt.
Síðan eru liðnar margar vikur,
en fá svör hafa mjer borist, altof
fá, og' veit jeg ei gjörla hvað veld-
ur. Vil jeg því enn einu sinni
hvetja menn að svara spurningum
þessum, og birti þær hjer á eftir,
því að gera má ráð fyrir því, að
flestir hafi týnt blöðum þeim, er
þær birtust í í sumar.
Samtímis vil jeg neyta tækifær-
isinsróg þakka þeim, er þegar hafa
svarað. Hafa sum svörin verið fyr-
irtaks glögg og skýr.
Jeg hefi verið að brjóta heil-
ann um það, hvað því muni valda.
að svo fáir svara. ,
íslenskt seinlæti og deyfð ?
Vonandi ekki eingöngú. Ef til
vill svara margir ekki vegna þess
að þeim finst erfitt að svara
spurningum þessum á viðunandi
hátt. „Það var eiginlega ómögu-
légt að átta sig á þessu4', hafa
margir sagt, er jeg hefi átt tal við
En munið, að aldrei verða svör-
in svo ljeleg, að eigi meg'i eitt-
hvað á þeim græða. Og hikið eigi
við að svara, þótt þið getið ekki
svarað öllum spurningunum. Aðr-
ir, er búa fjarri landsjálftaupp-
tökunum segja: „Þetta er jú ekk-
ert að skrifa um, það var aðeins
örtíffll titringur, sem ekkert var“.
En þetta er misskilningur. Það er
eins fróðlegt að fá svör frá slík.um
stöðum og þaðan, er alt ætlaði um
koll að keyra. Eitt af því, er gera
þarf við rannsókn landskjálfta,
sem þessa er það, að reyna að
draga jafnstyrktarlínur . (isosei-
ster), þ. e. línur, er teng'ja saman
þá staði, þar sem landskjálftinn
var jafn sterkur. Með því móti er
hægt að glöggva sig á, hversu
stórt svæði iandskjálftinn náði
yfir, og á hve stóru svæði hann
hafði styrkleikann IV, V, VI, o. s.
frv. (sbr. spurningarnar). Einnig
má þar sjá lögun þessara svæða,
hvort þau eru sem næst hring-
mynduð, aflöng, eða á annan hátt.
En af því má aftur draga mikils-
verðar ályktanir um byg'gingu
landsins. í svo strjálbygðu landi
sem þessu er þetta auðvitað erfitt
en því nauðsynlegra að fá svör
frá sem flestum. Því fleiri, sem
þau eru, því nákvæmar og örugg-
ar verða áðurnéfndar línur dregn-
ar. Þéps vegna er og nauðsynlegt
að fá svör frá bæjum, þar sem
landskjálftans varð eigi vart.
Jeg trúi því eigi, fyr en jeg tek
á, að eigi finnist í hverjum
hreppi einhverjir áhugasamir og'
vakandi menn, er beiti sjer fyrir
því, að spurningunum verði svar-
að. Spurningarnar eru:
A) Upplýsingar um fyrsta land-
skjálftakippinn.
.1) Staðanafn eða bæjar, er lýs-
ingip gildir fyrir.
2) Hvað var klukkan þegar
kippurinn kom? Nákvæmur tími.
3) Úr hvaða átt virtist hann
koma? Gef stefnu frá þektu fjalli
eða bæ.
4) Styrkleiki kippsins.
I. Kippsins verður ekki vart,
ekki einu sinni af fólki innan húss.
II. Einstaka maður innan húss
finnur kippinn .
III. Flestir þeir sem inni eru
en engir úti verða kippsins varir.
IV. Sumir sem úti eru verða
kippsins varir. Hriktir í húsum
Sumir sofandi vakna.
V. Flestir, sem úti eru, jafnvel
þeir sem eru á hreyfingu verða
kippsins varir. Myndir og aðrir
hangandi hlutir komast á hreyf-
ingu og smáhlutir falla um eða
détta af hyllum. Allir sofandi
vakna.
VI. Húsmunir hreyfast úr stað,
smáskemdir á húsum.
VII. Þungir húsmunir hreyfast
úr stað. Reykháfar detta og' jafn-
vel springa.
VIII. Einstaka veggir falla;
miklar skemdir á húsum.
IX. Hús gjöreyðileggjast og
jafnvel falla alvég.
Gefið styrkleikann með þeirri
rómverskri tölu, er yður finst
koma best heim við athuganir yð-
ar. Fleiri athuganir, er gefið geta
upplýsingar um styrk landskjálft-
ans og stefnu, éru vel þegnar (t.
d. stönsuðu klukkur? Varð fólk
hrætt? Hljóp það út? í hvaða átt
færðust * hlutir, í hvaða átt fellu
skorsteinar? o. s. frv.);
5) Virtist þeim er úti voru
jörðin ganga í bylgjum? Hvernig
stefndu ölduhryggirnir ?
6) Hvernig lýsti kippurinn sjér?
(sem högg, sprenging, titringur,
bylgjuhreyfing, hversu langur.
Hófst hann með drunum? Ef svo
er, hvernig voru þær ? sem þrum-
ur, bílskrölt).
7) Hvernig er landi háttað, þar
sem athugunin var gerð? (fast;
berg, möl, sandur, leir, mýrar).
8) Önnur atriði viðvíkjandi
kippnum. (Hljóð, mekkir, sprung-
ur í jörð, stefnur þeirra o. s. frv.).
Svarið spurningunum í þeirri
röð sem þær eru fiam settar, svo
stutt og' greinilega sem unt er.
Gætið þess, að hafa lýsinguna að
eins bundna við einn stað (sbr.
1)) -
B) Samskonar lýsingar á síðari
kippum/ (IJversu margir? Hvenær
varð síðast vart' við kippi? o. s.
frv.).
Brjefin má senda burðargjalds-
frítt, ef merkt eru í horni orðinu
„landskjálftinn", Utanáskrift mín
Hryðjuverk í Jugoslafíu.
■ *smsáSi—• b i íibtS'
Zagreb, 6. ágúét F.B.
Byltingarsinnar meðál and-
stæðinga serbnesku stjórnmála-
flokkanna hafa stofnað til hryðju-
vei;ða með því að varpa sprengikúl
um á aðalbækistöð lögreglunnar.
Einnig var gerð tilraun til þess að
fela vítisvjel á „Sokol Stadium“
skömmu áður en þangað var von
þátttakenda í al-serbneska lands-
fundinum. — Lögreg'lan hefir tek-
ið málið til rannsóknar og gert
húsrannsóknir hjá ýmsum, sem lík
ur þóttu benda til, að væri við
málið riðnir, og hafa fundist í
fórum þéirra handsprengjur og
vítisvjel .
Unifted Press
Hemaðarbandalag
milli Frakklands og Þýska-
lands.
Oslo, 7. ágúst. FB.
í Þýskalandi heyrast nú hávær-
ar raddir um að bjóða Frakklandi
að ganga í hernaðarbandalg við
Þýskaland. Þýski hershöfðinginn
Reichenau, sem er „hægri hönd„
hermálaráðherra Þýskalands hefir
gert slíkt bandalag að umtalsefni
viðtali við frakkneska blaða-
menn. Heldur hann því fram, að
Þýskaland sje eina landið, sem
geti veitt Frakklandi það öryg'gi
$ern Frakkar óski eftir.
Líflátsdómar í Austurríki.
er:
Box 147, Akureyri.
Með von um árangur.
Sigurður Þórarinsson.
fil. stucl.
Önnur blöð éru vinsamlega beð-
in að birta þessa grein.
Kalundborg 6. ág. F. Ú.
Ákveðið hefir verið að hefja
ákæru um landráð á hendur
öllum þeim, sem uppvísir urðu
að þátttöku í Nazistauppreisn-
inni í Austurríki á dögunum,
og að stefna þeim fyrir her-
'jett. Herrjetturinn í Wien
lefir enn dæmt þrjá Nazista
af lífi.
Italskur stjórnarfulltrúi
ger landrækur.
Frakkar veíta
Aasttirríkí íán.
Kalundborg 6. ágúst. F. Ú.)
Franskir bankar hafa sam-
þykt að lána Austurríki 350
miljónir franka. Hafði Dolfuss
kanslara tekist að ganga frá
undirbúningi samninga um
þetta lán, áður en hann var' Braa“.
myrtur.
Kalundborg 6. ág. F. Ú.
Albinati, fyrverandi fulltrúi
í innanríkisráðuneytinn ft-alska
hefir nú verið gerður landræk-
ur. Hann var fyrir skemstu
sviftur embætti 'og metorðum
sínum í fascistaflokknum, en
þar hafði hann verið talinn
meðal helstu foringja.
Erlenö ummceli
um ísl. leiksýningu.
Síðasta leiksýning Leikfjelags-
ins á fyrra Jeikári „Á móti sól“
eftir Norðmanninn Helge Krog,
hefir vakið talsvert umtal í er-
iendum blöðum. Ýms norsk blöð
gátu þannig lofsamlega um sýn-
inguna og í danska leikhúsblað-
inu „Forum“ var sagt frá sýning-
unni, og þar talið að Helg’e Krog
sje fyrsta norska léikritaskáldið,
fyrir utan Ibsen og Björnson,
sem fengið hafi leikfit sýnt á ís-
landi. Þetta er ekki allskostar
rjett, þareð Lelkf jelagið hefir einn
ig sýnt leikrit eftir Johan Bojer,
„Augu ástarinnar“ og ,jSigurð
Gullfoss
ferðamenn.
Þótt það hafi orðið hlutskifti
mitt að ferðast töluvert, bæði hjer-
lendis og erlendis, þá hafa fæstar
ferðir mínar verið farnar sem
skemtiferðir. Samt gerði jeg
lykkju á leið mína eitt sinn, að
óþörfu, til þess að sjá Niagara-
fossana, og nú í annað sinn, fór
jeg dálítinn krók á ferð minni, og
var tilgangurinn sá, að skoða
Gullfoss. Mjer hefir ekki hlotn-
ast það fyr á æfinni.
Nú vill svo til, að upp við Gull-
foss er heilmikið af tjöldum, og-
þar eru góðar veitingar seldar, og
gisting' er þar einnig fáanleg- Jeg
kom tvisvar að Gullfossi og dvaldi
þar nálega þrjá daga samtals, em
það sem mig undraði einna mest,.
var að sjá hvernig margir ferða-
menn skoðuðu fossinn. Þeir komui
þráfaldlega akandi í vagni sínum,
alla leið út á efri árbakkann,.
stigu út úr vagninum, stundum,
ekki allir, stóðu stundarkorn á
hvammsbrúninni, tóku myndir af
fossinum, snjeru nefum sínum
aftur til byggða og hjeldu leiðar
sinnar. Sumir fóru auðvitað niður
að fossinum, en nálega engir
skoðuðu hann eins og nauðsynlegt
er, til þess að fá góða hugmynd
um fossinn og nágrenni hans.
Margir koma eflaust á þennan.
stað án þess að hafa hugmynd um
hvamm einn, sem er þar skamt
frá árgilinu. Það er dálítið erfitt
að komast niður í hvamminn, en
jiefði jeg ekki komið þar, teldi
jeg mig hafa farið .mikils á mis.
Þar er trjágróður mikill, trje
tveggja mannhæða há, en auk þess
má fá allskonar fagrar myndir í
þessum hvammi, ef sá er myndirh-
ár tekur, hefir ofurlitla útsjón.
j Nú er verið að ljúka við að
reisa all stóran skúr rjett hjá
iossinum, þar sem veitingar eiga
að vera. Þrír stórir gluggar
snúa xit að fossinum, og get jeg
hugsað mjer, að mörgum ferða—
manni þyki ánægjulegt að sitja
þar og snæða eða drekka kaffiíS
sitt og horfa um leið á fossinn,
en þó óáreittur. af úða frá fossin-
um eða kulda- — Gullfoss hefir nú
meira aðdráttarafl fyrir mig', eftir
að Iiafa sjeð hann og umhverfið,
en áður. Maður getur gengið undir
annan Niagara-fossinn, en maður
getur skoðað Gullfoss á fleiri.
vegu, og komist einnig mjög nærri
honum.
Pjetur Sigurðsson.
Sefulið veikist.
í búlgörsku hafnarborginnir
Burgas, helt setuliðið nýlega
veislu í liðsforing'jaskálanum-
Þegar veislan stóð sem hæst fengu
margir idi kvalir innvortis
og ko. upp sá kvittur, að
maturinn, sem þeir höfðu etið,
hefði verið banvænn. Urðu þá
allir dauðhræddir og var í skyndi
sent eftir öllum þeim læknum,
sem náðist í. Og vegna þess að svo-
fljótt var brugðið við, tókst að-
bjarga lífi allra veislugestanna.
Höfðu 75 veikst, þar af 6 hættR-
lega. Það kom upp úr kafinu að
ejtrunin stafaði frá ís, sem geyrnd-
xir hafði verið í spanskgrænixm
eirílátum.