Morgunblaðið - 21.09.1934, Blaðsíða 3
3
MORGUNBLAÐIÐ
U,!.»ua^‘W»‘;- W vJk'- •v*w jw’W*i»íw»w« •
Bóndi varð úti
í Sauðadalsmynni
í stórhríð á fimtudagsnótt.
Hann villist á Vatnsdalsfjalli,
veikist og leggst í fönn, ásamt
12 ára dreng, sem með hon-
um var, en er örendur áfimtu-
dagsmörgun.
Drengurinn komst til bygða.
Norðanstórviðri skall yfir á
Norðurlandi á miðvikudaginn
var og hjelst það óslitið fram
á fimtudagsmorgun.
í þessu veðri varð bóndi úr
Vatnsdal, Guðmundur Magnús-
son að nafni, úti.
Hann var á ferð yfir Vatns-
dalsfjall, ásamt 12 ára dreng.
Þeir viltust á f jallinu í stórhríð
og lögðust fyrir í fönn, en á
fimtudagsmorgun var Guðmund
ur örendur.
Morgunblaðið hafði tal af
stöðvarstjóranum á Blönduósi í
gær, Karli Helgasyni, og fjekk
hjá honum eftirfarahdi upplýs-
ingar um þenna sorglega at-
burð.
Lagt á fjallið.
Með birtingu á miðvikudags-
morgun lögðu þeir af stað með
stóðrekstur úr Auðkúlurjett
Guðmundur Magnússon bóndi í
Koti og Ingvar Steingrímsson,
12 ára drengur frá Hvammi,
báðir úr Vatnsdal og var ferð-
inni heitið vestur í Vatnsdal, yf-
ir Vatnsdalsfjall, sem liggur
milli Svínadals og Vatnsdals. —
Þeir lögðu á fjallið skamt fyrir
aunnan bæinn Hrafnabjörg í
Svínadal.
Þeir villast.
Bleytuhríð og stórviðri var,
er þeir lögðu af stað og þeg-
ar komið var upp á fjallið, var
frosthríð.
Þegar þeir voru komnir skamt
á fjallið viltust þeir í hríðinni.
Guðmundur hugðist að láta hest
ainn ráða og hjeldu þeir þannig
áfram allan daginn, án þess að
vita hvert þeir fóru.
Guðmundur veikist.
Er á kvöldið líður, veiktist
Guðmundur, sennilega mest af
kulda og vosbúð, því þeir fje-
iagar voru rennandi blautir og
föt öll frosin á þeim.
Loks er svo komið, að Guð-
mundur getur ekki lengur setið
á hestinum vegna þreytu og
lasleika.
Eru þeir þá komnir að á (er
reyndist vera Giljá). Þeir fara
af baki hestunum í brekku
skamt frá ánni. Guðmundur fer
niður að ánni, til þess að sjá
hvert hún rennur. Snýr svo frá
ánni aftur og ætlar að halda
upp brekkuna, en gefst upp og
legst fyrir.
Drengurinn vildi halda áfram
og reyna að ná til bæja, en
Guðmundur biður hann ekki að
fara.
Leggjast í fönn.
Drengurinn verður við til-
mælum Guðmundar og legst hjá
honum og láta þeir nú skefla
yfir sig.
Guðmundur talaði við dreng-
inn við og við alla nóttina, en
undir morgun er hann farinn
að tala óráð. Og þegar birta
tók á fimtudagsmorgun heyrð-
ist ekkert frá Guðmundi.Dreng-
urinn fer að athuga Guðm.,
og finnúr að hann er orðinn
kaldur og þykist þess fullviss,
að hann sje dáinn.
Drengurinn kemst til bæja.
Brýst nú drengurinn út úr
skaflinum og nær í hest sinn,
sem þar var skamt frá, og legg-
ur af stað. Hann kemur til
Stóru-Giljár kl. 8 á fimtudags-
morgun og segir þar tíðindin.
Læknir sóttur.
Var nú þegar sent eftir Páli
Kolka hjeraðslækni á Blöndu-
ósi, og fer hann, ásamt nokk-
urum mönnum frá Stóru-Gilja
að leita Guðmundar, eftir til-
vísan drengsins. Þar finst lík
Guðmundar, sem þá er al-stirðn-
að. Var líkið flutt til Stóru-
Giljár.
Þeir voru skamt frá bygð.
Staður sá, er þeir fjelagar
lögðust fyrir í fönninni er í
mynni Sauðadals, ei* liggur
fram (suður) af bæjunum Stóru
Giljá og Beinakeldu og vóru
þeir skamt frá Beinakeldu.
Þeir fjelagar höfðu vilst af
fjallinu og norður Sauðadalinn.
Drengurinn var orðinn hress
eftir þessar hrakningar og virt-
ist hafa náð sjer til fulls. Er
hann tápmikill.
Guðmundur sál. var 57 ára
að aldri, kvæntur og átti sjö
börn, flest uppkomin.
Fjenaður fent?
Hætt er við, að fjenaður hafi
fent í þessu hríðarverði nyrðra,
því feikna snjór var kominn í
fjöll og aftakaveður. Þegar þeir
fjelagar voru að villast á fjall-
inu, rákust þeir á fjórar kindur
í fönn, svo menn óttast, að fjen-
aður hafi fent, því snjór er
víða í mitti í fjöllunum.
----------------
Yfirvofaiidi
fóðurskoríur nyrðra.
Sig. E. Hlíðar segir frá.
Sigurður E. Hlíðar dýralækn-
ir kom hingað til bæjar-
ins til þess að framkvæma skoð-
un á hrossum þeim, er flutt
voru með Goðafossi til Þýska-
lands. Er hann í því efni full-
trúi þýsku stjórnarinnar.
Blaðið hafði tal af Sigurði í
gær og spurði hann um tíðar-
far ög heyverkun nyrðra.
Hann sagði:
í flestum sveitum norðan-
lands var sama og ekkert kom-
ið inn af óhröktmm heyjum þ.
12. sept. En þurkur kom þá á-
gætur í 3 daga samfleytt, með
sunna:nVindi, sem að vísu var
Sums stáðar svo mikill, að nokk-
uð af heyi fauk og spiltist.
Þessa þrjá þurkdaga gátu
flestir náð heyjum sínum inn
eða í sæti, og var þá óhrakið
hirt það, sem síðast hafði verið
slegið.
Þegár þessir þrír þurkdagar
komu, voru mestallar töður
komnar inn, en allar stór-
hraktar.
Það er alveg áreiðanlegt, seg-
ir Sigurður ennfremur, að bænd
ur geta ekki framfleytt fjenaði
sínum á heyjunum einum. Ef
þeir ætla sjer að komast af án
fóðurbætis, verður útkoman eng
in önnur en sú, að fjenaðurinn
veslast upp af vanfóðrun.
Því þarf að vinda bráðan bug
að því, að afla yfirlits um það,
hve mikið kjarnfóður þarf til að
bæta upp hin hröktu hey.
Væri mjög æskilegt að gera
nokkrar efnagreiningar á heyj-
unum, til þess að fá gleggri hug
mynd um hve mikið eða öllu
heldurlítið er á þeim að byggja.
--—■ ■>' —
Síldveiðin. f lok s. 1. viku var
búið'að salta alls á landinu ‘214.686
tn., en 219.046 tn. á sama tíma
i fyrra. f bræðslu var komið
686.726 lil., c i 751.225 bl. á sama
tíma í fyrra.
Tózileikar
s Gamk Bió.
Arnold Földesy.
Þegar jeg frjetti að’von væri á
celló-leikaranum Arnold Pöldesy,
rifjuoust npp fyrir mjer endur-
minningarnar um það, er jeg í
fyrsta sinn á námsárum mínum í
Leipzig heyrði þennan mikla lista-
mann íeika á hljóðfæri sitt. Það
var í ,,Gewandhaus'‘-tónleikum
undir stjórn Arthur Nikiseh. Hann
ljek þar „eelló-konsert“ eftir Ro-
bert Volkmann óviðjaftianiega vel.
Síðan hefir Földesy staðið: mjer
fyrir hugskotssjónuin, sem einn af
bestu hljóðfæraleikurum sem jeg
hefi heyrt. Það var mjer því hið
mesta gleðiefni er jeg- lieyrði að
hans væri hingað von.
Og nú er hann kominn. —
Fyrstu tónleika sína hjelt hann
í Gamla Bíó á þriðjudagskv. með
ágætri aðstoð Emils Thoroddsen.
Á efnisskránni voru verk eftir
Tartini, Breval (sónata í G-dijr),
Bocherini, Huré, Granadas og
Popper. H.jer á engin gagnrýni
við. Álieyrendum gafst tækifæri
til þess að njóta í ríkum mæli list-
flutnings á háu stigi og að kynn-
ast hinu fágæta hljóðfæri, celló-
inu, í höndum fullkomins meist-
ara. Jeg hygg að meiri listamaður
hafi elcki fyrr komið hingað til
lands og látið til sín heyra.
Arnold Földesy er einn af þekt.-
ustu Celló-leikurum sem nú eru
uppi í lieiminum, og ættu allir,
sem þess eiga kost að nota tæki-
færið og hlusta á hann
^Páll fsólfsson.
Skýrslur
starfsmanna bæjarins
verða prentaðar.
Arngr. Kristjánsson hreifði
því á bæjarstjórnarfundi í gær,
að æskilegt væri, að ýmsar
skýrslur um starfsemi skól-
anna, um læknisskoðun skóla-
barna og eftirlit, yrðu fjölrit-
aðar, svo bæjarfulltrúar gætu
fengið þær.
Borgarstjóri skýrði þá frá
því, að í ráði væri að prenta
útdrátt úr ýmsum skýrslum, er
koma fram um málefni bæjar-
ins. Skýrslur þessar yrðu vitan-
lega ekki hafðar langar, en þær
yrðu að innihalda ýmsar sam-
anburðartölur, sem að gagni
kæmu í framtíðinni.
Hjálpræðisherinn. Opinber sam-
koma í kvökl kl. S1/^. Adjútant
Molin talar. Söngur og hljóðfæra-
sláttur. Allir velkomnir.
Kuldahúfur
fyrir börn .og fullorðna.
Nýkomio:
Skinnhúfur með loðkanti.
Flughúi'ur,
Oturskinnshúfur,
Lóshúfur.
ÍÍEYSIK.
M.s. Dronníng
Alexandrine
fer annað kvöld kí. 6 til ísa-
fjarðar, Siglufjarðar og- Ak-
ureyrar. Þaðan sömu leið
til baka.
Af sjerstökum ástæðum er
nauðsynlefft að fá öll fylgi-
brjef yfir vörur í dag.
Farþegar sæki farseðla í
dag.
S.S. Botnia
fer annað kvöld ld. 8 til Leith
(um Vestmannaeyjar og
Thorshavn).
Sfcipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Tryggvagötu. - Sími 3025.
Borgarffarðar-|
dilkakföf.
Lifur — Mör — Svið.
Kaupfjelag
Borgfirðinga.
Sími 1511.
Upp jeg raða hlið við hlið
hnoðunum af vana
og skal bæta viðhót við
varaskrúfnaglana.
Nærfatnaður.
Nýkomið stórt úrval,
ágætis tegundir, ódýr.
GEYSIR.