Morgunblaðið - 28.09.1934, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Allur vöruinnflutningur til
landsins á að vera háður
stjórnarleyfum.
Engan gjaldeyri má láta af hend án leyfis
gjaldeyris- og innflutningsnefndar.
Gjaldeyris- og innflutningsnefnd skal
framvegis hafa öll umráð þessara
mála og vera þannig skipuð 3 stjórn-
skipuðum mönnum og tveimur til-
nefndum af bönkunum.
Nýtt stjórnarfrumvarp um gjaldeyris-
leyfi o. fl.
Borgþór Jósefsson
bæjargjaldkeri. I. F. 3.
Nýja haftareglugerðin.
Þess hefir verið getið hjer í
blaðinu, að ríkisstjórnin hafi
gefið út nýja haftareglugerð.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð
hefir verið bætt við miklu fleiri
vörum, sem sækja þarf um inn-
flutningsleyfi til gjaldeyris-
nefndar en í reglugerð þeirri,
sem áður gilti.
Er nú svo komið, að fá verð-
ur leyfi til innflutnings á flest-
um vörum öðrum en komvörum,
kolum, salti, olíu, kaffi, sykri,
veiðarfærum — að ógleymdum
þeim vörum, sem ríkið hefir
einokun á, svo sem áfengi og
tóbaki, sem jafnan er til nægur
gjaldeyrir fyrir!
Ströng haftalög í vændum,
En menn skulu ekki halda,
að með þessari nýju haftareglu-
gerð, sem stjórn rauðliða gefur
út, sje sjeð fyrir enda kúgun-
arinnar og ófrelsisins í verslun-
ar- og viðskiftamálum.
Nei; aldeilis ekki.
Stjórnin leggur fyrir þingið
nýtt frumvarp um gjaldeyris-
verslun o. f 1., þar sem farið er
fram á, að
banna allan vöruinnflutn-
ing til landsins nema með
leyfi gjaldeyrisnefndar.
1 2. gr. frv. þessa segir svo:
„Með reglugerð er heimilt að
ákveða, að engar vörur megi
flytja til landsins og að engan
erlendan gjaldeyri megi láta af
hendi, nema með leyfi gjald-
eyris- og innflutningsnefndar“.
Svo sem menn muna, var einn
liður stjórnarsamnings rauðu
flokkanna sá, að sjerstök stjóm-
arskrifstofa skyldi sett á lagg-
irnar, er ráðstofa skyldi inn- og
útflutningi og hafa að öllu leyti
„yfirumsjón með sölu, er við-
kemur utanríkisversluninni'í.
Með 'hinu nýja gjaldeyris-
frumvarpi er verið að undirbúa
þetta nýja stjórnarbákn.
Nýja nefndin: 3 stjórnskip-
aðir 0^ 2 tilnefndir af bönk-
unum.
1 hinu nýja stjórnarfrumvarpi
er svo fyrir mælt, að hin nýja
gjaldeyris- og innflutningsnefnd
skuli skipuð 5 mönnum og verði
þeir þannig skipaðir:
Þrír skulu skipaðir af fjár-
málaráðherra án tilnefningar
og verði einn þeirra formaður
og framkvæmdastjóri nefndar-
innar. Einn skal skipaður sam-
kvæmt tilnefningu Landsbanka
Islands og einn samkvæmt til-
nefningu Útvggsbanka Islands.
Svo sem sjá má af þessu,
má nú
enginn fulltrúi verslunar-
stjettarinnar og enginn
fulltrúi neytenda, iðnaðar-
manna eða framleiðenda
hafa afskifti af þessum
málum-
Nú er þetta þannig, að skylt
er að bera allar ráðstafanir um
úthlutun gjaldeyrisleyfa undir
nefnd, sem þannig er skipuð:
Einn skipaður áf fjármálaráð-
herra (formaður), og eftirtald-
ir aðiljar skipa einn hver:
Stjórn verslunarráðsins, stjórn
Sambands ísl. samvinnufjelaga,
stjórn Alþýðusambands íslands,
stjórn Sölusambands ísl. fisk-
framleiðenda, stjórn Búnaðar-
fjelags Islands, stjórn Landsam-
bánds iðnaðarmanna og stjórn
Iðnrekendafjelagsins.
! Framvegis mega þessir aðilj-
| ar ekki koma nálægt þessum
I málum, segir stjórn rauðliða.
Ef - ef - ef.
Skýrsía Eysteíns
i átvarpínti.
Fjármálaráðherra ljet lesa
upp í útvarpinu í gærkvöldi
langa skýrslu, til þess, að því
er hann tjáði, að hnekkja þeim
tölúm, sem Morgunblaðið og
ísafold ljetu flytja í útvarpinu
í fyrrakvöld í sambandi við
fjárlagafgrumvarpið, sem lagt
verður fyrir komanda Alþing.
I útvarpstilkynningu Mbl. og
ísafoldar var þetta sagt um
f járlagafrumvarp stjórnarinnar:
„Ennfremur segir þar (þ. e.
'í áminstri grein) frá því, að
fjárlagafrumvarp stjórnarinnar
múni verða lagt fyrir þingið
með um tveggja miljóna króna
tekjuhalla“.
Hvað er rangt í þessari frá-
sögn? Og hverju hefir ráðherr-
ann hnekt?
1 I fjárlagafrumvarpinu eru
útgjöldin af f jármálaráðherra
sjalfum áætluð 1.8 milj. krón-
um H Æ R R I en tekjurnar.
Er þá nokkuð rangt að segja,
að fjárlagafrumvarpið verði
lagt fyrir þingið með „um
tveggja miljóna króna tekju-
halla?“
I skýrslu ráðherrans, sem les-
in var upp í útvarpinu var m. a
þessi setning:
„Eins og frumvarpið er lagt
fram, eru útgjöldin að meðtöld-
um afborgunum 1.8 milj. hærri
en tekjurnar samkvæmt því“.
I dag er borinn til grafar
einn af elstu og þektustu borg-
urum bæjarins, Borgþór Jósefs-
son fyrv. bæjargjaldkeri.
Borgþór var fæddur 22. apríl
1860 á Skipanesi í Leirársveit
og ólst þar upp hjá foreldrum
sínum. 19 ára gamall — eða
árið 1879 — flutti hann til
Reykjavíkur og var síðan altaf
búsettur hjer í bæ. Skömmu eft-
ir að hann flutti hingað varð
hann versluttarrriaður við versl-
un Geirs Zoegá og var það þang
að til hann varð bæjargjald
keri, en af því starfi ljet hann
fyrir fáum árum. Aðalæfistarf
hans var því ekki mjög áber-
andi, en allir Reykvíkingar
þektu hann — og þektu hann
að góðu, hann var altaf síglað-
ur og ljettur í tali hvernig sem
bljes.
Ett'1Böfélþóií"staríáéli mjög að
öðrum niáluni en vérslunarstörf
unum. Hann var um mörg ár
fastúr stífrfsmaður hjá Leikfje
lagi Reykjavíkur og einn af
vstofnendum þess.
En aðalmál hans var hiklaust
bindindisstarfsemin. Góðtempl
arareglan kom hingað til
Reykjavíkur sumarið 1885, en
10. janúar 1886 gekk Borgþór
í siúkuna Einingin nr. 14 og
var aít f^á fyrstu árum hennar
til æfiloka einn af aðalmönnum-
sfúku sinnar, óþreytandi starfs-
maður riennar og sótti hvern
íúttd. Mokkru síðar var Borgþór
kööinn stórritari í Stórstúkunni
og var það í fjölda ára, og eftir
að hann ljet af því starfi gegndi
Er þetta ekki fullkomin stað-
festing á því, sem Mbl. .og Isaf.
sögðu?
Hitt kemur svo þessu máli
ekki, agnar þgn við,‘ hver útkom-
an ýi;ðþ ef; reiknað væri með
gengisyiðauka á kaffi- og syk-
urtolli (sem stjórnin leggur til
að fella burtu), ef reiknað væri
með því, að aðrir tekjustofnar
færu svo eða svo mikið fram
yfir áætlwn og ef reiknað væri
meö því, að búiö væri að sam-
þykkja öll hin nýju skatta- og
tollafrumvörp stjórnarinnar, en
út á þetta gekk mestöll skýrsla
fjármálaráðherrans.
Staðveyndirnar eru skjalfest-
ar: -4'
Fjárlagafrumvarp Eysteins
Jónssonar verður lagt fyrir
þingið með 1.8 miljón króna
tekjuhalla.
hann fjölda annara starfa í
Reglunni.
Það, sem fyrst og fremst ein-
kendi Borgþór var ósjerplægni
hans í öllum störfum, skyldu-
rækni hans og árvekni, en sam-
hliða því var hann lipur og lát-
laus í allri umgengni, svo marg-
ir urðu þess lítt varir þótt hann
hjeldi fast á máli sínu. Þessir
kostir hans löðuðú menn að
honum, menn fundu það að ó-
hætt væri að treysta því að
hann framkvæmdi það er hon-
um var falið. Og mörg. árin t.
d. eftir aldamótin hefir Borgþór
unnið meira í þaríir Reglunnar
en flestir aðrir ef ekki allir aðr-
ir. Borgþór var ágætur ræðu-
maður, var því og margsinjiir
ræðumaður á útbreiðslufundum
templara, og hvatti menn til
að ganga í Regluna. Traust
hans og álit meðal fjelaga
sinna má meðal annars sjá á
því að hann var heiðursfjelagi
Stórstúkunnar, Umdæmisstúk-
unnar )g stúku sinnar, og var
nú umboðsmaður hátemplars,
en traust það er stjettarbræður
hans báru til hans er ljósast
þar sem hann var heiðursf jelagi
í Verslunarmannafjelagi Reykia
víkur.
En starfsemi Borgþórs í þarf-
ir bindindismálsins var líka við-
urkend af ríkisstjórninni, því
hún sæmdi hann riddarakrossi
Fálkaorðunnar.
Borgþór var bókamaður og
las jafnan mikið, enda átti hann
oft ágætt bókasafn.
Kona Borgþórs var hin fræga
leikkona vor, frú Stefanía heit-
in Guðmundsdóttir, sem ekki
einvörðungu var ágæt leikkona,
er allir sem sáu hana dáðu, held
ur líka ástrík og ágæt hús-
freyja, og má óhætt fullyrða að
betra samkomulag og meiri
samhentni en var með^ þeim
hjónum sje mjög sjaldgæf. Jeg
hika ekki við að fullyrða að
Borgþór hafi verið jafn nærgæt-
inn og hugulsamur við konu
sína síðasta dag hjónabandsins
sem fyrsta hjúskapardaginn. En
bæði voru þau samvalin í að
hugsa vel um heimili sitt og
börn sín, enda mun öllum hafa
liðið vel við arin heimilis þeirra,
andrúmsloftið gott og heimilið
fegrað af smekkvísi.
Börn þeirra hjóna eru Óskar
lögfræðingur á ísafirði, Geir
stúdent, Anna leikkona, gift
Poul Reumert leikara, Emilía,
Þóra og Áslaug. Börnin haía
tekið sjer ættarnafnið Borg.
Með láti Borgþórs hefir Regl-
an mist mikið. Hann var enn,
þrátt fyrir háan aldur, óþreyt-
andi starfsmaður hennar og
vildi alt fyrir hana gera, og
Reykjavíkurbær á að baki að
sjá einum af sínum elstu og
bestu borgurum.
En við sem eftir erum þökk-
um Borgþór margar ánægju-
stundir. Þökkum honum starf-
semi sína og óskum og vonum
að starf hans beri ríkulegan
árangur
P. Z.
M.s. Dronning
Alexandrlne
fer sunnudaginn 30. þ. m. kl.
8 síðd. til Kaupmannahafm-
ar (um Vestmannaeyjar og
Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla í
dag.
Tilkynningar um yftrnr
komi í dag.
Slipaafgreiðsla
Jes Zimsan.
Tryggvagötu.
Sími 3025.
ósstt ku
og kökur, mikið úrvaL .
Fæst í
i
ítalskar
firœnar hnnilr
fins-mifins-moyens
nýkomnar.
I. Brynjólfsion & Kvaran.