Morgunblaðið - 07.10.1934, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.1934, Blaðsíða 2
o T T~> r~*« T t "V r T~> T \ ▼ T-> iVl W lt -el CJ ^ -, ±_j l.j s± 3> X IV axrjWi-tfKfm^icg^^m^tCTTf^rguaanb^t rnrr iriKiinn Útgeí.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Rltstjörar: J6n KJartanaaon. ValtÝr Stefánsson. Rltstjðrn og afgrelOsla: Austurstrætl 8. — Slml 1800, Auglýslngastjöri: E. Hafberg. Augiyslngaskrlf stof a: Austurstrætl 17. — Slml 8700. Heimasimar: Jön Kjartansson nr. 8742. Valtjr Stefánsson nr. 4220. Árni Óla nr. 3045. E. Hafberg nr. 3770. Áskrlftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuOi. Utanlands kr. 2.50 á mánuBi 1 lausasölu 10 aura eintakið. 20 aura meti Liesbök. Tvö íölublöð koma út af Morgunblaðinu ídag Þungur róður. Mönnum er enn í fersku minni grein Sigurðar Einarssonar í Al- þýðublaðinu, þar sem hann í nafni „alþýðunnar“ heimtaði að mjólk- urverðið yrði tafarlaust lækkað niður í 38 aura og í 35 aura frá áramótum. Alt annað væri svik við „alþýðuna“ sagði S. E. og hann kvaðst greiða atkvæði gegn Mjólkurlögunum á Alþingi, ef þessi lækkun fengist ekki. Síðan þetta gerðist er liðinn mánuður eða meir; en engin mjólk urlækkun fengist. „Alþýðan11 hef- ir verið svikin. Fullyrt er, að S. E. hafi fengið þungar ásakanir frá burgeisum sósíalista, þeim Hjeðni Valdi- marssyni, Stefáni Jóh. og Jóni Baldvinssyni, fyrir greinina og að þessir herrar hafi lagt ríkt á við ritstj- Alþýðublaðsins, að birta ekkert slíkt í blaðinu framvegis, því það g’æti spilt áliti burgeisanna hjá „alþýðunni“. Hefir og ekkert heyrst frá S. E. síðan — fyr en nú fyrir nokkr- um dögum. Þá kom hann óboðinn á fund kjötverðlagsnefndar og spurði nefndina með valdmannssvip, hvenær hún ætlaði að lækka kjöt- verðið. Sagði S. E. nefndinni að ,.al- þýðan“ hefði ekki ráð á að kaupa kjöt með því verði, sem nefndin hefði ákveðið. Og hann ráðlagði nefndinni að lækka verðið nú þegar. Nefndin hlustaði um stund á Sigurð, en gaf honu^n þvínæst til kynna, að hún hefði öðrum störf- um að gegna. Þá vjek Sigurður af furidi. En ekki hefir hann feng- ið birta grein í Alþýðublaðinu um kjötið. Dauðadómur í Austurríki. f Loeben í Austurríki var í gær 27 ára gamall náriiumaður dæmdur til lífláts fyrir brot gegn lögunum um meðferð sprengiefna. Maður þessi hafði einusinni bjargað 40 námumönnum úr lífsháska, og hafði fyrir það fengið björgunar- pening og víðurkenningarskjal frá austurrísku stjórninni. Fjallfföngumenn hrapa. Þriggja fjallgöngumanna, sem gengu á fjallið „Hohe Wand“ nálægt Wien, á. sunnudaginn, hefir verið saknað. Það hefir nú komið í ljós, að þeir hafa allir hrapað til bana úr fjallinu. Uppreisn og blóðsúthellingnr uiii nllan Spán. Hversweitir sffórnarinnar vinna víðasl bug á uppreisninni. Hvað gera Cafaloníumenn? Síðustu fregnir frá Spáni eru í stuttu máli þessar: Um alt land hefir í dag borið á fullkc^mnum uppreisnartil- raunum gegn stjórninni. Þessar uppreisnartilraunir hafa alls staðar verið bældar niður nema í Asturia. I Cataloniu virðist almenning- ur bíða þess að sjá hvaða ráð- 1 A jj - stafanir stjórnin gerir vegna væntanlegrar sjáífstæðisyfirlýs- ingar þess hjeraðs. Giskað er á að tala fallinna sje 125 í öllu landinu, en særð- ir á fimta hundrað- AUmargir menn særðust og fjölda margir voru handteknir í nótt. Var víða barist og skot- vopn óspart notuð. Víða voru sprengjutilræði framin. Lerrowx hefir heriirn til taks Lerroux hefir tilkynt, að þiriííð geti ef til vill komið sam an á þriðjudag n. k. Hermála- ráðherrann hefir skipað öllum herdeildum að vera reiðubún- um hvenær sem á þær kann að Upphlaup á götu í Madrid. verða kallað .pæstu tvo sólar- hringa og engurp hermanni er leyft að farg, úr þermannaskál- um fyrst um sinn. London 6. okt. Síðustu fregnir frá Spáni herma að hersveitir stjórnar- mnar,exgi nú í baráttu við upp- reisparmenn um gjörvalt landið. Samtimis þessum fregnum kemur opinber tilkynning um það, að byltingarmenn sjeu alls staðar að bíða lægri hlut. Bartlagar í Asturia. Mest hefir kveðið að hardög- um í námuhjeruðunum í Ast- uria. Síðdegis í dag va.r opin- berlega skýrt frá, að uppreisn- armenn hefðu allmargar borg'r og þorp á vaidi sínu. Aðstoðar- hersveitir hafa í skyndi verið sendar norður þangað, en það hefir reynst miklum - erfiðleik- um bundið, að koma hermönn- um norður með ' járnbrautum, vegna þess að .járnbraritarteinar hafa víða verið éyðilagðri* og garðar hlaðnir þvert yfir vegi, svo að bifreiðum hefir heldur ekki orðið við komið. Það er kunnugt að mannfall hefir orðið allmikið í hersveitum stjórnarinnar og að minsta kosti einp þingmaðúr úr flokki kon- ungssinna hefir verið skotinn til bana en um mannfall úr liði uppreisnarmanna er ekki kunn- ugt. I sunnanverðu landinu er alt öllu rólegra og lítur út f.yrir að stjórnin bafi þar öllu sterk- ari tök á hlutunum. Allskæðar orustur hafa þó orðið í Valla- dolid þar sem uppreisnarmenn komust yfir nokkrar vjelbyssur. Síðustu' fregnir þaðan herma þó áð liðsveitir stjórnarinnar hafi oriðið yfirsterkaxn. Fjöldi manna drepinn í Madrid. I Madind eru miklar æsingar og hefir þar einnig verið barist í austurhluta borgainnnar. Víg- girðingar hafa verið settar um þverar götur sums staðar og Herlið i Madrid. Lerroux og blaðamenn. stjórnarhersveiíir eru þar á verði með vjelbyssur. AUmargir menn, sem engsu*. hlut áttu að óeirðunum hafa verið drepnir í Madrid og manii fall taisvert bæði í liði stjóm- arinnar og í liði uppreisnar- manna. Stjórnin ber opinber- lega á móti því, að nokkuð kveði að því að menn hafi ver- ið skotnir eða orðið fyrir slys- um, sem ekki tóku þátt í bar- dögunum, en aðrar fregnir herma, að svo margir hafi særst að sjúkrahús hafi vart undan að taka við þeim. Klukkan fjögur í dag var skýrsla stjórnarinnar á þá leið, að 31 maður hefði verið drep- inn og 46 særst í Madrid ,en aðrar fregnir herma að þessar tölur sjeu ekki nema lítið brot af hinum raunverulegu tölum. Cataloniu-st.iórnm andvíg. Lerroux. Slitur him samhandinu við Madrid? Frá pólitísku sjónarmiði virð ist hættan vera einna mest í því fólgin að Catalonia segi sig úr lögum við ríkið. Erfitt er að fá nákvæmar fregnir frá Cata- loniu vegna þess að símalínur eru eyðilagðar og samgöngur engar, en svo virðist sem við- skifta- og athafnalíf þar sje gersamlega lamað í dag. Miklir bardagar hafa orðið í Barce- lona í dag en sagt er að her- sveitir hjeraðsstjórnarinnar hafi nú fengið fullkomna yfirhönd í öllu fylkinu, en þessi hjeraðs- stjórn hefir lýst sig opinberlega andvíga Lerroux stjórninni. í Madiúd bíða menn með eft irvæntingu eftir fregnum frá Barcelona. Og þó að Lerroux- stjórnin vilji ekki játa að henni standi stuggur af fregnunum um það, að Catalonia muni segja sig úr lögum við íúkið, og lýsa yfir sjálfstæði sínu, þá er það talið fullvíst, að þetta sje eitt mesta vandamál stjórn- arinnar og að hún muni aldrei gera alvöru úr því, að beita hervaldi við Cataloniu, þó að því hafi verið lýst yfir, að stjórn in mundi grípa til hinna ströng- ustu ráðstafana, til þess að bæla niður uppreisnina einnig þar. Fluffslys. Berlín 8. okt. FÚ. Við vestux’strönd Skotlands hrapaði bresk sprengjuflugvjel í sjóinn í gær. Flugmaðurinn fórst, en það tókst að bjarga leiðsögumanni hans, þó mjög meiddum. j ití&í I ;j.; íj j fdiTilorl iifl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.