Morgunblaðið - 03.11.1934, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.11.1934, Blaðsíða 3
MORGUN BLAÐIÐ að sjer f lutning frv. um vátrygg ingu opinna vjelbáta. — En atvinnumálaráðherra „hinna vinnandi stjetta“ kvaðst ekki sjá sjer fært að leggja til, að frv. um Skuldaskilasjóð og Fiskveiðasjóð næðu fram að ganga á þessu þingi, nema því aðeins, að ríkissjóði væri sjeð fyrir tekjuauka í stað útflutn- ingsgjaldsins. Rauðliðar hlýða. í sjávarútvn. Nd. eiga sæti tveir úr milliþinganefndinni, þeir Jóhann Þ. Jósefsson og Sigurður Kristjánsson. Eftir að fullreynt var, að at- vinnumálarh. vildi ekki greiða fyrir þessum málum, fóru þeir Jóh. Jós. og S. Kr. fram á, að sjávarútvegsnefnd flytti frum- vörpin. — En rauðliðar þrír í nefndinni, þeir Finnur Jónsson (form.), Bergur Jónsson og Páll Þorbjörnsson feldu þá til- lögu. Flytur því sjávarútvn. aðeins frv. um vátrygging opinna vjel- báta, en þeir Jóh. Jós. og Sig. Kristjánsson flytja hin frumv., ásamt nokkrum fleiri Sjálfstæð- ismönnum. Þessar urðu þá undirtektir stjórnarinnar og rauðu fylking- arinnar, þegar um er að ræða lang-stórfeldustu umbótamálin, sem nokkru sinni hefir verið farið fram á til viðreisnar hin um hrynjandi sjávarútveg Iandsmanna. Þessir umboðsmenn ,,hinna vinnandi stjetta“ fengust ekki einu sinni til að koma málun- um á framfæri á Alþingi! Þó á öll þessi mikla umbót sjávarútvegnum til handa að byggjast upp af atvinnu rekstrinum sjálfum. Ríkið ekki að leggia fram einn eyri í beinum útgjöldum, aðeins að leyfa þessum atvinnureksti að reisa sig við, með því að sleppa hinum beina skatti á framleiðsl unni — útflutningsgjaldinu. Einokanir sófalista sigla hraðbyri á Alþingi Herferð rauðliða ólafur Thors sjer hljóðs og Eitt gengur T illöguuppd rættir af Hallgrímskirkju í Saurbæ. Bygging kirkjunnar stendur fyrir dyrum. Landsnefnd Hallgrímskirkju hefir nú um 73 þús. kr. til kirkjubyggingar í Saurbæ að meðtöldum 5 þús. kr. er Saur- bæjarsöfnuður hefir lofað. En um 100 þús. kr. er ætlað að kirkjan kosti. Því telur Landsnefnd nu tíma til kominn að afla sjer uppdráttar og áætlan um bygg inguna. Hefir nefndin komist að sam komulagi við Arkitektafjelag Islands um það hvernig kepni skuli haga um uppdrætti að kirkjunni. Eiga þeir, sem ætla sjer að taka þátt í kepni þess- ari að skila tillöguuppdrætti fyrir 15. jan. næstk. 1 dómnefnd verða tveir frá Arkitektafjelaginu, tveir úr Landsnefnd Hallgrímskirkju og dr. Jón Helgason biskup. Nánari upplýsingar gefur Matthías Þórðarson um kepni þessa. gegn innlendri framleiðslu. af frv. stjórnarinnar út á það, að afnema tollívilnun þá, sem veitt er inn- lendum iðnaðarfyrirtækjum í 3. gr. 1. nr. 50, 1927 og 1. nr. 42, 1931. Afleiðing þessa lagasetning- ar verður sú, að tollur á innl. kaffibæti og innlendu öli hækk- ar verulega og er áætlað, að sú tollhækkun nemi um 150 þús. kr. á ári, miðað við þá fram- leiðslu sem nú er. Fjárhagsnefnd Nd. klofnaði í þessu máli. Rauðliðar vildu sam- þykkja frv., þó með þeirri breyt ingu, að nokkuð er dregið úr tollhækkuninni á kaffibæti. Sjálfstæðismenn í fjhn. (Ól. Thors og Jak. M.) vildu hins- vegar fella frv. og gerðu þeir í nefndaráliti svohlj. gréin fyr- ir sínu máli: ,,Við getum ekki fallist á það, að fært sje að fella niður tollívilnun þá, sem veitt er inn- lendum iðnaðarfyrirtækjum í (3. gr. greindra laga og 1. nr. 42 8. sept. 1931. Við lítum svo á, að ákvæði nefndra íaga verði sð skilja þannig, að jafnframt því sem þessi ívilnun var ákveð- in, hafi verið gefið loforð um, að hún skyldi haldast óbreytt til ársloka 1935, og var þá ekki aðeins ósæmilegt að gera nokkra breytingu á þessu fyrir þann tíma, heldur einnig vafa- samt, að það fengi staðist. Hjer við bætist svo, að það má telja ’alveg fullvíst, að sú tollhækk- un á innlendri framleiðslu, sem af þessu mundi leiða, hefði þær afleiðingar, að innlenda fram- leiðslan minkaði ,en innflutn- ingur færi að sama skapi vax- andi á erlendum vörum, sem komið gæti í stað innlendu vör- unnar. Næg:r í þessu sambandi að benda á kaffibæti og kaffi, öl og aðfluttar drykkjarvörur. Og verður þá ekki hjá því kom- ist að vekja alveg sjerstaka at- hygli á því, hvílík fásinna það er, að hækka að miklum mun framleiðslutollinn á kaffibæt- inum, sfem framleiddur er í land inu, en samtímis, með niðurfell- ingu gengisviðauka á kaffitoll- inum að lækka innflutningstoll á kaffibaunum og hvetja þann- ig til óþarfa influtnings og gjaldeyriseyðslu.*- Talsverðar umræður urðu um þetta mál í deildinni ,en sljórn- arflokkarnir voru innilega sam- mála um, að ráðast hjer enn á ný á innlenda framleiðslu og samþyktu frv., með þeirri breyt- ingu þó, að tollurinn á innl. kaffibæti verði 2/5 aðflutn- ingsgjalds. Nýjar einokunar- viojar. Finnur Jónsson og Bergur Jónsson flytja frv. um síldar- verksmiðjur ríkisins og kom það til 1. umr. í Nd. á fimtudag. Er fyrsti flm. hafði mælt með frv. með fáum orðum kvaddi mælti á þessa leið: Með frv. þessu á að banna að reisa síldarverksmiðjur hjer á landi eða stækka þær verk- smiðjur sem fyrir eru, pema leyfi atvinnumálaráðh. komi til. Ennfremur segir í frv., að ríkið skuli hafa forkaupsrjett að þeim verksmiðjum, sem fyrir eru. í þéssu sambandi þykir mjer rjett að minna á, að þegar fyrst var borið fram á Alþingi frv. um það, að ríkið ljeti reisa og starfrækja síldarverksmiðju, voru þau rök færð fyrir því máli, að þetta væri nauðsynlegt vegna atvinnu sjómanna. Þetta var rjett, enda voru allir flokk- ar sammála um, að verksmiðjan skyldi reist. Ágreiningurinn var aðeins um framkvæmd málsins. Sjálfstæðismenn vildu að útgerð armenn gerðu þetta sjálfir, með aðstoð ríkisins. Hitt varð ofaná, að ríkið sjálft reisti verksmiðj- una og starfrækti að nokkru leyti. Síðan hefir mikil breyting orðið, sagði Ól. Th. Nú væri brátt svo komið, að nægar verk- smiðjur væru til í landinu til þess að vinna úr síld, þótt afl- inn yrði 30—40% meiri en s.l. ár. — Þetta út af fyrir sig væri full- komlega heilbrigt. Af þessu leiddi eðlileg og heilbrigð sam- kepni um hrávöruna; en af því myndi leiða hækkað verð og af hækkuðu verði, myndi leiða aukin útgerð og meiri atvinna fyrir sjómennina. En nú kæmu sósíalistar og litu meir á hagsmuni verksmiðj- unnar, en sjómannanna; nú vildu þeir rígskorða þenna at- vinnurekstur í viðjar einokunar og þar með girða fyrir eðlilega framþróun hans. Benti Ó. Th. á hve háskaleg þessi stefna sósíalista væri ein- mitt nú,' þar sem útlit væri að við þyrftum mjög að minka þorskframleiðsluna; en það myndi koma hart niður á sjó- mannastjettinni, ef ekki tækist að færa út kvíarnar á öðrum sviðum. Pjetur Halldórsson tók mjög í sama streng. Frv. var vísað til sjútvn. til athugunar. \ greinargerðinni, að enginn fái spiritus . til þessarar efnagerð- ar nema áfengisverslunin. Hjer væri verið að seilast inn á nýtt einokunarsvið, sem sje það, að draga iðnaðinn undir ríkið. — Kæmi þetta einkennilega heim við þann áhuga, sem þessir herrar þættust hafa fyrir vexti og viðgangi iðnaðarstjettarinn- ar. Fyrst ætti að styrkja iðnað- armenn sem nokkurskonar til- raunadýr, en svo ætti ríkið að hirða það, sem reyndist arð- vænlegt. Fjármáíaráðherra dró rann- sókn Jóns Vestdals inn í um- ræðurnar, en var króaður svo illilega af M. J. að hann varð að almennu athlægi. —- M. J. sýridi fram á, að annað hvort væri landlæknir sekur um svo ógurlegt athæfi, að honum bæri þegar að víkja úr em- bætti, ef hann hefði hugsað sjer að láta fólk eta eitraðar kökur í marga mánuði, eða þá að hann hefði með þessu ger- samlega afneitað eiturkenning um Jóns Vestdals. Fjármála- ráðherra sagði að það væri fleira eitur en það, sem væri bráðdrepandi, en M. J. þótti ítið betra ef landlæknir ljeti viðgangast að menn væri látnir neyta seindrepandi eiturs! Frv. var svo samþykt með 8:6 atkv. og vísað til 3. umr Falleyar Hventöskur verða teknar upp í dag. KQtrinViðap Hljóðfæraverslun. Lækjargötu 2. Einokun á bökunardropum. í efri deild voru allmiklar umræður í gær um frumvarp stjórnarinnar um það, að láta áfengisverslunina fá einokun á innflutningi og tilbúningi bök- unardropa, hárvatna, essensa o. fl. Hafði fjárhagsnefnd klofn að. Jón Bald. og Bernh. voru með frv. en Magnús Jónsson móti. Áttust þeir mest við J. Bald. og M. J. Magnús Jónsson sýndi fram á, að ástæður stjómarinnar fyrir frumvarpinu væru eins- kisverðar, svo sem sú aðal- ástæða, að þetta gerði eftirlit með iðnaðaráfengi auðveldara því að stjórnin játar sjálf í Tíma-Gísli ætlar að verða þjóð> inni dýr á Alþingi. Frumvarp Gísla Tímaritstjóra um frystihúsastyrkinn kom til 2. umr. í Nd. í gær. Eins og fyr hefir verið skýrt frá, komst öll landbúnaðar- nefnd Nd., sem fekk frv. til athugunar með þeirri niðurstöðu að það væri gildandi lög, sem Tíma-Gísli fór fram á með frumvarpinu. Var Gísla marg- bent á þetta við 1. umr,, máls- ins, en 'harin þverskallaðist við öllum leiðbeiningum. Landbúnaðamefnd lagði því einróma tíl, að frv. Gísla yrði vísað frá með rökstuddri dag- skrá, þar sem frv. yrði að telj- ast algerlaga óþarft. Þegar málið kom til 2. umr. sýndi Gísli enn á ný fákunn- áttu sína. Hann hjelt því enn fram, að frv. ætti fylsta rjett á sjer, en kvaðst þó láta sjer nægja ef samþ. yrði dagskrá- tillaga landbúnaðarnefndar. — Benti þá Thor Thors Gísla á, að gildandi lögum yrði eigi breytt með rökstuddri dagskrá, en ekki tókst að koma Gísla í skilning um þetta. Þvældi hann málið enn með látlausu málæði og fóru 2—3 klst. í algerlega gagnslausar umr. Um þetta fár ánlega frumvarp. Þegar svo loks var gengið til atkvæða hvarf Gísli skyndi- lega út úr deildinni, en rök- studda dagskráin frá landbn. var samþ. með 23 samhlj. atkv. Það verður dýrt fyrir þjóð- ina, að hafa slíkan þingmann, sem þenna Tíma-Gísla. Smölun. Bæjarlandið verður smal- að á sunnudagsmorgun. Þeim sauðfjárei.o:endum, sem vdja fyrirbyggja rekstur á fje sínu upp í rjett, er ráðlagt. að hafa það í húsi til kl. 11 f. h. Piltur 16>18 ára getur fengið atvinnu við eina af stærstu verslunum bæjarins, nú þegar. Þarf að hafa þessa hæfileika: Efnilegur, siðprúður, ábyggilegur, skrifa vel, góður 1 reikningi. Sjerstök áhersla lögð á góða söluhæfileika ,og lipurð. Eiginhandar umsókn, meðmælum ef til eru, mynd kaupkröfu, sendist A. S. merkt: vGóður seljari". ásamt og í.. Tömatar. Hvítkál, Rauðkál, Gulrætur, Gulrólur Rauðrófur, Blaðlaukur fdtst í Hekla fór í gærkvöldi kl. 10 til Vestuiv og Norðurlands. nierpoofj Astrakan svart og grátt nýkomtð, mjög ódýrt. Einriig Skinnhanskar í g:óðu úrvali. Nýi-Bazarinn. Hafnarstræti 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.