Morgunblaðið - 08.11.1934, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.11.1934, Blaðsíða 7
MORSUÍIBfcÁir Ð 7 Þjóðvinafjelagið og rauðliðar á Alþingi. Dagblað Hriflunga gerir að umtalsefni í gær aðalfund Þjóð- vinafjelagsins, sem haldinn var í Sameinuðu Alþingi í fyrradag. Að þessu sinni ,skal ekki mik- ið rætt um þenna aðalfund, því væntanlega gefst til þess tæki- færi síðar. En þar sem fæstum af fjelögum Þjóðvinafjelagsins mun kunnugt, hvað rauða fylk- ingin, undir stjórn Jónasar frá Hriflu hefir í hyggju er rjett að skýra þeim þegar frá því, að fyrirætlan rauðliða er sú, að gera fjelagið pólitískt og setja yfir það al-rauða stjórn. Jónas frá Hriflu hefir verið að vinna að því undanfarið, að s|);irka dr. Háli Eggert Ólasyni íxr forsetasæti Þjóðvinafj elags- ins og fá dyggan rauðliða í sæt- ið og gera fjelagið um leið póli- tískt, til framdráttar rauðu stefnunni. Og það virðist svo, sem Hriflu Jonas hafi fengið alt stjómar- jliðið í lið með sjer í þessu á- iaupi gegn Þjóðvinafjelaginu, ■>ví öll fyikingin hlýddi þeirri kröfu Jónasar, að fresta skyldi jxtjórnarkosningu í fjelaginu, vegna þess að einn þingmaður úr stjórnarliðinu var fjarver- andi. Og forseti sameinaðs þings, ■Jón Baldvinsson hikaði ekki við að þverbrjóta enn á ný þing- sköp, til þess að þóknast Hriflu- Jónasi. Segir blað Hriflunga, að Ólaf ur Thors hafi látið þau ummæli falla í sambandi við gerræði forseta Sþ., að ,,rjettast væri að fleygja honum úr forsetastól". Hafi Ólafur sagt þetta, þá hafi hann þökk fyrir, því það er Al- þingi til minnkunar, að hafa þann mann í æðstu virðingar- stöðu þingsins, sem með ofbeldi og einræði brýtur þingsköp- í hvert sinn, er hann sest í for- setastól F j é 1 a ísólfs Pálssonar. Mikið fagnaðarefni hlýtur það að vera hverjum söngelsk- tim manni, að nýlega er út kom- ið nótnahefti með um 30 frum- sömdum lögum eftir ísólf Páls- son. Bókin heitir „Fjóla“ og er þar hvert lagið öðru fegurra, flest ljett og fjörug, en önnur alvöruþrungin og viðkvæm. Svo Ijett og lipurt eru lög þessi sam- in, að þau hljóta að gagntaka huga hvers manns, jafnskjótt sem hann kynnist þeim, eins og þau sem áður hafa birst á prenti eftir þenna vinsæla og alþekta höfund, svo sem ,,í birkilaut hvíldi jeg bakkanum á“, „Jeg stóð um nótt við stjórn á völtu fleyi“ og ef vil vill fleiri, er áð- ’ur voru kunn og sem sungin hafa verið mörgum öðrum ís- Iexis.kum lögum oftar. Stefin undir lögum þessum eðeri 'kvæðin, eru eftir ýms bestu ■skáld vor: Matthías Jochums- so»í< Steingrím Thorsteinsson, Jóílc;Thoroddsen, Guðmund Guð ÍSIf mundsson, Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi, Hallgrím Jónsson, Pál Ólafsson, Hannes Blöndal, en flest eftir Freystein Gunn- arsson. Við 6 af lögum þessum er höfundar kvæðanna ekki get- ið, höfundir þeirra mun vera ís- ólfur Pálsson sjálfur. Það er sjerstaklega ánægjulegt og eft- irtektarvert, að sjá hversu kvæðin eiga vel við lögin, en þau munu til orðin á eftir þeim; verið flestöll orkt við lögin eftir á, og eru ýmist ljett og lipur eins og þau eða hugðnæm og viðkvæm eftir anda laganna sjálfra. í öðru hefti mun vera von á jafnmiklum fjölda kvæða og smálaga, eftir ísólf Pálsson, sem ekki hafa birst áður, og eru þau talin engu síður ágæt í sinni röð en þessi. Hjá Isólfi Pálssyni er ljett- leikablærinn og viðkvæmnin mjög áberandi í hverju lagi. Lögin hljóta að verða svo vinsæl alþýðu manna, að hún taki við þeim opnum örmum. GL. Góð kartöfluuppskera Vorið 1933 keypti ekkja, sem þýr á Bxiðum í. Eyrarsveit, dálílið af xit.lendum kartöflum til matar hjá kaupmanni í Btykkishói^i^ Þegar hún hafði geymt þær xpn dálítinn tíma, tók hún eftir þyí að þær voru famar að spíra, og virtist henni spírurnar sjerlega þróttmiklar og fallegar svo hún tók 3 kartöflur er henni þótti sjer staklega fallegar, skar þær í sund- ur og setti niður í gamalt hesthxis haugstæði því pá var búið að setja niður í garoana. Ut af þessum þrern kartöflum fjeklt hún fult þvottafat. Af þessu var geymt. til xitsæðis rximt 1 kg. og sett svo niður í vor, í sama stað. Ut af þessxx rximl. 1 kg. komu í haust 26 kg. af kartöflxxm. Þær sem settar vorvx niðixr voru allar sundur- skornar og ltomu því fremur fá ar xit af hver.jix grasi, en mjög vænar eins og segir sig sjálft. Kartöflur þessar eru hvítar á lit og hnöttóttar að gerð. Salerni í sveitum í Færeyjum. í fyrra setti lögþing Færeyinga heilbrigðissamþykt fyrir alla fær- eyska hreppa. Er þar meðal ann- ars ákveðið að gera skuli salerxxi á hverjum hæ, eftir fyrirsögn heilbi’igðisnefndar, hvenær sem hxin krefst þess.- Ekki nxá kasta salernamykjxx í sorphauga og ekki má mannasaur sjást undir hús- vegg.jum eða x naustunx. Á sxðasta Alþingi var fi'v. um þetta mál felt í neðri deild, þing- inxx til lítils sónxa. Nxi standa Fær- eyingar oss framar í þessu sjá.lf- sagða menningar og heilbrigðis- máli. Það ixxxixj, plíki;, pf þó sagt sje að iielmingur syeitabæja vorra sje salernislaus. Er þetta einn' af svcirtustxi blettuuúm á sveitameiux- iug'unni, se.m oft er verið að guma af, og mikil Imeykslnnai’heUa fyr- ir útlendingá. séin' Ixáfa heimsótt * RIT Jónasar Hallgrimssonar IV farðfrœði og landafræði. Er komið í bókaverslanir. OS.S. G. H. Dagbok. Veðrið (miðvikud. kl. 17) : Lægð armiðja (,744 mm) skamt út af Breiðafiröi. Veldur hún nú hægri S-átt og þíðviðri um alt land en skamt til hafs norður af Vestfj. níun vefa NA:hvassviðri og kuldi, Lægðin mun færast austur yfir norðaiivéft landið í nótt og á morgtui og vindnr ganga jafn harðan til N-áttar. Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn- ingskaldi á NV. Jeljaveður. Max Pemberton kom áf veiðum í gær með 1300 körfur. Hann fór samdægurs áleiðis til Englands. Baldur og Ólafur fórxx vestur í gær. Taka þar hátafisk. Huginn, línuveiðarinn fór hjeð- an í gær. Aflasala. Haukanes hefir selt hluta af afla sínum í Grims- jby fyrir 1059 Stpd. Surprise fór á veiðar í gær. British Pluck fór hjeðan í gær. Olíuskip, sem hjer var með farm til Shell, fór í gær. Eimskip. Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. Goðafoss er í Rvík. Dettifoss var á Reyðarfirði í gær. Brúarfoss var á ísafirði í gær. Lagarfo.ss _exr í Leith. Selfoss fór frá Reykjavík' urn hádegi í gær, á leið til Keflavíknr. Happdrætti Vals. Þessi hlutu vinningana í hlutaveltuhapp- drætti Knattspyrnufjel. Valur: 1. Karl Gixðmxxndsson Bárugötu 9, vétrarforða. 2. Kristleifur Jónsson Bárnstíg 59, málverk. 3. Sigfús Bergmann Njálsgötu 60 olíutunnu. 4. Ásta Kjartansdóttir Grettis- götu 20B 100 kr. 5. Svauhildur Bogadóttir Óðinsgötu 20, 50 kr. 6. Jón Jónsson Laugaveg 161, 50 kr. 7. Bjarni Bjarnason Stýrimanna- stíg 5. farseðil. Sjómannakveðjur. Erum á leið- inni til Þýskalands. Vellíðan allra. Kæi’ar kveðjur Skipverjar á Gull- toppi. Ex’unx á útleið. Vellíðan. Kærar kveðjur. Skipverjar á Þórólfi. Fárþegar með Goðafossi frá Hull og Hamborg: Magnús Kjar- an stórkaupm. og frú, ungfrúrnar Ásta Jóhannesson, Sigurrós Jxxlí- xíxsdóttir og Ingibjörg Bernhöft, frxx Guðrxxix Jónasson, Jón Jóns- son, Gunnar Halldórsson. Ingólf- ur Guðmundsson, Sigfús Gillis, Sverrir Þorbjörnsson, Gunnlaug- ur Ingvarsson. Stúdentafjelag Reykjavíkur heldur aðalfund á Hótel Skjald- breið annað kvöld kl. 9. Hreinn Pálsson. Vegna mikill- ar aðsóknar er fólk vinsamlegast beðið að sækja pántaða aðgöngu- miða fyrir kl. 3 e. h. Eftir þann tjma verða þeir seldir öðrnm. Skeljungur konx t.il Skerjafjarð- ár í gær frá höfmim á Axxstxxr- landi. Á sýningu Kjarvals seldust tvær mvndir í gær, Kvöldsól á Vífils- felli og Hádegismvnd við Vífils- fell. Sölxxverð myndanna var 800 kr. hvor. Sýningin hefir verið vel sótt, hún er opin daglega frá 10 árd. og fram á kvöld. Skarlatssótt er nxi á 9 bæum í Dölum: f Hvítadal, Stóra-Múla, Hvammsdal, Þverdal, Bjarnastöð- um. Kverngrjóti og Fagradal , í Saprbæjarhreppi, Núpi í Skarðs- íhreþþi óg’ Skerðingsstöðum í IIvaimnshrep])i. Veikin er vjðast fremur væg. (F.Ú.). Sjómannakýeðja. Lagðir af stáð tíí’; Þý^kálhfRþ. Vellíðan. Kveðj- li r. ;, SkfþVérjáif á Hannesi !ráð- herrfi. Ungfrú Helene Jónsson og Egild Carlsen skemtu með daris- sýningti að Vífilsstöðum sfðastb laugardag. Hafa sjúklingar þar beðið Morgunblaðið að flyt.ja þeim þakklæti fvrir. Systrafjelagið „Alfa“ lieldur hinn árlega basar til styrktar líknarstarfsemi sinni í dag, fimtu- daginn 8. nóvember í Varðarhús- inu kl. 4 e. h. Allir velkomnir. Á skíðum voru tveir áhugasam- ir skíðamenn á sunnudaginn var, upp undir Hengli. í Innstadal var nægilegur snjór til skíðaferða og hlíðar dalsins víðast, hvar huldar snjó. Mun þetta vera fyrsta skíða- ferð Reykvíkinga á þessum vetri. Séittþbhluti síðastliðins veti’ar var afbrágðsgóður skíðasnjór á fjöll- unx hjer nærlendis, einkunx frá seinni lxlxxta mars og fram yfir hvítasunnu og fóru Reykvíkingar meira á skíðum en dæmi eru til áður. Það verður því sennileg’a rríikið iðkaðar skíðaferðir á þess- um vetri. Erlendur Björnsson hreppstj. Breiðabólsstað á Álftanesi varð sjötugur 3. nóv. s. 1. Hjúskapur. Gefin voru saman í hjónaband af lögmanni s.l. laugar- dag ungfrxx Guðrún Kristjana Elí- asdóttir og Jóhann Pálsson rör- lagningamaður. Heimili ungu hjónanna er á Laugaveg 42. Hreinn Pálsson syngur í Nýja Bíó í kvöld kl. 7V2. Á söng- skránni yerða lög eftir Björgvin Guðmundsson, Sigv. Kaldalóns, Karl Rúnolfsson, Merikanto, Schu- Úiamx, Geéhl, Tosti o. fl. — Hreinn þálsson er fneðal vinsælustu söngv gra ökkar og nxá búast við mikilli aðsókn, því iangt er síðan hann hefir látið til sín heyra. Esperantofjelagið í Reykjavík heldur fund í kvöld kl. 9 að Hótel Skjaldbreið. Þar flytur Þórberg'- ur Þórðarson erindi frá allsherj- ‘arþingi esperantista í Stockhólmi síðastliðið sumar. Fríkirkjan í Reykjavík. Gamalt áheit frá „konu“ 10 kr., afh. af G. Sigurbjornssyni, áheit frá ,’,R“ 2 kr. — Bestxx þakkir. — Ásm. Gestsson. Trúboðsf jelag kvenna heldur 30 ára afmælisfagnað sinn x hxxsi ,K. F. TT. M. föstud. 9. nóv. kl. 7 c, m- Enginn fundup í Betaníu. K. F. U. M. A-D-fundur í kvöld kl. 8%. Markxxs Sigurðsson trje- smíðam .talar. Allir velkomnir. Gullbrúðkaup eiga í dag (8. komin. Ódýr. Géð. BRISTOL. Bankastrætí. nóv.) Guðrún Skaptadóttir og Davíð Jóhannesson frá Stuðla- koti. Vegamótastíg 9. íþróttahús K. R. Útborganir fyr ir það fara fram í skrifstofu fje- lagsins á miðvikudögum kl. 6—7- Ýsuafli hefir orðið rúmlega. 50 þús. kg. minni á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Hann er að- eins talinn á- fimm stöðum í afla- skýrslum, Vestmannaeyjum, Hafn- arfirði, Reykjavík, Stvkkishólmi og Grundarfirði. Útvarpið: Fimtudagur 8. nóvember. 10.00 Veðurfregnir. 12.10 Hádegisútvarp. 12,45 Enskukensla- 15.00 Veðui’fregnir. 19.00 Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19,20 Þingfrjettir. 19,50 Auglýsingar. 20,00 Klukkusláttur. Frjettir. 20,30 Frá útlöndum: „Vængjum vildi jeg berast“ (síra Sigtirð- ur Einarsson). 21,00 Lesin dagskrá næstu viku. 21.10 Tónleikar: a) Út.varpshljóm- sveitin; b) E. Stefánsson: Ein- söngnr; e) Danslög. Flmmburarnir * itierklir. Kalundborg' 5. nóv. E-Ú. Dionne-fimmburarnir í Ontario í Canada eru svo líkir hver öðr- um að læknirinn, sem stundai' þá ljet setja band um hálsinn ’ á þeim, með nafni hvers einK. til þess að þekkja þá sundur. • Flugrit gerð upptæk. } í borginni Teplizt í Tjekkó- slóvakíu gerði lögreglan nýlega upptæk 50.000 kommúnista flugrit og þækur, sem flytja átti i til Þýskalands. Til þess, að sem minsa færi fyrir ritunum voru sum þeirra prentuð með svo sináu letri, að ekki var unt að lesa þau nema með stækkunár- gleri, sem sum voru prentuð á silkipappír. (F.Ú.). nraiðasíH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.