Morgunblaðið - 07.12.1934, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.12.1934, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 7. des. 1934. Smá-aughísingar Athng'ið! íifittar og aðrar kari- luannafatnaðarvörur nýkomnar. Dömusokkar, Alpaliúfur og- fleira. | Alt með besta verði. Einnig' hand- ; unnar hattaviðgerðir, þær einustu, sania stað. Karlmannahattabúðin, I iafnarstræti 18. B Ó K B A N D S-VINNUSTOPA inín er í Lækjargötu 6B (g'engið inn um Gleraugnasöluna). Anna Flygenring. Vil kaupa notuð bóltbands- a nnutæki. Upplýsingar lijá A. S. í Jólatrjeskerti, Jólaborðkerti. Sápubúðin, Laugaveg 36. Jólaborðsdrenglar,- Jólaserviett- í v r, Jóladiskar. Sápubúðin. Lauga-i veg 36. " í Jólakertastjakar, nýjar gerðir. j Sápubúðin, Laugaveg 36. Bifreiðastöð íslands, sími 1540. Mjólkurafgreiðsla Korpúlfs- ♦iíaðabúsins, Lindargötu 22, héfir : ?íma 1978. Meccano er besta jólagjöfin banda dreng yfiar. Verð frá kr. 1.65. Verslun Ingibjargar John- f>on, Lækjargötu 4. . Xcætt' | Langar yður til að heimili yðar ljómi af þrifnaði? Vim gefur þennan Ijóma af því að það hefir sjerstök gæði, sem kölluð eru „tvívirku áhrifin“. Vim er þannig, það vinnur tvent samtímis. Þegar þjer strjúkið því um þá losar það óhreinilidin og nemur þau burt! Það skilur blátt áfram ekki nokkurn blett eftir. Yfirborðið verður blikandi, Látið venjulegt. hreinsi engar rispur eða óhrein horn. Vim dHfí..e!tki hie^a y^lir veitir aðstoðina sem þarf! — biðjið um Vim, tví- virka hreinsiduftið. KaupmenD og lcaupflelog! VIM 1) losar óhreinindin, 2) og hirðir þau svo. góHa, e a* k o m I ð aftur. Stór stofa, með sjerinngangi, í Hafnarfirði, óskast til leigu. Upp- fýsingar í síma 4090, kl. 6—7 síðdegis. M.V. 258-50IC UVER BROTHERS UMITEO. PORT SUNUGHT. ENGLAND, Kjötfars og fiskfars, heimatilbú- 18, fæst daglega á Fríkirkjuvegi S. Sími 3227. Sent heim. Nýjar bæknrs Sögur frá ýmsum löndum, þriðja bindi, 10 sögur, 330 blaðsíður, verð kr. 7.50 í bandi, kr. 10.00; áður komið 1- og’ 2. bindi við sama ....' verði. Sögur handa hörnum og unglingum. Síra Friðrik Hallgríms- Kenslukona: Anna litla, geturðu son safnaði fjórða hefti. Verð í bandi kr. 2.50, áður lcomu út fyrsta, nafnt mjer nafnið á einhverri annað og þriðja hefti. stjörnu ? Anna: Greta Garbo. 0 '0 Btkaverslmi Sigf. Eyanmissraar og Bókabúð Austurbæjar, BSE, Laugaveg 34 Vínber, ágæt tegund. — Aðeins lítið óselt. Eggert Kristjdnsson & Co. §¥STURMR. 63. pund, var ekki hægt að halda versluninni áfram. í meira en öld höfðu fimm ættliðir af góðum og duglegum mönnum unnið og sparað, eins og iðnir íuaurar. Þeir höfðu beitt allri sinni skynsemi og dugnaði tll að grundvalla verslunina sem best og færa út kvíarnar, smátt og smátt. Nei .... jeg get ekki hugsað til þess. Hr. Kraal kvaðst fús til að kaupa húsið og meira að segja talsvert yfir sannvirði, ef hann gæti feng- ið það, eins og það var, með öllum innanstokks- munum. Hann var fyrir skömmu orðinn auðugur og hefir sennilega langað til að eignast hús, sem væri merki gamallar auðlegðai’, sem kynslóðir höfðu safnað saman. Systurnar höfðu ekki annað ráð til þess að kom- ast hjá algerðu hruni, — skuldlausar og meira að segja með svolítinn eignaafgang í reiðum pen- ingum. Lotta fjelst fyrir sitt leyti tafarlaust á þetta fyrirkomulag og Irena símaði, að hún sam- j-ykti það fyrir sitt leyti. Við fluttum okkur í ódýrt gistihús. Ekkert höfð- v:m við með okkur nema fötin, fáeinar bækur og fíðluna. Tvö stór fei’ðakoffort nægðu undir al- eiguna. Lotta tók breytingunni með ró. Mjer liggur við að segja háleitri ró. Ef til vill hefir hún viljað þugga mig með kæti sinni. Jeg hefði svo sem líka viljað hugga hana með því að vera glöð á svip- inn, hefði jeg treyst mjer til þess. Enn í dag, þeg- ar jeg skrifa þessar línur, skelfur hönd mín við tilhugsunina um þennan búferlaflutning okkar. — Jeg blygðast mín að vísu fyrir það, því það er ekki rjett að festa þannig hugann við dauða muni. jeg veit heldur ekki, hversvegna jeg tók mjer það svona nærri, því ekkert átti jeg sjálf af því, sem í húsinu var. En jeg hafði verið þar tuttugu ár ævi minnar. Það var ekki til það horn eða arða á húsgögnunum, sem jeg hafði ekki farið þúsund sinnum yfir með rykþurkunni. Jeg vissi hvað var í hverri dragkistu, í hverjum skáp og á hverri hillu — og auðvitað var jeg ekki bundin við þessa hluti af öðru en því, að jeg hafði haft það svo lengi með höndum. En líklega hefi jeg elskað þá meir en nokkur eigandi hefði getað gert, af því öll mín óuppfylta þrá eftir mínu eigin heimili hafði komið fram, er jeg var að fást við þá. Timmermann-bræðurnir Voru látnir lausir eftir hálfsmánaðar tíma, gegn mjög hárri tryggingu. í blöðunum stóð, að lögfræðingur þeirra hlyti að hafa lagt fram tryggingarfjeð úr eigin vasa, því eftir bankahrunið ætti þeir ekki bót fyrir skóinn sinn. Mörð blöð voru harðorð gegn rjettvísinni fyrir harkalega framgöngu í málinu, því enda þótt bræðurnir væri ekki annað en „snýkjudýr og blóð- sugur á þjóðfjelaginu,“ þá hefði þetta gengið um of út yfir saklaust fólk, sem hefði mist alt sitt. — Timmermanns-bræður væru ekki verstir, því enda þótt þeir hefði gert sjer mat úr peningahruninu á skammarlegan hátt, heldur væri aðrir verri til, sem rjettvísin þyrði ekki að hrófla við, o. s. frv. Um nokkurt skeið var sagt hvað eftir annað, að höfðað yrði sakamál gegn bræðrunum, en lík- lega hefir það verið svæft, því aldrei las jeg neitt um Timmermanns-mál í blöðunum. Tveim árum síðar heyrði jeg, að þeir væru komnir til útlanda. Þeir höfðu löngu fyrir rannsóknina átt að vera byrjaðir að lauma peningum út úr landinu, og nú var sagt, að þeir ættu stórt gistihús suður á Mið- jarðarhafsströnd. Ekki veit jeg, hvort nokkuð var til í þessu. En eins og altaf vill verða, þegar svona stendur* á, höfðu sumir hagnað af falli þeirra bræðra. Þar á meðal hr. Schmiedel. Þegar firmað Kleh, hafði lokið skuldum sínum og var útstrykað af firma- skránni, leigði hr. Schmiedel búðina, sem nu var auð, og stofnaði. firmað Schmiedel. Hann heim- sótti Tucher gamla, aðeins til að skaprauna hon- um og njóta sigurs síns. — Munið þjer, þegar þjer bönnuðuð mjer að kaupa vörur? Og þegar jeg svaraði, að jeg ætlaði að leggja hvern eyri, sem jeg ætti afgangs í vörur. Nú á jeg vörur. Jeg keypti gegn staðgreiðslu og upp á lán, meðan hægt var að fá lán í krónumynt. Jeg rak versl- unina Kleh eftir yðar viti og mína eftir mínu viti. Hvor hafði svo á rjettu að standa? t mínum augum var Schmiedel glæpamaður.-------- í tuttugu og fimm ár var hann í þjónustu föður þíns, endurtók jeg hvað eftir annað við Lottu. — Hann var góður þjónn meðan hann átti húsbónda, sem hann vissi, að gætti hans. — Að heimta meira, sýnir aðeins of litla mannþekkingu. Ef til vill hefir hún haft rjett að mæla. En í mínum augum var Schmiedel drottinssvikari. — Hann er eini maðurinn, sem jeg hata. Aðeins hugs- unin um nafn hans yfir gömlu búðinni okkar, er mjer slík andstygð, að jeg geng aldrei um götuna þar sem gamla húsið okkar er. Jeg fæ aldrei fram- ar að líta það augum. Á þennan hátt varð starf Lottu við leikhúsið, — sem fyrst var draumur og síðan vonbrigði — alt í einu lífsnauðsyn. Kannske var það fyrir bestu. Það lagði í bili taum við metorðagirnd hennar, og í staðinn fyrir stórt takmark og fagnaðarlæti áhorfenda, komu nú smærri takmörk og hagstæðir ráðningarsantn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.