Morgunblaðið - 10.01.1935, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.01.1935, Blaðsíða 3
Fimtudaginn 10. jan. 1935. MORGUNBL'AÐIÐ Tvð skip sfranda í höfninni i ofviðrina i gær. Annað þeirra, líoiiirelðarimn „Noniii64 sokkinn. Suðvestan rok gerði hjer í fyrrinótt og hélst fram á miðj- an dag. — Tveir linuveiðarar Nonni og Sigríður, sem lágu Tið norður hafnargarð'r n drógu festar sínar og rak upp 1 ítafnargarðínn um kl. 10 í gær- morgun. Dráttarbáturinn Magni náði línuveiðaranum Sigriði út og mun skipið ekki mikið skemfl En þegar fjaraði út rann Nonni af garðinum og sökk til hálfs. Skipið hallast mikið, þar sem það liggur, og á flóðinu í gær fell sjór yfir það alt. Líkur eru þó taldar til að hægt veroi að ná skipinu, en það er mikil og erfið vinna og mun skipið all-vskemt. Strangar uavú0arrEglur 'uici atkuæöagrEÍ0sluna í Saar. Vafamálið mesfa: Hvað gera kaþélskir? Nazisfar undfrbúa sigurháfíð. Kpmh. í gær Einkaskeyti til Morgunblaðsins. Þrjú hundruð Þjóðverjar ættaðir frá Saar komu í dag samtímis til Saarbrlicken, til þegs að taka þátt í atkvæða- greiðslunni á sunnudaginn kem »r. Tekið var á móti ferðamanna hóp þessum með miklum fögn- uði. Þessa daga sem eftir er til helgarinnar, er bannað að draga fána á stöng í Saar, og bannaðir allir útifundir. En hvarvetna í búðum eru miklar birgðir af Nazistafán- um, sem eiga að vera til taks við hátíðahöld þau, sem Naz- istar búast við að halda eftir væntanlegan kosningasigur slnn. Feiknin öll eru þar af myndum af Hitler, sem eiga þá að koma fram á sjónarsvið- ið. — Þessa dagana eru allar vín- veitingar bannaðar í Saar eftir kl. 9 að kvöldi. Hafa erlendir blaðamenn, sem staddir eru þar, verið óánægðir yfir því, að geta ekki vætt í góm að kvöldi dags, og hafa beðið um und- anþágu fyrir sig frá veitinga- banninu. En því hefir verið stranglega neitað. Mjög er það brýnt fyrir kjós- endum að þeir megi á engan hátt gefa neitt til kynna um það hvernig þeir ætli sjer að kjósa þegar þeir koma á kjörstað. Ef menn t. d. láta sjer þar um munn fara „Heil Hitler“ eða eitthvað þess háttar þá missa þeir umsvifalaust kosn- ingarjett sinn. Svo mikillar varúðar verður gætt í meðferð atkvæða kass- anna, að þeir verða t. d. fluttir til Saarbriicken á brynvörðum járnbrautarvögnum, en vopn- aðir hermenn halda um þá vörð. Hvernig greiða ka- þólskir atkvœði? Stærsta vafamálið í atkvæða greiðslunni er það, hvernig ka- þólska kirkjan snýst i málinu. Um 70% af öllum ibúum 1 Saar eru kaþólskir. I ræðu og riti hafa Nazistar haldið því fram, að Þjóðverjar í Saar megi ekki í þessu máli . tr í bregðast skyldu sinni gagnvart föðurlandi sínu. Það sje skylda þeirra að greiða atkvæði með því að Saar sameinist Þýska- | landi. Þeir hika ekki við að nefna þá föðurlandssvikara sem at- kvæði greiði með því að stjórn- ; arskipun Saar verði framvegis I hin sama og hún er nú. ( En nýstofnaður flokkur borg aralegra kaþólskra manna held- ur því fram, að með því að greiða atkvæði með „status | quo“, sje frelsi Saarbúa borgið, bæði í stjórnmálum og trú- málum. Þá heldur og þessi flokkur því fram, að enda þótt Saar- búar kjósi í þetta sinn að alt verði við hið sama, þá megi koma því svo fyinr, að síðar fari fram atkvæðagreiðsla um i málið, þegar henta þykir, og þá geti hjeraðið sameinast Þýska- | Iandi. Flokkur þessi segir: Greiðið atkvæði gegn Hitler, gegn kúgun og heiðindómi þeim, sem nú ríkir í Þýska- landi. Munið blóðbaðið 30. júní í sumar, er merkir kaþólskir menn voru drepnir! Páll. Frakkar flytja fje sitt frá 5aar. London 9. jan. FÚ. Mikið er nú farið að flytja af frönskum peningum í Saar til Frakklands. Sagt er að meir en hundrað miljónir franskra frahka hafi verið fluttar þang- að sl. hálfan mánuð, Menn sem eiga þetta fje óttast þáð að ef atkvæðagreiðslan verður með Þjóðverjum, muni Schacht taka franska peninga í Saar, en þeir eru gulltrygðir, en láta í stað- inn þýska seðla, sem engin gull trygging er fyrir. ÍTlÍ5sa þeir borgararjett sinn. Kalundborg 9. jan. FÚ Margir Þjóðverjar frá Banda ríkjunum hafa farið til Saar, til þess að taka þátt í atkvæða- greiðslunni þar. Nú er sagt, að komið hafi til orða í stjórninni vestra, að svifta þessa menn amerískum borgararjetti, ef þeir gerðu alvöru úr því að neyta atkvæðisrjettar síns. Ef úr þessu verður nær það til 5 þúsund manna. Talning atkuœða Berlín 9. jan. FÚ. Kjörstjórn Þjóðabandalagsins í Saar tilkynnir, að talning at- kvæða eftir atkvæðagreiðsluna á sunnudaginn kemur, verði sennilega lokið á mánudags- kvöld, og muni úrslitin þá sam- tímis birt í Saarbriicken og Genf. Hertogahjónin. £ BKlpl Hertogahjónin af Kent á hveiti- bra uðsdaga-f erðalagi. London 9. jan. FÚ. Hertogahjónin af Kent ætla að lúka hveitidrauðsdögum sín- um með ferð til Vestur-Ind- landseyja. Þau fara frá South- ampton 25. jan. og koma aftur um mánaðamótin mars og ap- ríl. Herbúnaður Japana rannsakaður. London 8. jan. FÚ. í Öldungadeild Bandaríkja- þingsins var samþykt áskorun á stjórnina um að láta fara fram rannsókn á vígbúnaði Jap ana á eyjum þeim í Kyrrahafi, sem eru undir þeirra umsjá, en Þýskaland átti áður. Ennfremur, að láta rannsaka það, hvort Japan hefði ekki, með framkomu sinni í Kína, brotið Kellogg- og níuvelda- samningana. 3 Með Lyru komu í gær: Bananar, Appelsínur, 3 stærðir. Epli, 3 tegundir. Sítrónur frá 8 aurum stk, Bardagi út af gróðursetn- ingu trjáa. London 9. jan. FÚ. Mikið uppblaup varð í dag í Colapor í Indlandi og börðust þar Múhameðsmenn og Hind- úar. 9 menn f jellu, meðal þeirra tvær konur, og jnargir særðust. Söfnuður Múhameðsmanna hafði plantað trjám meðfram veginum að musteri þeirra í banni yfirvaldanna, sem höfðu synjað um leyfi til þessarar trjáplöntunar. Þegar verkinu var lokið, komu eftirlitsmenn til þess að skoða það. Mikill mannfjöldi safnaðist saman og bjóst við því að rífa ætti trjen, og tókst bresku yfirvöldúftum með naumindum að afstýra upp hlaupi. Seinna kom hópur af Hindúum á staðinn og sló þá á skömmum tíma í tryltan bar- daga, og var alt haft að vopni, sem í náðist, axir, grjót, sigðir. Lögreglan neyddist til þess að skjóta á múginn áður en það tókst að dreifa honum og lágu þá fallnir menn og særðir eftir á götunni. Yfirvöldin hafa fyrirskipað rannsókn á málinu. Engir breskir embættismenn voru við þetta riðnir. Fólk uill flýja Eyju uegna jarðskjólfta. London 9. jan. FÚ. 1 dag hafa komið til Istam- bul frjettir um landskjálftana sem urðu í vikunni sem leið í nokkrum tyrkneskum borgum og einnig varð vart við í Istam- bul. Landskjálftarnir virðast hafa verið verstir á Marmora eynni. Sagt er að 15 þorp hafi eyðst algerlega, og hundruð manna heimilislausir. Þó er ekki enn vitað um nema 5 menn sem hafa farist. íbúamir á eynni eru svo ótta slegnir af þessum atburðum, að þeir vilja helst flytjast þaðan bui*tu. Fyrsti jarðskjálftinn sem vart varð við að sinni, er tal- inn sá snarpasti, sem komið hefir í Tyrklandi á þessari öld. í Istambul flýði margt fólk húsin, af því að það óttaðist að þau myndu hrynja, og hefst við undir beru lofti. Esja fór í gærmorgun í hring- ferð vestur og norður um land- í matioD i dai: Nýtt hrossabuff. Reykt hrossabjúga. Reykt hrossakjiít. HIBtbúðln Njálsgötu 23. Sími 2648. J5f Smjör, nýtt og gott, frá ýmsum heimilum i Borgarfirði, Haupiielsg Borgfirðlnga, Sími 1511. Ný blðð og magasin, ensk, þýsk og dönsk, einnig Dönsku dagblöðin Politiken, Social-Demokraten, Ekstrabladet, Dagens Nyheder, Berlingske Tidende komu i gær. BákUÍúdúH Lækjargötu 2, sími 3736. Bifreið huolfir. t fyrrakvöld fekk unglingspilt- ur lánaða bifreiðina RE. 117. Var hann með, nokkrum fjelögum sín- um og óku þeir inn fyrir bæinn sjer til skemtunar. Fóru þeir inn eftir Suðurlandsveginum og síðan á afleggjara, sem liggur niður að Sundlaugunum. Síðan óku þeir Laugarnesveginn og ætluðu niður í' bæ. En er þeir ætluðu að beygja á Suðurlandsveginn mun bifreiðin, sem aðeins var með keðju á einu hjóli, hafa runnið til. Valt bún úfc af veginum og hvoifdi. Lögreglan kom þarna að skömmu síðar og hjálpaði piltunum út úr bílnum. Bíllinn er ekki mikið skemdur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.