Morgunblaðið - 10.01.1935, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Appelsínurs
CodoilOS úrvalstegund
240 - 300 - 390 - 504.
Wa§hing(on Kfavel -
steinlausar, ýmsar slærðir
írá 144 III 300.
Komu með „Lyra‘\
I. Brynjólfsson & Kvaran
Verðlakknn
Strausykur 0,20 */2 kg.
Molasykur 0,25 l/2 kg.
Kaffi, 0. J. & K. 1.00 pk.
Export, L. D. 0,70 st.
Fyrsta fl. ísl. Egg á 16 og 18 aura.
Allar aðrar vörur með lægsta verði
Veriiunin LQghern.
Holtsgötu 1.
Til bíla:
eru ávalt fvn'rliggjandi allir nauðsynlegir vara-
hlutir, svo sem allskonar leiðslur, ódýrir en ending-
argóðir rafgeymar, stefnuljós, dynamóar, startarar,
perur, vatnskassaþjettir, frostlögur, hemluvökvi,
ryðolía, haldbesta gljábónið LINCOLN, keðjur,
COODYEAR bílagúmmí og ótal margt fleira.
Með tækifærisverði seljast margar tegundir bíl-
fjaðra. —- Einkunarorð GÓÐAR VÖRUR. —
FI.JÓT AFGREIÐSLA
P. Stefánsson
Lækjartoigi 1.
I
Gfiðo fiiettiroor frð
Versl. Vísir
umi að sykurinn
hafi lækkað i verði,
hafa gert mörgum
— Tg 1 a 11 i geði. --
Versl. Vlslr. Vfslr fltbú.
Laugaveg 1.
Fjölnisveg 2.
Llutans, taka það fram, að það er
dálítið skoplegt, þegar meiribluta-
mennirnir þykjast bera uznhyggju
fyrir bættri verslunaraðstöðu smá-
útvegsmnnna því cininitt þessir
þremenningar í meirihlutanum
hafa allir neitað að vera með-
flutningsmenn að frumvarpi milli-
þinganefndarinnar nm rekstrar-
láhafjelög, þrátt fyrir það að at-
vinnumálaráðherra mælti nxeð því,
að sjávarútvegsnefnd flytti það.
Þá ségir meirihlutinn að minní-
liluti sjávarútvegsnefndar vilji
velta skuldum útgerðarihnar yfir
á ríkissjóð, án þess að gera ráð-
stafanir til þess, að skipin verði
endurnýjuð.
Bæði þessi atriði ern bein ó-
sannindi, og sannanlega vísvit-
andi.
í frumvarpinu um skuldaskila-
sjóð útgerðarmanna er ekki gert
ráð fyrir að ríkissjóðnr leggi fram
einn einasta eyri til skuldaskil-
Snna. Þar er gert ráð fyrir að út-
gerðin leggi fram alt stofnfje
Skuldaskilasjóðs, að undanskil-
inni y± milj. króna sem Fiski-
veiðasjóði er ætlað að leggja fram,
en útgerðin greiðir honnm aftur.
Hitt er annað mál, að gert er ráð
fyrir að hætt sje að taka útflutn-
ingsgjöld í ríkissjóð af útgerðar-
vörnm, hvort sem skuldáskilasjóð-
ur er stofnaður eða ekki.
Jafn gróf ósannindi eru það, að
ekki sje gert ráð fyrir því, að út-
gerðartækin verði endurnýjuð.
Um það hlýtur nefndarmönnum í
meirihlutanum að vera kunnugt,
zví ekki er svo langt síðan þeir
neituðu að vera meðflutningsmenn
að frumvarpi milliþinganefndar-
innar um Fiskveiðasjóð fslands-
En með því frv. éru gerðar ráð-
stafanir til endurnýjúnar alls fiski
flotans'.
Jeg hirði ekki að svara níði því
um útgerðarmenn, sem hnoðað er
inn í þetta álit meirihlutans. Það
er lítið annað en upptugga gam-
alla blaðalyga, sem löngu eru
kveðnar niður af staðreyndunum
sjálfum. En ekki get jeg stilt
mig um að benda á ósamræmið hjá
xeim, sem lagt hafa það fyrir sig
að rógbera atvinnurekstur útgerð-
armanna.
Fram til þessa hefir það verið
aðalkraftur þess rógburðai’, að út-
gerðarmenn væru auðkýfingar.
Þeir rökuðu saman fje, og notuðu
>að til að lcúga alþýðnna og níð-
ast á henni. Með þeim rökum hafa
menn verið eggjaðir til öfundar
og fjandskapar í garð útgerðar-
manna. En nú þegar það er ómót-
mælanlega sanxxað, að útgerðar-
menn eru fjelausir menn, sem
berjast vonlítilli baráttu fyrir lífi
sínu, og fyrir því, að halda uppi
atvinnurekstri, sem stendur nær
íví einn undir bixrekstri ríkisins
og brauðfæði nál. helming þjóðar-
innar, þá er snúið við blaðinu, og
>eir rægðir fyrir það, að þeir sjeu
öxæigar og ætli að verða ríkinu til
yngsla.
Þessar rökléysur væru til stór-
únkunnar hverjum þeim sem
nokkrum sóma hefði að glata.
Mjer er það ljóst, hverja af-
greiðslu þetta frv. fær í þetta
sinni. Það verður ekki samþykt á
xessu þingi. Þó getum við flutn-
ingsmenn þess að nokkru leyti
rósað sigri. Þixsumlir manna um
land alt hafa gerst meðflutnings-
rnenn þess að vissu leyti, hafa
sent þinginu fastar áskoranir um
að samþykkja það. Fólkið við
sjávarsíðuna hefir tekið málið að
Sjer, og mun vissulega brjóta
þrjósku og óvild stjórnarliðsins á
bak aftur. Báðir bankarnir, Lands
bankinn og Útvegsbankinn; hafa
cbeinlínis tjáð sig málinu fylgj-
andi, og Landsbankinn hefir sjer
staklega lofað því, að sýna út
gerðarmönnum biðlund, þar til Al-
þingi sinnir þessum kröfum þeirra.
Stjórnarliðið hefir og skilið ó-
Sigur sinn, og lofar því nú, að
ganga flutníngsmönnum til handa
á næsta þingi. Okkur flutnings
mönnum hefir tekist að hræða and
stæðingana, og það eigum við að
þakka drengilegri liðsemd fólksins
við sjávarsíðuna.
Um dagskrártillöguna, sem fyr
u' hendi liggur vil jeg segja það,
að auðvitað get jeg ekki verið
því mótfallinn, að þingið fyrir
skipi stjórninni að sinna málefn
um útvegsins, þar á meðal áð und-
irbúa skuldaskil bátaútvegsins. En
sökum þess, að jeg tel að meðferð
þingsins á þessu stórmáli hafi ver-
ið alveg óforsvaranleg, og að frá-
vísun þess sje áframhald þeirrar
alveg ósæmilegu meðferðar á mál-
inu, mun jeg ekki greiða dag-
skrártillögunni atkvæði.
Orðuregn
1. desember.
Hinn 1. desember síðastliðinn
voru neðantaldar konu? og
mt-nn eftir tiHöguru Fálkaorðu-
nefndarinnar ssinul af konungi
he'ðursmerkjum orðunnar, sem
hjer segir:
A. Stórriddarakrossinum
(án stjörnu):
Sendiherrafrú Georgia Björns
son, Khöfn. Davíð Sch. Thor-
steinsson, fv. hjeraðslæknir,
Rvík. Eggert Claessen, hrm.,
formaður stjómar Eimskipafje-
lags lslands og yfirmaður Odd-
fellowreglunnar á Islandi, Rvík.
Einar Stefánsson, skipstjóri,
Rvík. Guðmundur Finnbogason
dr. phil., landsbókavörður,
Rvík. Gunnlaugur Claessen, dr.
med., Rvík. Júlíus Júliníusson
skipstjóri, Khöfn. ólafur Lár-
usson prófessor, Rvík. Richard
Thors, framkvæmdastjóri, Rvík.
Sigurður Kristinsson, framkv.-
stjóri, Rvík. Sigurður Kristjáns-
son, bókaútgefandi, Rvík. Sig-
urður Nordal, dr. phil., próf.,
Rvík. Sigurður P. Sivertsen,
vígslubiskup, próf., Rvík.
B. Riddarakrossinum:
Frú Kristín Ólafsdóttir, Nesi
á Seltjarnarnesi. Ásmundur Ól-
afsson, prófastur, Hálsi í
Fnjóskadal. Guðmundur Frið-
jónsson, skáld, Sandi. Guðmund
ur B. Jónsson, sjálfseignar-
bóndi, Sveinseyri. Jón Pálsson,
fv. bankagjaldkeri, Rvík. Jón
Sigurðsson, skrifstofustjóri Al-
þingis, Rvík. Magnús Gíslason,
hreppstjóri, Eyhildarholti.
Magnús Stefánsson, sjálfseign-
arbóndi, Flögu í Vatnsdal.
Martin Bartels, bankafulltrúi,
Khöfn. Ólafur Finsen, hjeraðs-
læknir, Akranesi. Pjetur Ing-
jaldsson, skipstjóri, Rvík. Ste-
fán Sandholt, bakarameistari,
^Fimtudaginn 10. jan. 1935.
Sjóðstofnanir
af dánarbúi B. H.
Bjarnason kaupm.
Rektor Háskólans hefir boriflt,
tilkynning um eftirfarandi dán-
gjöf:
B. H. Bjamason kaupmaður
hefir með arfleiðsluskrá sinni og
konu sinnar frú Steinunnar H. ,
Rjamason, dags. 25. sept. f. á., á*
nafnað: .jj
1- Slysa varnaf j elagi íslanda
5000 — fimm þúsund krónur til
björgunarráðstafana á Vestfjörð- ;
um, og
2. stofnað styrktarsjóð, er heit-
■. - * ' éJ
ir „Framfarasjóður B. H. Bjarna-..
sonar kaupmanns" með 25.000 ,.-t—, ,-r
tuttugu og fimm þúsxxnd króna
höfuðstól.
Sjóðnum skal stjómað af,
þriggja manna nefnd og skulu
nefndarmenn kosnir til þriggja
ára í senn, og jafnmargir til vara,
einn af Háskólaráði, annar a£
Verslunarráði og þriðji af Iðn-
ráðinu og sje fulltrúi Háskólana
íormaður nefndarinnar.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
karla og konur af öllum stjettum^.
lærða og leika, sem lokið hafa
hafa prófi í gagnlegri námsgrein
og taldir eru öðmm fremur efni-
iegir til framhaldsnáms, sjerstak-
hga erlendis.
Verja má alt að 4/5 — fjórurn
fimtungum — af ársvöxtum sjóðs-
ins til styrktar efnismönnum, og-
getur styrkþegi notið styrksins
slt að 2 árum í senn. En afgang-
ur ársvaxtanna, 3/5, leggist ár-
.1 V/ '<
lega við höfuðstólinn, sem aldre*
má skerða.
Að öðru leyti skulu skiftafor-
stjórar búsins semja skipulagá-
skrá fyrir sjóðinn og hlutast til
um útvegun kgl. staðfestingar á. ,
skrána.
Háskólaráðið hefir þegar kosiS
próf. Ágúst H. Bjaraason sem for-
!i ann nefndar þeirrar, er um get-
ur
Þak fýkur af húsi
á Skagaströnd.
í dag fauk þak af íbxiðarhúsi á
Skagaströnd. Húsið var byggt ur
steinsteypu með skúrþaki. Tók
xakið í heilu lagi ásamt öllum:
bitum og kom niður 15—20 metra
írá húsinu. Engin meiðsl eða aðr-
ar skemdir hlutust. Panel var sleg-
ið neðan á loftið og sjerstaka bita
cr það hið eina er skýlir. Búist er
við að flytja verði úr húsinu. Ofsa-
veður af vestri var í dag með-
hríðarjeljum en snjókoma lítíl.
Enskur stýrimaður
látinn hjer við land.
Norðfirði, 9. .jan. FÚ.
Grimsbytogarinn „Fifinella11
kom hingað til Norðfjarðar í fyrra
Ivvöld, með dáinn stýrimann sinn.
Hann hafði orðið bráðkvaddur xit
af Gi-imsey, aðfaranótt mánudags-
xns- Líkið var kistnlagt hjer á.
Norðfirði, og sent út með skipintt
í fyrrinótt.
Rvík. Sigurður Jónsson, skóla-
stjóri, Rvík. Valdemar V. Snæ-
varr, skólastjóri, Neskaupstað.