Morgunblaðið - 15.03.1935, Qupperneq 7
Fltotiidaginn 15. mars 1935.
M 0 RGUNBLAÐIÐ
II
■mmsm
Aövörun
til fúkúfflytjenda.
Samkvæmt B. gr. laga nr. 76, 29. desember 1934 um
fiskimálanefnd, útflutning á fiski, hagnýtingu markaða
o. fl., má enginn bjóða til sölu, selja eða flytja til útlanda
fisk, nema með leyfi fiskimálanefndar.
Samkvæmt þessu má enginn gera bindandi sölutilboð
um fisk, nje semja um sölu á honum til útlanda nema hann
hafi áður fengið útflutningsleyfi.
Þegar sótt er um útflutningsleyfi verður að tilgreina
ákvörðunarstað, ákveðið verð miðað við fisktegund, magn
og stærð fisksins.
Brot gegn fyrirmælum þessum varða sektum sam-
kvæmt ákvæðum tjeðra laga.
FISKIMÁLANEFNDIN.
Gylden Axe
haframföl
í 50 kg. pokum fyrirliggjandi.
Báta.
nothæfa vftð færeyskl fiskiskflp
vantar.
Uppl. hjá O. Eíiingsen og hjá Slíppfjelaginu.
Dsnsklúbbur Revklovfkur.
< >4-'i.
Dansleikur að Hótel Borg, laugardaginn þ.
23. mars. — Meðlimir klúbbsins eru vinsam-
lega beðnir að tilkynna þátttöku sína sem
fyrst í Tóbaksverslunina „LONDON“.
STJÓRNIN.
ViilafalgarinB
handtekinn.
Hefir falsað 11 víxla.
Lögreglau hefir nú náð í Bene-
dikt Jóhannsson, sem falsaði víxl-
ana. Var hann kominn ,til Grinda-
víkur, og var hreppstjóranum g-erð
boð að handtaka hann og flytja
liingað til bæjarins.
Kom hann með manninn í gær-
morgun til bæjarins, og var Bene-
dikt úrskurðaður í gæsluvarðhald.
•Tónatan Hallvarðsson, lögregln-
fuiltrúi tók Benedikt í yfirheyrsl-
ur í gærmorgun og játaði hann þá
að hafa falsað 11 víxla, 8 í Lands-
bankannm og 2 í Útvegsbankan-
um, en 1 hafði hann falsað í sum-
ar og ætlaði að selja, en tókst það
ekki.
Víxlarnir í Útvegsbankanum
«arn að upphæð 780 og 150 krónur
og hefir hann frámlengt hærri
víxlinum tvisvar sinnum.
Víxlarnir í Landsbankanum eru,
eins og áður er sagt, 8 talsins.
Giskaði hann á upphæðir þeirra og
lielt þær vera frá 80 krónum upp
í 350. Annars fekk Jónatan Hall-
varðsson skýrslu frá Landsbank-
anum seinni hluta dagsins í gær, en
hann var ekki búinn að kynna sjer
hana er blaðið átti tal við hann.
Nafn Ingimundar Jónssonar
hefír B. J. falsað á 4 víxla. Báða
víxlana í Útvegsbankanum og 1 í
Landsbankanum, auk þess á víx-
ílinn, sem honum tókst ekki að
selja. Hin nöfnin, sem hann hefir
falsað eru: Nafn Einars Gísla-
sonar í Leirárgörðum á 5 víxla,
nafn Þorleifs Sívertsens úrsmiðs
á 1 víxil og nafn Guðmundar bróð-
ur sins, sem á heima uppi í Borg-
arfirði.
Benedikt hefir áður lent í á-
fesgislagabroti og smáþjófnaði.
^langanesiM
bfargað.
f gænnorgnn fann færeyska
fískiskipið „Nelly“ fiskiskipið
„Langanes“ á reki suður af
^eykjanesi.
Skipverjar á „Langanesi“ yfir-
■gáfu skipið á mánudagskvöld.
Hafði það fengið á sig brotsjó,
■er braut báðar siglur, tók íit báða
skipsbátana og- laskaði skipið
Tneira, svo að talið var víst að
það mundi sökkva.
Bjargaði færeyska fiskiskipið
„Mignonetta* ‘ skipver jum af
„Langanesi“ og fór með þá til
Vestmannaeyja og’ ætluðu þeir
utan með Goðafossi.
„Nelly“ tók „Langanes“ í eftir
<lrag og var væntanleg með það
hingað í nótt.
Verkfallinu við Normandie
afstýrt.
London, 13. mars. FÚ.
Verkamenn, sem vinna við að
fullgera franska stórskipið Nor
mandie, hjeldu fund með sjer
seint í kvöld, og tóku%þá ákvörð
un, að hefja ekki verkfall, en
ganga að þeim skilyfðum um
kaup fyrir eftirvinnu, sem þeim
voru boðin.
Árásarmenn dæmdir.
í gær kvað lögreglustjóri upp
dóma yfir piltunum sem rjeðust á
konuna á Laufásveginum um dag-
inn. Aðalmaðurinn, Stefán Agnar
Magnússon og Mons Olsen, voru
dæmdir í 8 mánaða betrunarhúss-
vinnu, óskilorðsbundið. Hinir þrír,
sem með þeim voru, þeir Alfred
Haraldur Antonsen, Hannibal Þor-
lákur Guðmundsson og Ólafnr
Óskar Guðmnndsson, voru dæmd-
ir í 6 mánaða fangelsi við venjn-
legt fangaviðurværi, skilorðsbund-
ið. — Einnig voru dæmdir tveir
piltar, sem lent höfðu í þjófnaðar-
máli með Alfred. Guðmundur Jón-
asson var dæmdur í 30 daga fang-
elsi, venjul. fangaviðurværi, óskil-
orðsbundið og Jón Jóhannesson í
15 daga fangelsi, skilorðsbundið.
Dagbók.
I. O. O. F. 1 s 1163158*/* —XX
Veðrið (fimtud. kl. 47): Yfir
íslandi og fyrir norðaustan land
er grunn lægð, sem veldur hægri
N-lægri átt nm mestan hlnta lands
ins. Aðeins á SA-landi er vindur
SV-Iægur. Hiti er 2—5 st. á S- óg
A-landi en um frostmark annars
staðar. Ný lægð er að nálgast úr
suðvestri. og mun valda vaxandi
A—SA-átt hjer á landi í nótt og á
morgun með rigningu a. m. k.
sunnanlands.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass SA eða A. Rigning öðru
hvoru.
Leifur Einarsson harmoniku-
leikari kom að Lauganesspítala
8.1. sunnudag og skemti sjúkling-
um þar með harmonikuspili. Sjúkl-
ingar hafa beðið Mbl. að skila
kæru þakklæti fyrir komuna.
Eimskip. Gullfoss fer frá Kaup-
mannahöfn í dag. Goðafoss fór frá
Vestmannaeyjum síðdegis í gær, á
leið til útlanda. Brúarfoss er í
London. Dettifoss fór vestur og
norðnr í gærkvöldi kl. 10. Lagar-
foss • á Skagaströnd í gær-
morgun. oelfoss er í Reykjavík.
Farþegar með e.s. Dettifossi
vestur og norðnr í gærkvöldi:
Rannveig Tómasdóttir, Guðrún
Jónsdóttir, Ingvar Guðjónsson,
Ólafur Jónsson, .Tón Kristjánsson,
síra Jón Jóhannesson, Kristinn
Guðlaugsson, Jón Fjalldal, Jónas
Tómasson, Aðalsteinn Richter,
Herr A. Larsen, Capt. A. Andres-
sen, Garðar Jóhannesson, Guðrún
Bjarnadóttir, Sigrún Pálmadóttir,
Hulda Ólafsdóttir, Príða Torfa-
dóttir, Magnús Konráðsson, o. fl.
í . trjágarði . Hressingarskálans
eru trjen farin að springa út og
bletturinn er grænn undan snjón-
um. 1 gær var í fyrsta sinn á vetr-
innm drukkið kaffi þar úti.
Allar K. R.-æfingar falla nið-
ur í dag- í K. R.-húsinu, vegna
skreytingar á húsinu fyrir afmæl-
ishátíðina, sem haldin verður ann-
að kvöld.
Lántakan í Englandi. í ensku
blaði segir um það leyti, sem nýa
lánið var tekið í Englandi, að frá
íslandi komi ekkert annað en lán-
beiðnir og loftlægðir.
Goðafoss var í Vest.mann.aeyj-
um í gær og tók þar til útflutn-
ings 130 smálestir af lýsi, 2000
pakka af saltfiski og nokkuð af
ísuðum fiski.
Mokafli var í Vestmannaeyjum
í gær og hefir verið þar að undan-
förnu þegar á sjó hefir géfið.
Leikkvöld Mentaskólans. gjón-
leikurinn „Henrik og Pernilla“
verður sýndur í Iðnó í kvöld. 1
blaðinu í dag er ritdómur um
fyrstu leiksýninguna.
Þorsteinn Símonarson eand. jur.
liefir verið settur sýslumaður í
Barðastranda rsýsl u. Hann hefir að
undanförnu gegnt sýslutnanns-
störfum þar í f jarveru Bergs Jóns-
sonar.
Allir Reykjavíkurbátarnir voru
á sjó í gær og öfluðu dável.
Betanía. Föstuguðsþjónusta verð
ur í kvöld kl. 8Bjarni Jónsson
talar. AUir velkomnir.
Hjónaefni. í gær opinberuðu trú
lofun sína ungfrú Emilia Frið-
riksdóttir frá Súðavík og Ingimar
Sigurðsson, garðyrkjum., Fagra-
hvammi.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Áheit frá ónefndum 2 kr.; afh. af
S. Á. Gíslasyni, frá S. Sigurjóns-
syni frá Brandon fyrir gömnl frí-
merki 2 kr. Kærar þakkir. 01. B.
Björnsson.
Húsmæður. Munið, að skrif-
stofa Húsmæðrafjel. í Lækjar-
torgi 1, annarri hæð, herbergi 11,
er opin frá kl. 5—7 daglega. Á
þeim tíma verða skírteini afhent
og þangað geta konur sótt upp-
lýsingar. Sími 4292.
1686 er símanúmer kosning'a-
skrifstofu útvarpsins.
Eftir nánari fregnnm, sem blað-
ið fekk í gær um fráfall Þorfinns
heitins Jónssonar, fanst lík hans
ekki við Rauðavatn, heldur í liolti
skamt suðaustan við Baldurshaga.
Frakkneski sendikennarinn, nng-
frú Petibon, flytur í kvöld kl. 8
fyrirlestur í Háskólanum um „la
Raee francaise“.
Silfurbrúðkaup áttu h þriðjn-
daginn var frú Guðrún og Sigurð-
ur E. Hlíðar, dýralæknir, á Aknr-
eyri. Höfðu þáu boð inni á Hótel
Gullfoss, og var sest undir borð
klukkan 18. Boðið sátn alls 47
manns. Aðalræðumenn vorn Sig-
urður Eggerz bæjarfógeti, síra
Friðrik Rnfnar sóknarprestur og
Böðvar Bjarkan lögmaður. Síðar
nm kvöldið buðu þau gestTmum
heim á heimili sitt og var setið
undir kaffiborðum, við ræðuhöld
og söng, til kl. 2 um nóttina.
(F.Ú.).
Kosningaskrifstofa útvarpsins.
Kosning í útvarpsráð fer nú fram
í húsi Páls Stefánssonar við Lækj-
artorg (þriðju hæð), kl. 1 til 5 og
kl. 6 til 8. Sjálfstæðismeim látið
ekki dragast að koma þangað og
kjósa B-listann. Skrifstofan er
ekki opúi á sunnudögum.
Sparisjóðnr Akureyrar. Síðast-
liðinn sunnndag var haldinn aðal-
fundur Sparisjóðs Aknreyrar. —
Endurskoðaðnr reikningnr sjóðs-
ins fyrir síðastliðið ár var lagður
fram og samþyktur. -— Niðnr-
stöðutölur reikningsins voru
310.522.81 kr. — Þar af varasjóð-
ur 18.300.00 krónur. — Á árinu
voru keyptir víxlar fyrir kr.
346.569.67, veitt sjálfskuldarlán
kr. 42.500.00. Ágóði lagður við
varasjóð var 5000.00. Stjórn
sjóðsins skipa O. C. Thorarensen,
Sverrir Rngnars og Jón Guð-
múndsson. (F.Ú.).
Lindbergsmálið. Nýlega hafa
menn fundið tvo af seðlnm þeim,
sem voru í lausnarg jaldinu er
Lindbergh greiddi bófunum. Fund-
ust þeir í umferð í Boston. Geta
menn sjer þess til, að þetta geti
haft áhrif á mál Hauptmanns.
Kolaskip, sem hjer hefir verið
undanfarið, fór í gær.
Sjálfstæðismenn! Látiö ekki
dragast að greiða atkvæð' á kjör-
stofu útvarpsíns við Latkjartorg
og kjósa B-listann.
Magnús Jónsson alþm. þaif að
komast i útvarpsráð. Sj ilfstæðis-
menn geta komið honum að, með
því að fjölmenna í kjörstofu út-
varpsins við Lækjartorg og kjósa
B-listann.
Útrýming f járkláðans. í fyrra
dag var lokið akvæðagr. í Nd.
um breytingartillögur við frv.
landbúnaðarnefndar um útrým
ing fjárkláðans. Feldar voru
með 14:13 atkv. tillögur P.
Ottesen og Þorbergs í Hólum,
uni að fyrirskipa árlega þrifa-
böðun með ströágu eftirliti, í
stað útrýmingarböðunar. En
samþ. var með 16:12 atkv. til-
laga frá Gísla Sveinssyni um
það, að skylt væri að undan-
skilja þau hjeruð frá útrým-
ingarböðun, þar sem fjárkláða
hefði ekki orðið vart í 5 ár.
Fyrirspurn. Hvernig stendur á
því, að hætt er að útvarpa eftir-
miðdagshljómleikum frá Hótel fs-
land? Þeir voru mjög skemtiíegir
og vinsæUr. Mjer finst útvarpið ,
hafa alveg nóg af ,.dósamúsik“,
þó það taki þá nothæfa lifandi
músik, sem völ er á.
Útvarpsnotandi.
Farsóttir og manndanði í Rvík,
vikuna 24. febr. til 2. mars (í
svigum tölul' pæstu viku á und-
an) : Hálsbólga 174 (147). Kvef-
sótt 374 (167). Kveflungnabólga
2 (4). Stingsótt 3 (1). Iðrakvef 22
(6). Inflúensa 9 (11). Taksótt 4
(1). Skarlatssott 1 (1). Munnang-
ur 4 (3). Heimakoma 7 (2).
Raupabóla 1 (3). Ristill 1 (2).
Þrimlasótt 1 (0). Kossageit 1 (0).
Mannslát 14 (12). Þar a£ 3 utan-
bæjar.. — Landlæknisskrifstofan.
(FK.y,